Morgunblaðið - 26.04.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1979
5
Flytjendur og undirleikari „Segðu mér söguna aftur'
„Segðu mér
söguna aftur”
Söng- og upplestrardagskrá um
börn í íslenskum bókmenntum
UPPLESTRAR- og söngdag-
skrá um börn í íslenskum bók-
menntum verður í fyrsta skipti
flutt á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins í kvöld, fimmtudagskvöld.
Dagskrá þessi hefur hlotið heit-
ið „Segðu mér söguna aftur“.
Dagskráin er að nokkru til-
komin í tilefni barnaárs en er þó
einkum ætluð fuliorðnum, og
fjallar um börn og samskipti
þeirra við fullorðna eins og þau
birtast í íslenskum skáldskap.
Efnið er frá ýmsum tímum og af
margvíslegu tagi. Höfundar
þess eru milli 20 og 30 talsins og
meðal þeirra eru Halldór Lax-
ness, Gunnar Gunnarsson,
Jónas Arnason, Jakobína
Sigurðardóttir, Steinn Steinarr,
Stefán Jónsson, Pétur Gunnars-
son, Sigfús Halldórsson, Ragnar
Bjarnason, Svavar Gests, Karl
Möller o.fl.
Guðrún Þ. Stephensen hefur
haft umsjón með dagskránni og
valið efnið í samráði við átta
leikara aðra sem fram koma.
Þeir eru Anna Kristín Arn-
grímsdóttir, Bríet Héðinsdóttir,
Bryndís Pétursdóttir, Gunnar
Eyjólfsson, Hákon Waage,
Helga Bachmann, Þóra Frið-
riksdóttir og Ævar R. Kvaran.
Undirleikari er Carl Billich.
Sýningar á „Segðu mér
söguna aftur" verða sem fyrr
segir á Litla sviðinu í leikhús-
kjallaranum og munu leikhús-
gestir sitja við borð og verður
unnt að fá veitingar framreidd-
ar á borðin. Þá kemur einnig til
greina að flytja dagskrána utan
leikhússins.
Akranes:
Skipin að búast
á kolmunnaveiðar
Akranesl, 25. aprfl.
AFLI báta þeirra sem veiða í
þorskanet hefur verið frá 6—8
lestir þegar netin eru dregin
daglega. Rán AK 35 kom til
hafnar með 21 lest af blönduðum
fiski eftir 3 sólarhringa úthald á
togveiðum. Togarinn Haraldur
Böðvarsson kom inn þann 20.
apríl með 138 lesta afla, það var
blandaður fiskur. Togarinn
óskar Magnússon er væntanleg-
ur af veiðum á morgun.
Vs. Árni Sigurður stundar
spærlingsveiðar fyrir sunnan land
og hefur aflað vel. Fer aflinn í
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjuna
til vinnslu. Vs. Víkingur og Vs.
Bjarni Ólafsson búast nú á kol-
munnaveiðar og fara væntanlega
næstu daga á Færeyjamið. Kol-
munninn verður seldur í Hirtshals
í Danmörku. Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjan lauk við loðnu-
bræðslu í dag og í sambandi við
það má geta þess að hinn mikli
reykháfur hennar hefur reynst í
flestum tilfellum fær um að færa
peningalyktina upp í loftið. Akra-
borgin hefur stöðvazt um óákveð-
inn tíma vegna verkfalls og synj-
unar um undanþágu og er það ekki
gott á þessum tíma. — Júlíus.
Kanna stöðu húsnaeð-
ismála í Reykjavík
FÉLAGSFRÆÐILEG rann-
sókn á stöðu húsnæðismála í
Reykjavík stendur yfir um
þessar mundir og annast
hana Ingi Valur Jóhannsson
og Jón Rúnar Sveinsson þjóð-
félagsfræðingar. Er rann-
sóknin þannig framkvæmd
að um 2.000 fjölskyldum hafa
þegar verið sendir spurninga-
listar varðandi húsnæði
þeirra.
í frétt frá Húsnæðismála-
stofnun ríkisins segir að rann-
sókn þessi sé hin víðtækasta
sem fram hafi farið á íslandi á
þessu sviði og markmið
hennar sé að bæta úr því að
skort hefur vitneskju um
veigamikla þætti húsnæðis-
mála. Megi telja augljóst að
aukin þekking á þessum efn-
um sé nauðsynlegur liður í
umbótum og stefnumótun á
sviði húsnæðismála. Segir
einnig í frétt Húsnæðismála-
’stofnunar að rannsakað hafi
verið fyrir 50 árum ástand
húsnæðismála og á niðurstöð-
um hennar hafi verið byggt
þegar Alþingi samþykkti lög
um verkamannabústaði árið
1929. Niðurstöður rannsókn-
anna verða birtar í skýrslu, en
þjóðfélagsfræðingarnir nota
rannsóknina sem efnivið til
doktorsritgerðar um byggða-
þróun.
Félagslegar umbætur:
Ekkert undarlegt þótt
menn verðí óþolinmóðir
Verkakvennafélagið Snót í
Vestmannaeyjum lagði niður
vinnu kl. 17 á föstudag eins og
frá var skýrt í Mbl. á sunnu-
dag og með þessari eftirvinnu-
stöðvun lögðu félagar í Snót
áherzlu á að dregist hefði að
þeirra mati að félagslegar
lagfæringar kæntu til fram-
kvæmda sem lofað hefði verið
að koma myndu þegar gefin
var eftir 3% kauphækkunin
sem verða átti í desember sl.
Mbl. hafði samband við verka-
lýðsleiðtoga í gær og spurðist
fyrir um hvort í þeirra félög-
um hefði orðið vart óþolin-
mæði eftir þessum félagslegu
atriðum.
— Þeir sem hafa haft trú á
að þessi félagsmálapakki
myndi koma eru sjálfsagt
orðnir mjög óþolinmóðir, sagði
Pétur Sigurðsson formaður
Alþýðusambands Vestfjarða,
honum var fyrst lofað í jóla-
gjöf, sem síðan mátti ekki opna
og síðan sem páskaeggi, sem
ekki heldur var opnað. Nú
þegar komið er fram á sumar
er ekkert undarlegt þótt menn
verði óþolinmóðir.
En ég hefi alltaf sagt að
þessi félagsmálapakki komi
segir Pétur
Sigurðsson
ekkert eftirgjöf á kauphækkun
við, kauphækkunin var gefin
eftir að mínu mati til þess eins
og halda lífi í ríkisstjórninni.
En þessi félagsmálapakki er
hins vegar margra ára og
áratuga gömul loforð þeirra
sem setið hafa í vinstristjórn-
um og þau atriði ættu að ná
fram að ganga án þess að til
þurfi að koma eftirgjöf á laun-
um. Það vill hins vegar oft
verða svo að þeir sem við
stjórnartauma sitja hafa
minnstan tíma til að sinna
stefnumarkandi málum, aðal-
starfið er sífelld afgreiðsla
mála og þá eru stærri mál oft
látin sitja á hakanum. Að
lokum má segja að komi þessi
félagsmálapakki einhvern
tíma á næstunni til fram-
kvæmda þá verður hann án efa
mun rýrari en menn áttu von á
í upphafi.
— Ég reikna með og veit
ekki annað en allt sé í undir-
búningi við að koma á þessum
félagslegu umbótum, sem talað
var um, sagði Jón Helgason
formaður verkalýðsfélagsins
Einingar á Akureyri. Það hef-
ur hins vegar tekið lengri tíma
en búizt var við þar sem mikill
tími hefur farið í að fjalla um
efnahagsmál. Ég hef hins veg-
ar ekki gefið upp alla von um
að umbætur nái fram að ganga
og menn fá ekki allt á stund-
inni þrátt fyrir að loforð hafi
verið gefin og það er hugsan-
legt að aðgerðir hafi einhver
áhrif þótt ég hafi ekki mikla
trú á að þær flýti framkvæmd
þessa máls.
Electropower
GÍRMÓTORAR
RAFMÓTORAR
mm
■
MÍ
EIGUM JAFNAN TIL
GÍRMÓTORA:
Ýmsir snúningshraðar lns fasa: 3/4 - 1 1/2 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
RAFMOTORA:
1400 - 1500 sn/mín. lns fasa: 1/3 - 3 hö 3ja fasa: 1/3
Utvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
20 hö