Morgunblaðið - 26.04.1979, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1979
Með hverju ári sem líður eykst
sá fjöldi Reykvíkinga, sem með
einum eða öðrum hætti stundar
íþróttir.
Þessi gleðilega þróun á sér án
efa margar orsakir, en vafalaust
vegur þar þyngst auknar frístund-
ir, fjölbreyttari möguleikar til
iðkunar íþrótta og ekki síst vax-
andi skilningur á gildi íþrótta og
líkamsræktar.
Höfuð markmið allrar íþrótta-
iðkunar er að ávinna sér betri
heilsu og aukna vellíðan og lífs-
gleði, en hófleg áreynsla og hreyf-
ing ásamt með hreinlæti, sem
a.m.k. ætti jafnan að fylgja
íþróttaiðkunum, stuðla mjög að
þessu, að ógleymdri þeirri ánægju
sem samvistir við góða íþrótta-
félaga veitir.
Þegar framangreind markmið
ráða ferðinni, hefur það verið
nefnt trimm og að trimma. Eðli
málsins samkvæmt er það og á að
vera stærsti hópurinn, sem þannig
stundar íþróttir. Sá hópur er
einnig stór, einkum meðal yngra
fólks, sem ánægju hefur af því að
sækjast eftir sem mestri full-
komnun í íþrótt sinni og meta
hæfni sína við aðra, sem eftir
sama marki sækjast. Þetta eru
hinar svokölluðu keppnisíþróttir.
Þær laða til sín mikinn fjölda
æskufólks og skapa því holl og góð
tómstundastörf og ekki má gleyma
því, að einmitt við þessar íþrótta-
iðkanir lærir fjöldi fólks að meta
gildi líkamsræktar og er líklegra
en aðrir til, að halda áfram að
stunda íþróttir eftir að keppnis-
ferli líkur, þó með öðrum hætti sé.
Uppbygging íþrótta-
mála í Reykjavík
Keppnisíþróttum fylgja kapp-
leikir og mót, sem þúsundir manna
koma til að horfa á og hafa ánægju
af. Flestir menn geta orðið sam-
mála um, að sé þessum þætti
borgarlífsins kippt burtu og menn
ættu þess ekki lengur kost að fara
á Völlinn eða í Höllina, yrði
borgarlífið til muna fátækara.
Það er því tvímælalaust nauð-
syn á, að borgaryfirvöld sinni
báðum þessum þáttum líkams-
ræktar og byggi og reki nauðsyn-
leg mannvirki fyrir íþróttaiðkanir
almennings og styrki jafnframt
framkvæmdir og starfsemi
íþróttafélaganna með byggingu
mannvirkja, sem þau nota sam-
eiginlega og sem eru af þeirri
stærð og gerð, að ekki er hægt að
búast við að íþróttafélögin geti
byggt og rekið.
I þessu sambandi verður að hafa
í huga sérstöðu Reykjavíkur sem
höfuðborgar og langfjölmennasta
bæjarfélags á landinu. Það hefur
eðlilega komið í hlut Reykjavíkur
að byggja þau stóru og fullkomnu
mannvirki, er standast kröfur,
sem gerðar eru til íþróttamann-
virkja, þar sem landsleikir og
alþjóðleg íþróttamót fara fram og
er forsenda þess að Island geti
verið þátttakandi í alþjóðlegu
íþróttastarfi.
Iþróttamannvirki kosta mikla
peninga og ljóst er, að ekki verða
allar óskir uppfylltar samtímis.
Borgaryfirvöld standa jafnan
frammi fyrir þeim vanda að
ákveða hver verkefni skulu hafa
forgang og hver að bíða.
Eðlilegt verður að telja að þau
mannvirki, sem þjóna sem flest-
um, séu tekin fram yfir að öðru
jöfnu.
í þessu sambandi má minna á þá
stefnu, sem undanfarin ár hefur
Sveinn
Björnsson:
tvo áhugamannahópa um líkams-
rækt, þ.e. trimmara og keppnis-
menn, upp sem andstæðinga, þvert
á móti ættu þeir að eiga létt með
að skilja þörfina fyrir íþrótta-
mannvirki, er báðum geti þjónað.
Fjárveitingar
á ári hverju
Á undanförnum árum hafa
sjálfstæðismenn í borgarstjórn
lagt til, að allmiklu fjármagni
verði ár hvert varið til að bæta
aðstöðu til íþróttaiðkana, bæði
fyrir almenning og til keppni og
leiks.
Undir forustu sjálfstæðismanna
í borgarstjórn, var á síðasta kjör-
tímabili lagt til fjármagn til að
byggja og reisa stór og smá
íþróttamannvirki:
íþróttahús og er það nú fokhelt, en
bað og búningsherbergi tilbúin.
K.R. hefur lokið gerð nýs knatt-
spyrnuvallar og tveggja grasvalla.
Víkingur hefur breytt malarvelli í
grasvöll og gert bætur á bað- og
búningsherbergjum.
K.R. og Í.R. hafa bæði reist
vandaðar skíðalyftur.
Þróttur er að byggja vallarhús
og félagsheimili á íþróttasvæði
sínu við Sæviðarsund. Í.R. endur-
bætti mjög skíðaskála sinn í
Hamragili og lagaði brekkur.
Víkingur lauk við byggingu
myndarlegs skíðaskála í Sleggju-
beinslandi og rekur þar færanleg-
ar skíðalyftur.
Ungmennafélagið Hrönn tók í
notkun nýjan skíðaskála í Skála-
felli.
Þessu mikla uppbyggingastarfi
átti að halda áfram, byggja átti ný
Mikill afturkippur
í uppbyggingu
íþróttamannvirkj a
- eftir meirihlutaskipti i Reykjavík
ríkt, þ.e. að tekið er tillit til þarfa
íþróttahreyfingarinnar við bygg-
ingu íþróttasala skóla, þannig að
nú nota íþróttafélögin salina á
kvöldin og um helgar og fæst með
þessu mjög mikil nýting á sölunum
til hagsbóta fyrir alla, því á
þennan hátt sparast stórfé.
Hér að framan hefur í örstuttu
máli verið gerð grein fyrir þeim
sjónarmiðum, sem jafnan voru
höfð í huga við uppbyggingu
íþróttamála í Reykjavík. Stöðugt
var unnið að þessum málum og
með vaxandi krafti meðan Sjálf-
stæðismenn höfðu forustu í borg-
arstjórn.
Mannvirkin fyrir
keppnisfólk
og almenning
Að undanförnu hafa komið fram
í dagblöðum raddir, sem halda því
fram, að byggingar íþróttamann-
virkja í Reykjavík hafi fyrst og
fremst miðast við þarfir keppnis-
fólks, en mannvirki, sem þjónað
geti almenningi, hafi verið látin
sitja á hakanum. Væri þetta vissu-
lega slæmt, ef satt væri, en því fer
víðs fjarri.
Á síðasta kjörtímaili var mest-
um fjármunum varið til eftirtal-
inna íþróttamannvirkja: Iþrótta-
valla í Laugardal, skíðalyftna og
skíðasvæðis í Bláfjöllum, nýrra
bað- og búningsherbergja við
Sundlaug Vesturbæjar og nýrrar
sundlaugar í Breiðholti.
Segja má að vísu að íþróttavell-
irnir í Laugardal þjóni fyrst og
fremst keppnisíþróttafólki, en þó
verður einnig að hafa í huga þann
mikla fjölda fólks, er nýtur þess að
horfa á kappleiki og mót. Sund-
laugarnar og skíðaaðstaðan í Blá-
fjöllum þjóna hinsvegar fyrst og
fremst almenningi. Nú er það svo,
að flest íþróttamannvirki geta
bæði komið að notum fyrir
íþróttaiðkanir almennings og
keppnisfólks. Svo er það með
sundstaðina, Bláfjöllin og verður
vonandi bráðlega einnig með nýja
íþróttavöllinn í Laugardal, þegar
almenningur uppgötvar hve gott
er að skokka og hlaupa á Rubtan
brautunum.
Hægt er að tengja skokkæfingar
baði og sundi í sundlauginni. Það
er með öllu óþarft að setja þessa
Lokið var gerð grasvallar í
Laugardal milli aðalleikvangs og
Laugardalshallar með áhorfenda-
stæðum fyrir 5000 manns.
Lokið var gerð kastvallar í
Laugardal, þar sem kastæfingar
frjálsíþróttafólks fara fram.
Grasflöt aðalleikvangs í Laugar-
dal var endurnýjuð svo og undirlag
og frárennslislagnir. Lagt var nýtt
og vandað gerfiefni á innanhús-
hlaupabrautir Laugardalsvallar.
Gerður var nýr og vandaður
íþróttavöllur austan aðalleikvangs
í Laugardal, lagður gerfiefni á
hlaupabrautir. Þetta er fyrsti
íþróttavöllur á íslandi, þar sem
hlaupa- og atrennubrautir eru
lagðar gerfiefni.
I Breiðholti III var lokið gerð
malarvallar og hlaupabrautar.
Áhorfendastæði fyrir 3000 áhorf-
endur.
Lokið var byggingu vallarhúss
við Árbæjarvöll.
Lokið var byggingu íþróttahúss
við Feliaskóla og Hagaskóla. Við
íþróttahús Hagaskóla er áhorf-
endarými fyrir 500 áhorfendur.
Húsið er notað sem keppnishús
fyrir körfuknattleik, blak, judo og
glímu, svo og til æfinga fyrir
þessar íþróttagreinar.
Lokið var byggingu nýrra baða-
og búningsherbergja við Sundlaug
Vesturbæjar. Þar er um að ræða
byggingu húss fyrir böð og bún-
ingsherbergi karla og kvenna er
rúma samtímis 320 baðgesti.
Unnið hefur verið að byggingu
nýs sundstaðar í Breiðholti III.
Hefur kennslulaug verið tekin þar
í notkun.
I samvinnu við nágrannasveita-
félög var unnið markvisst að
uppbyggingu skíðasvæðis í Blá-
fjöllum og reistar margar skíða-
lyftur, bæði stórar og smáar.
Gerður var samningur um kaup á
afkastamikilli stólalyftu, sem reist
var s.l. sumar. Keyptur var vand-
aður snjótroðari, og unnið að
brekkulögnum, lýsingu og bótum á
vegi og bílastæðum.
Aðstoð við íþróttafélögin var
stóraukin bæði styrkir til bygg-
inga íþróttamannvirkja og rekstr-
ar. Hefur þetta hleypt nýju lífi í
framkvæmdir íþróttafélaga. Á s.l.
kjörtímabili hefur T.B.R. byggt
stórt íþróttahús, sérhannað fyrir
badminton. Fram reisti vallarhús
á íþróttasvæði sínu við Miklu-
braut. Valur lauk gerð vandaðs
grasvallar. Ármann er að byggja
böð og búningsherbergi við Sund-
laugarnar í Laugardal.
Þegar Sundlaugarnar í Laugar-
dal voru byggðar, var það skoðun
manna, sem að þeirri byggingu
unnu, að byggja þyrfti stórt og
vandað laugarhús fyrir búningsað-
stöðu og böð.
Núverandi búningsaðstaða er
engan vegin fullnægjandi, og í
flestum tilfellum ekki nógu þægi-
leg, enda ekki ætluð fyrir allan
þennan fjölda, sem sundlaugarnar
í Laugardal sækja. Var hún upp-
haflega ætluð fyrir skóla svo og
íþróttahópa.
Aðsókn að Sundlaugunum í
Laugardal hefur ávallt verið mikil
og á s.l. ári var tala sundgesta um
600 þúsund manns.
Það er því nauðsynlegt að hefja
byggingaframkvæmdir að nýju
laugarhúsi við Sundlaugina í
Laugardal.
Aðeins nauðsynlegt
viðhald
Jes Einar Þorsteinsson arkitekt
var ráðinn til að teikna og hanna
nýja laugarhúsið í Laugardal og
hefur hann lokið því. Ekkert verð-
ur úr þessum framkvæmdum í ár,
núverandi meirihluti borgar-
stjórnar strikaði þær út, þrátt
fyrir að í fjárlögum íþróttasjóðs
ríkisins sé gert ráð fyrir 40 milljón
króna fjárveitingu til byrjunar-
framkvæmda á árinu 1979.
Þegar núverandi meirihluti
borgarstjórnar tók við, varð mikill
afturkippur í uppbyggingu
íþróttamannvirkja hér í Reykja-
vík.
Ekki vantaði þó viðleitni núver-
andi meirihluta íþróttaráðs
Reykjavíkur, né borgarfulltrúa
meirihlutans til að gera mikið í
þessum efnum.
3. marz 1978 í tíð fyrrverandi
borgarstjórnar flutti Kristján
Benediktsson borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins tillögu um,
að hafin yrði á næsta ári (1979)
bygging vélfrysts skautasvells, og
á fyrstu fundum núverandi meiri-
hluta íþróttaráðs Reykjavíkur
gerðu fulltrúar hans tillögur til
borgarráðs um miklar fram-
kvæmdir á árinu 1979.
Ætluðu þeir áð slá þar öllu við,
nú skildi gera meira en Sjálf-
stæðisflokkurinn hafði áður gert.
Lögð var fram fjárhagsáætlun upp
á 296 milljónir króna, sem skiptist
þannig, að til byggingar bað- og
búningsherbergja við Sundlaugina
í Laugardal skildi verja 130
milljónum, til endurbóta á Sund-
höllinni 40 milljónum, til bygging-
ar gufubaða við Sundlaug Vestur-
bæjar 23 milljónum, til byggingar
stúku við Völl IV Laugardal 15
milljónum og til byggingar vél-
frysts skautasvells I. áfanga 88
milljónir eða samtals 296 milljónir
króna. Auk þessa átti svo að leggja
mikið fjármagn til uppbyggingar
Bláfjallasvæðisins.
Heldur dró úr áliti meirihluta
íþróttaráðs fyrir því að fjármagn
fengist til framkvæmda, enda lítill
skilningur núverandi meirihluta
borgarstjórnar fyrir fjárveitingu
til íþróttamála. Ekki skorti þó
kröfur þeirra um aukna fjárveit-
ingu til þessara mála, er þeir voru
í minnihluta.
Núverandi meirihluti borgar-
stjórnar afgreiddi tillögur íþrótta-
ráðs, sem þó miðuðu fyrst og
fremst að því að bæta aðstöðu
almennings í borginni til iðkunar
íþrótta og til að viðhalda þar með
andlegri og líkamlegri heilsu sinni,
þannig, að í staðinn fyrir 296
milljón króna tiliögu íþróttaráðs
kom eitt stórt núll — ekkert
fjármagn skildi veita til uppbygg-
ingar íþróttamannvirkja, aðeins
veitt til að standa straum af
nauðsynlegasta viðhaldi við Sund-
höllina og til afborgana af skíða-
lyftu í Bláfjöllum, sem borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og
sveitarstjórnir í nágrenni Reykja-
víkur höfðu samþykkt og látið
reisa.
Með þessu er brotið blað í
byggingaþróun íþróttamannvirkja
borgarinnar og varla annað að-
hafst en að framkvæma nauðsyn-
legasta viðhald núverandi mann-
virkja.
Hvert renna
stórauknar álögur?
Ekki verður séð fram á, að
núverandi meirihluti borgar-
stjórnar afkasti miklu á bygginga-
sviði íþróttamannvirkja með sama
skilningi og verið hefur, þó fulltrú-
ar íþróttaráðs séu allir að vilja
gerðir til að leggja sitt að mörkum.
Óneitanlega vaknar sú spurning
í hvaða málaflokka allar hinar
stórauknu álögur á borgarbúa
eiginlega renna.
Til þess að halda áfram upp-
byggingu íþróttamannvirkja borg-
arinnar, þarf að byggja þjónustu-
miðstöð í Bláfjöllum, bæta sam-
göngur, auk smærri umbóta á
skíðasvæðinu svo sem flóðlýsingar
á brekkum og göngubrautum.
Ljúka byggingu nýju sundlaugar
innar í Breiðholti III og byggingu
nýrra bað- og búningsherbergja
við sundlaugina í Laugardal. Gera
endurbætur á Sundhöll Reykjavík-
ur og ný gufuböð við Sundlaug
Vesturbæjar.
Byggja þarf íþróttahús við Fjöl-
brautarskólann í Breiðholti með
löglegri salarstærð til handknatt-
leikskeppni. Koma upp þaki yfir
hluta af áhorfenda-svæði við
knattspyrnuvöll II og frjáls-
íþróttavöll í Laugardal, svo og
snyrtiaðstöðu. Byggja þarf fleiri
böð- og búningsherbergi við
íþróttavelli í Laugardal og bæta
aðstöðu almennings til skokkæf-
inga og trimms í dalnum. Hefja
framkvæmdir við vélfryst skauta-
svell, er síðar má byggja yfir og
gera að skautahöll. Hefja þarf
byggingu íþróttasvæðis í Breið-
holti II (Mjóddinni). Byggja tengi-
byggingu á milli Laugardalshallar
og skrifstofuhúss og auka stuðning
og samvinnu við íþróttafélögin um
uppbyggingu og rekstur æfinga-
og keppnisaðstöðu þeirra. >
Iþróttir eru heilsugæsla í fleiri
en einum skilningi, og líkamleg
hreyfing er manninum lífs-
nauðsynleg. Skilningur fólks á
þessari staðreynd fer vaxandi og
er þá mikilsvert, að aðstaða sé
fyrir hendi til að glæða þennan
skilning.
Við skulum vona, að meirihluti
borgarstjórnar taki sig á og verji
einhverju fjármagni til þessa
mikilvæga málaflokks.