Morgunblaðið - 23.06.1979, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ1979
. HLAÐVARPINN ,
Heljíi Gíslason moð eitt af verkum sínum við Korpúlfsstaði.
Ljósm. Mbl. RAX.
Höfuðstaðir Norður-
landa á minnispeningum
REYKIAVIK
Helgi Gíslason,
myndlistarmaður
gerði íslenzka
peninginn
„MYNDINA AF Reykjavík
vann ég upp úr gamalli
mynd. Fann hana á Lands-
bókasafninu. Málverkið er
eftir Jón Helgason biskup og
er frá 1836,“ sagði Helgi
Gíslason. myndlistarmaður
er blaðamaður ræddi við
hann. Nýlega voru slegnir
minnispeningar um höfuð-
staði Norðurlanda og vann
Ilelgi þann íslenzka. Verk-
efnið sem myndlistar-
mennirnir á Norðurlöndum
fengu var að gera táknræna
mynd fyrir höfuðstað hvers
lands.
„Fyrirmælin voru nokkuð
skýr. Á bakhlið íslenzka
peningsins áttu að vera þeir
Skúli fógeti og Ingólfur
Arnarson. Þetta er í fyrsta
sinn sem ég hef tekið svona að
mér. Við höfum enga tradisjón
í svona tegund myndlistar og
ég tel mína mynd minnstu
medalíumyndina, Finnar eru
greinilega flinkastir“ sagði
Helgi ennfremur.
Að hverju ertu að vinna nú?
Ég er að vinna að sýningu
myndhöggvarafélagsins. Við
ætlum að vera með í sýningu á
Kjarvalsstöðum. Annars er ég
búinn að leggja síðustu hönd á
styttu Sigvalda Kaldalóns
fyrir Reykjavíkurborg. Það á
að setja hana upp við
Tjörnina, ég hef unnið lengi að
því verkefni.
STÆLT OG STOLIÐ — STÆLT OG STOLIÐ —
••
Oskukarlar — sorptæknar
í þau tæp þrjátíu ár, sem sá er þetta skrifar hefur gist þessa jörð,
hefur hann ávallt talað um öskukarlana, að þeir væru komnir til að
hreinsa öskutunnurnar. Á virðulegu blaðamáli var ávallt rætt um
sorpeyðingarmenn. En heimurinn breytist og sjálfsagt mennirnir með. I
Suðurnesjatíðindum 15. maí hafa öskukarlarnir í Keflavík fengið nýtt og
virðulegt starfsheiti — þeir eru kallaðir sorptæknar.
Ágætt orð og það fer þeim vel að heita sorptæknar, rétt eins og
meinatæknar og allir hinir tæknarnir. En brátt verður hætt að kalla
menn blaðamenn — þeir verða kallaðir blaðtæknar, bilstjórar þá
bíltæknar, þingmenn þá væntanlega þingtæknar...
SUDURNESJA TIÐINDI
Rætt við sorptækna
Keflavíkurkaupstaðar
fair sem binda fyrir pok-
ana, sem þó ber að gera.
Við eigum ekki að taka
poka, sem ekki er búið að
binda fyrir.“ Þannig
Litt af þeim malum sem
bzjarstjórn Keflavíkur
þurfti að taka afstöðu til á
fundi sínum s.l. þríðjudag
var áskorun öskukalla
fullt lið eða ekki og bætti
við að ekki þýddi að tala
um meira en kortér fyrir
hvorn hálfleik. Þessi orð
mátti skilja sem svo, að sá
Stundum áttu meir en lífs-
afkomuna undir díeselvél
„Stundum áttu meir en lífsafkomuna undir díeselvél" gæti setningin í
auglýsingunni útlagzt á íslenzku. Hún birtist í hinu virta tímariti
Fishing News International. Og þegar áherzlu skal leggja á hætturnar,
sem fylgja sjósókn, liggur beinast við að birta mynd af báti á
Islandsmiðum, þar sem sjómenn eru öllu vanir. Myndin er af Þorbirni,
GK 541.
LEIKLIST
Vaxtíf— fíktmeð
vax og kertaljós
„í Vaxlífi er boriö saman
samkomulag hjóna, sem hafa
verið gift nokkuð lengi og svo
aftur sambúð pars sem er í
upphafsstööu ef svo má orða
það. Þaö er spilað upp á breytt
viðhorf, frá því þau eldri giftu
sig og svo aftur nú. Þá er
einnig komið inn á viðhorf til
barna og eins störf konunnar,"
sagði Kjartan Heiðberg, kenn-
ari og leikritaskáld austur á
Neskaupstaö, er blaðamaður
ræddi við hann um leikrit hans,
sem verður frumflutt 5. júlí þar
austur frá.
Af hverju heitir leikurinn
Vaxlíf?
„Ja, það kemur beint frá
verkinu sjálfu, þar er vax,
kertafikt. Það logar á kertum.
Leikstjóri er Haukur Gunnars-
son og þegar hann kom hingað
þá var ég ekki endanlega
búinn að ganga frá verkinu. En
við höfum gert það í samein-
ingu. Auðvitað hefði ég viljað
hafa meiri tíma. Við vorum
bara búin að ákveða leikdag-
inn. í æfingum þá sér maður
gallana, nýja og nýja galla. Ég
hef gaman af að skrifa, má
segja að þetta sé tómstunda-
gaman mitt. En lokasprettinn
hefur þetta bara verið strit og
púl.“
Þú hefur samið verk áður,
ekkisvo?
„Ég samdi Grenið, sem leik-
félagið hér flutti árið 1977. Þaö
var síðan flutt í útvarpi í fyrra
og Þorsteinn Gunnarsson leik-
stýrði því þá.“
Ertu spenntur fyrir frum-
flutninginn?
„Ég er aðeins farin aö titra,
því neita ég ekki. Skjálftinn er
kominn."
Þú ert auövitað borinn og
barnfæddur Norðfiröingur?
„Nei, svo er ekki. Ég kalla
mig alltaf Hafnfiröing þó ég sé
fæddur í Reykjavík og búi nú á
Noröfirði."
Kjartan Heiðberg —
leikfélag á Norðfirði frum-
sýnir í byjun júní verk hans
„Vaxlíf".