Morgunblaðið - 23.06.1979, Page 13

Morgunblaðið - 23.06.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ1979 13 Friðjón TF T • Þórðarson m/ d} dW W W* alþm.: V mfm og vegleysur Einn talaði um veg yfir vegleysur og hraun. 7 Einn vitnaði í samtök, er ynnu þyngstu raun. Einn mældi fyrir vegi og vissi upp á hár, / / hvar vegur ætti að koma ... Svo liðu hundrað ár.” Samkvæmt vegalögum skal leggja tillögu til þingsályktunar um vegáætlun fyrir Sameinað Alþingi, svo fljótt eftir þingsetn- ingu sem auðið er. Alþingi það, sem nú hefur nýlokið störfum og var 100. löggjafarþing þjóðarinn- ar, var að venju sett 10. okt. Vegáætlunin var lögð á borð þingmanna 2. maí s.l. Vegáætlun sú, er hér um ræðir, á að gilda fyrir árin 1979—1982. Hún fjallar því um framkvæmdir í vegagerð næstu fjögurra ára hér á landi. Má ljóst vera, að mikill vandi er á höndum að ákvarða og velja úr mörgum brýnum verkefn- um, þegar framkvæmdafé er af skornum skammti. Það er heldur ekkert áhlaupaverk að skipta fjármagninu milli kjördæma, svo að allir láti sér vel líka. Ekki er við vegamálastjóra né starfsmenn hans að sakast. Þeir liðsinna og leiðbeina þingmönnum eftir bestu getu. Fjárveitinganefnd hafði aðeins örfáa daga til að fjalla um þetta mikilvæga mál, sem snertir alla landsmenn á einn eða annan veg. Nefndin skilaði áliti 21. maí eða tveim dögum fyrir þinglok. Aætl- unin var endanlega afgreidd á síðasta þingdegi. Skall þar vissu- lega hurð nærri hælum. Á undanförnum árum hafa þingmenn keppst við að gera lýðum ljóst að hefja þurfi stórátak í vegagerð hérlendis. Þetta er auðskilið mál. Það hefur fallið í góðan jarðveg. Vonir hafa vaknað um bættar samgöngur um byggðir landsins. Hætt er því við, að mörgum hafi súrnað í augum, þegar sjá mátti úthlutun til vega- gerðar á því herrans ári 1979. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fjárveitinganefnd, þ.e. minni hluti nefndarinnar, — undirrituðu nefndarálitið með fyrirvara. Segir svo í grg.: „Þeir vilja taka fram, að vegna ákvörðunar ríkisstjórnar- innar um stórfelldan niðurskurð á framlögum ríkissjóðs til vegamála á þessu ári mun verða um 15% magnminnkun nýbygginga vega í landinu frá því í fyrra, þrátt fyrir gífurlega auknar skattálögur á umferðina. Síðari ár vegáætlunar er stefnt í nokkra magnaukningu vegaframkvæmda, án þess að minnsta tilraun sé gerð til þess að ríkisstjórn og Alþingi móti stefnu í fjáröflun til þess á annan hátt en gera ráð fyrir nýjum lántökum". Á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hefur um árabil starfað sérstök nefnd að sam- göngumálum. Hefur hún kynnt athuganir sínar og tillögur á aðalfundum samtakanna, sem haldnir eru á hverju hausti. Hefur nefnd þessi unnið mikið starf og Friðjón Þórðarson haft nána samvinnu við umdæm- isverkfræðing vegagerðarinnar í Borgarnesi. Nefndin hefur m.a. gert ítarlegar tillögur um for- gangsflokkun framkvæmda í stofnbrautum utan hringvegar og þjóðbrautum í Vesturlandskjör- dæmi. Nefndin hefur lagt ríka áherslu á, að leitað verði nýrra leiða í fjármögnun vegamála í því skyni að stórauka vegafram- kvæmdir. Jafnframt hefur hún bent á brýna nauðsyn þess að auka vegaviðhald til stórra muna. Enn hefur nefnd þessi ítrekað þá skoð- un að einstakar stórframkvæmdir svo sem Borgarfjarðarbrú verði að fjármagna sérstaklega. Eðlilegt er, að hver og einn skyggnist um af sínu heimahlaði, þegar um vegamál er að ræðá. Þá kemur greinilega í ljós, að hlutur Vesturlands er harla lítill og rýr á þessu ári miðað við aðrar byggðir landsins. Þetta stafar m.a. af því, að hin mikla og dýra brúarbygg- ing yfir Borgarfjörð er skráð feitu letri í reikning Vesturlandskjör- dæmis. Brúin er stórframkvæmd, arðgæf og hagkvæm. En hún er á hinn bóginn stuttur spölur af hringveginum, sem nánasta um- hverfi fær ekki undir risið nema sérstök fjáröflun komi til að verulegu leyti. Margir hafa bent á, að arðsemi vegagerðarframkvæmda sé ein sú mesta, serm þjóðinni geti fallið í skaut af nokkru verki. Það sé því engin goðgá að leita eftir erlend- um lánum til slíkra framkvæmda. Ennfremur hefur margsinnis ver- ið að því vikið, að uppbygging vegakerfisins um allt Iand sé í raun og veru eitt hið brýnasta og raunhæfasta mál byggðastefn- unnar. Það sé eina leiðin til að þoka byggðunum saman, svo að atvinnulíf og þjónusta geti dafnað og þjóðarhagur farið batnandi. Loks er hér um að ræða eitt hið mesta mál til að jafna aðstöðu allra landsmanna, hvar sem þeir eiga heima. Davíö fró Fagraskógi. í vegaáætluninni er framlagi til stofnbrauta skipt eftir meginvið- fangsefnum í almenn verkefni, bundin slitlög og sérstök verkefni. Þetta er spor í rétta átt. Þá er gert ráð fyrir að útvega lánsfé, sem nemur 1 milljarði til Borgarfjarð- arbrúar á næsta ári, en takmarkið er að opna brúna til umferðar á árinu 1980. — Talið er, að slit á bifreiðum sé 63% meira á malar- vegum en malbiki og bensíneyðsla 19% meiri. Gefur því auga leið, hversu aðstöðumunur þegnanna er gífulegur. Það er líka ljótt aö sjá ökutækin vaða fram í þykkum moldarmekki eftir þjóðvegum landsins að sumarlagi, ausandi malar- og moldryki á báða bóga yfir hvað sem fyrir verður. Mál er að linni. Með hliðsjón af þeim risavöxnu verkefnum, sem framundan bíða í vegagerð, er framlag ríkisstjórnar til þeirra mála lítið og lélegt á þessu ári. Segja má, að Eyjólfur hressist nokkuð að þessu leyti á næsta ári. En þar er allt í óvissu um fjáröflun, opið í báða enda. Á stjórnarheimilinu rekur sig eitt á annars horn í þessum efnum sem öðrum. Hækkandi álögur og skatt- ar af umferðinni renna í stríðum straumum gegnum galtóman rík- iskassann. Hvergi er veitt viðnám. Óráðsían er í algleymingi. I vetur fluttu átta þingmenn Sjálfstæðisflokksins úr öllum kjördæmum landsins tillögu til þingsályktunar um varanlega vegagerð. Þar er gert ráð fyrir að fella að nýrri vegáætlun sérstaka 15 ára áætlun um lagningu hring- vegar og vega til allra þétt- býlisstaða í landinu með bundnu slitlagi. Tillaga þessi var ekkert sýndarplagg. AÖ henni hafði lengi verið unnið af færustu mönnum. Hún mótar ákveðna stefnu í vega- gerð komandi ára og markar skýrar leiðir til tekjuöflunar. Til- lögunni fylgdi efnismikil greinar- gerð í þrem setningum: „Brýnasta hagsmunamál þjóð- arinnar nú er gerð vega með bundnu slitlagi til allra þéttbýl- iskjarna í landinu og lagning vega upp úr snjó. Samhliða beislun orku fallvatna og orku í iðrum jarðar er þetta einnig arðgæfasta framkvæmdin. Því ber nauðsyn til að Alþingi taki þegar í stað ákvörðun í máli þessu". Máli þessu var vel tekið, — en ákvörðun skotið á frest. Hvenær verður hafist handa af fullum krafti? Eftir er að brjótast yfir botnlaus fúafen ríkisstjórnarráð- leysu. En hjá bjartsýnismönnum má þó enn greina landsýn fram- undan og von um fast land undir fótum. Lífog land: Fundur um lagningu þjóðveg- ar um Leirur og Vaðlaskóg SUNNUDAGINN 24. júní gangast landssamtökin Líf og land ásamt Skógræktarfélagi Eyfirðinga og SUNN (Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi) fyrir fundi um lagningu þjóðvegar um Leirur og Vaðlaskóg. Hefst fundurinn með skoðunarferð um Vaðlaskóg. Verð- ur farið frá Menntaskólanum á Akureyri kl. 13.00. Að skoðunar- ferðinni lokinni verður haldinn fundur í kjallara Möðruvalla. Jón Rögnvaldsson, yfirverkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins, flytur er- indi um fyrirhugaða vegagerð og forsendur hennar. Ingólfur Ár- mannsson, formaður Skógræktar- félags Eyfirðinga, gerir grein fyrir Vaðlareit. Helgi Hallgrímsson, formaður SUNN, flytur erindi um Leirurnar. Árni Jóhannsson, garð- yrkjustjóri Akureyrar, og Jóhann Pálsson, forstöðumaður Lysti- garðsins á Akureyri, ræða um þau áhrif sem vegargerðin getur haft á landslag. Fundurinn er öllum op- inn. að g gengið frá þeim til varðveizlu. Reynt er að tína til það helzta sem byrjendur spyrja oftast um og gefa ráð sem að gagni mega koma“. í bókinni er fyrst fjallað um nafngiftir plantna og birt yfirlit yfir skiptingu plönturíkisins, síðan lýst nafngreiningu og söfnun ýmissa tegunda, æða- plantna, mosa, flétta, sveppa og þörunga. Síðan er lýst þurrkun plantna og frágangi þeirra til geymslu, niður- skipun safnsins og merk- ingu. Þá er greint frá því Bók um plöntusöfnun Bókaútgáfan Iðunn hefur gefið út Leiðbeiningar um plöntusöfnun eftir Ágúst H. Bjarnason menntaskóla- kennara. Um tilgang bókar- innar segir höfundur í for- mála: „Kveri þessu er ætlað að vera lítill leiðarvísir þeim sem vilja kynna sér plöntu- ríkið. Aðaláherzlan er lögð á hvernig lífverunum er safn- hvernig verja má plöntu- safnið skemmdum. Iðunn hefur áður gefið út kennslubókina Almenn vist- fræði eftir sama höfund. Leiðbeiningar um plöntu- söfnun eru 60 bls. að stærð. Ilöfundurinn teiknaði myndir í bókina og Skúli Þ. Magnússon tók ljósmyndir. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RIKISSJOÐS: 23. júní 1979. Innlausnarverö Seölabankans Kaupgengi m.v. 1 árs Yfir- pr. kr. 100.- tímabil frá: gengi 1968 1. flokkur 3.391.14 25/1 ‘79 2.855.21 18.8% 1968 2. flokkur 3.188.43 25/2 '79 2.700.42 18.1% 1969 1. flokkur 2.370.52 20/2 '79 2.006.26 18.2% 1970 1. flokkur 2.176.55 15/9 ‘78 1.509.83 44.2% 1970 2. flokkur 1.574.29 5/2 '79 1.331.38 18.2% 1971 1. flokkur 1.475.88 15/9 '78 1.032.28 43.0% 1972 1. flokkur 1.286.41 25/1 ‘79 1.087.25 18.3% 1972 2. flokkur 1.100.95 15/9 ‘78 770.03 43.0% 1973 1. flokkur A 834.62 15/9 '78 586.70 42.3% 1973 2. flokkur 768.60 25/1 ‘79 650.72 18.1% 1974 1. flokkur 532.88 1975 1. flokkur 431.41 1975 2. flokkur 329.24 1976 1. flokkur 312.85 1976 2. flokkur 254.09 1977 1. flokkur 235.97 1977 2. flokkur 197.68 1978 1. flokkur 161.07 1978 2. flokkur 127.16 VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100.- 1 ár Nafnvextir: 28'/2% 83 2 ár Nafnvextir: 28'/2% 74 3 ár Nafnvextir: 28’/2% 66 4 ár Nafnvextir: 28'/2% 62 5 ár Nafnvextir: 28'/2% *) Miöað er viö auðseljanlega fasteign 57 Tökum ennfremur í umboössölu veöskulda- bréf til 1 — 3 ára meö 12—281/2% nafnvöxt- um. Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100 B — 1973 714.10 (10% afföll) C — 1973 622.29 (10% afföll) D — 1974 540.00 (10% afföll) G — 1975 266.15 (10% afföll) H — 1976 257.75 (10% afföll) VEÐSKULDABRÉF: Sölugengi pr. kr. 100 1 ár 10 m Nafnvextir 14% 62.74 (Áfallnir vextir) 2 ár 6 m Nafnvextir 16% 73.21 (Áfallnir vextir) 4 ár 4 m Nafnvextir 12% 53.26 (Áfallnir vextir) 5 ár Nafnvextir 15% 37.82 5 ár 3 m Nafnvextir 14% 59.20 (Áfallnir vextir) 5 ár 4 m Nafnvextir 12% 51.81 (Áfallnir vextir) 5 ár 5 m Nafnvextir 13% 51.09 (Áfallnir vextir) 6 ár 10 m Nafnvextir 13% 37.07 (Áfallnir vextir) MÍRKrnnfiflitféM ísumdi Kfc VERÐBRÉFAMARKAÐUR LÆKJARGÖTU 12 R. (Iðnaðarbankahúsinu). Sími 2 05 80. Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.