Morgunblaðið - 23.06.1979, Síða 44
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
\i <;i.ysi\<;.\-
SÍMINN Klt:
22480
EFÞAÐERFRETT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
\i <;i.ysin<;\
SÍMINN KK:
22480
LAUGARDAGUR 23. JUNI1979
Islendingur hlaut
18 milljón króna
rannsóknastyrk
NÝLEGA var ungum ís-
lonskum vísindamanni,
Kristjáni R. Jessen, veitt-
ur styrkur írá The Mental
Ilealth Foundation
(M.II.F.) Senior Research
Fellowship — til rann-
sókna á sviði taugalíffræði
næstu þrjú ár. Styrkurinn
nemur £27,500 eða um 18
milljónum íslenskra
króna.
Kristján R. Jcssen
The Mental Health Found-
ation sem er breskur sjóður
til styrktar rannsóknum á
taugakerfinu og einnig á sviði
sálfræði veitir slíkan styrk
árlega eða sjaldnar til verk-
efna er að mati sjóðstjórnar
þykja líkleg til að auka skiln-
Soðningin
24% dýrari
VERÐLAGSYFIRVÖLD hafa
heimilað hækkun á fiski til ncyt-
enda í kjölfar fiskverðshækkun-
arinnar á dögunum.
Er meðaltalshækkunin 24%. Má
nefna sem dæmi að ýsuflök án
þunnilda hækka úr 675 í 838
krónur kílóið og hausuð ýsa hækk-
ar úr 370 í 463 krónur kílóið.
ing á starfsemi heilans og
þeim breytingum á henni sem
leiða til geðrænna sjúkdóma.
Verkefni Kristjáns er að
kanna glia-frumur í heila,
einkum þá eiginleika glia-
frumanna er lúta að sam-
skiptum þeirra — með hjálp
taugaboðefna — við tauga-
frumur heilans.
Kristján lauk B.Sc. jirófi í
líffræði frá Háskóla Islands
1973. Hann stundaði síðan
framhaldsnám í taugalíf-
fræði við University College,
London 1974—5 er hann lauk
M.Sc. prófi, og við Háskólann
í Oxford 1975—6 og hefur
síðan unnið að rannsóknum
til doktorsprófs við Univers-
ity College, London.
Listflugmaðurinn Tony Bianchi sýnir listflug á flugdegi í Reykjavík í dag, en í gær tók Kristján
ljósmyndari Mbl. þessa mynd úr vélinni CAP 10, þegar þeir voru á hvolfi einhvers staðar yfir
borginni. Sjá nánar um flugdag á bls. 27.
Niðurstaða þriggja ungra vísindamanna varóandifiskveiðar:
40-60% minni sókn
skilar miklum arði
ÞJÓÐHAGSLEGA hagkvæmt er
að draga nú þegar allverulega úr
sókn í íslenskar botnfisktegundir
og þyrfti samdrátturinn að vera
40 til 60%. Þessi minni sókn
skilaði þjóðarbúinu miklum arði,
að nokkru í auknum afla sfðar
Floti, sem cr 50 þúsund smálest-
ir, nægði til að skila á land 700
þúsund lestum en í dag er fiski-
skipafloti okkar íslendinga 64
þúsund smálestir að stærð. Árið
1950 var fiskiskipafloti okkar
hæfilcga stór, en stærri floti hefur
ekki aukið aflann, heldur þvert á
móti minnkað hann.
Með því að reka útgerðina með
fullri hagkvæmni gæti hún skilað
50 milljarða kr. arði í stað þess að
vera á núlli eins og í dag.
Þctta og margt fleira eru niður-
stöður af ráðstefnu sem reikni-
fræðistofa Raunvfsindastofnunar
Póstur og sími kærir útgáfu Upplýsingarits:
Formaóur Eyverja lok-
aður inni í yfirheyrslum
SIGURÐUR Karlsson, íormaður Eyverja. félags ungra sjálfstæðismanna í
Vestmannaeyjum. var lokaður inni í lögrcglustöðinni í Eyjum í gær vcgna
kæru frá Baldri Böðvarssyni símstöðvarstjóra í Eyjum í sambandi við
útgáfu Eyverja á Upplýsingariti um Eyjar, en í því cr auk margs konar
efnis innanbæjarsfmaskrá.
Upplýsingaritið var ætlað til dreif-
ingar endurgjaldslaust til Eyjabúa,
en í því eru m.a. upplýsingar um
fyrirtæki í Eyjum, íbúaskrá, ágrip af
sögu Eyjanna, myndir, auglýsingar
og annar fróðleikur til hagræðis fyrir
fólk en með tilliti til sjóndapurra er
skráin prentuð með letri sem er
liðlega tvöfalt stærra en letrið í
opinberu símaskránni nýju. Slík upp-
sláttarrit hafa verið gefin út annars
staðar á landinu um árabil án slíkra
aðgerða Pósts og síma, en kæran er
brot á lögum um einkarétt Pósts og
síma á að gefa út nafnaskrá fyrir
fjarskiptastöðvar og fjarskiptatæki.
Stöðvarstjóri Pósts og síma í Eyjum
fann ekki að hugmynd Eyjamann-
anna fyrr en verkið var nær fullunn-
ið.
Bjarni Sighvatsson varaformaður
Eyverja sagði í samtali við Mbl. í
gær, að þetta framtak hefði ekki
verið neitt leyndarmál, enda hefði
verið unnið að því opinberlega í
Eyjum í marga mánuði og allir hefðu
vitað um það og hefði það verið gert í
góðri trú.
Morgunblaðið hafði tal af Jóni
Skúlasyni, póst- og símamálastjóra, í
gærkvöldi og sagðist hann ekki vita
annað en að hér hefði átt að vera um
lögbann að ræða en ekki kæru. „Við
báðum um að þessi útgáfa, eins og
okkur var sagt að hún væri, yrði
stöðvuð, en við höfum ekki beðið um
að neinn yrði settur í fangelsi, við
vildum aðeins vekja athygli á einka-
rétti okkar og ég er ákaflega leiður
yfir þessari þróun mála.“
Við yfirheyrslur hafa aðstandend-
ur Upplýsingaritsins ekki viljað gefa
upp hvar upplagið sé niðurkomið.
Þetta mun vera fyrsta kæra Pósts og
síma af þessu tagi. Júlíus B. Georgs-
son, fulltrúi fógeta í Eyjum, kvaðst
ekki geta sagt hvað Sigurði yrði
haldið lengi þegar blaðið hafði sam-
band við hann um miðnætti, kvaðst
eiga eftir að ákveða það.
ASIogVSI
ræda 3%
grunnkaups-
hækkun
VIÐRÆÐUR milli Vinnuveit-
endasambands íslands og Al-
þýðusambands íslands um 3%
grunnkaupshækkun heíjast á
mánudag og er boðaður fundur
aðila klukkan 14 á mánudag 1
húsakynnum VSÍ að Garða-
stræti 41.
Á fimmtudag ritaði ASÍ VSÍ
bréf, þar sem farið var fram á
þessar viðræður á grundvelli
samþykktar miðstjórnar Alþýðu-
sambands íslands um þetta mál.
Heildarkjarasamningar milli að-
ila vinnumarkaðarins hafa verið
lausir frá því 1. desember síðast-
liðinn, er samningstíminn rann
út. Það eru þvi hartnær 7 mánuð-
ir frá því er samningar runnu út
og þar til viðræður hefjast um
grunnkaupshækkanir milli aðila
vinnumarkaðarins.
Háskólans gekkst fyrir um reikni-
líkön á sviði fiskifræði. Margir
fluttu erindi á þessari ráðstefnu,
þar á meðal Ragnar Árnason
hagfræðingur, Þorkell Ilelgason
stærðfræðingur og Einar Júlíus-
son cðlisfræðingur.
Allir fjölluðu þeir um „fiskihag-
fræði“ á grundvelli reiknilíkana,
sem þeir hafa gert í þeim tilgangi
að finna þá sókn eða það sóknar-
mynstur í íslenskar botnfiskteg-
undir, sem leiðir til hámarksaf-
raksturs þjóðarbúsins af veiðum og
vinnslu í lengd og bráð, og hafa
allir komist að sömu megin niður-
stöðum.
I rannsóknum sínum fjalla þeir
um þessa hluti með nýjum aðferð-
um, sem ef til vill færa okkur nær
því að nýta okkar mikilvægustu
náttúruauðlind af fullri skynsemi.
Hvort okkur tekst það er spurn-
ing um heill lítillar þjóðar, sem
lifir nær eingöngu á fiskveiðum.
Útgerðin stendur á krossgötum.
Spurningin er: hvað er til ráða?
Morgunblaðið leitaði svara við
þeirri spurningu á blaðsíðum 19 til
26.
V innuv eitendur
stefna á mánudag
Vinnuveitendasamband íslands
og Vinnumálasamband samvinnufé-
laganna hafa hvort í sínu lagi
ákveðið að höfða mál fyrir félags-
dómi á hendur Farmanna- og fiski-
mannasambandi fslands fyrir hönd
aðildarfélaga sambandsins vcgna
yfirvinnubanns yfirmanna á far-
skipum í uófnum við Faxaflóa og
hcimahöfnum skipa. Verður stefnt í
málinu næstkomandi mánudag, láti
farmenn ckki af yfirvinnubanninu
fyrir þann tíma.
Barði Friðriksson hæstaréttarlög-
maður og framkvæmdastjóri hjá
Vinnuveitendasambandinu mun
reka málið fyrir VSÍ og Skúli Jón
Pálmason, hæstaréttarlögmaður og
fyrrum formaður Vinnumálasam-
bandsins, mun reka málið fyrir það.
Barði Priðriksson sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að Farmanna-
og fiskimannasambandinu yrði
stefnt, enda hefðu öll bréfaskipti
milli aðila deilunnar farið fram með
því að notaðir hefðu verið bréfhaus-
ar FFSÍ.
Um 100 starfsmönn-
um Flugleiða sagt upp
RÁÐGERT er, samkvæmt þeim
upplýsingum sem Mbl. hefur afl-
að sér, að segja upp um 100 af
starfsmönnum FLugleiða í næstu
viku í framhaldi af ákvörðun
stjórnar um að gæta fyllstu
sparsemi í rekstri fyrirtækisins.
Hér mun vera um að ræða u.þ.b.
50 störf á skrifstofum Flugleiða og
annað eins í röðum starfsfólks í
flugstöðvum og þá aðallega í
Keflavík og New York. Búið mun
vera að gefa mörgum af þessum
starfsmönnum í skyn hvað fram-
undan sé, en þó hafa endanlegar
ákvarðanir ekki verið teknar
ennþá. Uppsagnir þessar ná til um
það bil 20% af starfsfólki í
skrifstofuþjónustu FLugleiða.