Morgunblaðið - 19.07.1979, Side 8

Morgunblaðið - 19.07.1979, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ1979 Skiltlin"iiní> Br<tj(lahóls.staflir Hrakhólmar Landakt Eyvindarstaðir - __ Breiðamýri 0/Hinn sk'hnn Bjarmut' Lambhúaatjörn Selskai Gáleihraim Skóatiörn Garðahraun Nýibaer \ Álftanes í þetta sinn er ferðinni heitið um Alftanes, hinn söguríka stað, með höfuðbólinu Bessastöðum, sem um aldir var aðsetur æðstu valdsmanna landsins en er nú bústaður forseta Islands. Leiðin liggur af Reykjanesbrautinni við Engidal og vestur á nesið yfir Garðahraun. Engidalur var fyrrum vinsæll útiskemmtistaður og vissulega eiga margir núlifandi menn endurminningar þaðan, þótt flest sé þar nú á annan veg en fyrrum. Framundan og á hægri hönd er Gálgahraun, en þessi hraun munu hafa runnið frá Búrfelli, fyrir austan Hafnar- fjörð, fyrir um 7200 árum og alla leið út í Skerjafjörð, gegnt Álftanesi. Þegar hraunið er að baki, tekur við mjótt eiði milli tveggja vatna; er Skógtjörn á vinstri hönd, en Lambhúsatjörn á hægri. Innan stundar er komið að heimreiðinni að Bessastöðum. Þar er rétt að skilja bílinn eftir, og taka sér gönguferð um nesið. Við skulum ganga veginn til vinstri og brátt erum við komin að húsunum, en þau standa í röð meðfram sjónum norðureftir nesinu. Einhversstaðar mun vera smuga, svo unnt sé að komast niður í fjöruna, en hana er skemmtilegast að ganga, ekki síst ef lágsjávað er. Víkin er sem hér gengur inn í landið nefnist Helguvík, en handan hennar, yst á tanganum, er býlið Hlið. Úti í sjónum undan Hliði er hver. Fyrrum sást hann greinilega um fjöru, en þar sem land er stöðugt að síga hér við Flóann, þótt hægt fari, hefur hverinn horfið í djúpin, og sést ekki eins og fyrrum. Við göngum nú norður fjöruna. Þar er margt að skoða, og ef vel er að gætt, má vissulega sjá hér merki um horfna tíð, þegar um 70 skip voru gerð út til fiskiveiða héðan, á síðari hluta 19. aldar. Ef fjara er, koma upp ýmis ker og boðar, sem eru fyrir utan. Má nefna Hrakhólmana, sem eru þeirra stærstir og auðvelt að fara þangað eftir sléttum granda. En aðgát skal viðhöfð, því það fellur fljótt að, og þá er hætta á ferðum. Fyrir austan Hrakhólmana beygir hringvegurinn, um nesið, í áttina að vegamótunum fyrir sunnan heimreiðina að Bessa- stöðum, þar sem bíllinn var skilinn eftir. Ef lýja er ekki farinn að segja til, má lengja gönguna með því að halda áfram austur fjöruna og heim að Breiðabólstað. Þar bjó um og eftir sl. aldamót Erlendur Björnsson, hreppstjóri og aflasæll formaður. Er skráð um hann mikil saga og merkileg. Frá Breiðabólstað er hægt að ganga yfir á Bessastaðanes fyrir norðurendann á Bessastaða- tjörn, en sjálfsagt er að fá leyfi til þess hjá ábúendum, því mikið varp er á nesinu og skepnur hafðar þar í hága. Er umferð bönnuð um nesið frá því í apríl og fram í júlí. Rétt fyrir austan ósinn á Bessastaðatjörn er Skansinn. Þar var hlaðið virki árið 1688 og settar niður fall- byssur, er nota átti til varnar gegn innrás sjóræningja og annars illþýðis. Sem betur fór voru þær aldrei notaðar. Um síðustu aldamót var smákot á Skansinum. Bjuggu þá hjónin Málfríður og Eyjólfur þar og höfðu smá bú. Þau áttu son, er Ólafur hét. Var hann hinn mesti þrifnaðarmaður, kátur, fjörugur og lífsglaður en enginn söngmaður, segir í samtíma- heimild um hann. Ólafur Eyjólfsson er þó þekkt persóna, því um hann var saminn söngur- inn um Óla skans, sem hvert mannsbarn á íslandi kannast við. í þessari ferð er ekki úr vegi að líta inn í kirkjuna á Bessa- stöðum. Þar er ýmislegt að sjá og skoða, ekki síst kirkjuna sjálfa, en hún var byggð á árunum 1790—1823, utan um kirkjuna, sem fyrir var á staðn- um, en var miklu minni. Hér látum við staðar numið, en þessi stutta gönguferð um Álftanesið ætti að vera gagnleg öllum þeim, sem hafa áhuga á að kynnast landinu og þeirri sögu, sem við það er tengd. Við drekkum 100 þús. flöskur af kóki á dag ÍSLENDINGAR drekka um það bil eitt hundrað þúsund ílöskur af Coca-Cola á degi hverjum, að því er Pétur Björnsson fram- kvæmdastjóri Vífilfells staðfesti í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins f gær. Kvaðst hann ekki hafa nákvæmar tölur yfir neysl- una, en sagði þessa tölu nærri lagi. Eru þá allar stærðir kók- flaskanna meðtaldar, litlar, stór- ar og lftersflöskur. Pétur sagði, að árlega drykkju Islendingar meira en tuttugu milljónir lítra af öli og gosdrykkj- um. Árið 1978 skiptist það þannig, að þjóðin drakk 17.618.245 lítra af gosdrykkjum, sautján milljónir, sexhundruð og átján þúsund, tvö hundruð fjörutíu og fimm lítra. Sama ár drukku íslendingar 1.645.983 lítra af maltöli, og 1.549.453 lítra af öðrum óáfengum drykkjum (Pilsner, Thule). Arið 1978 nam innflutningur á þessum varningi 40.7 tonnum. Uppsagnirnar hjáFlugleidum: Vel hefur gengið að útvega fólkinu vinnu MJÓG vel hefur gengið að útvega þvf fólki vinnu sem sagt var upp störfum hjá Flugleiðum fyrir skömmu, að þvf er Grétar Kristjánsson á skrifstofu Flug- leiða tjáði Morgunblaðinu f gær. Grétar veitir forstöðu vinnumiðl- un sem sett var á stofn eftir að um 200 starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp, og hefur hún það verkefni að reyna að útvega því fólki vinnu annars staðar sem sagt var upp. Grétar sagði að mikið væri um það að einkafyrirtæki hefðu haft samband við Flugleiðir og beðið um að komast í samband við eitthvað af því fólki sem uppsagnarbréfin fékk. Væri margt þessa fólks þegar komið í aðra vinnu, og fengi það að fara án uppsagnarfrestsins ef þess væri óskað, enda gætu Flugleiðir ekki tryggt fólkinu vinnu áfram. Þó sagði Grétar talsvert vera um það að fólk vildi ekki hætta, heldur ætlaði að vinna til síðasta dags í von um endurráðningu ef úr rætt- ist hjá Flugleiðum í haust. Grétar sagði það aðallega vera skrifstofufólk sem hér væri um að ræða, en eðlilega giltu önnur sjón- armið varðandi flugliðana. Um flugfreyjur þær, sem ráðnar höfðu verið, en urðu að bíða eftir vinnu, sagði hann að þær hefðu nú allar hafið störf, eftir að Tían er komin í gagnið á ný, en um 30 til 40 flugfreyjur var þar aö ræða. Frá Kynningardeild Flugleiða: 6.2% Loftleiðamanna sagt upp, en 7.8% Flugfélagsmanna Morgunblaðinu hefur borist eft- irfarandi frá Kynningardeild Flugleiða: „Vegna endurtekinna ummæla í blöðum að undanförnu þess efnis að uppsagnir starfsfólks hjá Flug- leiðum hafi bitnað harðar á fyrr- verandi starfsmönnum Loftleiða en fyrrverandi starfsmönnum Flugfé- lags íslands þykir rétt að eftirfar- andi komi fram. Sameining félaganna varð raun- veruleg 1. ágúst 1973. Fast starfslið félaganna í mars það ár, áður en sumarfólk kom til starfa, var sem hér segir: Flugfélag ísland, 425 starfsmenn, Loftleiðir, 706 starfs- raenn. Alls urðu starfsmenn á íslandi þá 1131. Þar af var starfs- fólk sem kom frá Loftleiðum 62.4%, en frá Flugfélagi íslands 37.6%. Af 175 starfsmönnum sem sagt var upp störfum 29. júní sl., höfðu 94 ráðist beint til Flugleiða eftir stofnun þess félags. Af þeim sem ráðist höfðu beint til Loftleiða var 48 sagt upp, en af þeim sem ráðist höfðu beint til Flugfélags íslands var 33 sagt upp störfum. Hlutföllin eru því þau að sé miðað við fasta starfsmenn félag- anna fyrir sameiningu var 6.2% Loftleiðamanna sagt upp en 7.8% þeirra sem komu frá Flugfélagi Islands sagt upp störfum. Þessi sanjanburður ætti að nægja til þess að leiða hið rétta í ljós í þessu máli.“ Arnarhóll - Fasteignasala Hverfisgötu 16 a. Sími: 28311. Höfum kaupendur aö í Laugarneshverfi, ca. 120 fm sér hæö. Þarf að losna fljótlega. í Hlíöum eöa Teigum 130 fm sér hæö eða raðhús. í vesturbæ eöa Háaleiti 4ra herb. íbúð. í vesturbæ, Lækjum eöa Hlíö- um 4ra—5 herb. íbúö. í Seljahverfi 4ra herb. íbúö. Einnig sér hæöum, raöhúsum, parhúsum og einbýlishúsum og öllum smærri eignum. Fjár- sterkir kaupendur. Kvöld- og helgarsímar 26261 og 76288. 31710 31711 Brekkubær Raðhús, tvær hæöir og kjallari á einum fegursta staö í Selási. Húsin afhendast fokheld aö innan en tilbúin undir málningu að utan, glerjuð meö útihurðum og trjágróöri í garöi. Teikningar á skrifstofunni. Blikahólar Tveggja herbergja falleg íbúö, ca. 65 fm. Hjallabraut Þriggja herbergja íbúö, 93 fm, fæst í skiptum fyrir tveggja herbergja íbúö í Hafnarfiröi. Blikahólar Þriggja herbergja vönduð íbúö, ca. 97 fm. Stór og góöur bílskúr. Sumarbústaður í Kjós, 40 fm, land 'A ha, vandaður bústaður. Ásbúð Einbýlishús í byggingu í Garöa- bæ, góð teikning. 31710 31711 Höfum kaupendur að eftirtöldum eignum: Þriggja herbergja íbúö í Hafnar- firði. Góöri þriggja herbergja íbúð í Háaleitishverfi. Fjögurra herbergja íbúö í Aust- urbænum í Reykjavík. Litlu húsi í Gamla bænum í Hafnarfiröi. Góöum sumarbústaö á stóru landi fyrir fjársterk félagasam- tök. Einbýlishús í Garðabæ, fok- heldu eöa lengra komnu. Fasteignamiðlunin Ármúla 1 — 105 Reykjavík Símar 31710 — 31711 Fasteignaviöskipti: Guðmundur Jónsson, sími 34861 Matthias Pétursson, sími 43490 Magnús Þórðarson, hdl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.