Morgunblaðið - 19.07.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ1979
13
i ^ Sparid orkunal
m m Sturta í ataó baókara. 4 mín.
aturta aparar 4 kwat.
Enda finnur fólk sjálft að það
verður sljórra til allra verka og
hugsunar í miklum hita. Þeim
mun heitara sem er inni í stof-
unni, því þurrara er loftið og
líkaminn bregst við því, húðin,
augun og slímhimnan þornar og
maður verður sljórri og latari.
Blóm og húsdýr þrífast greini-
lega betur ef ekki er of heitt, og
þurrkinn má sjá á húsgögn-
unum. Það er heldur ekki út í
loftið að svefnhitinn er kjörinn
18 stig, því þá telja læknar að
jafnvægið sé best milli hita-
framleiðslu líkamans og hitans í
herberginu. Svíar hafa látið
útbúa spjald, sem hver og einn
getur haft við höndina, en það er
þeirrar náttúru að blána á viss-
um bletti til aðvörunar, þegar
hitinn fer upp fyrir 20 stig, og
enn meira ef hann fer upp í 25
stig.
Nú er reiknað með að hver gráða,
sem hægt er að lækka hitastigið
um, hafi í för með sér 6—7%
minni orku til upphitunar.
Þarna liggur drjúg upphæð í
hverju hitastigi, sem er umfram
það sem maður í rauninni þarf
eða vill hafa, en hefur vanið sig
á.
Loftræsting
stutta stund
Að sjálfsögðu þarf að lofta út eða
skipta um loft í híbýlum fólks.
En ekki er sama hvernig það er
gert, með tilliti til hitataps.
• Hagkvæmastur er gegnum-
trekkur meðan loftað er út, en
ekki má hafa lengi opið í einu.
Ekki svo að allir innanstokks-
munir og veggir kólni. Því er
best að opna upp á gátt svolitla
stund, til dæmis glugga beggja
vegna í íbúðinni, eða svalahurð
og glugga og loka svo aftur.
• Sé hitastillir í íbúðinni verður
að sjálfsögðu að skrúfa ofnana á
0 meðan opnað er út, því annars
herðir hitakerfið sig. Fer á fulla
ferð til að halda í við kælinguna.
Að opna glugga og kynda á fullu
er auðvitað mesta bruðl, enda
drjúgt viðfangsefni að hita
geiminn.
• Staðsetning þreifara í herberg-
inu skiptir líka höfuðmáli. Sé
hann á veggnum, verður hann að
vera þar sem hann sýnir raun-
verulega hitann í stofunni, en
ekki t.d. nálægt glugga eða hurð,
sem trekkur er um eða gengið
um. Þá gefur hann falska fyrir-
skipun til hitatækjanna.
Húsgögnin og
hitastreymið
Þá er ekki sama hvernig húsgögn-
um er fyrir komið í íbúðinni.
Staðsetning þeirra getur haft
veruleg áhrif á hitastreymi.
Dæmi:
0 bókahilla við útvegg verkar
sem einangrun
• veggteppi á útvegg einangrar
líka
• þykk gluggatjöld geta lokað
fyrir hitastreymi frá ofni
undir glugga og einangrað
hann frá herberginu
• rúllugardínur minnka varma-
tapið um gluggann, svo og
álþynnur (eins og sjá má í
húsum á Keflavíkurflugvelli)
Ofnar — ál
bak við ofninn
Meðferð og stilling á ofnunum
sjálfum skiptir miklu. Ofnarnir í
íbúðinni þurfa að vera vel sam-
stilltir til að virka jafnt. Skiptir
máli t.d. í sambýlishúsum með
eina hitakerfi að stillingu sé ekki
ruglað. En fleiru má hagræða.
Dæmi:
• gæta þess að hleypa lofti af
ofnunum.
• gott getur verið að setja ál-
pappírsþynnu bak við ofninn,
þá endurkastast hitinn inn í
herbergið.
• liturinn á ofninum skiptir
máli. Bronsaðir ofnar eru til
dæmis slæmir vegna útgeisl-
unar o.s.frv.
• hvers konar einangrun milli
ofns og veggjar getur komið
að gagni.
Sturtan
sparneytnari
Þar sem neysluvatn er hitað, er
það oft yfirhitað, þ.e. hitað of
mikið og stundum kælt aftur. í
flestum tilfellum nægir 50 stiga
heitt vatn og er þá sparnaður að
hita það ekki meira og bruðla
ekki með orkuna.
Sturtubað er mun sparneytnara á
heitt vatn en baðkar. Fjögurra
mínútna sturta í stað vatns í
baðkari er talin spara 4 kíló-
watstundir af orku.
• góð pakkning á krönum skipt-
ir máli. Það er orkusóun sé
hún farin að láta sig
• þvottur og skolun, t.d. á disk-
um í uppþvottavélina, tekur
drjúgt vatn. Miklu munar
hvort skolað er eða þvegið upp
undir sírennandi vatni, eða
með vatni í bala.
• uppþvottavél ætti aldrei að
setja í gang fyrr en hún er
orðin full.
• raforka sparast, ef ekki er
þvegið í hálftómri þvottavél.
• ísskápinn ætti að þýða áður
en íslagið nær '/2sm. 6 gráður
þykir hæfilegur kuldi fyrir
matföng í frystiskápnum, en
18 stiga frost í kistunni.
Þannig mætti lengi telja. Margt
smátt gerir eitt stórt orkutap.
29% minni orka
í sambýlishúsi
Hér í upphafi var fjallað um
orkutap í einbýlishúsi á einni
hæð. En að sjálfsögðu munar
hvort um er að ræða hús með
miklum útveggjum eða íbúð í
sambýlishúsi og þá hvar íbúðin
er í húsinu, undir þaki eða í
miðju húsi.
Þegar borið er saman slíkt einbýl-
ishús á einni hæð og íbúðir í
fjögurra hæða sambýlishúsi, er
talið að 29% minni orku þurfi til
að hita upp rúmmálseiningu í
sambýlishúsinu. Það ætti fólk að
gera sér grein fyrir, þegar það
velur sér húsnæði í upphafi eða
ákveður að stækka við sig og
komast í einbýlishús.
Hitunin sjálf fellur utan ramma
þessa greinarkorns. Fjallað var
| um möguleika hitaitna í síðustu
grein. En auk hitaveitna er vert
að líta á fleira. Hafa til dæmis í
huga að sé selt rafmagn til
hitunar, sem framleitt er með
dieselvélum, þá nýtist í upphit-
unina tæplega V4 af olíunni og
væri drýgra og ódýrara að hita
með henni beint. í svo ört hækk-
andi orkuverði er líka vert að
líta á vindmyllur til rafmagns-
framleiðslu og til að hita vatn,
enda hafa ýmsir aðilar verið að
kanna slíkt. Einnig að drýgja
hitann þar sem volgrur eru með
varmadælum, svo nýta megi
hann til drýginda. Fleira mætti
vafalaust nefna, en hér var
sjónum einkum beint að því hvað
hver íbúi getur gert sjálfur til að
lækka hita- og rafmagnsreikn-
ing sinn.
-E.Pá.
Manrti líður batur af hitínn fmr *kki upp tyrir 20—21 stig í stofunni.
Og hvert lækkað hitaatig aparar 8—7% orku.
Skátaskólinn
Úlfljótsvatni
Sumarbúðir og útilífsnámskeið
fyrir 7—12 ára börn. Nokkur laus pláss á síöustu
námskeiðunum.
24,—31. júlí, 8.—15. ágúst, 15,—22. ágúst.
Flokksforingjanámskeið
fyrir 12—15 ára skáta.
15.—22. ágúst 23.-29. ágúst.
Upplýsingar og innritun kl. 9—13 á skrifstofu
Bandalags íslenskra skáta,
Blönduhlíö 35,
sími 23190.
KL.17*
HANDBREMSUNA Á !
ATH. Við sitjum kyrr í bifreiðunum þessar
tvær mínútur til að geta fært þær
strax úr vegi, þurfi sjúkra-
slökkviliðs-, eða lögreglubifreiðar að
komast framhjá.
Samstarfsnefnd
bifreiðaeigenda.
Ríkisstjórnin grípur tækifærið
þegar bensínlítrinn hækkar
í verði um 26 krónur og leggur
sjálf 30 krónur ofan á
hækkunina.
Þar af eiga aðeins 11 krónur að
renna til vegasjóðs.
Sýnum ráðherrum hug okkar
til slíks ráðslags með
algjörri þátttöku í tveggja
mínútna stöðvun allra
ökutækja klukkan kortér yfir
fimm, hvar sem þau eru stödd.