Morgunblaðið - 24.07.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ1979
5
Hinrik biskup Frehen ásamt tveimur þýskum prestum við athöfnina á
sunnudaginn, fyrir altari Kristskirkju.
Þess var minnst á sunnudaginn
með hátíðarguðsþjónustu í Krists-
kirkju í Landakoti, að rétt fimm-
tíu ár voru liðin frá vígslu kirkj-
unnar. Fjöldi manna sótti hátíð-
arguðsþjónustuna, og meðal tig-
inna gesta voru forsetahjónin,
forsætisráðherra og frú, kirkju-
málaráðherra og frú, og borgar-
stjórinn í Reykjavík og kona hans.
Var hvert sæti hinnar miklu
kirkju Krists konungs skipað, auk
þess sem margir stóðu í anddyri.
Biskup kaþólskra manna á Islandi,
dr. Hinrik Frehen, messaði, en auk
hans tóku þátt í messugjörðinni
þýskir gestir og íslenskir aðstoð-
armenn, og fór athöfnin mest
megnis fram á islensku. Daginn
áður, á laugardaginn, fór fram
prestvígsla í Kristskirkju, er Agúst
K. Eyjólfsson var vígður til prests,
einn örfárra íslendinga er tekið
hefur prestvígslu í kaþólskum sið
hér á landi eftir siðaskiptin 1550.
Frá kirkjuvíglsunni árið 1929
sagði svo í Fálkanum það ár:
Ljósm. ÓI.K.Mag.
Mikill mannfjöldi var við athöfnina í Kristskirkju á sunnudagsmorg-
uninn, er þess var minnst með hátíðarguðsþjónustu að hálf öld er liðin
frá vigslu kirkjunnar.
„Síðari hluta dags hófst kirkju-
vígslan. Það er suðrænn ef ekki
austrænn blær yfir helgisiðum
kaþólskra manna, litir og ljós,
iðandi líf og þó eins og töfrablær
yfir öllu saman. Það er ekki
íslenzkt í eðli sínu og þó hafa þessir
siðir verið hérlendir og forfeðrum
vorum eðlilegir. Það hafa að vísu
aldrei verið vígðir biskupar hér á
kaþólskri öld, en kirkjuvígslur hafa
oft verið framdar hér með alveg
sama hætti og kardináli van Ross-
um vígði nú Kristskirkjuna í
Landakoti. Er hann gekk með
mítur og kórkápu um kirkjuna og
stökkti hana vígðu vatni, hár og
herðalotinn, gat maður látið sér
fljúga í hug að her kæmi Jón
Hólabiskup Arason. Kirkjuvígslan
er löng athöfn og ærið fornleg og
liggur hin leyndardómsfulla mein-
ing hennar ekki alltaf á lausu.
Athöfnin er í aðalatriðum hreins-
un.“
Margt svipað má segja um
guðsþjónustu þá er fram fór á
sunnudaginn, þar var fátt eitt er
minnti á guðsþjónustur þær er
þorri íslendinga sækir í þjóðkirkj-
unni, Hinni Evangelísku Lúthersku
kirkju. Skrúðganga biskups, presta
og kórdrengja og annarra aðstoð-
armanna úr og í kirkju, reykelsi
var brennt í kirkjunni, biskup bar
mítur og bagal, flókin helgiatriði
fyrir altari, mikil þátttaka kirkju-
gesta í athöfninni, samskotabauk-
ur gekk um kirkjuna á meðan á
athöfninni stóð, allt er þetta ólíkt
því sem flestir íslendingar eiga að
venjast í kirkju. En öll var athöfn-
in hin hátiðlegasta, og ógleymanleg
þeim er viðstaddir voru.
Að athöfninni lokinni. Forseti
íslands, herra Kristján Eldjárn
og kona hans, frú Halldóra,
ganga úr kirkju undir leiðsögn
nunnu frá Landakoti.
Geir Hallgrímsson
Afmælishátíðir Sjálfstæðisflokksins:
Á Ólafsfirði og
í Skjólbrekku
Lárus Jónsson
um næstu helgi
AFMÆLISHÁTÍÐIR í tiiefni 50
ára afmælis Sjálfstæðisflokksins
verða áfram haldnar um helgina,
á föstudagskvöld á Ólafsfirði og á
laugardagskvöld f Skjólbrekku,
Mývatnssveit.
Skemmtiatriðin hefjast klukkan
21.00 og þar eru á dagskrá gaman-
mál Þóru Friðriksdóttur, Jóns
Sigurbjörnssonar, Svanhildar og
Jörundar. Einnig verður bingó og
tízkusýningar, sem Karon samtök-
in annast. Diskótekið Dísa og
Hljómsveit Óla Gauks sjá um
tónlistina og leika svo fyrir dans-
inum.
Á afmælishátíðinni í Ólafsfirði
flytja ávörp: Geir Hallgrímsson
formaður Sjálfstæðisflokksins og
Lárus Jónsson alþingismaður, og í
Skjólbrekku Geir og Halldór Blön-
dal blaðamaður.
Halldór Blöndal
Einnar kaloríu
kóladrykkur
Nú er kominn nær kaloríulaus kóladrykkur -
sykursnautt Spur - drykkur sem gleður alla
sem eru í kapphlaupi við kílóin.
Sykursnautt Spur inniheldur innan við eina
kaloríu í hverri flösku - það er 80 sinnum
minna en í venjulegum kóladrykk.
HF.ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON