Morgunblaðið - 14.08.1979, Síða 8

Morgunblaðið - 14.08.1979, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 NÚ í vikunni hófust framkvæmdir við að hrúa Önundarfjörð hjá Holti. Sjálf brúarsmíðin hefst þó ekki fyrr en næsta sumar, en uppfyllint'u að hrúnni á að ljúka í sumar svo og brúargerð á Vaðl- inum sem er í tengslum við Önundarfjarðarbrú. Vegavinnuflokkur skip- aður mönnum úr Vestur- ísafjarðarsýslu er nú þarna að störfum, en verkstjóri þeirra ér Guðmundur Gunnarsson frá Flateyri. í tilcfni þessa hitti blm. Morg- Séð yfir Önundarfjörð til Holts. Brúin verður innan við rafiínuna. ar um 6 km. Hitt, sem er kannski einnig mikilvægt er samgöngubótin á vetrum fyrir Mýrhreppinga í Dýra- firði. Ef Dýrafjörður teppist er möguleiki á mjólkurflutn- ingum um Holtsbryggju sé Gemlufallsheiði fær.“ Hvað er áætlað með kostn- að? „í sumar er ráðgert að vinna fyrir 85 milljónir í veginum, en brúarsmíðin yfir Vaðalinn mun áætluð á 50 milljónir skv. fjárlögum. Þess má geta hér að brúar- vinnuflokkur er væntanlegur í næstu viku og erum við að undirbúa þannig að þeir geti byrjað. Onundarfjörður brúaður Fr amkv æmdir að hefi as t unblaðsins Guðmund að máli í búðum þeirra vegageröarmanna í landi Mosvalla. „Þetta eru byrjunar- framkvæmdir í sambandi við brúargerð yfir Önundarfjörð og það sem gert verður núna er að fylla upp að brúarstæð- inu út í fjörðinn og tengja þá uppfyllingu Vestfjarðavegi þar sem vegamótin eru fyrir neðan Mosvelli. Helmingur af þessari framkvæmd er uppfylling út í fjörðinn. Þá verða vegamótin á Valþjófs- dalsvegi við brúarsporð væntanlegrar brúar.“ Hvernig brú er fyrirhuguð þarna? „Hún er nú víst ekki full- hönnuð ennþá en talað hefur verið um allt að 70 metra brú sem ætti að ná um það bil 95% vatnaskiptum. Þetta verður steypt stöplabrú, en vegalengdin frá fjöruborði til fjöruborðs er um 1000 metr- ar.“ Þetta verður þá ærin fylling" „Já, það mætti ætla það, en meðaltalsfylling í Vaðlin- um sem svo heitir er um þrír metrar, en fyllingin yfir fjörðinn verður að meðaltali þrír og sextíu, sem er út af fyrir sig ekki rnikið." Hvað um ísrek? „Það þarf að grjótverja alla uppfyllinguna, smátt grjót innra en stórt grjót hið ytra, einnig vegna skolunar sem alltaf er fyrir hendi." Texti og myndir: Finnbogi Hermannsson Ef þú gæfir okkur svolítið yfirlit yfir brúna sem sam- göngubót? „Já, þessi brú styttir leið- ina á Holtsflugvöll frá Flat- eyri um 10 kílómetra, en flugvöllur Flateyringa og Önundarfjarðar er í Holti. Þá mun brúin stytta vestur- leiðina, eða Vestfjarðaveg sem hann heitir, til Isafjarð- I N J~hr^J6 „Þú spyrð um tæki og menn, jú, mannskapurinn er einkum héðan úr vestursýsl- unni, einnig leiguvélar, og dagskostnaður getur farið upp í 1800 þús. á dag þegar allt er í gangi. Nú er þetta ákaflega mikið lífríki hér á Vöðlunum í Önundarfirði, óttast menn ekki röskun á því? „Það er talið að það muni ekki saka. Hér var líffræð- ingur í vor frá Náttúrufræði- stofnuninni og vann hann að rannsókn á fuglalífi og fleiru. Hann telur allt með felldu þótt fjörðurinn verði brúaður, en skýrsla frá hon- um mun vera á leiðinni." Landeigendur hafa sætt sig við þetta? „Já það er fullt samkomu- lag við landeigendur, en auð- vitað er svona mannvirki tilfinningamál." Eftir rabb yfir kaffisopa í matskála var Guðmundur svo vinsamlegur að rölta með blm. um svæðið og að fyrir- huguðu brúarstæði sem er millum Holts og Veðrarár hins vegar við Önundarfjörð. Séra Lárus í Holti: Þetta kemur til með að lýta fiörðinn” 99 Á hlaðinu í Holti var séra Lárus Guðmundsson prófastur að fá reítan gang í Bronco þegar okkur bar að. Hvernig snýr brúargerðin að ykkur hérna í Holti? Það er óhjákvæmilegt að öll vegagerð spillir landi, hvort sem það er Hoitsland eða annað. En þeir mega eiga það hjá Vegagerðinni hérna að þeir ganga vel frá sárum. Ég held þetta' komi til með að lýta fjörðinn og nátturuverndar- samtök Vestfjarða hafa mót- mælt á þeirri forsendu. Ég held líka að menn séu hræddir við afleiðingarnar þegar litið er til ára eða áratuga. Þið starfið bæði á Flateyri hjónin? Þetta styttir leiðina og við græðum eitthvað á þessu í krónum, en við töpum á þessu tilfinningalega. Nú er þó nokkuð æðarvarp hér niður frá? Það er talið að það muni ekki skaðast vegna þess að æðurinn leitar þangað sem maðurinn gengur um. Er urgur hér í sveitinni út af brunni? Nei yfirleitt, ekki, flestallir hafa verið samþykkir brúnni, en ekki allir. Við verðum bara að vona það besta, því lífríkið hérna er mjög fjölskrúðugt og viðkvæmt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.