Morgunblaðið - 14.08.1979, Page 43

Morgunblaðið - 14.08.1979, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 23 verðlaunasaeti á íslandsmóti. Leikur Selfoss og ÍA var jafn í fyrri hálfleik, en ef nokkuð, áttu Skagamenn þó hættulegri færi, þannig brenndu þeir einu sinni af fyrir opnu marki og bakvörðurinn Árnar Friðþjófsson bjargaði meistaralega af marklínu skoti Valdemars Sigurðssonar, sem hafði leikið á markvörðinn. Sel- foss skoraði þó eina mark hálf- leiksins og var þar að verki Jón B. Guðmundsson með þrumuskot beint úr aukaspyrnu. Skagamenn jöfnuðu á 15. mín- útu síðari hálfleiks, er Jóhannes Gunnlaugsson fékk fallega stungusendingu inn fyrir vörn Selfoss og skoraði af öryggi fram hjá úthlaupandi markverðinum. Upp úr því sóttu Selfyssingar í sig veðrið og þeir foru fljótir að ná Sclfyssingar voru sterkir og kræktu í þriðja sætið. Skagamenn urðu að láta áer lynda f jórða sætið. ÍBK varð í fimmta sæti. • Sindri rak lestina í sjötta sæti. Ljósmyndir: Þorvaldur Birgisson forystunni á nýjan leik. Þar var að verki Páll Guðmundsson, athyglis- verður framlínumaður í liði Sel- foss. Skallaði hann örugglega í netið í kjölfar hornspyrnu. Mínútu síðar fékk Páll síðan tvö dauða- færi, en markvörður ÍA bjargaði í bæði skiptin. Stangarskot átti sér þarna einnig stað. IA færðist í aukana undir lokin oig bjargaði þá Sveinbjörn Másson í markinu nokkrum sinnum vel með úthlaup- ÍBK í 5. sæti Það var óvænt hlutskipti ÍA og ÍBK að hafna í 4. og 5. sætinu, en lið þeirra hafa greinilega verið ofmetin, eða hin kannski frekar vanmetin. ÍBK átti þó í nokkru basli með Sindra, þó að 2—0 sigur hafi loks náðst. Sindramenn börð- ust vel og gáfu ekki þumlung eftir. ÍBK var með sterkari liðsheild, en Sindri betri einstaklinga. Skipu- lagið sigraði að þessu sinni eins og oft vill verða. Kristján Geirsson skoraði fyrra mark ÍBK á 12. mínútu. Góð sending kom þá fyrir markið og þó skot Kristjáns hafi ekki verið fast, var það erfitt viðureignar fyrir markvörð Sindra, sem kom hlaupandi þvert yfir markið og fékk svo skotið öfugu megin við sig. Enda rann hann á hausinn. Síðara mark sitt skoruðu Suður- nesjamenn ekki fyrr en á síðustu mínútu leiksins og var þar vara- maðurinn Einar Kristjánsson að verki eftir hornspyrnu. Eðvarð sundkappi Eðvarðsson markvörður ÍBK átti mjög yfir- vegaðan leik hjá ÍBK, Kristján Geirsson, markaskorarinn var einnig góður, annars var styrkur ÍBK einkum fólginn í sterkri liðsheild. Sindramenn eiga nokkra fram- úrskarandi leikna einstaklinga, ekki í fyrsta skipti, því að 5. flokkurinn var í úrslitum í 4. skiptið á jafnmörgum árum. Og alltaf hafa nokkrir leikmanna liðsins vakið athygli. Að þessu sinni má nefna framherjann Hlyn Arnórsson, Gunnar Valgeirsson og Val Sveinsson. Ásgeir Gunn- arsson miðvörður átti og sterkan leik. í lok mótsins afhenti Helgi Daníelsson, KSÍ-maður, fyrirliða ÍR Finni Pálmasyni veglegan bik- ar og var gleði IR-inga jafnmikil og leiði norðanmanna. En þeir gera bara betur næst, það er enginn heimsendir og það er tilhlökkunarefni að flestum þess- ara pilta skuli eiga eftir að fara gífurlega fram í knattspyrnunni næstu árin. Áhorfendur horfðu þarna örugglega á fleiri en einn upprennandi landsliðsmann. Þrátt fyrir að yfirleitt hafi verið vel að úrslitakeppninni staðið, má undirritaður til með að pexa svolítið við viðkomandi aðila. Hvers vegna var félögunum ekki boðið upp á varamannatjöldin? Það var skítaveður framan af sunnudagsrporgni og varamenn og þjálfarar liðsins norpuðu í kuldan- um og gátu ekki einu sinni sest vegna grasbleytu. Og völlurinn var færður þannig til, að nærri miðlínu úti við aðra endalínuna var vígalegt niðurfall með tilheyr- andi hlemmi. Var vel sloppið að enginn skyldi meiða sig á því, en slíkt er ekki æskilegasti hlutur til að hafa inn á grasvelli. Að öðru leyti er ekki annað að sjá en að aðstandendur mótsins eigi hrós skilið fyrir skerf sinn til mótsins, utan dómarastéttin, en línuvörður lét sig vanta í leik IA og IR og töldu Skagamenn að það , hefði kostað sig mark. Eitt vakti athygli á sunnu- dagsmorguninn, þegar úrslitaleik- irnir þrír fóru fram. Aldrei var leikur stöðvaður vegna meiðsla leikmanns, enginn var bókaður því síður rekinn af leikvelli. Sam1 var kappið og baráttan litlu minni en hjá t.d. meistaraflokki. Hvers vegna taka þeir eldri ekki pollana sér til fyrirmyndar í þessum efnum? — KK- Liverpool tók bikarmeistara Arsenalí kennslustund Englandsmeistararnir í knattspvrnu og hikarmeistararnir. Liverpool og Arsenal. léku á laugardaginn um hinn svonefnda góðgerðarskjiild. eða ..Charity Shield" á Wemhley leikvangin- um í Lundúnum. Leikur þessi er árlegur viðhurður og er litið á hann sem opnun að Engiandsmeistarakeppninni í knattspvrnu. en hún hefst á fullri ferð næstu helgi með heilli umferð í öllum deildum. Liverpool og Arsenal skemmtu tæpum 100.000 áhoríendum á Wemhley á laugardaginn. eða iillu heldur Liverpool skemmti þeim. því að liðið sýndi snilldartakta frá upphafi til enda og leikmenn Arsenal komust aldrei að til að sýna hvað þeir gætu. Liverpool vann örugglega 3 —1 og var það í minnsta lagi. staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Liverpool. Sem fyrr segir var sigurinn í minnsta lagi. Liverpool tók leikinn þegar í sínar hendur og nær hefði verið að leikmenn liðsins skoruðu 5 mörk í fyrri hálfleik í stað eins. Pat Jenn- ings, markvörður Arsenal, var eins og frumskógur á marklín- unni lengst af og erfitt var að komast í gegn um hann. Dave Johnson klúðraði dauðafæri sem McDermott bjó til fyrir hann á 3. mínútu ög aðeins 5 mínútum síðar varði Jennings snilldarlega hörku- skot Kenny Dalglish. Enn liðu ekki nema tvær mínútur og þá sendi Dalglish knöttinn i netið, en var dæmdur rangstæður. Alan Sunderland ‘brenndi af einu góðu færi fyrir Arsenal, en Liverpool gaf ekki fleiri færi á sér í bráð. Jennings varði síðan aftur, skot frá Johrison, áður en að fyrsta markið leit dagsins ljós. Það var á 38. mínútu, Ray Kennedy sendi laglega á Terry McDermott, sem skoraði örugglega. Liverpool slakaði ekki á nema síður sé í síðari hálfleik og ekki leið á löngu þar til annað markið var staðreynd. Það var dæmigert mark fyrir Kenny Dalglish. Hann fékk knöttinn frá Alan Hansen við vítateigslínuna, snéri á tvo varnarmenn með bolvindu og spyrnti síðan í netið án þess að Jennings kæmi nokkrum vörn- um við. Þrátt fyrir snilli Jenn- ings, bætti McDermott við þriðja markinu. 3 mínútum fyrir leikslok, skoraði Alan Sunderland eina mark Arsenal, en eins og aö líkum lætur, skipti það engu máli varðandi úrslit leiksins. Liverpool lék slíka knatt- spyrnu í leik þessum, að sér- fræðingar ytra telja að þó að ótrúlegt sé, sé liö Liverpool mun sterkara en nokkru sinni fyrr. Einkum er það miðvall- arspil liðsins sem er frábært, en þar ráða ríkjum fjórir kappar, Graeme Souness, Terry McDermott, Ray Kenn- edy og Jimmy Case. Israelski landsliðsmaðurinn Avi Cohen var á varamannabekknum hjá Liverpool, en kom ekki inn á. Terry McDermott skoraði tvívegis fyrir Liverpool gcgn Arsenal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.