Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. AGUST 1979 25 Ljósm. Sigtryggur áá ana að lið ÍA er í uppbyggingu eftir að hafa misst sterka menn en Valur hefur haldið sínum beztu mönnum 3—4 ár, mjög góðum mönnum, sem allir geta gert það með boltann sem þá lystir." Veður var fremur leiðinlegt á Akranesi á sunnudaginn. Gekk á með skúrum og var völlurinn því blautur. í STUTTU MÁLI: Akranesvölllur 12. ágúst, ís- landsmótiö 1. deild, Akranes — Valur 1:2 (0:2). Mark ÍA: Árni Sveinsson é 82. mínútu. Mörk Vals: Albert Gudmundsson á 39. mínútu og Höröur Hilmarsson á 45. mínútu. Áhorfendur: 1800. Spjöld: Matthías Hallgrímsson, rautt spjald, Hörður Hilmarsson, Jón Alfreðsson, Ólafur Danivalsson, Guðjón Þórðarson og Guðmundur Þorbjörnsson gul spjöld. - SS. Grímur Sæm. Gunnar Gfslas. KR og IBV aðstoða Val ALLT virðist ætla að hjálpast við að gera Val að íslandsmeistara í knattspyrnu. Sama dag og Vals- menn sóttu tvö stig á einhvern erfiðasta völl tii heimsóknar. völlinn á Akranesi. deildu liðin tvö sem næst Val og ÍA hafa verið. KR og ÍBV. stigum á Laugardaisvellinum. Jafntefli varð. 2—2. staðan í hálfleik var 1 — 1. Það var áthyglisvert. að leikurinn fór fram á Fögruvöll- um. ekki aðalleikvanginum eins og margir töldu sig þó hafa heyrt auglýst. Leikur KR og ÍBV var með þeim betri á sumrinu. oft vel leikinn. opinn í báða endá og hörkuspennandi. Varla þarf að geta þess að baráttan var rosa- ieg. Valur hefur nú 3 stiga forystu og ef svo heldur sem horfir. mun spennan fara að þverra í mótinu. Ekki einu sinni bikarkeppnin er líkleg til að verða tvísýn. því að ætla má. að lið Vals sé nú mun sterkara en bæði lið Þróttar og Fram. KR-ingar voru mun hættulegri í aðgerðum sínum gegn IBV framan af og úr þeim herbúðum kom lengi vel ekkert nema einstaklings framtak Tómasar Pálssonar. Það var Jón Oddsson sem fékk færin, skallaði í fang Arsæls markvarð- ar, skaut naumlega yfir svo nokk- uð sé nefnt. Aðdragandinn að færum Jóns var góður. boltinn KR:IBV 2:2 gekk frá manni til manns og KR-ingar virtust vera í essinu sínu. Hinum megin átti Gústaf eitt skot vel yfir markið úr þokka- legu færi. Var KR-vörnin þarna steinsofandi og Gústaf sá enga ástæðu til að vekja hana. Arsæll Sveinsson markvörður IBV varð að taka á honum stóra sínum á 12. mínútu, þegar hann varði fast skot Birgis Guðjónsson- ar, sem kom eftir fallegan undir- búning Sverris Herbertssonar og fleiri góðra manna. Það var því samkvæmt þessu frekar óvænt þegar IBV náði forystunni. Tómas Pálsson lék þá Örn Guðmundsson grátt, komst upp að endamörkum, en fyrirgjöf hans fyrir markið steytti af Berki Ingvarssyni og smaug í netið. Þaö tók KR-inga varla mínútu að jafna, en þá tók Snæbjörn Guðmundsson aukaspyrnu inn í teiginn og Sigurður Indriðason skallaði glæsilega í netið, gersam- lega óverjandi fyrir Arsæl. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik, en Ársæil kvað Jón Odds- son einu sinni snarlega í kútinn með gullfallegri markvörslu, er Jón skaut hörkuskoti frá vítateig. j Besta færi ÍBV var gott skot Sveins yfir markið rétt fyrir hlé. Síðari hálfleikur byrjaði ekki gæfulega fyrir Stefán Örn Sig- urðsson, sem brenndi illa af góðu skotfæri á 8. mínútu. KR-ingar voru afar fjörugir framan af síðari hálfleik og á 57. mínútu náðu þeir forystu með glæsiskalla Barkar Ingvarssonar, eftir gríðar: legt innkast Jóns Oddssonar. I kjölfarið komu bæði skot í stöng og hliðarnetið hjá ÍBV. F.yjamenn jöfnuðu óvænt á 71. mínútu og skrifast það mark að mörgu leyti á Hreiðar Sigtryggs- son markvörð, hans einu mistök í leiknum. Há sending kom inn í teiginn og Hreiðar æddi út úr markinu hrópandi „hef hann“. En hann hafði hann alls ekki og boltinn hrökk í bak Arnars Oskarssonar, þaðan til Sveins Sveinssonar, sem vippaði knettin- um yfir allan skarann og í opið markið, 2—2. Við þetta dró allan mátt úr KR-ingum og Eyjamenn, einkum þó Tómas og Örn, sem kominn var í framlínuna, óðu inn og út að vild. Örn var einkum í því að mata aðra, en Tómas var marksæknari. T.d. átti hann eitt þrumuskot á markið af stuttu færi, sem Hreiðar varði af eðlis- ávísun. Annað hörkuskot átti Tómas í stöng og út, en sigur- markið v.ildi ekki koma og sat fast við sinn keip. apMiH KR-ingar áttu einn besta leik á sumrinu, sem undirritaður hefur séð til þeirra. Liðið náði oft upp fallegum leikfléttum og skapaði sér færi sent hefðu fært því sigur, hefði Ársæll ekki verið í bana- stuði, En þrátt fyrir að vörnin hafi yfirleitt virkað örugg, lék Tórnas Pálsson lausum hala og var séður náungi nærri teig KR-inga. Gleymdist oft að gæta hans. Sæ- björn Guðmundsson var besti, maður KR, geysilega vaxandi leik- maður. Tækni hans og yfirferð er oft með ólíkindum. Jón Oddsson var ógnandi, auk þess sem margir KR-ingar lögðu margi gott til. Tómas Pálsson, Ársæll Sveins- son og Örn Oskarsson voru bestu menn IBV, Ársæll hjargaði málunum með snilldarmarkvörslu framan af leik, Tómas var ávalit stórhættulegur og Örn öflugur að venju, einkum þó er hann blandaði sér í framlínuna. Minna bar á öðrum leikmönnum ÍBV. í stuttu máli: ísiandsmótiö 1. deild Laugardalsvöll- ur KR—ÍBV 2—2(1 —1). Mörk KR: Sigurður Indriðason (23. mín) og Börkur Ingvarsson (57. mín). Mörk ÍBV: Tómas Pálsson (22. mín) og Sveinn Sveinsson (71. mín). Spjöld: Sverrir Herbertsson KR, Örn Óskarsson ÍBV og Siguröur Péturson KR fengu gul spjöld. Áhorfendur: 1325. — 99 * lT», I I , *'*^,»**«»*iM»sm*»** ;* r ........ • Sveínn Svninvvon (nr. 6) iwfur vippað knnttínum ytir vonsvikna KR-ingana og jalnaö. Ljósm. Guðjón IBK og Þróttur deildu stigum ÍBK HLÝTUR að haía misst endanlega af lestinni í kapphlaupinu um íslandsmeistaratitilinn þegar liðið fékk Þrótt í heimsókn suður með sjó og varð að siá af öðru stiginu. Jafntefli varð 1 — 1, staðan í hálfleik var 1—0 fyrir IBK. Það verður að segjast eins,og er, að lið ÍBK var frekar heppið að sleppa með annað stigið, þvf að þó að munurinn á liðunum úti á vellinum hefði ekki verið tiltakanlegur, þá opnaðist vörn ÍBK svo oft og svo illa, að tvfvegis kom til kasta Þorsteins markvarðar að verja meistaralega á síðustu stundu. Heimamenn voru sprækari *—mmmmmmmm,m—^mmmmmmm^^ fyrstu mínúturnar og skalf mark Þróttar tvívegis, er knötturinn hæfði marksúlurnar. Fyrra skipt- ið hrökk knötturinn í þverslána, úr fanginu á Ólafi markverði eftir hornspyrnu og í síðara tilvikinu skallaði Úlfar Hróarsson glæsi- lega í stöngina á eigin marki. Hann mun þó vafalítið ekki hafa ætlað sér það. Ólafur varði einnig vel skot Ólafs Júlíussonar og skalla Ragnars Margeirssonar. Þróttarar áttu lengst af undir högg að sækja, mark ÍBK lá í loftinu og það kom á 37. mínútu. Ágúst Hauksson, aftasti maður, lét þá Steinar Jóhannsson ræna knettinum af sér rétt fyrir innan miðlínu. Steinar tók þegar stefn- una á mark Þróttar á flughraða með Ágúst og fleiri Þróttara blásandi á hælunum, lék inn í vítateig og renndi knettinum lag- lega og örugglega fram hjá Ólafi úthlaupandi. ÍBK Þróttur 1:1 Páll Ólafsson sá um að jafna fyrir Þrótt, mjög svipað og fyrra mark leiksins, nú var það Guðjón Þórhallsson sem hitti ekki knött- inn á versta hugsanlega augna- bliki. Páll stakk af og skoraði örugglega með þrumuskoti úr dauðafæri. Páll fékk tvö önnur mjög góð færi, næstum því eins góð og framangreint, en Þorsteinn sá við skotum Páls. Baldur Hannesson fékk annað mjög gott færi, en dró svo á langinn að skjóta, að ekkert varð úr þegar upp var staðið. Heimamenn áttu auðvitað sín færi einnig, en ekki eins mörg afgerandi og hættuleg. Það var helst þegar Ragnar Mar- geirsson skallaði naumlega yfir þverslána eftir góða aukaspyrnu Ólafs Júliussonar. Fyrir utan nokkra góða knatt- spyrnuspretti hjá báðum liðum, höfðu áhorfendur einkennilega gaman af taugastríði Úlfars Hróarssonar og Ólafs Júlíussonar. Það lá nokkrum sinnum við áflog- um og áhorfendur biðu spenntir. En dómarinn sá sitt óvænna eftir eina rimmuna og bókaði báða. Rann þá af þeim mesti móðurinn, enda fýsti hvorugan að yfirgefa völlinn með rautt spjald á bakinu. Keflavíkurliðið átti ekkert sérstaklega góðan leik að þessu sinni, vörnin míglak um miðbikið og miðvallarleikmennirnir náðu engum afgerandi tökum á miðj- unni. Framherjarnir Ragnar Margeirsson og Steinar Jóhanns- son áttu mjög góða spretti í leiknum, en báðum hætti til að reyna að gera einum of mikið einir. Það sama er að segja um langhættulegasta sóknarmann Þróttar, Pál Ólafsson. Auk hans áttu góðan leik hjá Þrótti mark- vörður Ólafur ólafsson og Baldur Hannesson. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild Keflavíkur- völlur ÍBK—Þróttur 1—1 (1—0) Mark ÍBK: Steinar Jóhannsson (37. mín.) Mark Þróttar: Páll Ólafsson (52. mín.) Spjöld: Úlfar Hróarsson og Ólafur Júlíusson. Dómari: Sævar Sigurðsson. — Kg. Elnkunnagjöfln IBK: Þorsteinn Ólafsson 3, Óskar Færset 2, Guðjón Guöjónsson 2, Guðjón Þórhallsson 1, Sigurbjörn Gústafsson 2, Sigurður Björgvinsson 1, Olafur Júlíusson 2, Einar Ásbjörn Ólafsson 1, Gísli Eyjólfsson 2, Steinar Jóhannss^n 3, Ragnar Margeirsson 3, Þórður Karlsson (vm) 2 Þróttur: Olafur Ólafsson 3, Rúnar Sverrisson 2, Úlfar Hróarsson 2, Jóhann Hreiöarsson 2, Sverrir Einarsson 2, Sverrir Brynjólfsson 1, Daöi Harðarson 1, Arnar Friöriksson 2, Ágúst Hauksson 2, Halldór Arason 1, Páll Ölafsson 3, Baldur Hannesson (vm) 2 Dómari: Sævar Sigurðsson 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.