Morgunblaðið - 13.10.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.10.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979 3 Reyk j avíkurhöfn: 18 tríUukörlum vísað burt fyrirvaralaust Ljósm. Emilía. Hafnar eru framkvœmdir við uppsteypu á byggingu Framkvæmdasjóðs íslands. Stórhýsi Framkvæmdastofnunar ríkisins: Ráðgert að ljúka upp steypu í árslok 1980 MIKILL kurr er nú í eigendum nokkurra smá- báta í Reykjavíkurhöfn í kjölfar tilkynningar frá Hafnarstjórn Reykjavíkur fyrir skömmu, þar sem þeim er gert að vera á Tóníeikar Preys í Há- skólabíói Hermann Prey sem söng í fyrra- kvöld á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands syngur í dag í Háskólabíói á tónleikum Tón- listarfélagsins í Reykjavík. Á efn- isskrá eru ljóð eftir Schumann og Strauss. Tónleikarnir hefjast kl. 14.30 og leikur Michael Krist á píanó. braut með báta sína innan einnar viku. Samkvæmt tilkynningunni áttu þeir að vera á brott fyrir 10. október s.l. en hreyfðu sig hvergi. Að sögn eins trillueigandans, sem hlut á að máli, var haft samband við þá í gær og þeim sagt að hafnarstjórn bæri enga ábyrgð á bátunum væru þeir ekki á brott á mánudag þegar hafist yrði handa við framkvæmdir vegna væntan- legs legugarðs sem koma á þarna. Hann sagði að þessar aðgerðir hafnarstjórnar kæmu mjög hart niður á mörgum, 8—10 trillukarl- anna hefðu af því fulla atvinnu að gera út bátana. Þeim hefði ekki verið boðin nein aðstaða í staðinn og væri því ekki um annað að gera en taka bátana á land, nema fyrir örfáa sem hugsanlega gætu fengið pláss í Hafnarfirði. Viðmælandi Morgunblaðsins sagðist ekki eiga von á því að gripið yrði til neinna aðgerða af hálfu trillukarlanna, enda hefðu þeir ekki með sér neitt félag, hins vegar þætti þeim það súrt í broti að vera reknir svona fyrirvara- laust á brott, sérstaklega með tilliti til þess að þeir væru allir búnir að greiða leigu fyrir plássin til áramóta. Á VEGUM Framkvæmdasjóðs íslands er um þessar mundir unnið að byggingu skrifstoíu- húss er hýsa á starfsemi Fram- kvæmdastofnunar ríkisins. Var hafist handa um verkið seint á árinu 1978 og lokið framkvæmd- um við grunninn í febrúar í ár. Nú er hafinn uppsláttur, en húsið verður 4 hæðir og er það Reynir hf. sem annast fram- kvæmdir. Að sögn Guðmundar Ólafssonar er ráðgert að lokið verði uppsteypu og fullnaðarfrá- gangi að utan í árslok 1980 og er búist við að kostnaður nemi þá um 400 m.kr. Ekki kvað Guðmundur liggja fyrir á þessu stigi hvenær búast mætti við að húsið yrði fullbyggt og yrði væntanlega farið að huga að áframhaldandi útboði þegar líða tæki að lokum þessa áfanga er nú stendur yfir. Varði doktorsritgerð yið Stanfordháskóla HINN 9. ágúst s.l. varði Jón Örn Bjarnason dokt- orsritgerð í eðlisefnafræði við Stanfordháskóla í Kali- forníufylki í Bandaríkjun- um. Fjallar ritgerðin um fræði- legar athuganir á tveim teg- undum ljósdreifingar, en með ljósdreifingu má fá upplýs- Dr. Jón örn Bjarnason ingar um hreyfingu og bygg- ingu sameinda. Hefur önnur þessara aðferða ekki verið könnuð áður. Ber ritgerðin heitið „Quantum Theory of Coherent Raman and Coherent Hyper-Raman Scattering". Andmælendur voru fjórir prófessorar við Stanfordhá skóla og einn frá háskóla Oregonfylkis. Meginniðurstöð- ur rannsóknanna hafa birst í Journal of Chemical Physics. Jón Örn er fæddur í Reykjavík 10. nóvember 1950, sonur hjónanna Þóru Árna- dóttur og dr. med. Bjarna Jónssonar, yfirlæknis Landa- kotsspítala. Hann lauk stú- dentsprófi með fyrstu ágætis- einkunn frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1969 og BS prófi í efnafræði frá Massa chusetts Institute of Techno- logy árið 1973. Veturinn 1973—74 kenndi hann við Há- skóla Islands, en hefur síðan stundað framhaldsnám og rannsóknir við Stanford Uni- versity. Hyggst hann dveljast þar eitt ár enn við frekari rannsóknir. Oddur Ólafsson tilkynnir ad hann fari ekki fram ODDUR Ólaísson læknir og alþingismaður tilkynnti form- lega á kjördæmisráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í Reykja neskjördæmi í fyrrakvöld, að hann myndi ekki gefa kost á sér til næstu alþingiskosninga. Oddur situr nú sitt níunda þing. Hann er 70 ára að aldri og sagði það ástæðu þess, að hann gæfi ekki kost á sér að nýju. Oddur hefur m.a. unnið mikið á þingi að málefnum er varða heilbrigðismál. Hann á sæti í efri deild þingsins. Prófkjör eða ekki prófkjör? Akvörðun tekin á fundi Fulltrúaráðs í Reykjavík á morgun FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðis- félaganna hefur verið boðað til fundar á morgun, sunnudag. Fundurinn hefst klukkan 14 og verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu. Á fundinum verður kosin kjörnefnd vegna væntanlegra kosninga til Alþingis og einnig verður tekin ákvörðun um hvort prófkjör verður viðhaft við vai framboðslista Sjálfstæð- isflokksins i Reykjavík, en það er á valdi Fulltrúaráðsins. Að sögn Sveins Skúlasonar Geir Ellert framkvæmdastjóra Fulltrúa- ráðsins eru skiptar skoðanir um það hvort til prófkjörs skuli efnt. Eru flestir þeirrar skoðunar að prófkjör sé eðlileg aðferð við val framboðslistans, en hins vegar telja margir annmarka á því nú vegna skamms fyrirvara. Á fundinum á morgun flytur formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir Hallgrímsson alþingis- maður, ávarp. Formaður Full- trúaráðsins er Ellert B. Schram alþingismaður. Sigurður Hafstein framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins: Ákvörðun ekki tekin án flokksráðssamþykktar „ÉG ÁLÍT, að túlka beri skipulags- reglur Sjálfstæðisflokksins þann- ig, að ekki verði tekin ákvörðun um neins konar stjórnarmyndun með aðild eða stuðningi Sjálfstæð- isflokksins án samþykktar flokks- ráðs,“ sagði Sigurður Hafstein framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins í gær, er Mbl. spurði hann, hvort slíkt samþykki þyrfti til. I skipulagsreglunum segir að „ekki megi taka ákvörðun um af- stöðu flokksins til annarra stjórn- málaflokka nema með samþykki flokksráðs." Sigurður var spurður, hvort boðað hefði verið til flokks- ráðsfundar og þá hvenær. Hann svaraði því til, að hann hefði ekki þ.e. um miðjan dag í gær fengið fyrirmæli um að boða til flokksráðs- fundar. Hann sagði einnig, að ekki væru nein ákvæði um með hvaða fyrirvara skuli boðað til flokksráðs- fundar, en að sínu áliti yrði að taka tillit til þess, að flokksráðsmenn væru búsettir um land allt. Ljóð Stefáns Harð- ar í heildarútgáfu BÓKAÚTGÁFAN IÐUNN hefur sent frá sér Ljóð eftir Stefán Hörð Grímsson. Hér er um að ræða heildarútgáfu á ljóðum skáldsins. í safninu eru allar þrjár bækur Stefáns. í skrá aftast er meðal annars að finna upplýsingar um aldur hvers ljóðs fyrir sig, en ljóðin eru ort á árabilinu 1937—69. — Hringur Jóhannesson annaðist bókaskreytingar, teiknaði margar myndir í bókina og gerði kápu. Ljóð Stefáns Ilarðar eru 110 bls. að stærð, prentuð í Odda. I kynningu forlagsins á bókinni segir svo meðal annars: „Stefán Hörður Grímsson heyrir til þeirri kynslóð skálda sem tók að setja svip á íslenska ljóðlist um 1950 og er eitt sérstæðasta og listfengasta skáld sinnar kynslóðar... Fyrsta bók hans, Giugginn snýr í norður (1946) hefur lengi verið afar torgæt. Hún sýnir tengsl Stefáns Harðar við næstu kynslóð á undan ... í næstu bók, Svartálfadansi (1951), kemur hann fram sem sjálfstætt og pers- ónulegt skáld sem náð hefur traust- um tökum á myndmáli og ljóðstíl. Sum ljóðin í þeirri bók eru orðin klassísk í íslenskri nútímalýrik. Þriðja bókin, Hliðin á sléttunni (1970), sýnir vald skáidsins á formi prósaljóða og heimspekilegri hugsun sem sjaldgæft er að birtast með svo fullgildum listrænum hætti í íslenskri ljóðlist." Ljóð Stefáns Harðar Grímssonar eru önnur bókin í flokki IÐUNNAR af ljóðasöfnum meiri háttar sam- tíðarskálda. Hin fyrsta var Kvæða- safn Hannesar Péturssonar sem út kom fyrir tveimur árum. (Fréttatilkynning forlagsins.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.