Morgunblaðið - 13.10.1979, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979
Nefbroddurinn
saumaður á sinn
stað eftir að hann
fannst í hundsmaga
UNG Kaupmannahafnarstúlka, Mia Olsen, varð nýverið fyrir
heldur óskemmtilegri lifsreynslu, en sejfja má að allt hafi farið vel
að lokum. Mia, sem er IV-i árs, var að leik með hundi nágrannans,
en þegar leikurinn stóð sem hæst jferði hvutti sér lítið fyrir og beit
framan af nefi Miu.
Miu var ekið í skyndi á
sjúkrahús og leit var gerð að
hluta nefsins þar sem Mia og
hundurinn voru að leik. Þegar
allt kom fyrir ekki ók eigandi
hundsins í skyndingu til næsta
dýralæknis. Hundinum voru gef-
in sterk uppsölulyfog fannst þá
loks nefbroddurinn, eða rúmri
klukkustundu eftir að hann var
bitinn af.
Dýralæknirinn vafði nefbrodd
inn inn í klút og ók rakleiðis á
sjúkrahúsið þar sem Mia var til
meðhöndlunar og þar tókst
læknum að sauma nefhlutana
saman. Þykir mesta mildi að
nefhlutinn var ekki illa skemmd-
ur úr maga hundsins, þar sem
magasýrur hans eru það sterkar
að þær eyða beinum.
Kínyerjar endurvekja
lýðræðissinnaða flokka
PekinK, 12. október, AP-Reuter.
KÍNVERJAR hafa endurvakið
þjóðarsamkomur átta lýðræðis-
sinnaðra flokka og kapitalískrar
stofnunar, en samkomur þessar
voru bannaðar í ofsóknum gegn
hægrisinnum á fimmta áratugn-
um. Að sögn kínversku frétta-
stofunnar Hsinhua voru 2.533
fulltrúar flokkanna samankomn-
ir á fundi i dag til að undirbúa
þátttöku í stórri ráðgjafarsam-
kundu, sem blásið var lífi i á ný í
fyrra að undirlagi Teng Hsiao
Ping varaforsætisráðherra.
Að sögn kunnugra er það að
undirlagi Tengs að samkoma lýð-
ræðisflokkanna og félags
kínverskra iðnrekenda hefur verið
endurvakin, og er einkum talið að
með þessu sé verið að leggja
drögin að sameiningu Formósu og
meginlandsins.
í frétt sinni í dag hvatti Hsin-
hua samkundu flokkanna til þess
að sameina meðlimi sína til nýrra
átaka í átt til framfara og aukins
lýðræðis.
Hua Kuo-Feng, forsætisráðherra Kína veifar á Pekingflug-
velli áður en hann lagði upp í ferð til V-Evrópu. Hann mun
koma við í Sinkianghéraði á leið sinni. Fyrsta Evrópulandið
sem Hua heimsækir er Frakkland — til Parísar er hann
væntanlegur á mánudag. Þetta er fyrsta ferð Hua til
V-EvrÓpU. Simamynd AP.
Eiturhernadur á
flóttamannabúðir
Mia að leik.
Faðir Miu hefur látið svo um
mælt, að atvikið og aðgerðin hafi
ekkert fengið á hana, og að hún
hafi leikið á als oddi á eftir, að
því undanskildu að henni þótti
leitt að frétta að hundurinn
hefði verið aflífaður strax eftir
að hann hafði selt upp og skilað
nefbroddinum.
Washinxton, 12. október. AP.
BANDARÍSKA utanríkisráðu-
neytið skýrði frá því í dag að
upplýsingar bentu til þess að
orrustuþotur af Mig-gerð frá
Vietnam og Laos hefðu varpað
eitursprengjum á búðir flótta-
manna í Laos.
Haft væri eftir Hmong flótta-
mönnum, sem sloppið hefðu undan
eiturefnaárásunum, að orrustu-
þoturnar hefðu varpað sprengjum
og eldflaugum sem venjulegast
Río de Janeiro, 12. október. AP.
TIGRAN Petrosian, fyrrum
heimsmeistari þokaði sér upp að
Hbner og Portisch á millisvæða-
mótinu í skák, sem nú fer fram í
Brazilíu.
Petrosian vann Luis
Bronstein, Argentínu, í 14. um-
ferð. Skák Portisch og Jean
Herberts og Hbners og Garcia
fóru í bið.
Önnur úrslit í 14. umferð urðu,
að Balashov vann Simeon Kagan,
Vaganian og Smejkal gerðu jafn-
tefli. Aðrar skákir fóru í bið,
hefðu sprungið skammt yfir höfð-
um flóttamannanna og dreift
dauðagasi yfir búðirnar.
Af hálfu ráðuneytisins er verið
að gera ítarlega könnun á fullyrð-
ingum um eiturefnahernaðinn, en
í skýrslu sem ráðuneytið gaf út
um málið í dag sagði að „ekki
þyrfti að fara í grafgötur með það
að sovézk-studdar hersveitir hefðu
beitt eiturgasi í miklum mæli í
Laos“.
skákir Sunye — Torre, Timman —
Ikov, Harandi — Shamkovich.
Staðan er nú:
1.—2. Portisch, Húbner 8 v. og
biðskák. 3. Petrosian 8 v. 4. Sunye,
Vaganian 7.5 v. og biðskák. 6. Sax
7 v. 7. Shamkovich 6.5 v. og
biðskák. 8.—10. Ivkov, Balashov 6
v. og 2 biðskákir. 11. Timman 5.5 v.
og 2 biðskákir. 12. Torre 5 v. og
biðskák. 13.—14. Bronstein, Vel-
imirovic 4 v. og 3 biðskákir.' 15.
Herbert 3.5 v. og biðskák. 16.
Garcia 2.5 v. og 3 biðskákir. 17.
Kagan 2.5 v. og biðskák. 18.
Harandi 2 v. og 2 biðskákir.
Petrosian við hlið
Hiibners og Portisch
„Þér þurfið að borga 700.000 krónur að auki fyrir þessa miklu yfirvigt“.
„Já, en þetta er alls ekki farangur okkar. í pokunum eru peningarnir fyrir fargjaldinu”.
Há flugfargjöld á Grænlandi:
/ ------------------
Arstekjurnar duga
ekki fyrir fjölskylduferð
GRÆNLENDINGAR eru ekki öfundsverðir af
flugsamgöngum sínum innanlands, þar sem
fargjöld hafa hækkað svo mikið að meðalárstekj-
ur grænlenzkrar verkamannafjölskyldu myndu
ekki duga fyrir flugferð frá Upernavik á
Norðvestur-Grænlandi til Nanortalik á suður-
odda landsins og til baka, en það er alls um 1.400
kilómetra vegalengd.
Af þessum sökum hefur landsþing Grænlands
nú komið á fót nefnd til að kanna og gera úttekt
á flugsamgöngum þar í landi. Nefndin mun
einkum kanna hvort og með hvaða hætti væri
hægt að lækka fargjöld barna, unglinga og
ellilífeyrisþega.
Eins og málum er háttað í dag kostar það hjón
með þrjú börn eldri en 11 ára alls um 57.000
danskar krónur, eða um 4,2 milljónir íslenzkra, að
ferðast flugleiðis frá Upernavik til Nanortalik og
til baká, en árstekjur fjölskyldunnar eru vart
meiri en 45.000 danskar krónur, eða um 3,3
milljónir íslenzkra.
En dæmið verður fyrst sláandi ef Grænlending-
ur þarf að fara flugleiðis frá Jakobshavn á
norðvesturhluta landsins til Julianeháb á suður-
hluta landsins, en þar á milli eru um 1.000
kílómetrar. í stað þess að fara þar á milli í
innanlandsflugi kæmi betur út fjárhagslega að
fara frá Jakobshavn til Syðri Straumfjarðar í
innanlandsflugi, þaðan 8.000 kílómetra leið til
Narssarsuaq gegnum Kaupmannahöfn, og loks frá
Narssarsuaq í innanlandsflugi til Julianeháb.
Að sögn kunnugra er fátt um lausnir á
fargjaldamálinu af hálfu flugfélagsins, Grenlands-
fly. Notast verður við þyrlur í innanlandsfluginu
og vegna strangra öryggisreglna er rekstur þeirra
mjög kostnaðarsamur. Ef fargjaldalækkanir fyrir
vissa hópa eiga að koma til, verður að hækka
fargjöld annarra hópa, ef ekki kemur til aukin
aðstoð hins opinbera við reksturinn, en ólíklegt er
talið að svo verði.