Morgunblaðið - 13.10.1979, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979
GUÐSPJALL DAGSINS
Matt. 22.: Hvers son er
Kristur?
DOMKIRKJAN Kl. 11 messa. Sr.
Hjalti Guömundsson. Kl. 2 messa,
dómkórinn syngur, organleikari
Marteinn H. Friöriksson. Sr. Þórir
Stephensen.
ARBÆJARPRESTAKALL Barna-
samkoma í safnaðarheimili Árbæj-
arsóknar kl. 10:30 árd. Guðsþjón-
usta í safnaöarheimilinu kl. 2,
ferming, altarisganga. Sr. Guö-
mundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2 aö
Noröurbrún 1. Fundur hjá safnað-
arfélagi Ásprestakalls eftir mess-
una. Sr. Grímur Grímsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla kl.
14. Barnastarfiö hefst þennan
sunnudag í Ölduselsskóla og
Breiöholtsskóla kl. 10:30 árd. Börn
eru hvött til að koma. Sóknar-
nefndin.
BÚSTAÐAKIRKJA Barnasamkoma
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2. Organ
leikari Guöni Þ. Guðmundsson.
Biblíulestur miövikudagskvöld kl.
20:30. Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guösþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
LANDAKOTSSPÍTALI Kl. 10
messa, organleikari Birgir Ás Guö-
mundsson. Sr. Þórir Stephensen.
FELLA- OG HOLAPRESTAKALL
Laugardagur: Barnasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnu-
dagur: Barnasamkoma í Fellaskóla
kl. 11 árd. Guösþjónusta í safnaö-
arheimilinu aö Keiiufelli 1 kl. 2 e.h.
Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSASKIRKJA Barnasamkoma
kl. 11. Helgistund kl. 2. Sóknar
prestur.
HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl. 11.
Kynning á starfi Gideon félaganna.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Messa kl.
2. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Aöalsafnaöarfundur Hallgrímssafn-
aöar eftir messu. Þriöjudagur:
Fyrirbænaguösþjónusta kl. 10:30
árd. Kirkjuskóli barnanna á laugar-
dögum kl. 2.
LANDSPÍTALINN Messa kl. 10. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
HATEIGSKIRKJA Barna og fjöl-
skylduguösþjónusta kl. 11. Sr.
Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Sr.
Arngrímur Jónsson. Guösþjónusta
og fyrirbænir kl. 5. Sr. Tómas
Sveinsson. Organleikari dr. Orthulf
Prunner.
KÁRSNESPRESTAKALL Barna-
samkoma í Kársnesskóla kl. 11
árd. Fermingarguösþjonusta í
Kópavogskirkju kl. 2 e.h., altaris-
ganga. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL:
Barnasamkoma kl. 10:30 árd. Sr.
Árelíus Níelsson. Fermingarguös-
þjónusta kl. 13:30. Organleikari
Jón Stefánsson. Sr. Sig. Haukur
Guöjónsson.
LAUGARNESPRESTAKALL Laug-
ardagur 13. okt.: Guösþjónusta aö
Hátúni 10b níundu hæö kl. 11.
Sunnudagur 14. okt.: Barnaguös-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14,
altarisganga. Þriðjudagur 16. okt.:
Bænaguösþjónusta kl. 18 og
æskulýösfundur kl. 20:30. Miöviku-
dagur 17. okt.: Bibliulestur kl.
20:30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA Barnasamkoma kl.
10:30 árd. Messa kl. 2. Fermd
verða: Brynja Sif Björnsdóttir,
Látraströnd 9, Þórunn Ragnheiöur
Siguröardóttir, Hofgörðum 2 og
Pétur Benónýsson, Hrólfsskálavör
6. Prestarnir.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK Messa
kl. 2. Organleikari Siguröur ísólfs-
son. Prestur sr. Kristján Róberts-
son.
FRÍKIRKJAN í HAFNARFIRDI
Barnasamkoma kl. 10:30. Guðs-
þjónusta kl. 2. Sr. Ingólfur Guö-
mundsson æskulýðsfulltrúi messar.
Safnaöarstjórn.
DOMKIRKJA KRISTS KONUNGS
Landakoti: Lágmessa kl. 8:30 árd.
Hámessa kl. 10:30 árd. Lágmessa
kl. 2 síðd. Alla virka daga er
lágmessa kl. 6 síðd., nema á
laugardögum, þá kl. 6 síöd. i
októbermánuði veröur lesin Rósa-
kransbæn eftir lágmessu kl. 6 síöd.
FELLAHELLIR Kaþólsk messa kl.
11 árd.
FÍLADELFÍUKIRKJAN Almenn
guösþjónusta kl. 8 síöd. Ræðu-
maöur dr. Thompson. Einar J.
Gíslason.
KIRKJA ÓHÁÐA SAFNAOARINS
Messa kl. 2 (kirkjudagurinn). Séra
Emil Björnsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND Messa kl.
10. Stud. theol. Hilmar Baldursson
messar.
HJÁLPRÆDISHERINN Helgunar-
samkoma kl. 11 árd. Fjölskyldu-
LITUR DAGSINS
Grænn. Litur vaxtar og
þroska.
samkoma kl. 16, bæn kl. 20 og
hjálpræðissamkoma kl. 20:30. —
Majór Gudmund Lund.
KIRKJA JESU KRISTS hinna
síöari daga heilögu — Mormónar:
Samkomur aö Höföabakka 9, kl. 14
og kl. 15.
GARÐASÓKN Barnasamkoma í
skólasalnum kl. 11 árd.
BESSASTADAKIRKJA Guösþjón-
usta kl. 2 síöd. Kirkjudagur.
Hannes Pétursson skáld flytur
ræöu. Séra Bragi Friöriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garöabæ: Hámessa kl. 2 síöd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA Sunnu-
dagaskóli kl. 10:30 árd. Ferming-
arguðsþjónusta kl. 14. Sóknar
prestur.
KAPELLAN í St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10 árd.
VÍÐISTAÐASÓKN Barnaguös-
þjónusta kl. 11 árd. í kapellu
sóknarinnar. Helgistund sama staö
kl. 14. Séra Siguröur H. Guö-
mundsson.
KARMELKLAUSTRIÐ Hámessa kl.
8.30 árd. Virka daga messa kl. 8
árd.
NÝJA POSTULAKIRKJAN Hafn-
arf.: Samkoma kl. 11 árd. og kl. 16
síöd.
KEFLAVÍKURKIRKJA Sunnudaga-
skóli kl. 11 árd. Guðsþjónusta kl.
14. Ræðuefnið: Einingarviöleitni
kirkjunnar. Organisti Siguróli H.
Geirsson. Sóknarprestur.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL
Messa í Innri-Njarövíkurkirkju kl.
11 árd. og sunnudagaskóli kl.
13.30. í Ytri-Njarövíkurkirkju er
sunnudagaskóli kl. 11 árd. og
messa veröur kl. 14. Sóknarprest-
ur.
GRINDAVÍKURKIRKJA Messa kl.
11 árd. Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA Messa kl. 2
síöd. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA Barna
guösþjónusta kl. 10:30 árd. Al-
menn guðsþjónusta kl. 2 síðd.
Sóknarprestur.
FÍLADELFÍA Selfossi: Almenn
guösþjónusta kl. 16.30. Ræöu-
maður dr. Thompson. Hallgrímur
Guömannsson.
AKRANESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10:30 árd. Messa kl. 2 síöd.
Séra Björn Jónsson.
Sóívagn Jóns Gunnars, eitt af nýrri verkum hans, sem hefur veno a
sýningarferð um Evrópu að undanförnu.
Konunglega danska akademían:
Jón Gunnar kennir í
málmdeild myndhöggvara
Jón Gunnar Árnason
myndhöggvari mun í vetur
starfa sem kennari við
málmdeild myndhöggvara-
skóla Konunglegu dönsku
akademíunnar og auk
kennslu mun hann standa
fyrir meðferð námskeiða í
meðferð á málmi, en deild-
in lýtur stjórn danska
myndhöggvarans prófess-
ors Roberts Jakobsen.
Jón Gunnar kvað það hafa verið
ákveðið með stuttum fyrirvara að
hann færi til Danmerkur en að-
spurður sagðist hann m.a. taka
með sér gögn sem hann væri að
vinna í sambandi við uppsetningu
taflborðs á Lækjartorgi. Áætlað
er að taflið verði komið upp fyrir
ágústmánuð n.k. þegar von er á
Karpov heimsmeistara í skák í
heimsokn. Jón Gunnar kvaðst
mundi fá mjög góða aðstöðu til
þess að fást m.a. við gerð tafl-
borðsins í Danmörku.
Barnaverndarrád:
ÍÖf — til
isvanda
málum nútíma samfélags
í þjóðfélagi hraða og streitu
nútimans verða kröfur til
barna og unglinga sífellt
meiri. Það er ætlast til þess,
að þau falli inn í „kerfið“ og
tími áhyggjuleysis æskunnar
styttist með hverju árinu.
Afleiðingarnar eru oft þær,
að born verða óörugg, kvíða-
full og spenna skapast á
heimilunum, sem veldur ýms-
um örðugleikum. Ef eitthvað
bjátar á, er heimilunum og
foreldrunum yfirleitt kennt
um. „Hann/hún kemur nú frá
heimili, sem aðstæður eru
ekki góðar á,“ má oft heyra
sagt um börn sem valda
erfiðleikum í þjóðfélagskerfi
okkar.
En hvernig eiga foreldrar
að bregðast við aðvífandi
vandamálum? Barn veldur
erfiðleikum, því líður illa.
Það er hrætt, þjáist af svefn-
leysi, systkini eru heitúðug
vegna afbrýðisemi sín á milli.
Foreldrunum finnst að ætlast
sé til þess að þeir viti allt um
þessi mál. Þjóðfélagið heimt-
ar sitt af þeirra tíma og
vinnuframlagi og tíminn til
handa börnunum verður oft
minni en æskilegt er. Sumir
fyllast sjálfsásökunum, er
vandamálin koma upp og
gæta þess að sem fæstir viti
um vandamál heimilisins.
Foreldri, sem dettur í hug að
leita hjálpar og ráðlegginga,
rekur sig á vegg — hvert á að
leita?
Ofangreint er hluti af skýr-
ingum fulltrúa barnavernd-
arráðs Islands, þeirra Gunn-
ars Eydal formanns, og sál-
fræðinganna Guðfinnu Eydal
og Álfheiðar Steinþórsdóttur,
á þeirri ákvörðun ráðsins að
taka upp foreldraráðgjöf.
„Foreldraráðgjöfin er hugsuð
sem aðstoð við foreldra og
börn, ef um minni háttar
vandkvæði er að ræða til að
koma í veg fyrir að vandkvæð-
in verði að meiri háttar
vandamálum seinna,“ sagði
Gunnar Eydal.
Foreldraráðgjöfin verður til
húsa í húsakynnum Hagstof-
unnar og Verkakvennafélags-
ins Framsóknar við Hverfis-
götu 8—10, 2. hæð. Tveir
sálfræðingar, þær Guðfinna
og Álfheiður, verða þar til
aðstoðar. Tóku þær sérstak-
lega fram, að þær væru
bundnar algjöru þagnarheiti í
störfum sínum.
Foreldraráðgjöfin tekur
ekki að sér meiri háttar og
langvarandi meðferðarmál né
mál, sem aðrar stofnanir fást
við. Sögðu þær Guðfinna og
Álfheiður að þær væntu þess,
að til þeirra myndu leita
foreldrar og jafnvel unglingar
með vandamál, sem erfitt væri
að ræða við ættingja og vini.
Oft fyndist lausn í að geta létt
af sér vandamálum með við-
ræðum við aðila, sem einnig
hefði nokkra reynslu og bent
gæti á lausnir.
Foreldraráðgjöf sem þessi
mun vera til staðar víða er-
lendis og hefur gefið góða
raun, að sögn fulltrúa barna-
verndarráðs. Fyrirhugað er að
bjóða upp á þessa þjónustu til
reynslu í sex mánuði og fram-
haldið mun síðan ráðast af því
hvernig til tekst.
F oreldr ar áðgj öf i n hefur
starfsemi sína n.k. mánudag
og munu viðtalstímar verða á
mánudögum milli kl. 20—22 og
miðvikudögum kl. 16—18.
Tímapantanir eru daglega á
skrifstofutíma í síma 11795.
LjÓHm. Emilía.
Frá blaðamannafundinum, sem fulltrúar Barnaverndarráðs héldu til að kynna foreldraráð-gjöfina.