Morgunblaðið - 13.10.1979, Page 11

Morgunblaðið - 13.10.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979_________________________11 Hannes Þ. Hafstein framkvstj. S. V.F.I.: Rabb í byrjun rjúpnaveiöi Næstu daga hefst veiðitími rjúp- unnar og áreiðanlega hefur margur maðurinn beðið þessa dags með óþreyju. Tilbúinn að spenna skot- beltið, axla byssuna og halda til heiða og fjalla. Veiðimennskan er okkur í blóð borin. Hún er vissulega enginn leikur heldur íþrótt góð sé henni sinnt af alúð. Og hún gerir strangar kröfur til veiðimannsins, sem einnig verður að vera kröfu- harður við sjálfan sig og þá ekki síður um þann búnað, sem hann hefur með höndum. XXX Að mörgu er að hyggja við undir- búning hverrar veiðiferðar. Það var því góðra gjalda vert, þegar hið árs gamla Skotveiðifélag Islands efndi til fræðslufunda í húsi SVFÍ á Grandagarði dagana 9. og 10. þ. mán. til að miðla hollráðum í upphafi vertíðar. Á þessum námskeiðum var lögð áherzla á þrjatmegin þætti: Gerð og umhirðu skotvopna, notkun landabréfa og áttavita og búnað ýmiss konar í veiðiferðum. Það var ekki fjölmenni, sem þessi namskeið sótti, því miður, því vel var til þeirra vandað og einmitt fjallað um þau mál, sem alla sanna veiðimenn varðar. En það var ánægjulegt, að unga fólkið, bæði konur og karlar, létu sig ekki vanta og fylgdust vel með öllu því, er þar fór fram. Og áreiðanlega eru þau nú betur undir vanda fyrstu veiðiferðarinnar búin en áður. XXX Margar eru hætturnar sem að steðja og ber fyrst að telja þær sem fólgnar eru í skotvopninu sjálfu, ef veiðimaðurinn gætir ekki fyllstu fyrirhyggju eða gleymir eitt andar- tak, að hann hefur með höndum hættulegt tæki. Æðsta boðorð hvers veiðimanns er og verður að fyrir- byggja siys. Það gerir hann bezt með því að þekkja skotvopnið til hlítar, eiginleika þess og gæði og hirða það, þrífa og smyrja að lokinni hverri notkun, þannig að það sé ávallt tiltækt og öruggt í meðförum. Fyrir- fram verður að vega og meta allar aðstæður. Kynna sér sem bezt fyrir- hugað veiðisvæði, hvernig veðurs megi vænta í veiðiferðinni og þess þá búinn að láta dómgreindina ráða og þoka fyrir hættum náttúrunnar í stað þess að tefla í einhverja tvísýnu. Mér er það minnisstætt, að sunnudag einn fyrir nokkrum árum Ívar ég að koma austan úr sveitum og staddur á Hellisheiði. — Versta veður var á, éljagangur og þess á milli svarta skafrenningur. Þarna á háheiðinni, keyrði ég fram á fólks- bifreið og mér til mikillar undrunar voru fjórar úlpuklæddar verur með axiaðar byssur á leið frá henni og á svipstundu horfnar í sortann, en mer hugsað til félaganna í björgunar- og hjálparsveitum. Meðan ég neytti molasopa í Skíðaskálanum, þar sem ég var einnig að leita frétta, hvort vart hefði verið við marga slíka „veiðimenn" þá um daginn, birtust þessir kumpánar mér til mikillar ánægju og hugarléttis. Þeir höfðu lafið segjast, þokað fyrir hættum náttúrunnar og snúið við til síns heima. XXX Það sannast því miður oft hið fornkveðna að „fæstir kunna sig heiman í góðu veðri að búa“, og því er það heilög skylda veiðimannsins að klæða sig vel og skynsamlega. Á þessum árstíma er veðráttan um- hleypingasöm og því allra veðra von. Skammdegismyrkrið er á næsta leyti, það birtir seint af degi og rökkrið rennur á skjótt. Þess vegna verður að hafa hugfast skottíminn styttist dag frá degi og haga veiði- ferðunum samkvæmt því. Byrja dag- inn snemma og koma tímanlega til baka í áfangastað. Við slíkar að- stæður dugar ekkert minna en að klæðast ullarfatnaði innst sem yzt og vanda fótabúnaðinn vel. Vindheld hettublússa (anorak) er nauðsynleg og sjálfsagt að hafa meðferðis í pússi sínu léttan hlífðarfatnað gegn vosbúð og auðvitað í skærum lit, helzt appelsínugulan með endur- skinsborðum. xxx Tveir kunningjar mínir eru miklir áhugamenn um hverskonar veiði- skap og láta sig ekki vanta í hóp þeirra þúsunda, sem leggja leið sína um fjöll og heiðar næstu vikurnar. Þeir hafa sett sér margar góðar reglur, sem þeir halda í einu og öllu. Meðal annars er það föst venja þeirra félaga að yfirfara skotvopn hvor annars, áður en lagt er af stað og aldrei láta þeir það kæruleysi henda að hafa þau hlaðin í bílnum eða ganga með hlaðnar byssur, þegar ekki er verið að skjóta. Enda verður slíkt að teljast vítavert kæru- leysi og alltaf mun það algengt, að treyst sé í blindni á öryggislás skotvopnanna, en ávailt má búast við, að skot geti hlaupið óvænt úr þeim við óvæntar aðstæður og atvik. Því var það, að þessir kunningjar mínir afþökkuðu eitt sinn með nokkrum velvöldum orðum annars kærkomna ökuferð, þegar þeir litu dreifð skothylki um gólf bifreiðar- innar og þegar betur var að gáð, tvær hlaðnar byssur í aftursætinu. Slíkt hirðuleysi var ekki þeim að skapi, en allur trassaskapur, hugs- unar- og kæruleysi í veiðiferðum veldur augljósri slysahættu. Þessir kunningjar mínir eru miklir heið- ursmenn hvað varðar tillitssemi við sína nánustu, sem heima bíða. Þeir láta ávallt vita, hvert farið er hverju sinni og verði breyting þar á koma þeir boðum um það heim. Eins ef ferð seinkar frá því sem í upphafi var ákveðið. Svo sjálfsagða tillits- semi bera þeir jafnframt í huga til þeirra, sem til yrðu kvaddir til leitar, ef til kæmi, og hafa því ýmsan öryggisbúnað ávallt með í veiðiferð- um. XXX Varmapokar (álpokar) hafa sem betur fer rutt sér mjög til rúms meðal ferðafólks hin síðari ár og notagildi þeirra í veiðiferðum er ótvírætt til þess að verjast vætu og vindum og forðast ofkælingu. Ef þarf að láta fyrirberast á bersvæði einhverra orsaka vegna er sem bezt hægt að leita skjóls í þeim og sakar þá heldur ekki að hafa lambhúshettu (lömbu) í mal sínum til að bregða yfir höfuðið og um háls til að varna hitatapi úr líkamanum, ullarsokka og góða belgvettlinga. Áttaviti er ómissandi og nauð- synlegt að vera leikinn í notkun hans, sem aðeins næst með góðri þjálfun. Ennig kort af veiðisvæðinu, sem menn verða að kunna að lesa rétt til að nema kennileiti, vegi og götuslóða. Til að koma frá sér boðum, þegar óvæntir atburðir henda, óhöpp eða slys, eru margir hlutir gagnlegir og með öllu ómissandi. Þegar venju- legar flautur hafa verið nefndar sem góð hjálpartæki til hljóðmerkja- gjafa, hefur margur hrist höfuðið og látið sér fátt um finnast. En þegar betur er að gáð ætti öllum að vera ljóst, að slík flautuhljóð berast um óravegu, en hrópa má sig hásan á skömmum tíma. Vasaljós er gagn- legt til merkjagjafa og ýmissa ann- arra nota og því sjalfsagt hjalpar- tæki. Þá er jafnframt bent á hand- Hannes Þ. Hafstein hægar litlar merkjabyssur með til- heyrandi skotum og öllu fyrirkomið í litlu plasthylki. Og venjuleg merkja- skot í haglabyssur er nauðsynlegt að hafa meðferðis. Þá er eindregið mælt með neyðarhandblysum, er gefa frá sér skært rautt ljós og mikinn reyk, og gagna því mjög vel hvort heldur á nóttu sem degi. í þessu sambandi er skylt að áminna alla þá, sem hafa merkja- skot með höndum, að kynna sér merkingu skotanna skv. lit þeirra og festa sér vel í minni, að rauði liturinn táknar ávallt neyð og má lls ekki nota slík skot nema um algjöra neyð sé að ræða. Skyndihjálparpakka, léttan og lítinn, er auðvelt að útbúa og hafa meðferðis, sem hefur að geyma t.d. sáraböggla, plástra og um fram allt teygjubindi, því auðveldlega geta menn snúist um ökkla og hné á misjöfnum gönguleiðum. Og vel búinn sjúkrakassi verður að vera í bílnum. Einhverjir munu þeir vera, er hafa „labb-rabb“ talstöðvar meðferðis í veiðiferðum. Menn skulu vera þess minnugir, að þessar stöðvar eru ýmsum takmörkunum háðar í vond- um veðrum og langdrægi þeirra því takmarkað. Því er nauðsynlegt, að þær séu vel varðar gegn kulda, jafnvel að bera þær innan klæða til að halda hita á rafhlöðunum og varna þannig orkutapi þeirra. Eitt ættu menn að muna, sem að jafnaði hafa slíkar talstöðvar með í ferðum, að skilja eftir upplýsingar heima, þar sem tilgreint er hvað stöðvarnar eru margra rása og á hvaða tíðni þær séu stilltar. Slíkar upplýsingar geta í vissum tilvikum komið að mjög góðu gagni. Og síðast en ekki síst má nestis- pakkinn alls ekki gleymast heima á eldhúsborðinu. Hann verður að vanda vel, því að oft eru vita gagnlausir hlutir, vegna fyrirferðar og þyngdar, látnir sitja í fyrirrúmi kjarngóðri fæðu. XXX Hér að framan var vikið að hinu nýstofnaða Skotveiðifélagi Islands og vonandi verður þvi ágengt í að auka skilning sem flestra á góðri meðferð skotvopna, góðri siðfræði, veiðimanna (og skyidum), góðri um- gegni við land og lífríki og góðum samskiptum við landeigendur, en þetta eru hin fjögur höfuðmarkmið félagsins. Og vegna hins almenna áhuga fyrir veiðimennsku, sem krefst hættulegra veiðitækja, er þá ekki verðugt verkefni fyrir hið unga áhugamannafélag að beita sér fyrir því að afmarka ákveðin veiðilönd og takmarka fjölda skotvopna innan ákveðinna svæða. Það eitt hlýtur að skapa veiðimönnunum meira öryggi og slíkur háttur mun vera hafður á í nágrannalöndum okkar. XXX Og ekki sízt varða þessi mál þá, sem veiðileyfin selja. Á 18. lands- þingi SVFI í maí sl. voru þessi mál talsvert rædd og þykir mér hlíða að koma hér á framfæri tillögu frá Leopold vini mínum Jóhannessyni á Hreðavatni, sem mikil afskipti hefur haft af því, sem hér hefur verið rabbað um, en þar segir „Sportveiðimenn verði látnir sæta tilkynningarskyldu. Litklæði verði notuð og um þetta sjái sölumenn veiðileyfa svo og aðrir sem til þyrfti." Hér er vissulega vikið að merkri nýbreytni og þeir sem veiðileyfi selja gerðir samábyrgir fyrir sem mestu öryggi veiðimannsins. XXX Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að alltof margir eru þeir, sem stunda skotveiðar, er skortir bæði leikni og þekkingu á meðferð skotvopna og láta sig engu varða þær ströngu og margháttuðu kröfur, sem sönn veiðimennska út- heimtir. Hannes Þ. Hafstein. framkv.stj. SVFÍ. HUéMnÍIII ÁKTMNIIMMWIBM Endurútgefum fimmtán hljómplötur, sem allar hafa verið uppseldar um árabil. Koma nú einnig á kassettum. Selt á sérstöku kynningarverði, sem er helmingi lægra en verð á öðrum plötum, eða aðeins kr. 3900 í VÖRUMARKAÐNUM, Ármúla - Sími 86113 ALLRA SÍÐASTI DAGUR og nú laékkar hver plata um kr. 1000.- svo aö hún kostar AÐEINS KR. 2.900. í þrjár klukkustundir. Opiö kl. 9—12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.