Morgunblaðið - 13.10.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979
13
Jóhann Hjartarson aöeins 16 ára
og hefur tvívegis teflt í landsliðs-
flokki. Ljósmynd Mbl. Kristján.
„Jú, reynslan hefur mikiö aö
segja. Ég hafnaöi í sjötta
sæti á HM-sveina í Holiandi,
og í 5.—9. sæti í Frakklandi
en í bæöi skiptin voru um 40
þátttakendur. Það er okkar
sveit mikill stuöningur, að
viö höfum meiri reynslu en
margar aörar þjóöir. Þá hef
ég tvívegis teflt í landsliðs-
flokki á Skákþingi íslands og
þá sá maður hve reynslan er
góöur bandamaður.“
Teflir þú mikiö? „Ég hef
ekki gert mikiö af því aö
undanförnu. Er aö hefja nám
í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og námið hefur
tekiö drjúgan tíma.“
Hefurðu sett þér markmiö
í skákinni? „Maóur reynir
náttúrulega aö ná titli, stór-
meistaratitli. Það væri ákaf-
lega gaman ef slíkur árangur
næöist. Annars kemur þetta
bara á daginn. Ég hef gaman
af að tefla.“
íleidinni.... íleidinni
Lúgu eða bara rifu
• SÚ SAGA er sögð, að á dögunum hafi kona nokkur komið í
byggingaverzlun í bænum og spurzt fyrir um blaðalúgu. Afgreiðslu-
maðurinn spurði konuna hversu stór lúgan ætti að vera. Konan varð
vandræðaleg og vissi ekki hverju hún átti að svara. — Á hún að vera af
venjulegri stærð eða er nóg að hún dugi fyrir Alþýðublaðið, spurði
afgreiðslumaðurinn þá
Ekki dropa er að fá...
í umræðum um vandræði í rafmagnsmálum vegna vatnsskorts á
hálendinu og erfiðleikanna við Kröflu varpaði Eiríkur Briem fram-
kvæmdastjóri Landsvirkjunar fram eftirfarandi vísu:
Ekki dropa er að fá
ofan frá.
Kuldaleg er Kölska hjá
Kröfluspá.
„Engu er á hana logið"
• Enn leikur Alfreð Jónsson oddviti í Grímsey lausum hala á þessum
síðum, en á dögunum varpaði hann fram eftirfarandi vísukorni í spjalli
við blaðamann:
„Engu er á hana logið,
ekki er hnátan fín.
Margan til mergjar sogið,
mann hefur upp á grín.“
— Þetta getur átt við ríkisstjórnina eins og hvað annað, varla stendur
nokkur kvenmaður undir þessum áburði, sagði Oddvitinn.
Þá er einnig sagt að á dögunum hafi hann verið spurður hvort ekki
væri eitthvað um Alþýðuflokksmenn eða Alþýðubandalagsmenn í
Grímsey. „Nei, elskurnar mínar, þar býr bara fólk,“ svaraði Alfreð
Jónsson.
Framsókn — afturför
• Það var í hversdagsspjalli einn daginn í vikunni um stjórmálaástand-
ið að Pétur Pétursson þul bar þar að sem menn voru að ræða um
Framsóknarflokkinn og það að ekki bæri hann lengur nafn með rentu.
„Það virðist hyggilegast í stöðunni fyrir Framsóknarflokkinn,“ sagði
Pétur „að hann skipti um nafn og taki upp nafnið Afturför í stíl við þá
heilsu sem hann hefur.“
Það barst einnig í tal hvernig mál myndu þróast í sambandi við
forsetamál á næsta ári og lagði Pétur þá til, að farin yrði
málamiðlunarleið úr því að rætt væri um Kristján og Albert og fá til
starfans Kristján Albertsson, enda gæti Kristján þá sagt það sama og
þegar hann skrifaði um Vefarann mikla forðum: Loksins, loksins.
atvinnu en jafnframt handknatt-
leiknum þá er hann einnig liðtækur
á dansgólfinu. „Ja, ég er að læra að
dansa hjá Heiðari Astvaldssyni og
hef sýnt fyrir hann. Svo tók ég einu
sinni þátt í maraþonkeppni í dansi
— sigraði ekki — og afrek mín á
dansgólfinu eru þar með talin."
Um síðustu helgi varð Víkingur
Reykjavíkurmeistari — hafið þið
Víkingar sett stefnuna á fleiri titla.
„Já, við höfum í vetur sett stefnuna
á fjóra titla — íslandsmótið og
Bikarinn, auk Reykjavíkurmótsins
en einnig gerum við okkur vonir um
að ná langt í Evrópukeppni bikar-
hafa. Ég hef trú á, að við náum langt
í þeirri keppni, við setjum stefnuna
þar á sigur eins og á öðrum vígstöðv-
um. Við æfum af krafti, erum sífellt
að bæta við nýjum leikkerfum undir
stjórn Bogdans og erum að ná betra
valdi á þeim. Víkingur getur aðeins
orðið sterkari eftir því sem á vetur-
inn líður."
t baráttu á leikvellinum.
HELGARVIÐTALIÐ
Guömundur J. Guðmundsson, formaöur Verkamannasambands íslands, var
ásamt Karli Steinari Guönasyni kailaöur „guöfaöir11 ríkisstjórnarínnar, og sagt að
á bak viö tjöldin væri þaö hann, sem togaöi í spottana. Nú er sú ríkisstjórn öll,
sem þeir félagar blésu forðum lífi í. Blaöamaöur ræddi viö Guömund jaka, eins
og hann er jafnan nefndur, yfir kaffibolla síðari part vikunnar.
.......uppfullir af viti
með Lenín og sósíal-
isma upp a vasann“
Er þaö rétt, sem skrifað stóó,
ad þú værir ásamt Karli Steinari
Guönasyni „guöfaöir“ ríkisstjórn-
arinnar?
„Ja, ríkisstjórnin háði þá eitt af
sínum ótal helstríðum, það var
síðari hluta fyrravetrar. Kratar
voru þá í einni af sinni Paradísar-
heimt og Ólafur Jóhannesson að
reyna að skera í sína hvora kök-
una. Við Karl Steinar gengum
rösklega í málið, boðuöum fund í
Verkamannasambandi íslands og
töluðum viö okkar menn. Það var
skorað á fiokkana aö ganga til
samkomulags. Þetta hafði auðvit-
að allt sín áhrif.
Mikiö var rætt um geysileg
völd þín — aö þú stjórnaöir
landinu, hvaó var satt í því?
„Þessi nútíma fréttamennska
útheimtir drama. Ég varö aldrei
var viö þessi geysilegu völd, sem
ég átti að hafa — ég bara las um
þau. Ef ég hins vegar hefði haft
einhver völd þá heföi ég hagað
málum ööru vísi.“
Nú er stjórnin öll — rétt einu
sinni hefur vinstri stjórn lagt uþþ
laupana fyrir tímann? Eru þaö
mikil vonbrigöi?
Þessi vonbrigði nú eru hvað
sárust á ferli mínum, og aö ýmsu
leyti hættulegust í vinstra sam-
starfi. Verkalýðsflokkarnir tveir,
Alþýöubandalag og Aiþýðuflokk-
ifr, hafa unnið kosningasigra á víxl
en í síðustu kosningum unnu þeir
báðir sigra, náðu næstum meiri-
hluta á þingi. Maður vonaði því að
kæmi róttæk stjórn, sem verka-
lýössamtökin heföu sterk ítök í,
vinsamleg stjórn og að sótt yrði
fram í átt að félagslegra þjóð-
félagi, rettlátara. En nú eru þær
vonir orðnar að engu. Stjórnin olli
vonbrigðum, aö því leyti að ekki
náðist samstaöa innan hennar. Og
sannleikurinn er, aö kenna má
öllum flokkum þar um. En þaö er
Ijóét, að stór hluti þingsliðs
Alþýðuflokksins hafi ekki vilja til
að mynda vinstri stjórn. Þeir
virðast hafa aðra þjóðfélagssýn.
Hafa ekki trú á nánu samstarfi
verkalýðshreyfingarinnar.'1
Hvað er framundan?
„Ef Sjálfstæöisflokkurinn mynd-
ar með stuðningi Alþýöuflokks
ríkisstjórn þá fáum við harðvítuga
hægri stjórn. Mál verða þá leyst
með minnkandi kaupmætti og
löggjöf sem myndi sauma að
verkalýðsbreyfingunni. Það yröi
náið samstarf Vinnuveitendasam-
bands íslands og slíkrar ríkis-
stjórnar. Slík stjórn myndi kalla
fram hörð stéttaátök.
Þú sagðir það þín mestu von-
brigði aó stjórnin gefur nú upp
andann. Einhver uppgjöf hjá þér
nú?
„Ég hef aldrei verið ákveðnari
en nú að berjast fyrir þjóöfélagi
jafnréttis. Þaö sem sterk verka-
lýðshreyfing tryggir þjóöfélagsleg-
an jöfnuð. Þetta er torsótt og
hvergi í heiminum hefur enn tekist
að skapa þetta svo vel fari. Af
hverju skyldi það endilega vera,
aö þeir sem vinna erfiðustu og
skítugustu störf þjóöfélagsins fái
minnst launin. í íslenzku þjóöfélagi
á sér nú staö ákveðin þróun. Það
stendur frammi fyrir víðtækri
stéttaskiþtingu. Hvers konar sér-
fræðingar og menntamenn hafa
orðið ákaflega mikil forréttindi.
Þetta fólk er tryggt í bak og fyrir, á
margföldum launum verkafólks,
sem skagar þó verðmætin. Þessi
forréttindahópur er sá kröfuharö-
asti í þjóöfélaginu, sérgóður og
óbilgjarn. En þú mátt ekki mis-
skilja mig. Ég er ekki haldinn
neinum fordómum gagnvart
menntamönnum. Síður en svo,
margir af mínum beztu vinum eru
menntamenn."
Nú lentir þú í deilum við ungan
menntamann í vor á síðum Þjóð-
viljans.
„Já, og það, sem ég er að
gagnrýna, er, að íslenzk og dönsk
verkalýðshreyfing hafa lagt gífur-
lega baráttu til aö verða ekki
atvinnuleysi og kreppu að bráð og
náð fram atvinnuleysistryggingum.
Verkalýðshreyfingin hefur háð
haröa baráttu fyrir jafnrétti til
náms. Svo koma þessir menn og
misnota þetta kerfi — æpa með
ókvæðisorðum að vinnandi fólki
með atvinnuleysisstyrk, uppfullir
af viti með sósíalisma og Lenín
upp á vasann. Ég veit þess mörg
dæmi í íslenzka skólakerfinu þeg-
ar kennarar hafa gefist upp á að
reka nemendur úr tíma að þá er
beitt ægilegustu hótuninni, og
sagt: Þú ert aumingi og drullu-
sokkur. Þú verður bara verkamaö-
ur eða sjómaöur.
/ blaðaviðtali fyrir ekki mörg-
um mánuðum sagði ein ung
Alþýðubandalagskona, að hún
tilheyrði „vinstri intelligonsíunni“
i bandalaginu. Er mikil togstreita
þarna á milli?
Þessl menntamannaklíka í Al-
þýöubandalaginu, sem svo er
kölluö, er ekki jafn ráöandi og
menn vilja vera láta. En ýmsir vinir
mínir píndu mig í aö fara í fimmta
sæti listans í síðustu kosningum á
þeim forsendum að listinn yrði
lltríkari og bæri sterkari svip
verkalýðsflokks. Ekki þar fyrir,
Eðvarð Sigurðsson, formaður
Dagsbrúnar skipaði annaö sæti
listans.
Almannarómur segir, að þú
sért lítt hrifinn af Ólafi Ragnari
Grímssyni. Er það satt, eða viltu
kannski ekki ræða það?
Jú, fyrir alla munl. Þaö er ágætt
aö þú kemur meö þessa spurn-
ingu. Sannleikurinn er sá, aö ég
hef tröllatrú á Ólafi Ragnari. Ég
held nefnilega, aö Ólafur Ragnar
sé einmitt sá menntamaöur, sem
gæti oröiö verkalýöshreyfingunni
verulega tll styrktar. Og verkalýðs-
hreyfingin hefur átt hauk í horni
meðal margra menntamanna. Það
Quamundur J. OuSmundMon.
var til að mynda gífurlegt áfall
þegar Magnús Kjartansson dró
sig t hlé vegna veikinda.
Ræður menntamannaklíkan á
Þjóðviljanum?
Ég neita því ekki, að stundum
finnst mér Þjóðviljlnn bara kúltúr-
biaö en ég myndi ekki segja að
menntamannaklíkan réöi þar ríkj-
um.
Nú er verkamannaþing aö hefj-
ast. Gefurðu kost á þér og verður
einhver stetnubreyting?
Já, ég gef kost á mér sem
formaöur áfram. Hvort stefnu-
breyting sé framundan? Ja, ég
veit ekki hvort skal kalia það
stefnubreytingu. Ég ætla ekkl að
fara dult með það stefnumið, aö
ég telji Verkamannasamband ís-
lands eiga aö snúast miklu haröar
og ákveðnar aö raunverulegu
launajafnréttl í landinu. Ég veit, aö
ég er síöur en svo vel þokkaður á
ýmsum stöðum og svo gæti farið
aö Verkamannasambandlö hrein-
lega lenti í átökum viö önnur
samtök, bæði innan verkalýös-
hreyfingarinnar og utan hennar.
Ég held að það sé of mikiö af
glansandi þrófmönnum með tölvu
upp á vasann sem Irta á sorp-
hreinsunarmenn eins og erlent
vinnuafl er litiö í ríkjum V-Evrópu.
Ég ætia aö ráðast aö þessum
mönnum meö kjafti og klóm.
Hverjir eru mestu sigrar verka-
lýðshreyfingarinnar, sem þú hef-
uráttþáttí?
Ég er hvað ánægðastur með
áfangann 1965. Þá voru Dags-
brún, Framsókn, Hlíf og FramtíÖin
ein í deilu. Þetta var erfiö deila og
talin töpuö. Þaö var sett á yfir-
vinnubann en viö náöum fram
vinnuvikustyttingu í 44 tíma á viku.
Laugardagseftirmiödagur varö
helgidagataxti og viö stjórnina
náöum viö fram samningum um
byggingu 1250 íbúöa í Breiöholti.
Þá er mér minnisstætt 1955. Þá
var hér 6 vikna verkfall sem
endaði í samningum um atvinnu-
leysistryggingar. Ég var óánægður
meö niöurstööurnar en seint
gleymi ég er fullorðnir verkamenn
komu til mín og sögöu: Vertu ekkl
óánægöur. Sigurinn um atvinnu-
leysistryggingarnar stendur.
Nú hefur á undanförnum miss-
erum verið tæpt á nýrri tegund
verkalýðsforingja, sjálfsagt menn
með tölvur. Ertu úreltur verka-
lýðsforingi?
Þetta var góö spurning (sagöi
hann og brosti). Mér finnst þaö
ekki vera svo en sumir segja, aö
þaö sé einmítt hættulegast. Aörir
veröa aö dæma gerðir mínar. Ég
mun halda áfram aö starfa fyrir
þaö fólk, sem ég þekki bezt —
verkamennina, eins og ég bezt
kann.
Nú stefnir í þingkosningar.
Hefur þú hug á fiingsæti?
(Aftur bros) Eg hef ekki útfyllt
neitt umsóknareyðublaö. Hef
raunar ekki hugleitt máliö. Sann-
leikurinn er, aö ég hef ekki mikla
Intressu á þingsæti. Ekki eins og
margir, í öllum flokkum, sem miöa
sinn lífsstíl viö þingsæti eins og
það sé eitthvert æösta takmark.
Þeir menn eru yfirleitt óþolandi,
hvar í flokki sem þeir standa. Þeir
velta því fyrlr sér hvort þelr eiga
aö brosa eöa ekki. Þeir fara á
völlinn ef þeir telja þaö pólitískt
rétt — óþolandi. H.Halls.