Morgunblaðið - 13.10.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979
23
Anders Hansen:
011 rök mæla með
prófkjöri innan
Sjálfstæðisflokksins
Ljóst er nú, eftir nokkurt þóf,
að kosið verður til Alþingis í
desembermánuði næstkomandi.
Mun flestum vera það fagnaðar-
efni, ef frá eru skildir ráðvilltir
þingmenn Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks, sem nú eiga
andvökunætur af ótta við dóm
kjósenda. Þarf ekki að fara mörg-
um orðum um þá atburði, sem til
stjórnarslitanna og þingrofsins
leiddu, svo mjög sem þau mál eru
fólki í fersku minni.
Ekki þarf heldur að rifja upp
hinn hörmulega feril fráfarandi
ríkisstjórnar. Hann hefur verið
samfelld harmkvælasaga og
meginþorra þjóðarinnar léttir nú
þegar þriðja og versta Vinstri
stjórnin fer frá.
Nú horfa menn fram á veginn
og kosningaundirbúningur er
hafinn af fullum krafti. Trúlega
munu prófkjör fara fram hjá
flestum flokkum, en varla þó í
öllum kjördæmum. Raunar má
kjósendum í léttu rúmi liggja
hverjir tapa eða hverjir sigra í
hugsanlegum prófkjörum Al-
þýðuflokks, Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags. Þar geta menn
að vísu spurt hver annan hvor sé
nú betri Brúnn eða Rauður, en
það skiptir ekki meginmáli. Trú-
legt er, að þorri kjósenda hugsi
sem svo, að varla skipti miklu
máli hvor bítur hvorn á barkann í
þeim slag, Benedikt eða Vilmund-
ur, Þórarinn Þórarinsson eða
Guðmundur G. Þórarinsson eða
þá Geir Gunnarsson eða Gils
Guðmundsson. Allir hafa þessir
menn sannað með óyggjandi
hætti á síðustu misserum að þeir
eru ófærir um að stjórna landi og
þjóð.
Miklu máli skiptir hins vegar
að sjálfstæðismenn efni til próf-
kjöra í sem flestum kjördæmum,
og að þar veljist til framboðs
sveit vaskra manna sem kjark
hafa til að fylgja eftir stefnumál-
um Sjálfstæðisflokksins eftir
kosningar.
Prófkjör sjálfsögð
Því verður ekki trúað að nokkr-
ir sjálfstæðismenn muni leggjast
gegn því að framboðslistar Sjálf-
stæðisflokksins verði ákveðnir
með prófkjöri. Sjálfstæðismenn
hafa haft um það forystu hér á
landi að opna starf stjórnmála-
flokka, og þeir hafa gengið á
undan í því að gefa almennum
flokksmönnum og öðrum
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins kost á að hafa áhrif á
ákvarðanatöku í sem flestum
málum. Þar eru framboðsmál
ekki undanskilin.
Því þarf að vinna að því að
prófkjör fari nú fram á vegum
Sjálfstæðisflokksins í sem flest-
um kjördæmum, og raunar eru
ekki sjáanleg nein tormerki á að
þau fari fram í öllum kjördæm-
um. í Reykjavík og í Reykjanes-
kjördæmi er komin allsterk hefð
á um prófkjör, og einnig kunna
sjálfstæðismenn á Vesturlandi og
á Suðurlandi allvel til verka í
þeim efnum. Þar hljóta prófkjör
því alla vega að fara fram. Ekki
er eins ljóst hvað gerist í Vest-
fjarðakjördæmi, Norðurlands-
kjördæmunum tveimur og á
Austurlandi. Engin nægilega
sterk rök eru fyrir því að hafa
ekki prófkjör þar, þrátt fyrir
skamman tíma og að slíkt hafi
ekki verið gert áður.
Þeir sætti sig
við dóm kjósenda
Þeir stjórnmálamenn eru enn
til á íslandi, og því miður sumir
hverjir innan Sjálfstæðisflokks-
ins, sem telja sig ekki nema að
Anders Hansen.
litlu leyti þurfa að leita til kjós-
enda um umboð sitt eða staðfest-
ingu á því, þegar val á framboðs-
listum er annars vegar. Allir
íslenskir stjórnmálamenn eru
fylgjandi almennum kosningum
og lýðræðislegum stjórnarhátt-
um, en sumir þeirra eru andvígir
slíkum vinnubrögðum innan
flokka sinna.
Tími er hins vegar kominn til
að kveða slík sjónarmið niður,
auka á lýðræðið í stjórnmála-
flokkunum og útvíkka þannig
lýðræðið og lýðræðislega
stjórnarhætti í landinu.
Stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins í öllum kjördæmum
eiga óskoraðan rétt til þess að
hafa áhrif á það, hverjir veljast
til framboðs í kosningum. Á þann
hátt einan er unnt að velja
framboðslista svo vel sé, og á
þann hátt verður helst komist hjá
ósætti um endanlega skipan list-
anna. Að vísu kann að verða hart
barist í prófkjörunum, en það
hefur sýnt sig að slíkar væringar
falla fyrr niður að prófkjöri
loknu en þær deilur, sem kunna
að koma upp á minni samkomum
flokksins, þar sem færri menn
deila út hinum eftirsóttu sætum.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins, hvar í kjördæmi sem
þeir eru, verða jafnan að vera við
því búnir að sætta sig við dóm
kjósenda, sama þótt slíkt kunni
að vera sársaukafullt á stundum.
Þessum dómi verða þeir að vera
viðbúnir, hvort heldur er í próf-
kjörum innan Sjálfstæðisflokks-
ins eða í kosningum til Alþingis
eða sveitarstjórna.
Valið skiptir
miklu máli
Sjálfstæðismenn hafa sjálfir
jafnan verið vantrúaðix á þann
möguleika að flokkur þeirra
kynni að fá hreinan meirihluta á
Alþingi. Eftir hina hörmulegu
óstjórn Vinstri stjórnarinnar síð-
ustu, skýra stefnumótun sjálf-
stæðismanna í efnahagsmálum
og hina miklu fylgissveiflu í
síðustu kosningum hafa vonir um
hreinan meirihluta hins vegar
aukist. Ekki hafa síendurteknar
skoðanakannanir sem benda í
sömu átt heldur spillt þar fyrir.
Hreinn meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins á Alþingi er því innan
seilingar í fyrsta sinn í sögu
flokksins.
Því er það að val manna í
prófkjörum flokksins skiptir enn
meira máli en oftast áður. Próf-
kjör sjálfstæðismanna á næst-
unni munu velja fleiri þingmenn
flokksins en nokkru sinni áður.
Miklu máli skiptir að nú verjist
til áhrifa menn sem kjark hafa til
að takast á við þau vandamál sem
framundan eru, menn sem eru
reiðubúnir að takast á við vanda-
málin á grundvelli hugsjóna
Sjálfstæðisflokksins um frelsi
einstaklingsins og frjálsan
markaðsbúskap.
Sjálfstæðismenn eiga þegar í
stað að ákveða að ganga til
prófkjörs í öllum kjördæmum
landsins, röksemdir er hníga að
tímaskorti, skömmum fyrirvara,
óvæntum atburðum, erfiðu veður-
fari og skömmum tíma frá síð-
ustu Alþingiskosningum eru
harla léttvæg þegar reynt er að fá
því framgengt að lýðræðisleg
vinnubrögð verði viðhöfð við val
frambjóðenda Sjálfstæðisflokks-
ins í þeim mikilvægu kosningum
sem í hönd fara.
„Hermann Jónas-
son lék aldrei trúð
í sölum Alþingis”
—sagði Steingrímur Hermannsson er
Vilmundur líkti sér við Hermann
Heimsforseti
JCI í heimsókn
KUMAR P. Gera, heimsforseti JCI,
JayCees International, verður gest-
ur á almennum fundi JC-hreyf-
ingarinnar á íslandi, fimmtudag-
inn 24. október n.k.
Gera var kosinn heimsforseti JCI
fyrir árið 1979—80 á 33. heimsþingi
hreyfingarinnar í Maníla á Filipps-
eyjum. Kumar Gera er fæddur 20.
apríl 1946, á Indlandi. Hann er
verkfræðingur að mennt og rekur
ásamt fjölskyldu sinni húsgagna-
verksmiðju í Poona.
í ræðu sem Vilmundur Gylfa-
son alþingismaður hélt á fundi
Stúdentafélags Reykjavíkur í
fyrrakvöld, sagðist hann jafnan
virða Ilermann heitinn Jónasson
fyrir að rjúfa þing þegar í óefni
var komið 1 stjórn landsins árið
1958. Sagði Vilmundur að ákvörð-
un Hermanns hefði lýst karl-
mennsku hans á erfiðum timum,
og slíkt bæri að virða.
Kvaðst Vilmundur vera þeirrar
skoðunar, að um margt væru
aðstæður nú svipaðar og þær voru
árið 1958, er fyrsta vinstri stjórnin
fór frá völdum, og væru Alþýðu-
flokksmenn því raunverulega að
ganga sömu slóð og Hermann
Jónasson gekk á sínum tíma. Það
að Alþýðuflokkurinn fetaði nú í
fótspor Hermanns sýndi að þing-
menn flokksins hefðu kjark til að
takast á við vandann og skjóta
stefnu sinni undir dóm kjósenda.
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins, og
sonur Hermanns Jónassonar talaði
skömmu síðar, og hóf hann ræðu
sína á þessum orðum: „Ég vona að
fundarmenn virði það við mig, að
mér er þungt í skapi er Vilmundur
Gylfason líkir sér við Hermann
Jónasson. — Hermann Jónasson
lék aldrei trúð í sölum Alþingis.“
Þessum orðum Steingríms fylgdi
mikið lófatak fundarmanna, en
Vilmundur sat hljóður undir ræðu
Steingríms.
Fundur Stúdentafélags Reykja-
víkur var sem fyrr segir haldinn í
fyrrakvöld, að Hótel Loftleiðum,
og var hann allfjölmennur. Þar
fluttu framsöguræður þeir Geir
Hallgrímsson, Steingrímur Her-
mannsson, Ragnar Arnalds og
Eiður Guðnason. Fundarstjóri var
Baldur Guðlaugsson lögmaður.
Akrancsi, 10. okt’. 1979.
HJAÍ.MAR Þorsteinsson opnar málverkasýningu í Bókasafni Akraness
laugardaginn 13. okt. n.k. kl. 16.
Á sýningunni eru 40 myndverk unnin í olíu, vatnsliti og olíukrít. Vcrkin
eru flest til sölu. Þetta er fjórða einkasýning Iljálmars. Áður hefur hann
sýnt tvisvar á Akranesi og einu sinni á Akureyri. og einnig tekið þátt í
samsýningu í Bamble Kommune. vinabæ Akraness í Noregi.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 21. okt. Júlíus.
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Ráðstefna um þjónustu-
og viðskiptastarfsemi
Málverkauppboð Klausturhóla:
Tvær vatnslitamyndir Muggs
Túbals, Svein Þórarinsson og
Tryggva Magnússon.
Myndirnar eru sýndar í dag
í Klausturhólum Laugavegi 71
frá kl. 9—6 og á sunnudag frá
kl. 10—2 á Hótel Sögu í
Súlnasal.
Guðmundur Axelsson i
Klausturhólum heldur mál-
verkauppboð á Hótel Sögu á
morgun, sunnudag, kl. 3. Þar
verður boðin upp 61 mynd
eftir marga kunnustu list-
málara þjóðarinnar.
Meðal annarra má nefna
Mugg, Jón Stefánsson, Gunn-
laug Blöndal, Júlíönnu Sveins-
dóttur, Jón Engilberts, Jón
Þorleifsson, Kristínu Jóns-
dóttur, Jóhannes Kjarval, Ólaf
RÁÐSTEFNA um viðskipta- og
þjónustustarfsemi á vogum Fjórð-
ungssambands Norðurlands hófst á
Akureyri í gærkvöld. ltáðstefnan er
liður í þeirri starfsemi sambands-
ins að kynna, bæði fyrir svcitar
sjórnarmönnum og því fólki, sem
vinnur við viðkomandi atvinnu
grein. tiltekna þætti i atvinnu-
starfsemi og byggðaþróun á Norð
urlandi.
Ráðstefnan er haldin í
Gagnfræðaskólanum á Akureyri og
henni lýkur í dag. í gærkvöld kynntu
þeir Sigurður Guðmundsson og Sig
fús Jónsson hjá byggðadeild Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins stöðu við-
skipta- og þjónustugreina á Norður-
landi í samræmi við niðurstöður
könnunar um þessi efni, sem unnið
hefur verið að á vegum deildarinnar
og Fjórðungssambands Norðlend-
inga. Þá ræddi Gunnar Kárason um
stöðu heiid- og innflutningsverzlun-
ar á Norðurlandi, Þórgnýr Þór-
hallsson ræddi um framleiðslu og
gildi heimamarkaðar og loks ræddi
Jóhann Antonsson um bókhalds-
þjónustu.
I dag verður ráðstefnunni svo
fram haldið og lýkur í kvöld eins og
áður sagði.