Morgunblaðið - 13.10.1979, Síða 37

Morgunblaðið - 13.10.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979 37 Lyf jaframleiðsla úr blóði fylfullra hryssna Svo kann að fara að út- flutningur á blóði úr fylfull- um hryssum og hormónum unnum úr blóði þeirra verði innan tíðar álitlegur at- vinnuvegur hérlendis. Tveir aðilar hafa í sumar unnið að athugunum og tilraunum varðandi þennan útflutn- ing. Gunnar Bjarnason ráðunautur og ívar Guð- mundsson ræðismaður könnuðu í sumar möguleika á slíkum útflutningi til Bandaríkjanna. ------Hefúr Rannsoknarstofnun land- búnaðarins óskað eftir því við landbúnaðarráðuneytið að það skipi framkvæmda- stjórn, er í eigi sæti full- trúar þeirra aðila, sem mál- ið tengist og vinni þessi framkvæmdastjórn að fram- gangi þess. í sumar var tekið blóð úr 70 hryssum í Skagafirði og var það selt til Danmerkur en umboð fyrir danska fyrirtækið, sem keypti blóðið, hafa Ein- ar Birnir heildsali i Reykjavík og Tilraunastöð- in á Keldum. Gunnar Bjarnason sagði í samtali við þáttinn að hann og Ivar hefðu átt fund með forráða- mönnum bandarísks fyrirtækis fyrir vestan haf í sumar. Þar hefði komið í ljós, að eftirspurn eftir svokölluðum GONAD- TROP-hormón er mikil í Banda- ríkjunum og er langt frá því að hægt sé að fullnægja eftirspurn- inni. Þessi hormón eru unnin úr blóði fylfullra hryssna á tímabil- inu 50 dögum eftir að þær fyljast til 100. dags eftir fyljun eða í 7 vikur. „Skortur á þessu efni í Ameríku nú stafar af því,“ sagði Gunnar, „að svokallaðir vírus- sjúkdómar eru útbreiddir í hrossum víða um heim en í Bandaríkjunum er ekki hægt að fá innflutningsleyfi fyrir þurrk- uðu blóðefni frá löndum, þar STJÓRN Búnaðarfélags íslands samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að heimila búnaðar- samböndunum og hestamanna- félögunum á Austurlandi að halda fjórðungsmót í fjórðungn- um næsta sumar. Fyrir fundin- um lá bréf frá Búnaðarsambandi Austurlands þar sem borin var fram ósk um að stjórn B.í. heimilaði mótið. Áður hafði SJÖ folar frá Stóðhestastöð Búnaðarfélags íslands á Litla-IIrauni verða seldir á upp- boði, sem fram fer þar laugar- daginn 10. nóvember n.k. og hefst ki. 14. Folarnir, sem seldir verða, eru 3., 4. og 5 vetra en folarnir, sem boðnir verða upp, eru: Bótólfur frá Svignaskarði, Drómi frá Vatnsleysu, Fylkir frá Akureyri, Glói frá Svigna- skarði, Giúmur frá Kirkjubæ, Háleggur frá Akureyri (undan Náttfara 776) og Mjalli úr Reykjavik. Þorvaldur Árnason, sem verið hefur tilraunastjóri á Stóðhesta- sem vírussjúkdómar eru land- lægir. Af þessari ástæðu er nú Argentína, sem fram að þessu hefur selt mest af þessu efni á markað í Bandaríkjunum, fallið út úr myndinni. Ef við Islend- ingar getum sannað, að þessir sjúkdómar, sem þessari fram- leiðslu eru hættulegir, finnist ekki hér á landi og að við höfum í frammi virkar aðgerðir til að verjast þessum sjúkdómum, þá væri möguleiki á að við gætum fengið innflutningsleyfi til Ameríku en það er nú talið örðugt og getur tekið talsverðan tíma.“ Gunnar sagðist vera þeirrar skoðunar að íslendingar ættu ekki að fara út í að flytja aðeins út fryst blóð heldur ætti að fullvinna það í hormóna hér innanlands. „Þetta er talin vandasöm framleiðsla, sem krefst menntaðra sérfræðinga. Við eigum þegar hóp velmennt- aðra líf- og efnafræðinga, sem gætu leyst þetta verkefni af hendi. Sjálf framleiðslan ætti ekki að krefjast neitt sérstak- stjórn Búnaðarfélagsins að til- lögu sýningarnefndar B.í. og Landssambands hestamannafél- aga samþykkt að fjórðungsmót skyldi haldið næsta sumar á Vesturlandi. Næsta sumar verða því haldin tvö fjórðungsmót hestamanna, annað á Kaldár- melum á Snæfellsnesi og hitt að öllum líkindum á Iðavöllum á Héraði. stöðinni að undanförnu, hélt í haust til Svíþjóðar til fram- haldsnáms í búfjárfræði og mun ætlun hans að ljúka þar doktors- prófi í greininni. Verður hann í leyfi frá starfi sínu næsta árið en gert er ráð fyrir að Þorvaldur verði við nám ytra næstu 2 til 3 ár. Þá hefur Þorgeir Vigfússon bústjóri á Stóðhestastöðinni sagt starfi sínu lausu frá og með næstu áramótum. Gunnar Árna- son, sem starfaði sem tamninga- maður á stöðinni í fyrravetur, hefur verið endurráðinn til sömu starfa í vetur. Hestar Umsjón. Tryggvi Gunnarsson lega mikils stofnkostnaðar eða neins verksmiðjubákns. Það að koma upp framleiðslu sem þess- ari er vart meira átak en það var að reisa rjómabú um 1910 miðað við þá þekkingu og menntun sérfræðinga, sem þá var fyrir hendi og nú er,“ sagði Gunnar. Verulegur verðmunur er á blóðinu eftir því í hvaða formi það er selt en bæði er hægt að selja það í plasma-formi, í frostþurrkuðu formi eða full- hreinsað („purified"). Gunnar sagði að plasma-framleiðslan væri einföld. Til að hindra hlaup fíbrínsins er sett cítrat í brús- ann við blóðtöku en blóðkornin eru samdægurs skilin frá og plasmað síðan fryst. Til frost- þurrkunarinnar þarf að útvega stóran frostþurrkara en það eru ekki talin sérstaklega dýr tæki og má nefna að Rannsóknastofn- un landbúnaðarins á einn lítinn frostþurrkara til að þurrka sýni. Fullvinnsla eða vinnsla svo- nefndra „purified hormon" krefst talsverðrar tækni. Að sögn Gunnars fær banda- ríska fyrirtækið blóðplasmað að- allega frá vírus-hreinum héruð- um í Kanada og eru bændum þar greiddir 6 kanadískir dollarar fyrir hvern lítra blóðs úr not- hæfri hryssu án frekari magn- rannsókna við hverja blóðtöku. Talið er að úr íslenzkum hryss- um megi í hvert sinn taka um 5 til 6 lítra en blóð er tekið vikulega á 7 vikna tímabili eða alls 35—40 lítrar. Reikna má með að í hverjum blóðlítra séu að meðaltali um 60.000 I.U. hormón eða alls í 42 lítrum um 2,5 milljónir I.U. hormón. Talið er að um helmingur þessa magns glatist í vinnslunni svo að um 1.25 milljón I.U. hormón kæmi til sölu úr hverri hryssu af „purified hormon“. Svarar þetta til þess að hver hryssa geti aflað í gjaldeyri um 1250 Bandaríkja- dala. Til samanburðar skal þess getið, að bandaríska fyrirtækið, sem þeir Gunnar og ívar heim- sóttu, greiðir 370 Bandaríkja- dollara fyrir hver milljón I.U. hormón í frostþurrkuðu formi en fyrir „purified" hormónefni greiðir það 1000 dollara fyrir hverja milljón af I.U. hormón. Gunnar nefndi að til saman- burðar við aðra íslenska land- búnaðarframleiðslu mætti taka meðalkýrnyt á ári til framleiðslu á óðalsosti til útflutnings og er í dæminu miðað við verðlag og gengi í júlí sl. Eins og fyrr sagði ætti hver hryssa að gefa 1250 Bandaríkjadali í gjaldeyri á ári' væri blóðið flutt út unnið í „purified hormon" eða miðað við gengi í júlí sl. eru það 435 þúsund ísl. krónur.. Varðátidi kúna mætti'géra ráð fyrir, að ársnyt hennar í mjólk væru 3300 kíló og fengjust úr því magni 327 kg af óðalsosti auk um 40 kg af smjöri. Við útflutning fengjust 800 krónur fyrir kg af óðalsost- inum og 350 krónur fyrir smjörkílóið. Samtals aflaði því kýrin 275.600 kr. á ári í gjald- eyri. Samkvæmt áætlun, sem Gunnar gerði í júlí sl., er miðað við að bændur hér fengju sama verð og bændur í Kanada eða 6 kanadiska dollara fyrir hvern lítra af blóði eða miðað við gengi í júlí 1800 kr. ísl. Séu 6 lítrar af blóði teknir úr hryssu í hvert skipti þá gerir það um 11.000 kr. fyrir hverja blóðtöku og fyrir 7 blóðtökur á 50 daga tímabili gerir það um 77,000 kr. Auk þess gæfi hver hryssa af sér folalds- verðið, sem Gunnar áætlaði í sumar um 43.000 kr. Ársafurðir eftir slíka hryssu eru þá um 120 þúsund kr. Telur Gunnar að stóðbóndi með slíka framleiðslu þyrfti að hafa um 80 fyljaðar hryssur til að hafa brúttó- framleiðslu upp á 10 milljónir ísl. kr. Gunnar segir að kjarnfóð- ur- og áburðarkostnaður verði aðeins hluti af því, sem naut- gripaframleiðslan krefst og sama gildi um fjárfestingar- kostnað allan. í samtalinu við Gunnar kom fram, að mikil verzlun er einnig í Ameríku með steroida, sem framleiddir eru úr þvagi fyl- fullra hryssna en þvaginu er safnað seinnihluta vetrar. Ekki virðist þó vera jafn mikill skort- ur á framboði steroida nú vegna þess að söfnun þvagsins er auð- veldari en söfnun blóðsins og er ekki eins háð vírus-sjúkdómum og blóðtakan. Þeir Gunnar og ívar sömdu skýrslu um viðræður sínar við bandarísku fyrirtækin og var hún send Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Stofnunin hefur nú skrifað landbúnaðarráðu- neytinu og óskað eftir því að skipuð verði framkvæmdastjórn, sem vinni að framgangi málsins. Hefur RALA lagt til að í framkvæmdastjórninni verði einn fulltrúi frá stofnuninni, einn frá Tilraunastöðinni á Keldum og einn frá Sambandi ísl. samvinnufélaga. Hefur RALA þegar tilnefnt Gunnar Bjarnason sem fulltrúa sinn og er nú beðið eftir að landbúnað- arráðuneytið afgreiði málið. Sem fyrr segir var í sumar gerð tilraun með að taka blóð úr hryssum í Skagafirði á vegum Hagsmunasamtaka hrossa- bænda en umboð fyrir danska fyrirtækið, sem kaupir blóðið, hafa Einar Birnir heildsali í Reykjavík og Tilraunastöðin á Keldum. Blóð var tekið úr 70 hryssum og var blóð tekið fimm sinnum úr hverri hryssu, fjórir lítrar í einu. Lítrinn er seldur á 2.000 kr. og gefur því hver hryssa eiganda sínum 40.000 krónur í aðra hönd. Blóðtakan hófst 10. ágúst og stóð til loka september. Einar Birnir sagði í samtali við þáttinn að ekki væri enn hægt að segja hvernig þessi tilraun hefði komið út fjárhags- lega og fyrr en það lægi fyrir væri of snemmt að segja til um hvert framhald yrði á þessu á næstu árum. Áhrifamikil íslenzk grafík ÍSLENZKI grafíklista- maðurinn Richard Valtin gojer-Johannsson fær mjög lofsamlega dóma hjá myndlistargagnrýnanda danska blaðsins Berlingske tidende þar sem hann skrifar um norræna grafíksýningu í Nikolaj- kirkjunni. Gagnrýnandinn segist sakna þess að hafa ekki séð fleiri af hinum áhrifamiklu grafíkmyndum Valtingojers, en hér birtist mynd úr danska blaðinu af einni þeirra. Allsherjar markaður í Bústaðasókn Haustið er ekki aðeins tími fallandi laufa og naprari golu. Þá er lika hugað að undirbún- ingi vetrar í mat og klæðnaði. Konurnar í Bústaðasókn hafa fullan hug á því að gera starfssystrum sínum og bræðr- um þetta nokkuð auðveldara með því að efna til stórmarkað- ar i húsakynnum Safnaðar- heimilis Bústaðakirkju núna á laugardaginn kemur, þann 13. október. Hefst markaðurinn kl. 2 stundvislega og stendur fram eftir degi á meðan nokkuð er óselt. Á boðstólum verður alls konar fatnaður á vinsælum flóamark- aði og bazarmunir alls konar, . þar sem verðlagið er enn bundið „gömlu krónunni", grænmeti svo til nýkomið úr görðum, og að ógleymdum öllum kökunum, sem hafa verið að fylla svo mörg hús í sókninni ilmi og angan þessa dagana, meðan á bakstri hefur staðið. Það er Kvenfélag Bústaða- sóknar, sem hefur allan veg og vanda af þessum markaði, en þær hafa aldri legið á liði sínu við að stuðla að framgangi góðs máls. En andvirði markaðarins fer til kaupa á húsgögnum fyrir safnaðarheimilið, og þá hafa þær einnig fullan hug á því að ganga þann veg frá hátalara- kerfi kirkjunnar, að það komi að fullum notum fyrir heyrna- skerta. En það er með kirkjur eins og stor heimili, að þar þarf mörgu að sinna og helzt engu að gleyma. Verið því velkomin á laugar- daginn og njótið þess, sem þar er hægt að fá, auk þess sem glæstir vinningar í happdrætti, sem dregið er í fyrirfram, gera heimsóknina ennþá meira spennandi. (Frá Bústaðasókn). Fjórðungsmót á Aust- urlandi næsta sumar Uppboð hjá Stóð- hestastöðinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.