Morgunblaðið - 13.10.1979, Síða 41
— —— ——‘— — í- : — —'—
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1979 41
fclk í
fréttum
Samarnir
við þing-
húsið
í NORSKUM fréttum hef-
ur verið sagt frá mót-
mælaaðgerðum sem sjö
Samar hófu fyrir norska
Stórþingið fyrir nokkru
til að mótmæla þar
stækkun orkuvers. Þeir
hafa verið gallharðir á því
að hreyfa sig hvergi fyrr
en kröfum þeirra hafi
verið mætt. Mannmergð
hefur verið í kringum sjö-
menningana. Stjórnin
sagði þeim, að hún myndi
ekki verða við kröfum
þeirra. Þá ákváðu þeir að
fara í hungurverkfall
þarna fyrir utan þinghöll-
ina.
Blindflugið 50 ára
+ HÉR heilsast gamlar ílug-
hetjur, sem minntust merks
áfanga í sögu flugsins fyrir 50
árum. — Það er gamla banda-
ríska flughetjan og fyrrum
hershöföingi í flughernum,
James Doolittle, (lengst til
hægri), sem hér heilsar flug-
manninum Ben Kelsey. — Þeir
minnast þess að nú eru liðin 50
ár frá því að Doolittle flaug
blindflug — með blindflugs-
tækjum aðeins. Var Kelsey þá
með gamla flugkappanum, sem
nú er orðinn 82ja ára. Var
Kelsey „öryggisflugmaður“ í
þessu reynsluflugi. Á milli
þeirra stendur maður sá sem á
frægt flugminjasafn vestra,
Rhinebeck-safnið, en hann heit-
ir Cole Palen — og er að
sjálísögðu flugmaður.
Handteknir fyrir að
fagna páfa í Pdlandi
PÓLSKIR andófsmenn, sem nú
eru í vikulöngu hungurverkfalli,
segja að þeir Tékkar, sem komu
yíir landamærin til Póllands er
Jóhannes Páll II páfi heimsótti
landið hafi verið varpað í fang-
elsi. í yfirlýsingu Pólverjanna 14
segir að þeir séu í viku hungur-
verkfalli til að lýsa yfir stuðningi
við þá Tékka sem nú eru í
fangelsi og þá Tékka sem voru
handteknir eftir að hafa farið
yfir landamærin til Póllands til
að fagna páfa.
Þegar páfi heimsótti Pólland
gagnrýndi hann tékknesk yfir-
völd fyrir að banna Tékkum að
koma og taka á móti sér í
Póllandi. En einhverjum Tékkum
tókst að komast yfir landamærin
á þeirri forsendu að þeir væru
ferðamenn og urðu þeir að lofa
að fara ekki og fagna páfa.
Jan Kielanowoski prófessor
sem er i forsvari fyrir Pólverjana
14 sagði að ekki væri vitað hve
margir Tékkar hefðu verið hand-
teknir. „Það er staðreynd að
cinhverjir þeirra Tékka sem
komu til Póllands voru handtekn-
ir við komuna til Tékkó
slóvakíu,“ sagði Kielanowoski.
Bridge
Umsjón* ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgedeild
Sjálfsbjargar
Fyrsta spilakvöld vetrarins
verður á mánudaginn kemur að
Hátúni 12, fyrstu hæð. Spilaður
verður tvímenningur og hefst
keppnin klukkan 20 stundvís-
lega. Þeir, sem ætla að vera með,
þurfa áð mæta kl. 19.30.
Nánari upplýsingar eru veitt-
ar í síma 22564.
Bridgefélag
Breiðholts
Sl. þriðjudag hófst þriggja
kvölda tvímenningskeppni og
var spilað í einum riðli.
Staðan:
Helgi Magnússon
— Leifur Jóhannsson 194
Guðbjörg Jónsdóttir
— Jón Þorvaldsson 193
Helgi Skúlason
— Hjálmar Fornason 182
Ingólfur Guðlaugsson
— Vilhjálmur Vilhjálmsson 182
Leifur Karlsson
— Gísli Tryggvason 181
Meðalárangur 165.
Enn er hægt að bæta við
pörum í keppnina og fá þau
meðalskor, þ.e. 165. Þeir sem
áhuga hafa eru beðnir að láta
skrá sig í síma 74762 (Kristinn).
Önnur umferð verður spiluð á
fimmtudaginn kemur í húsi
Kjöts og fisks í Seljahverfi og
hefst stundvíslega kl. 19.30.
Bridgefélag
kvenna
Mitchell-tvímenningskeppni
Bridgefélags kvenna er lokið,
með sigri þeirra Rögnu Ólafs-
dóttur og Esterar Jakobsdóttur.
Þær sigruðu nokkuð örugglega,
en í næstu sætum koma svo þau
kvennapör sem kepptu fyrir okk-
ar hönd hér heima í fyrra á
norræna mótinu. Ef að líkum
lætur, mun þetta sama lið keppa
á næsta ári í Norðurlandamót-
inu í Svíþjóð.
Röð efstu para varð annars
þessi:
Ester Jakobsdóttir
— Ragna Ólafsdóttir 1523
Guðríður Guðmundsdóttir
— Kristín Þórðardóttir 1482
Erla Sigurjónsdóttir
— Dröfn Guðmundsdóttir 1437
Halla Bergþórsdóttir
— Kristjana Steingrímsd. 1419
Gunnþórunn Erlingsdóttir
— Inga Bernburg 1413
Júlíana Isebarn
— Margrét Margeirsdóttir 1332
Dóra Friðleifsdóttir
— Sigríður Ottósdóttir 1325
Sigríður Ingibergsdóítir
— Erla Eyjólfsdóttir 1316
Ingunn Hoffmann
— Ólafía Jónsdóttir 1314
Ása Jóhannsdóttir
— Laufey Arnalds 1304
Meðalskor 1260 stig.
Keppnisstjóri var Ólafur Lár-
usson.
Næsta keppni félagsins er
aðaltvímenningskeppni félags-
ins, sem er í barometers-formi.
Allir keppa við alla. Nokkrir
nýliðar munu koma til með að
spreyta sig við stjórnun hjá
félaginu í þeirri keppni, í eins
konar æfingabúðum hjá kvenna-
liðinu.
Ó.L.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Lokið er fyrstu umferð í aðal-
tvímenningskeppni félagsins.
Spilað er í 2 12 para riðlum og er
röð efstu para sem hér segir:
Ægir Magnússon
— Stefán Pálsson 207
Kristófer Magnússon
— Vilhjálmur Einarsson 193
Ragnar Halldórsson
— Jón Pálmason 192
Haukur ísaksson
— Karl Adólfsson 191
Aðalsteinn Jörgensen
— Ólafur Gíslason 187
Árni Þorvaldsson
— Sævar Magnússon 186
Meðalskor 165.
Mikil gróska er nú í vetrar-
starfi B.H. sem sést best á því að
fleiri pör eru nú mætt til keppni
en mörg undanfarin ár. Þar á
meðal eru mörg ný andlit sem
ekki hafa áður sést og einnig
gamlar kempur, sem eftir langa
fjarveru koma sumar hverjar
sterkar til leiks.
Athygli vekur frammistaða
tveggja af yngstu og efnilegustu
spilurum félagsins, þeirra Stef-
áns og Ægis, sem ekki alls fyrir
löngu voru byrjendur í faginu.
Þetta ætti einmitt að hvetja
hina nýju spilara félagsins til að
missa ekki móðinn þótt á móti
blási í byrjun.
Bridgefélagið
Ásarnir
Það var óneitanlega sterkur
sveipur sem gustaði sl. mánudag
hjá Ásunum, er „sterki" maður-
inn, Ármann J. Lárusson og
sonur hans, Sverrir Ármanns-
son, hreinlega sópuðu inn stig-
unum og skoruðu hvorki meira
né minna en 163 stig í 10 para
riðli, þar sem meðalskorin losar
ríflega hundraðið. Þeir feðgar
unnu upp 22 st. forskot hjá Birni
Eysteinssyni og Þorgeiri Eyj-
ólfssyni og gott betur. Úrslit
urðu þessi:
Ármann J. Lárusson
— Sverrir Ármannsson 413
Björn Eysteinsson
— Þorgeir Eyjólfsson 367
Jón Baldursson
— Þórarinn Sigþórsson 360
Ómar Jónsson
— Jón Þorvarðarson 342
Þráinn Finnbogason
— Magnús Torfason 337
Lárus Hermannsson
— Rúnar Lárusson 337
Haukur Ingason
— Þorlákur Jónsson 335
Sigurberg Elentínusson
— Gylfi Sigurðsson 330
Meðalskor var 324 stig.
Keppnisstjóri var Hermann
Lárusson.
Næsta keppni félagsins, er 2
kvölda hraðsveitakeppni, sem
verður með hefðbundnu sniði.
Menn eru hvattir til að vera
með, því aðalspilavertíðin er nú
að hefjast. Spilað er í Félags-
heimili Kópavogs efri sal, á
mánudögum og hefst keppni kl.
19.30 stundvíslega. Keppnisstjóri
verður Hermann Lárusson.
Bridgedeild
Víkings
Vetrarstarf Bridgedeildar
Víkings hófst síðastliðinn mánu-
dag með tvímenningskeppni.
Þátttaka var ekki mikil fyrsta
spilakvöldið, en mögulegt. er að
bæta við pörum í keppnina
næstkomandi mánudag klukkan
19.30 í Félagsheimili Víkings við
Hæðargarð.
Eftir fyrstu umferð er staða
efstu para þessi:
Sigurður — Lárus 131
Daníel — Guðmundur S. 125
Guðbjörn — Magnús 120
Ingibjörg — Agnar 118
Guðmundur Á. — Sigurður 118
Jón — Ingólfur 108