Morgunblaðið - 13.11.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979
11
hirð Noregskönunga, þá er íslend-
ingar sátu veizlur og þágu gjafir
höfðingja. Kveður Vilhjálmur
skáld sér hljóðs og mælir fram af
íþrótt:
Ásbjörns veizlur eru flestar
alþýðlegar.
Býsna likar Börsons þegar
brennivin er annarsvegar.
Áður en viðstödd alþýða fengi
klappað skáldinu lof í lófa hljómar
hróp höfðingja og veitingastjóra:
Út með Villa. Og úr fötunum með
hann.
En svo sem segir í ljóði:
„Enginn skyldi skáidin
styggja
skæð er þeirra hefnd“
má einnig segja að þeim sé sú
íþrótt gefin að kunna að tala um
fyrir höfðingjum með tilvitnun í
forn fræði og mæla af þekkingu og
mannviti. Tómas tekur svari
skáldbróður síns. Segir: Ásbjörn!
Þótt leitað sé með logandi ljósi í
fornum ritum og konungasögum
Snorra sérð þú þess hvergi getið
að höfðingjar varpi hirðskáldum
sínum á dyr, hvað þá að þeir fletti
þau klæðum. Var sem við mann-
inn mælt. Ásbjörn hrópar: Inn
með Villa. Og í fötin með hann.
Blind kona og háöldruð, lá
banalegu um þær mundir er Helgi
var langt kominn lestri sögunnar
um Bör Börson. Undir lok sögunn-
ar dró mjög af henni og var ljóst
að hverju stefndi. Þá sneri hún sér
til Drottins. Bæn hennar hljóðaði
eitthvað á þessa leið:
Drottinn minn. Þú veist að ég er
ekki að rella í þér á hverjum degi.
En eins vil ég biðja þig. Leyfðu
mér, gamalli konu, að lifa það að
hann Helgi Hjörvar ljúki sögunfii
af honum Bör. Ef þú gerir það
fyrir mig þá máttu taka mig til
þín án þess að ég mögli. Ég veit þú
skilur þetta. Það er ekki á hverj-
um degi sem gömul kona gleymir
þraut og þjáningu og hlakkar til
næsta dags.
Henni varð að ósk sinni. Nóttina
eftir að Helgi lauk sögunni tók
Drottinn hana af Landspítalanum
í fögnuð sinn.
Svo sem títt er um listamenn
voru skapbrigði Helga Hjörvar
slík að hann lýsti án tæpitungu
viðhorfi sínu til manna og mál-
efna. Tók hann þá stundum í sátt
forna þrætubræður. Gleymdi
hjaðningavígum og orrustugný
fyrri ára, en mundaði atgeir sinn á
nýjum vettvangi. Svo var er hann
minntist fyrri samstarfsmanna,
að breyttri skipan.
Undarlegt er það og hreint með
ólíkindum, sagði Helgi. Nú er eins.
og ég muni ekkert nema það bezta
í fari þeirra Jónasar Þorbergsson-
ar og Jóns Eyþórssonar, aðrar
eins andsk..... s..... og þetta
voru.
En það voru ekki bara út-
varpsmenn og Skeiðabændur er
fengu til tevatnsins hjá Helga.
Frægar og minnisstæðar eru
greinar hans um Landsímann, þá
er sú stofnun stóð fyrir umróti í
kirkjugarðinum á mótum Aðal-
strætis og Kirkjustrætis. „Getur
Landsíminn ekkert framfaraspor
tekið, ekki vikið sér við, nema
troða um leið sinn ógeðslega
djöfladans á mannabeinum?" rit-
aði Helgi í grein um líkræningja í
miðbænum.
Fáir menn í opinberri stöðu
hafa sætt hlutskipti Jónasar Þor-
bergssonar. Um hann má segja að
stæði stöðugur styrr, allt frá því
er hann stígur fyrst fram á
vettvangi þjóðmálabaráttu og
brýnir raust, er jafnan bar merki
sjúkdóms þess er brá á hann
brandi sínum á ungum árum. I
fari Jónasar tvinnuðust saman
margir skapgerðarþættir og var
sú voð slegin mörgum strengjum,
sem hefðu örlaganornir er réðu
uppsetningu vefsins verið margar
og mislyndar. í þá voð var kembt
úr mörgu reyfi, smágerðustu ull af
ljúfustu lömbum í heimahögum
allt til kringiþráða stórbokka.
Ungur hleypti hann heimdraga og
hélt í vesturvíking, að hætti
margra Þingeyinga. Farartálmi og
fjötur varð honum berklaveiki er
merkti hann á manndómsaldri,
svo hann beið þess ei fullar bætur.
Bar hann jafnan hlýhug til þján-
ingarbræðra- og systra er bundu
um sárt af völdum viðskipta við
þann vágest. Kostaði kapps um að
vera þeim stoð og stytta og hlífði
sér hvergi, þar, né annarsstaðar er
áhugi vaknaði um áhrif.
Nú hefir sögumanni farist svo,
að miklu rúmi hefir verið eytt á
þann kappann þeirra er um er
rætt er minnstur var líkamsvexti.
Kemur þá í hugann saga er sögð er
af bónda einum er heimsótti
höfuðborgina. Gekk hann í fylgd
útvarpsstjóra um götur og torg.
Spurði margs og leysti Jónas
greiðlega úr öllu. Nú kemur þar
sögu að þeir sjá lágvaxinn mann
stika eftir gangstétt. Er sá virðu-
legur í fasi og ber sig tiginmann-
lega. Útvarpsstjóri hnippir í
bóndamann. Segir: Þarna fer
Helgi Hjörvar. Bóndi ansar: Er
hann svona lítill? Jónas svarar án
umhugsunar: Hann er miklu
minni.
Hvað sem hæft kann að vera í
þessu má eigi gleyma þeim þætti í
skapgerð Jónasar er vissi að sátt-
fýsi og fyrirgefningarþörf. Á öðr-
um vettvangi hefir sögumaður
rakið þá venju Jónasar, þá er hann
var ritstjóri og barðist í fylkingar-
brjósti pólitískra hjaðninga, að
ganga á fund andstæðinga og
friðmælast við þá um hver ára-
mót. Voru þær göngur um sumt
eigi ólíkar yfirbótagöngum er
farnar voru á Sturlungaöld. Með
bænum og blessunarorðum veitt-
ist aukið afl í næstu orrustu og
glóðu þá vígorð í mörgu greinar-
korni.
Eigi verður skilist svo við hug-
leiðingar þessar að ekki sé getið
tveggja tónlistarmanna er sjá má
á myndum þeim er hér birtast.
Það eru þeir Páll ísólfsson tón-
skáld, er lengi átti sæti í útvarps-
ráði, allt frá fyrsta degi og
Þórarinn Guðmundsson tónskáld
og hljómsveitarstjóri. Ótaldar eru
þær sögur er enn geymast í minni
frá glettum þeirra og gamanmál-
um. Hér skal getið afmælis út-
varpsstjóra þar sem Páll kom við
sögu með glettni sinni. Jónas
Þorbergsson tók á móti vinum
sínum og samstarfsmönnum er
fögnuðu merkum áfanga í lífi
hans. Var þar veizla góð. Tvær
stofur samliggjandi og fjöldi fólks
á ýmsum aldri. Meðal gesta ung og
fríð stúlka, norðlenzk. Barmfögur
og brjóstgóð, klædd stórköflóttum
kjól. Stendur hún í hópi gesta þar
sem stofur mætast. Nú hyggst
einn veizlugesta, Árni Friðriks-
son, fiskifræðingur, mæla fyrir
minni afmælisbarnsins, útvarps-
stjóra. Gengur Árni settlega fram
með glas í hendi. Ávarpar veizlu-
gesti. Segir: Það er bezt að ég
gangi hérna fram fyrir skjöldu. Þá
var Páll ekki seinn á sér. Kallar til
Árna: Kallarðu stúlkuna Skjöldu.
Það leið löng stund þangað til
Árni gat hafið mál sitt á ný.
Þórarinn Guðmundsson var
hverjum manni ljúfari í sam-
starfi. Við nærveru hans brá
jafnan bjarma yfir hið daufleg-
asta samkvæmi. Gamanmál hans
fleyg og skopskyn hans beindist
eigi síður að honum sjálfum en
samferðamönnum. Látum lokið
pistli þessum með sögu af Þórarni.
Félagar hans í Sinfóníuhljóm-
sveitinni, ungir menn, sumir
hverjir, vildu tolla í tískunni og
varð, á öld Rauðsokka, tíðrætt um
kyn og sex. Segja við Þórarinn
háaldraðan. Hvernig er með sexið
hjá þér Þórarinn? Þórarinn svar-
ar að bragði: Æ, góði besti. Það er
ekki einu sinni hálfsex. Ég held
það sé ekki nema kortér yfir fimm.
Fyrir þann er hefir verið hús-
karl og leysingi Ríkisútvarpsins í
nær fjóra áratugi er margs að
minnast. Yfirboðarar og sam-
starfsmenn minnisstæðir, hver
með sínum hætti. En hér segjum
við amen eftir efninu.
PP.
i,
Fiildrkjiisöfnuðiiriim
í Reykjavík áttatíu ára
HINN evangelíski lútherski
fríkirkjusöfnuður í Reykjavík var
stofnaður 19. nóv. 1899. Þessa
afmælis verður minnst á viðeigandi
hátt með hátíðaguðsþjónustu í
Fríkirkjunni n.k. sunnudag 18. nóv.
og hefst guðsþjónustan að venju kl.
2 e.h. Að lokinni guðsþjónustunni
mun Kvenfélag Fríkirkjusafnaðar-
ins standa fyrir kaffisölu og veit-
ingum í Templarahöllinni á Skóla-
vörðuholti. Mun öllum frjálst
þangað að koma meðan húsrúm
leyfir, en þarna verður opið hús og
getur fólk komið og farið að vild.
Dagskrá verður með mjög frjálsu
sniði, en hjónin Margrét Matthías-
dóttir og Hjálmtýr Hjálmtýsson
munu skemmta gestum við og við
með einsöngvum og tvísöngvum.
Á þeim 80 árum, sem liðin eru
síðan Fríkirkjusöfnuðurinn var
stofnaður, hefur hann sett ótvíræð-
an og eftirminnilegan svip á borg-
arlíf Reykjavíkur. Kirkja safnaðar-
ins við Tjörnina var reist árið 1904
og á því 75 ára vígsluafmæli á
þessu ári. Þetta virðulega og fagra
musteri hefur einnig sett svip sinn
á borgina og verið kært borgar-
búum. Miklar endurbætur hafa
farið fram á kirkjuhúsinu nú í
seinni tíð, og nú hefur einnig verið
ákveðið að hefjast handa um fegr-
un kirkjulóðarinnar. Safnaðar-
stjórn undir forystu ísaks Sigur-
geirssonar hefur unnið þarna mik-
ið verk og gott.
Safnaðarstjórnin hefur í sumar
og haust beitt sér fyrir happdrætti
til ágóða fyrir kirkjuna, viðhald
hennar og frekari endurbætur.
Dregið verður í þessu happdrætti á
afmælisdegi kirkjunnar 19. nóv.
Þeim sem hefðu hug á að kaupa
happdrættismiða og styrkja þannig
Fríkirkjuna, er bent á að snúa sér
til safnaðarstjórnar.
(Úr fréttatilk.)
Háskólafyrirlestur:
Nýmarxismi í bókmenntum
WILLY Dahl, prófessor, í norræn-
um bókmenntum við háskólann í
Þrándheimi, flytur opinberan fyrir-
lestur í boði heimspekideildar Há-
skóla fslands miðvikudaginn 14.
nóvember 1979 kl. 17.15 i stofu 101
i Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist „Struktur-
alismen og nymarxismen i littera-
turvitenskapen — antagonister eller
forbundsfeller?" og verður fluttur á
norsku.
Öllum er heimill aðgangur.
:
esnn orunar
i:
RÓBERT ARNFINNSSON FLYTUR LÖG EFTIR GYLFA Þ. GÍSLASON
Nú er komin út önnur hljómplata þeirra Róberts Arnfinnssonar og
Gylfa Þ. Gíslasonar.
Á þessari plötu flytur Róbert 13 ný lög eftir Gylfa við Ijóð margra af
helstu skáldum þjóðarinnar.
Undirleik annast félagar úr Sinfóníuhljómsveitinni undir stjórn Jóns
Sigurðssonar.
Þetta er gullfalleg hljómplata sem á örugglega eftir aö vekja mikla
ánægju meðal íslenskra tónlistarunnenda.
FALKINN
Suðurlandsbraut 8 Laugavegi 24 Vesturverí
___Sími 84670_Simi 18670 Sími 12110