Morgunblaðið - 13.11.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.11.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÖVEMBER 1979 Gunnar Thoroddsen: Nýtt átak í orkumálum Blásum nýjum lífsanda í íslenzkt Á því má ekkert hlé verða að virkja orkulindir íslands, fall- vötn og jarðhita. Það er undir- staða undir og forsenda fyrir batnandi lífskjörum lands- manna og atvinnuöryggi. Með örum orkuframkvæmdum getur innlend orka komið í stað er- lendra orkugjafa. Hús skulu hituð, iðnaður þróast, bílar og skip knúin með innlendri orku. Við spörum gjaldeyri og öflum gjaldeyris. Við blásum nýjum lífsanda í islenzkt atvinnulíf. Verum sjálf okkur nóg um næstu aldamót Markmið í orkumálum eiga að vera þessi: 1. Miðum framkvæmdir í orkumálum við það mark, að verða sjálfum okkur nóg eigi síðar en um næstu aldamót. 2. Næg raforka þarf að vera til á hverjum tíma fyrir almenn- ing, til allra heimilisnota, og það þarf að koma henni til notenda. Það er mikið átak að styrkja dreifikerfi um landið svo að rafmagnið komist til skila. 3. Öll hús á íslandi, þar sem næst til heitra linda, verði hituð með jarðvarma, en blandaðar fjarvarmaveitur notaðar þar sem við á. 4. Skip og bílar verði knúin raforku eða annarri orku, sem framleidd verður hér á landi með rafmagni eða jarðvarma. Um síðustu aldamót orti Hannes Hafstein: „Sé ég í anda knör og vagna knúða krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða." Látum þau orð verða veru- leika. 5. Iðnaður hafi greiðan að- gang að innlendri orku, hvort sem er rafmagn eða jarðhiti. Með nægri orku verði stefnt að stórfelldri aukningu iðnaðar, jafnt smáiðnaðar, meðalstórra iðnfyrirtækja sem stóriðju. Nýjar virkjanir Þörfin á nýjum virkjunum er miklu brýnni en flestir lands- menn gera sér grein fyrir. Árleg aukning á rafmagnsnotkun er svo ör, að þótt ekki kæmu til nein ný orkufrek fyrirtæki, þarf 25—30 megavött til viðbótar á hverju ári. Sjónarmið við val á nýjum virkjunum Við val á nýjum virkjunum þarf að hafa þessi sjónarmið: 1. Hagkvæmni. Hvaða virkjun framleiðir ódýrast rafmagn. 2. öryggi. Reisa þarf stór- virkjanir einnig utan hinna eld- virku svæða á stöðum, þar sem hverfandi lítil hætta er á elds- umbrotum og jarðskjálftum. 3. Orkutap. Séu allar aðal- virkjanir á sama svæði, tapast atvinnulíf talsverð orka við flutning henn- ar langa vegu. Er því hagkvæm- ast að eiga virkjanir í fleiri fjórðungum en einum. Með hliðsjón af þessum sjón- armiðum koma sérstaklega til greina, næst á eftir Hrauneyj- arfossvirkjun: Blönduvirkjun, Fljótsdalsvirkj- un, Þjórsá, ný virkjun eða stækkun Búrfellsvirkjunar. Leggja þarf áherzlu á allan undirbúning undir þessar virkj- anir, tæknilegan og fjárhagsleg- an, en ekki síður varðandi um- hverfisvernd og samninga við þá, sem hlut eiga að máli. Nýting jarðgufunnar Jafnframt verður að efla raunhæfar rannsóknir og bor- anir á jarðhitasvæðum til þess að undirbúa hagkvæma nýtingu jarðgufunnar. Fyrirbyggjum orkuskort Áður en Hrauneyjarfossvirkj- un tekur til starfa, verður hér rafmagnsskortur, nema rösklega sé tekið til hendi. Þar eru tveir kostir til og þarf að nvta þá báða samtímis: 1. Ljúka Kröfluvirkjun Mannvirki Kröfluvirkjunar, vélar og rafbúnaður, hafa reynzt vel og staðizt allar prófraunir. Nú þarf án tafar að halda áfram borunum eftir gufu. Það er samdóma álit kunnáttumanna, að boranir við Kröflu sé ódýr- asta og hagkvæmasta orkuöflun, sem nú er kostur á. 2. Rafmagnsframleiðsla í Svartsengi Þegar hið ágæta fyrirtæki, Hitaveita Suðurnesja, var stofn- að, var ráðgert, að þar yrði einnig framleidd raforka. Það liggur nú fyrir, að þarna eF hægt að fá allt að 30 megavött á ódýran hátt, og ætlunin er að byrja með 6 megavatta áfanga. Á þessu má enginn dráttur verða. FÍLASPOR Ný saga eftir Hammond Innes IÐUNN hefur gefið út nýja skáldsögu eftir hinn kunna breska sagnahöfund HAMMOND INNES og nefnist hún á íslensku FÍLASPOR. Þetta er þrettánda bók höfund- ar sem út kemur í íslenskri þýðingu, en Hammond Innes hef- ur unnið sér frægð og vinsældir fyrir spennandi sögur sem gerast á ýmsum heimshornum. FÍLA- SPOR gerist í Afríku. Sagan skiptist í fjóra aðalhluta sem svo heita: Ráðstefnan, Syðra Horrskarðið, Síðasta athvarfið og Útvörður norðursins. — Álfheiður Kjartansdóttir þýddi FÍLASPOR. Bókin er 232 blaðsíður. Setberg prentaði. Spilavíti lokað vegna skulda Nizza, 10. nóv. AP. FRANSKA ríkisstjórnin fyrirskipaði í dag lokun á næststærsta spilavíti landsins, Ruhl-spilavítinu, vegna þess að það skuldar 90 milljónir franka — eða rösklega 9 milljarða í ógreidd opinber gjöld. Gunnar Thoroddsen þáverandi iðnaðarráðherra hleypir vatni á hitakerfi Hitaveitu Suðurnesja. Ræðir nýja hægri stefnu í frönskum stjórnmálum BJÖRN Jónsson hagfræðingur heldur fyrirlestur á vegum All- iance Francaise í franska bóka- safninu, Laufásvegi 12, i kvöld (þriðjudaginn 13. nóv.) kl. 20.30 um nýja hægri stefnu í frönskum stjórnmálum. Að undanförnu hefur mikið verið rætt og ritað í Frakklandi um hugmyndir hóps manna sem yfir- leitt eru kenndar við nýja hægri stefnu (la nouvelle droite). Björn mun í erindi sínu gera grein fyrir helstu kenningum þessa hóps og fjalla nánar um nokkra af upphafsmönnum þessara kenninga, þar á meðal Alain de Benoist o.fl. og gagnrýni þeirra á nýju heim- spekingana (les nouveaux philo- sophes). Björn Jónsson nam hagfræði í Frakklandi á árunum 1970—78 og starfar nú sem kennari í þeirri grein við Menntaskólann við Sund. Á eftir fyrirlestrinum, sem er á íslensku og öllum opinn munu fara fram umræður. Stjórn Alliance Francaise. FALLEGT OG STERKT Þú getur valið um II gerðir eldhúsa frá NOREMA í mismunandi aðþærþyldumiklanotkun. Viðveitumþérallarráðleggingaroggerum verðflokkum. Allar eiga þær það sameiginlegt, að vera fallegar og þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. sterkar. Við gerð þessara innréttinga hefur verið lögð sérstök áhersla á Hríngdu eða komdu, og fáðu litprentaðan bækling frá Norema innréttingahúsið SINOREMA Háteigsvegi 3 Verslun sími 27344

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.