Morgunblaðið - 13.11.1979, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979
Iðnaðarbankinn með nýtt
tölvukerfi — IBM 3600:
IÐNAÐARBANKINN tók um miðjan júnímánuð s.l. í notkun nýtt
tölvuafgreiðslukerfi af gerðinni IBM 3600. Á fundi sem Mbl. átti með
nokkrum forráðamönnum bankans og starfsmönnum IBM sagði
Vaiur Valsson aðstoðarbankastjóri að kerfi eins og þetta væri alger
nýjung hér á landi, en það hefði verið notað með mjög góðum árangri
i nágrannalöndum okkar um nokkurt skeið, sérstaklega væru
Norðurlandaþjóðirnar framarlega á þessu sviði.
„IBM 3600 kerfið er hannað með það fyrir augum að leysa á
samræmdan hátt, i einu og sama kerfinu, öll verkefni innan bankans,
sem krefjast beinna afnota af tölvu. eins og t.d. allar tegundir
afgreiðslu, fyrirspurnir viðskiptamanna og fleira i þeim dúr,“ sagði
Valur.
þess að þurfa að standa í tíma-
frekum símtölum milli útibúa.
Vinnusparnaður er fólginn í því
að skráning fer fram jafnóðum og
afgreiðsla á sér stað, þannig að
skráning gagna eftir á er úr
sögunni, en auk þess næst tals-
verður vinnusparnaður við það að
spjaldskrár eru lagðar niður og
Valur sagði að kerfið byggði á
því, að hver gjaldkeri hefði hjá sér
afgreiðsluvél, sem hann notaði við
almennar afgreiðslur. Afgreiðslu-
vélin hefði lyklaborð, sjónvarps-
skerm, segulræmulesara og prent-
ara. — „Lykilborðið er notað til að
slá inn nauðsynlegar upplýsingar,
svo sem reikningsnúmer, upphæð-
ir og þess háttar, auk þess til að
kalla fram aðgerðir sem vélarnar
eiga að framkvæma," sagði Valur
ennfremur.
„Segulræmulesarinn er notaður
til að lesa upplýsingar sem skráð-
ar hafa verið á segulræmu. Sem
dæmi um notkun hans má nefna
sparisjóðsbækur, hver bók hefur
áfesta segulræmu sem á hefu
verið skráð númer bókar, staða og
næsta lína sem skrif á í bókina.
Þegar slík bók er afgreidd er því
nægjanlegt að lesa segulræmuna á
lesaranum og slá síðan inn þá
upphæð sem leggja á inn eða taka
út. Kerfið sér um allt annað og þá
meðal annars að ná í upplýsingar
um hvort lagt hafi verið inn á
bókina án þess að hún væri til
staðar, t.d. laun, greiðslur frá
Tryggingastofnun o.fl. Þessar
upplýsingar skrást sjálfkrafa í
bókina án þess að gjaldkeri þurfi
nokkuð að hugsa um það.
Tilgangurinn með segulræmu-
lesaranum er fyrst og fremst að
spara vinnu við innslátt, en auk
þess eykur notkun hans verulega
öryggið á því að réttar upplýs-
ingar séu lesnar inn. Prentarinn
er notaður til þess að skrifa þær
upplýsingar sem skrifa þarf, svo
sem í sparisjóðsbækur, á kvittan-
ir, fylgiskjöl, dagbók og fleira þess
háttar.
Stjórnstöð sem staðsett er í
aðalbanka stjórnar vinnslu af-
greiðsluvélanna þar og í útibúum
bankans í Reykjavík. Afgreiðslu-
vélarnar tengjast henni með síma-
línum. í því sambandi var það
hugmyndin í upphafi að símalína
yrði við öll útibúin, en ekki hefur
ennþá tekist að fá línu í Hafnar-
fjörð og lína til Akureyrar yrði
óheyrilega dýr ef hún fengist á
annað borð.
Stjórnstöðin er tölva og geymir
hún allar upplýsingar sem gjald-
keri þarf á að halda við flestar
tegundir afgreiðslna. Þar með
verða spjaldskrár og flestir tölvu-
listar óþarfir við alla venjulega
afgreiðslu. Stjórnstöðin safnar
saman hreyfingum dagsins og að
Lyklaborðunum hefur verið haganlega fyrir komið hjá gjaldkerunum
í afgreiðslum bankans eins og sjá má.
Ljósmynd Mbl. RAX.
„Leysir á samræmdan hátt
öll verkefni innan bankans,
sem krefiast afnota af tölvu“
Hið nýja tölvukerfi Iðnaðarbankans IBM 3600 kynnt fyrir Morgunblaðinu, f.v. Valur Valsson aðstoðarbankastjóri, Ragnar önundarson, Ævar
Hafberg, Þorsteinn Hallgrimsson starfsmaður IBM, Gunnar Reynisson, Gunnar Ingimundarson starfsmaður IBM og Þorgrímur Einarsson.
Ljósmynd Mbl. RAX.
pappírsmagn í umferð minnkar.
Öryggi í skráningu upplýsinga
verður einnig verulega betra,
vegna þess að skráning fer fram
jafnóðum og villur við skráningu
koma fram um leið og eru því
leiðréttar áður en þær komast
lengra. Auk þess hefur skráning
eftir á á grundvelli fylgiskjala
sem eru misjafnlega vel útfyllt
alltaf í för með sér talsverða
villuhættu, sem hér er komið í veg
fyrir.
Þá má nefna að vinna við
uppgjör er auðvelduð verulega,
þar eð haldið er utan um heildar-
tölur fyrir mismunandi tegundir
afgreiðslna yfir daginn. Að kvöldi
fær gjaldkeri útskrifaðar niður-
stöður sem hann getur notað til að
ganga frá uppgjöri á kassa og leita
að villum ef einhverjar eru,“ sagði
Valur Valsson aðstoðarbanka-
stjóri.
Mikil færsluaukning á s.l. ári
Aðspurður um færsluaukning-
una á síðustu árum sagði Valur að
hún hefði aukist verulega, t.d.
hefði aukningin árin 1972—1976
verið 62%, en á sama tíma hefði
starfsfólki ekki fjölgað nema um
26%. — „Síðan koma algert stökk
í þetta á síðasta ári þegar færslu-
aukningin var um 31% á móti
13—14% árin á undan. Þetta
hefur valdið okkur lítilsháttar
byrjunarerfiðleikum, en það má
segja að þeir séu yfirstignir,"
sagði Valur Valsson að síðustu.
Ægir Hafberg viðskiptafræð-
ingur, formaður starfsmannafé-
lags bankans, sagði að starfsmenn
væru mjög ánægðir með fram-
vindu mála í sambandi við þetta
nýja kerfi, sérstaklega væru þeir
ánægðir með þá ákvörðun banka-
stjórnarinnar á sínum tíma að
láta starfsfólkið vera með í ráðum
frá upphafi. Ægir sagði að í
flestum tilfellum stytti þetta
vinnutíma gjaldkera bankans sem
mest á mæðir. Þeir þurfa ekki
annað en að kalla fram lokaupp-
gjör á kvöldin og ef það stemmir
við peningana í kassa hafa þeir
lokið sínu verki.
Þorsteinn Hallgrímsson og
Gunnar Ingimundarson starfs-
menn IBM hér á landi sem unnu
að uppsetningu kerfisins sögðu
báðir að þetta hefði gengið mjög
vel og samvinna þeirra við bank-
ann verið með ágætum. Valur
bætti við að þeir hefðu verið eins
og húskettir í bankanum undan-
farna mánuði.
sb.
iðnaðarbankínn Aiía; t»r»itírí bákina skuíu véifawfta; 6J
oAGsrrwwa aT'GH st texti úttekid 5NNIAGT ÍNMSTÆBA n
2 T01079 3.500- 100.000 100.000H
3 ?01079 0*2r ?3 35.000 149.300*3
4 500.000 fcAV.SOCMJ
6 1
0 '•/. '■ :•/ /;,••■.< % '• v - ■
1 7 ' • ■ i 8 '■■ ' ' •• v ' '■ lAj ia
9 K hjt l12 W i, »4 / ‘ fS N ■ fte [17 1« -
Ai it'.nimHM bi.k!inr.r\a.< vérður pvi að#;nf *4. Ad
<sb ftýno uoi
ú! 0‘irtw* bök:;'. iy..
Hinar nýju bankabækur Iðnaðarbankans eru aðeins ein opna, en ekki
með fjölmörgum siðum eins og áður. Viðskiptavinir fá því nýja bók
þegar lokið er sautján færslum i bókina.
kvöldi eru þær sendar til Reikni-
stofu bankanna til úrvinnslu.
Hver er tilgangurinn með
þessu nýja kerfi?
„Hann er auðvitað margþættur.
í fyrsta lagi er um bætta þjónustu
að ræða við viðskiptamenn bank-
ans. Hún er fólgin í bæði fljótari
og öruggari þjónustu ásamt mögu-
leika á að veita flestalla þjónustu í
hvaða útibúi sem er án tillits til
hvar reikningurinn á heima og án
Úr bókhaldi bankans. Gunnar Ingimundarson við aðalstjórnstöð kerfisins og
hvernig nota ber lyklaborðið, sem er mjög handhægt og litið.
Þorsteinn Hallgrimsson sýna
Ljósmynd Mbl. RAX