Morgunblaðið - 13.11.1979, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979
fHotgmiÞIitfeifr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og skrifstofur
Auglýsingar
Afgreiðsla
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aðalstræti 6, sími 10100.
Aöalstræti 6, sími 22400.
Sími83033
Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands.
í lausasölu 200 kr. eintakiö.
Verðbólgu-
stefna vinstri
flokkanna
Efnahagsstefna Sjálfstæðisflokksins hefur verið helzta umræðu-
efnið í kosningabaráttunni undanfarna daga. Málgögn andstæð-
inga Sjálfstæðisflokksins fjalla um hana öðru fremur. Frambjóðend-
ur annarra flokka mæta á vinnustöðum og hvetja kjósendur til að
kynna sér efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins. Á framboðsfundi
kvenna lögðu talsmenn Alþýðubandalagsins sérstaka áherzlu á að
fjalla um efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins með sínu lagi að
sjálfsögðu.
Þessar miklu umræður um efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins
undirstrika þá staðreynd, að kosningabaráttan mun snúast um þessa
stefnu, kosti hennar og galla. Efnahagsstefna Sjálfstæðisflokksins er
umdeild eins og við var að búast. Hitt hefur ekki verið dregið í efa, að
verði hún framkvæmd er líklegt að verulegur árangur náist í
viðureign við verðbólguna. Kosningarnar snúast um það, hvort
Sjálfstæðisflokkurinn fær umboð til þess að framkvæma þessa
stefnu. Hinir flokkarnir hafa ekki boðið upp á nýjar leiðir í
verðbólgubaráttunni. Það hefur Sjálfstæðisflokkurinn gert. Hinir
flokkarnir bjóða upp á það sama og áður. Það þýðir, að verðbólgan
verður komin upp í 60% snemma á næsta ári og heldur áfram að
magnast fái stefna þeirra að ráða. Þess vegna er stefna vinstri
flokkanna verðbólgustefna. Þeir sem vilja áframhaldandi verðbólgu
kjósa auðvitað þá flokka, sem hafa áframhaldandi verðbólgu á
stefnuskrá sinni. Þeir, sem vilja í raun og veru takast á við
verðbólguna og reyna eitthvað nýtt í þeim efnum, kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn. Baráttan í þessum kosningum stendur því um nýja
efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins og verðbólgustefnu vinstri flokk-
anna.
Stórvirkjanir
og iðjuver
Það er ekki nóg að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Við verðum að
byggja upp atvinnuvegina, auka þjóðarframleiðsluna og þjóðar-
tekjurnar og tryggja þjóðinni sambærileg lífskjör við það, sem tíðkast
í öðrum löndum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst því yfir, að í kjölfar
leiftursóknar gegn verðbólgu, sem ætlast er til að beri skjótan
árangur, muni fylgja ný uppbygging atvinnuveganna og þá ekki sízt
að nýtt átak verði gert til þess að hagnýta aðra mestu auðlind
landsmanna, orku fallvatnanna.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst því yfir, að á næsta kjörtímabili
muni flokkurinn beita sér fyrir því, að Búrfellsvirkjun verði stækkuð
um 100 MW og að ráðist verði í nýja stórvirkjun sem lokið verði á
árinu 1985. Jafnframt verði stefnt að stækkun þeirra stóriðjufyrir-
tækja, sem fyrir eru í landinu og ráðist í byggingu nýs iðjuvers, sem
byggir á mikilli orkunotkun. Þessar framkvæmdir eru forsenda þess,
að takast megi að bæta lífskjör fólksins í landinu og tryggja atvinnu
fyrir þann mikla fjölda ungs fólks, sem mun leita sér vinnu á næstu
árum.
F áránlegar skýr-
ingar fréttastof u
Isíðustu viku neituðu útvarp og sjónvarp að senda fréttamenn á
blaðamannafund Geirs Hallgrímssonar, þar sem efnahagsstefna
Sjálfstæðisflokksins var kynnt. Á sama tíma hefur útvarpið sent
fréttamenn á blaðamannafund ráðherra Alþýðuflokksins, sem
bersýnilega eru fyrst og fremst kosningafundir og sama dag og
fréttastofa útvarps neitaði að senda fréttamann á fund Geirs, sendi
útvarpið fréttamann á blaðamannafund hjá Ragnari Arnalds
fyrrverandi ráðherra! Sú skýring var gefin, að Ragnar hefði verið að
svara Sighvati Björgvinssyni, fjármálaráðherra, vegna blaðamanna-
fundar, sem fjármálaráðherra hafði efnt til.
Þessi afstaða útvarpsins til blaðamannafundar Geirs Hall-
grímssonar er fáránleg og stenzt ekki. En skv. yfirlýsingum
fréttastofunnar ættu stjórnmálaleiðtogar nú að efna til blaðamanna-
fundar í kjölfarið á hverjum blaðamannafundi ráðherra kratanna til
að svara þeim. Útvarpið kemst ekki hjá að skýra frá þeim fundum
skv. yfirlýsingu fréttastofunnar.
•1 ».* «•L » m \ M. m A #* *-*• MÉfft ■» * • »- m.m M». .«• * -
HÁKARLAR OG HREPPAPÓLITÍK
Einhver tvískinnungur er sjálf-
sagt í okkur öllum. En þó mis-
jafnlega mikill. Látum þaö vera.
En ósamræmiö í málflutningi
margra íslenzkra stjórnmála-
manna er meö ólíkindum. Til aö
gera okkur nokkra grein fyrir því
skulum viö taka tvö nýleg dæmi.
Ólafur Jóhannesson lýsti yfir
því, aö hann ætlaöi aö hætta
afskiptum af stjórnmálum.
Steingrímur Hermannsson, for-
maöur Framsóknarflokksins, var
einn þeirra, sem varö á sú skyssa
aö taka fyrirrennara sinn og
samstarfsmann alvarlega. Hann
sagöi í fréttasamtali: „Ólafur hef-
ur marglýst því yfir við flokks-
menn Framsóknarflokksins, aö
hann ætli að hætta, og þaö hlýtur
aö mega túlka þaö svo, aö hann
hættir."
Steingrími var vorkunn aö
taka Ólaf alvarlega. Ýmsum hef-
ur oröið hált á því. En það var
rétt hjá honum aö túlka orö Ólafs
eins og hann gerði, þó aö viö
sleppum nú óskhyggjunni. En
hvaö geröi Ólafur? Hann hætti
auövitaö viö aö hætta. Hann
notaöi einungis vangaveltur sínar
um aö hætta til aö komast á
Framsóknarlistann í Reykjavík,
en þar liggja ýmsir í pólitíska
valnum eftir Ólaf, m.a. Þórarinn
Tímaritstjóri, klóraöur og illa
farinn eftir langa og dygga þjón-
ustu. En hvernig fór Ólafur aö því
að hífa sig upp í fyrsta sæti
framsóknar í höfuðborginni, sem
hann hefur aldrei borið sérstak-
lega fyrir brjósti, ef marka má
ýmsar stjórnarathafnir hans. Jú,
hann gerði sér lítiö fyrir og
auglýsti, aö hann mundi auövitaö
hætta viö aö hætta, ef „ég fengi
t.d. margar áskoranir", eins og
hann komst aö oröi. Þá væri ekki
aö vita „nema ég tæki þeim“.
Og ekki stóð á klappliöinu í
framsókn, en Ólafur glotti. Karl-
inn er bráösniöugur, sögöu gár-
ungarnir. Hann er leiðtoginn,
sögöu framsóknarmenn. Aörir
þögöu og hugsuöu um málefni,
60% veröbólgu, minnkandi kaup-
mátt — og afturhald.
Þaö skal sízt af öllu harmaö,
að Ólafur fer fram í Reykjavík.
Honum hefur tekizt aö blása út
meö því að minnka flokk sinn
jafnt og þétt — og margir eru
þeir, sem eygja þá von, að enn
fækki atkvæöum Framsóknar-
flokksins í Reykjavík, þó aö
formaöurinn haldi áfram aö
skemmta fólki í nýju og nýju
gervi.
Þaö hefur veriö margt til
skemmtunar á þessum síöustu
og verstu tímum í Framsóknar-
klúbbnum.
Þóroddur Guömundsson
skáld frá Sandi hefur ort á Ólaf
Jóhannesson og birtust vísurnar
í Tímanum. Hann líkir honum viö
Baldvin Einarsson, einnig úr
Fljótum; gefur í skyn aö Baldvin
og Ólafur hafi báöir veriö há-
karlaformenn. Þetta mun
vera rétt hjá Þóroddi. Baldvin
var fyrir hákarlaskipi fööur síns.
En Ólafur Jóhannesson var for-
maöur á ööru hákarlaskipi. Þaö
heitir Framsókn. Þakkir séu Þór-
oddi fyrir að benda á þetta,
tæpitungulaust. En munurinn á
hákarlaskipi Baldvins Einarsson-
ar og Ólafs Jóhannessonar er sá,
aö hákarlar Baldvins voru ekki í
kjölfari þjóöarskútunnar.
Hitt dæmiö: Guörún Helga-
dóttir, sem er vægast sagt margt
til lista lagt, er oröin einstakur
snillingur í ósamkvæmni, en hún
getur kannski skýrt þaö meö
alkunnum töfrabrögöum. Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir getur þá hjálp-
aö henni, ef ekki vill betur til —
en þó er þaö allsendis óvíst, svo
önnum kafin sem hún veröur á
pólitískum leynifundum meö
Björgvin Guömundssyni til að ná
samstööu í samstööunni um
ósamkomulagiö í höfuöborginni.
Allt minnir þaö á aöra krossa,
sem þeir vinstri menn hafa mátt
bera; t.a.m. þegar Hermann Jón-
asson fór frá meö þeim oröum,
aö ekki næöist samstaöa um
nein úrræöi, eöa þá þegar
síðasta vinstri stjórn féll — en þá
lýstu aðstandendur hennar yfir,
aö þeir væru jafnvel ósammála
um, hvaö þeir væru ósammála
um. Á sama hátt og tveir mínusar
gera plús, merkir þetta auövitaö
í þeirra augum, aö ósamkomu-
Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Sameining Flugfélags íslands og Loftleiða er nú endanlega um garð gengin, og smám saman hverfa
nöfn féiaganna fyrir hinu nýja nafni; Flugleiðir. Nú er til dæmis búið að mála hið nýja nafn á Fokker
Friendshipvéiarnar, sem einkum eru notaðar í innanlandsflugi. — Flugleiðir með stórum stöfum, og
enska nafnið, Icelandair, með minna letri.