Morgunblaðið - 21.02.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1980
19
einnig að fólk verður einhleypt við
makamissi. Er það fólk ekki
manneskjur þrátt fyrir einlífi. Á
ekki að meta manneskjuna eftir
verðleikum hennar og verkum, en
ekki eftir því hvort hún er í
hjónabandi. Heimili er bústaður
manneskjunnar hvort sem hún er
ein eða ekki, það þarf ekki hjón til
að mynda heimili.
Það virðist vorkunnsemistónn í
hinum ljúfu ummælum yðar um
konuna í grein yðar en ekki samt
svo mikill, að þér teljið þörf á að
hefja hana upp og gera henni
kleift að standa jafnfætis karl-
manninum, því áfram skal hún
vera manni sínum að baki en ekki
við hlið, sem þér lýsið svo vel með
orðum yðar: „Ef hér skipaði kona
forsetasætið ein, og væri gift, þá
gengi hún fyrst fram á móti
gestum. Hvar yrði þá bóndinn?
Kannski sem vinnumaður ein-
hvers staðar í verkunum. Því
formi kynni ég ekki. Sem fyrr
segir, hjón eru eitt og eiga að vera
það í hverju starfi, það vantar
mikið þegar vantar helminginn."
Þetta er vægast sagt einkennilega
til orða tekið. Ef kona væri forseti
þá væri hún ein þó svo hún væri
gift. Er nú hinn virðulegi sess við
hlið makans orðinn óvirðulegur
þegar karlmaðurinn á í hlut og
yrði að ganga fyrir aftan konu
sína?
„Hvar yrði bóndinn?" Já, í
verkunum kannski? Ja, það væri
nú aldeilis óvirðulegt fyrir bónd-
ann að taka til hendinni við
veitingarnar." Sem sagt, hjón eru
eitt og eiga að vera það í hverju
starfi."
Hér eruð þér að lýsa því betur
en fyrr, að hjón eru eitt ef konan
er að baki mannsins og aðeins
skuggi af hans persónu, því eins og
þér sjálfur segið, konan er ein,
þótt hún sé gift, væri hún forseti,
og þá að yðar áliti í hlutverki
mannsins. Eg álít það enga óvirð-
ingu fyrir karlmann að vera
kvæntur forseta, þvert á móti
sómi, og eins og þér sjálfir segið,
þá eiga þau að vinna saman, þótt í
f...
| urata og suer»u framlag aeni
Valgarður
L. Jónsson:
Hjón
eru
eitt
leinnig í em-
bætti forseti
veitti þi.
•em cttð stnu gorug
hlutverki tfc Ift |
þaraa aé um tv*r v«
•em eni reyndar eitt I
o« Iffl. Mér varð á aft 11
vigsluvotu þegar ég /
Þegar athöfn akyMi h
ur preatur til mln og J
er annar votturínn? ■
hjftnin. Hann svarai'l
eitt, þvi varft ég að
vigsluvotL Þetu a
þess aft sfftan veit ég a^l
eitt. Þvi kann ég því all
aft virihileg hjijn takiF
gestura siaum. Það 'l
allavega virftulegast ij|
heimili þjftftarinm
nokkur maftur á jðrftinni _____
frara. Hvaft ijáum vift fegurra en
“janna mftfturáat? Hver á staerri
^t i friftarmuiUri heimilanna
? Þaft er hún aem bef
á milli barnanna i
ij dagsina, reyndar annarra
^þarf Hún má i dagaina
a langlundargeft og þol-
gftftir menn bera
t til mftður sinnar.
_ _ r stftn
f viÖhaAda msn;.
fmá leggja kr; u
meft nýj*.r.
dir belti i 9
161 sjft-
i gagna foÁMraMot-
einar, leagyi Xgta
ir sem eiga f hlut Oiru máli|
gegndi vaerí taland einraeftisefjá
og hér aaeti einn valHnnkilB
þjóðhðfftingi, karl eða bna, eenfl
Seffti ftll efta flest víd á einnl
hendi
Ef hér tiVþa&i kona fon
»*tift th. og v»ri gifL þá g
húr fyrat fram mftt gestumB
Hrar yrfti bftndinn? Kasaik|
sem vinnumaftur einhvers atafta
í verkunum Þvi formi kynni é
ekki. Sem fyrr segir hj6n er
eitt og eiga aft vera þaft i hverj|
oumTí. haft vantar mikift l
vantar helminzinn.
Eg trúi þvi aft foraetahjftr J
ráfti sfnum ráftum i félagi, ein f
varftandi embaettisstftrf foi ;
ana.Af þvi sera fyrir augun J
maftur sér til ur S
forætahjftn bft fl
yðar huga komi aðeins til greina
eitt samvinnuform.
Hættið að flokka fólk í 1) karl
2) kona 3) einstaklinga. Við erum
öll manneskjur með jafna virð-
ingu og möguleika okkur til
handa. Það ætti að meta manninn
af gjörðum hans en ekki af öðru.
Ég er yður sammála um að
hjónaband er til farsældar fyrir
gott þjóðfélag, en ekki einu sinni
þér getið stjórnað örvum ástar-
guðsins, og því verður alltaf til
ógift fólk, sem að sjálfsögðu er
jafnt að virðingu og þeir sem
giftir eru og býr í sömu híbýlum
og þeir. Ég tel einnig rétt hjá yður
að ekki eigi að ala á úlfúð á milli
karla og kvenna, en gerið þér yður
grein fyrir því að t.d. skrif yðar er
ein orsökin.
Kær kveðja.
Virðingarfyllst,
Margrét Sölvadóttir
skeinur. Þá var þeim veitt eitt-
hvað til hressingar. Meðan þeir
lágu þarna, ókyrrðist allt í einu
snjóhundurinn. Hann tók að
hlaupa fram og aftur, fullur af
undarlegri óró, og hvað eftir
annað beit hann í buxnaskálmar
landamæravarðarins og gerði
honum skiljanlegt, að hann vildi
fá hann á brott með sér. Þá er
gengið hafði á þessu stutta stund,
skipaði landamæravörðurinn
björgunarsveitinni að koma með
sér burt af hættusvæðinu. Hún lét
að skipun hans og hafði auðvitað
með sér skógarhöggsmennina.
Hópurinn var ekki fyrr kominn út
af því svæði, sem snjóflóðið hafði
fallið á, en hár og dynþungur
hvinur heyrðist, og heljarmikið
snjóflóð féll á sama stað og hið
fyrra. Eðlisávísun snjóhundsins
bjargaði þarna hvorki meira né
minna en tuttugu og tveimur
mannslífum. Og snjóhundarnir
svissnesku hafa bjargað þúsund-
um manna á þeim hálfum öðrum
áratug, sem liðinn er síðan þjálfun
þeirra hófst.“
Hér lýkur grein Roberts Litt-
ells, en ég bætti þar við eins og hér
segir:
„Norðmenn hafa stofnað snjó-
hundafélag. Formaður þess heitir
Kári Skalstad. Hann er nú í Sviss
á námskeiði. Það er þriðja nám-
skeiðið, sem hann sækir, og hann
hefur þegar haft á hendi þjálfun
norskra snjóhunda og manna, sem
eiga að stjórna þeim. Norðmenn
ætla sér að hafa að minnsta kosti
einn snjóhund í hverju f.vlki, og
svo á að flytja hundana á þá staði,
þar sem menn lenda í snjóflóð-
um.“
Hér á landi er það sem betur fer
frekar sjaldgæft, að snjóflóð verði
mönnum að bana, en þó væri gott
að hafa hér einhverja þá hunda,
sem vanizt hefðu á að finna og
grafa upp menn, sem hafa hulizt
snjó, hvort sem það er af völdum
snjóflóða eða menn hafa gefizt
upp örþreyttir og látið skefla yfir
sig.
En fyrst og fremst ætti reynsla
Svisslendinga og Norðmanna að
geta orðið íslenzkum bændum að
lítt metanlegu gagni. Það ætti
engu síður að mega þjálfa sjefer-
hunda til að leita fjár, sem hefur
fennt, heldur en manna, sem það
hefur hent. Minnsta kosti ættu
þeir bændur, sem reynt hafa
rakka sína að því, sem varð
Mývetningum ærið happadrjúgt
haustið 1959, að sýna þá fyrir-
h.vggju að rækta og þjálfa það
kyn, sem hefur reynzt eiga sér
hina ómetanlegu eðlishneigð. En
hvað sem því líður, væri ekki
fráleitt að Búnaðarfélag íslands
sendi til Sviss einhvern vökulan
dýravin til þess að nema þjálfun
snjóhunda, og svo væru þá flutt
inn og i fyrstu einöngruð tvö. þrjú
pör af fullkunnandi snjóhundum.
Það er enginn vafi á því, að hin
vitru og starfsglöðu dýr mundu
geta forðað fjölda fjár frá hung-
urkvölum og köfnun og jafnvel
geta komið í veg fyrir, að fátækir
einyrkjar misstu það mikið af
fjárstofni sínum, að þeim veittist
örðugt eða jafnvel ómögulegt að
rétta úr kútnum. Og enginn veit,
hvenær það kynrii að gerast af
völdum snjóflóða, að einungis
þjáifaðir snjóhundar gætu bjarg-
að fleiri eða færri mannslífum.
Mýrum í Reykholtsdal á messu
heilags Þorláks.
Guðm. Gíslason Hagalín
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Aöalstræti 6 simi 25810
Nýju ANDREWSS gas- lofthitararnir
hafa leyst gömlu olíubrennarana
af hólmi!
m
wrnmhsiB
t
Andrews G-250 lofthitarar eru ætlaðir til fljótlegrar upphitunar á
skipalestum, vinnustöðum; iðnaðarhúsnæði. byggingarstöðum,
vörugeymslum, íþróttahúsum og hvers konar stærri mannvirkjum.
Andrews G-250 lofthitarar eru mjög liprir viðfangs. Þeir mega
snúa hvernig sem vill, - upp, niður, til hliðar, hangandi eða stand-
andi. Andrews G-250 brennir Propane gasi og er því algjörlega
laus við þungt loft og mengun, sem yfirleitt fylgir annars konar
lofthiturum. Andrews G-250 lofthitarinn vegur aðeins 44 kg, en
hefur möguleika til hitunar á 64.500 cu. feta svæði, (1832 m3).
Andrews G-250 lofthitarar þurfa ekki neinn upphitunartíma. Þeir
eyða aðeins gasi þegar þeir eru raunverulega að hita upp. Auk
hitunar má nýta Andrews G-250 til loftræstingar á einfaldan hátt.
Skeljungsbúðin
Suöurlandsbraut 4, sími 38125
|
i
33*
Vandaðai
innréifingar
Norema innréttingar hafa nokkra kosti umfram aðrar tegundir eldhúsinnréttinga.
1. Mjög sterkt efni, vandaður frágangur.
2. Allar hurðir opnast 170°, ekki bara 90°.
3. Stærri og rúmmeiri skápar, allt að 40% meira pláss.
Nu getið þer valið um 11 gerðir eldhusinnrettinga og skoðað flestar
þeirra i rúmgóðum sýningarsal okkar að Háteigsvegi 3. Við veitum yður
allar ráðleggingar varðandi innréttingar, og gerum yður tilboð að
kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. Hringið eða skrifið og
fáið heimsendan bækling.
STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI, 1 Vz-2 mánuðir.
Innréttingahúsið
Háteigsvegi 3 Verslun sími 27344