Morgunblaðið - 21.02.1980, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1980
UfllHORP
UMSJON:
JÓN ORMUR HALLDÓRSSON
sjálfstæðismanna um land
allt það starf, sem unnið er
milli SUS þinga og fá fram
hugmyndir þeirra og at-
hugasemdir við starfsáætl-
anir stjórnarinnar. Að auki
gefst tækifæri til þess að
ræða sérstök mál, sem á
Sambandsráðsfundur
SUS ræðir stöðu Sjálf-
stæðisflokksins og afstöðu til
ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens
vegar af landinu og hafa
þannig mismunandi
reynslu. Haldinn verður há-
degisfundur í Valhöll með
formanni Sjálfstæðis-
flokksins og eftir hádegið
verða almennár umræður
um starfsemi SUS og félaga
^US. verður rætt sér-
staklega um stöðu ungs
fólks og hlutverk þess í
Sjálfstæðisflokknum. Það
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
boða til sambandsráðs-
fundar SUS n.k. laugar-
dag. Ætlunin er að boða til
slíkra funda tvisvar á ári
þau ár, sem SUS þing er
ekki haldið en annars einu
sinni á ári.
Að þessu sinni verða
höfuðmál fundarins staða
Sjálfstæðisflokksins í ljósi
nýjustu viðburða á stjórn-
málasviðinu og staða og
hlutverk ungs fólks innan
flokksins. Stjórn SUS hef-
ur þegar sent frá sér álykt-
un þar sem hvatt er til
sátta í Sjálfstæðisflokkn-
um og skorað á forystu-
menn flokksins að forðast
allt það er leitt geti til
frekari erfiðleika við að ná
sáttum sjálfstæðismanna.
Ennfremur er skorað á
miðstjórn flokksins að
boða til landsfundar síðar
á árinu. Sambandsráðs-
fundinum er ætlað að ræða
þessi mál frckar og taka
afstöðu til þessara sömu
atriða og ræða auk þess
málefnasamning ríkis-
stjórnar Gunnars Thor-
oddsens og móta afstöðu
sambandsins til stjórnar-
innar.
Erlendur Kristjánsson,
formaður útbreiðslunefnd-
ar SUS, hefur annast undir-
búning fundarins af hálfu
SUS stjórnar. Umhorfssíð-
an spurði Erlend um til-
gang og tilhögun fundarins.
„Sambandsráðsfundir
eru í raun stækkaðir for-
mannafundir SUS og koma
í stað þeirra. Tilgangur
þeirra er sá sami, að kynna
forsvarsmönnum ungra
hverjum tíma koma upp og
snerta alla unga sjálfstæð-
ismenn. Þannig munum við
á þessum fundi ræða sér-
staklega um stöðu Sjálf-
stæðisflokksins í ljósi nýj-
ustu viðburða.
Dagskrá fundarins er ann-
ars mjög stíf því ekki þótti
fært að láta fundinn standa
yfir í tvo daga, sem þó hefði
verið þörf til að komast yfir
allt fundarefnið. Fyrst
verða teknar fyrir skýrslur
allra nefnda SÚS og skýrsla
stjórnarinnar. Þá verður
fjallað sérstaklega um út-
breiðslumál og félagasöfn-
un og starfsskrá SUS til
vorsins rædd.
Reynt verður að fá fram
nýjar hugmyndir og at-
hugasemdir frá fundar-
mönnum, sem koma víðs
fer vart milli mála að nú er
meiri þörf en nokkru sinni
fyrir ungt fólk til að standa
saman og vinna að samein-
ingu flokksins bæði með
starfi innávið og útávið.
Síðasti liður sambandsráðs-
fundarins er svo eins og
fyrr var getið, að rætt
verður um stöðu Sjálfstæð-
isflokksins í ljósi síðustu
atburða. Um þetta efni má
búast við miklum umræð-
um. Auk umræðna um rík-
isstjórn Gunnars Thorodd-
sens og málefnasamning
hennar verður lögð fyrir
sambandsráðsfundinn sú
krafa, sem stjórn SUS og
ungir flokksráðsmenn hafa
sent frá sér um að haldinn
verði landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins síðar á
þessu ári.
Menntamál, húsnæðismál
og atvinnumál ungs fólks
- helstu liðir í
starfi ungra
sjálfstæðis-
manna
Stærstu hagsmunamál
ungs fólks á íslandi eru á
sviði menntamála, húsnæð-
ismála og atvinnumála.
bessir þrir málaflokkar
verða höfuðliðirnir í starfi
SUS næstu mánuði, auk
orkumála og kjördæma-
málsins. Það er ætlun SUS
að taka fyrir alla þessa
málaflokka á fundum og
ráðstefnum á næstu mán-
uðum og að efna til útgáfu
og kynningarstarfs um
þessi mál eftir því sem tök
eru á. Starfsskrá sam-
bandsins liggur nú fyrir
og þó nokkrar breytingar
kunni að verða gerðar á
henni eftir sambandsráðs-
fund nú um helgina liggja
meginþættir starfsins
fyrir.
Menntamál
Sá málaflokkur sem snýr
hvað beinast að ungu fólki
eru menntamál. I þessum
mánuði mun SUS í samráði
við Heimdall gangast fyrir
röð funda um þessi mál þar
sem ætlunin er að taka
fyrir ýmsa þætti mennta-
mála, allt frá forskóla til
háskóla. Fundaröð þessari
mun ljúka í mánuointiía Cg
verður þá ákveðið um
áframhaldandi starf að
þessum málum.
Húsnæðismál
Eitt brýnasta hagsmuna-
mál ungs fólks liggur á
sviði húsnæðismála. Miklar
umræður hafa verið að und-
anförnu um fjármögnun
íbúðarbygginga og hag-
kvæmni í byggingu íbúða.
Sjálfstæðisflokkurinn
markaði stefnu fyrir kosn-
ingar þar sem gert er ráð
fyrir allt að 80% lánveit-
ingu til þeirra er byggja í
fyrsta sinn. Þá hefur vakið
athygli framtak Bygging-
arfélags ungs fólks við
lækkun byggingarkostnað-
ar með samstarfi og skipu-
lagi en þetta framtak hófst
meðal ungra sjálfstæð-
ismanna fyrir fáum árum.
Það er einn af grunnþáttum
stefnu ungra sjálfstæð-
ismanna að gera öllum ein-
staklingum kleift að eign-
ast eigið húsnæði. Mögu-
leikar á framkvæmd þeirr-
ar stefnu verða ræddir á
þrem raðfundum um hús-
næðismál í marsmánuði og
er ætlunin að hefja að því
loknu baráttu fyrir bættri
skipan þessara mála með
kynningar og áróðursstarfi.
Orkumál
Framtíðaruppbygging at-
vinnutækifæra á íslandi er
nátengd nýtingu innlendrar
orku til iðnvæðingar. Mögu-
leikar á þessu sviði verða
ræddir á ráðstefnu SUS um
orkumál í apríl.
Atvinnuhorfur
ungs fólks
Gífurlegt atvinnuleysi
ríkir meðal ungs fólks í
nánast öllum Evrópulönd-
um að íslandi undanskildu.
í mörgum nágrannalanda
okkar gengur meira en
tíundi hver maður innan
við 25 ára aldur atvinnu-
laus. Horfur í þessum mál-
um hérlendis og ráð til þess
að forða íslendingum frá
þessu ástandi verða rædd á
röð funda í apríl. Þetta er
nátengt umræðum um
orkumál og iðnvæðingu en
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur þegar undirbúið stefnu
sem miðar að því að búa til
15.000 ný störf á þeim
áratug sem er að hefjast.
Kjördæmamálið
Skortur á einingu innan
stjórnmálaflokkanna hefur
valdið því að dregist hefur
úr hófi fram að leiðrétta
þann hróplega mismun,
sem er á atkvæðavægi milli
kjósenda. Samband ungra
sjálfstæðismanna markaði
fyrir nokkrum árum stefnu
í þessum málum en hún
þarfnast endurskoðunar og
aðlögunar að hinu mögu-
lega í þessum efnum. í vor
mun sambandið skipuleggja
fundaröð um þetta mál og
kynningarstarf í framhaldi
af því innan flokksins sem
utan.
Útgáfa tímaritsins Stefnis
TÍMARITIÐ Stefnir, sem
gefið er út af Sambandi
ungra sjálfstæðismanna,
er nýkomið út. Þetta er
fyrsta til annað tölublað
ritsins á þessu ári, sem er
þritugasti og fyrsti ár-
gangur þess. Ritstjóri und-
anfarin ár hefur verið
Anders Hansen, en auglýs-
ingastjóri er Stefán H.
Stefánsson.
Það er kunnara en frá
þurfi að segja, ao oláðS- C2
tímaritaútgáfa hér á landi
á við ýmsa erfiðleika að
etja. Kostnaður við útgáfu
hvers konar er gífurlegur,
en jafnframt eru kaupend-
ur tiltölulega fáir og aug-
lýsingamarkaður fremur
þröngur, alla vega ef miðað
er við stærri þjóðlönd í
nágrenni við okkur íslend-
inga.
Þrátt fyrir ýmsa erfið-
leika hefur þó tekist að
halda útgáfu Stefnis úti, og
síðustu ár hefur ritið komið
út nokkuð reglulega, fjórum
til fimm sinnum á ári. Á
allra síðustu árum hefur
útgáfan jafnframt orðið
vandaðri ekki hvað síst eft-
ir að byrjað var á því að
Drenta ritið í offsetprent-
smiðju, en sú prenttækni
gefur ýmsa möguleika um-
fram gömlu aðferðina. Um
leið og ytra útlit Stefnis
hefur þannig sífellt farið
batnandi, hefur sú ánægju-
lega þróun átt sér stað, að
efnisinnihald verður sífellt
meira og fjölbreyttara. Er
nú að finna í ritinu marg-
víslegar greinar um hin
fjölbreytilegustu málefni,
viðtöl við ýmsa aðila, smá-
sögur og Ijóð, upplýsingar
um starfsemi Sjálfstæðis-
flokksins, og greinar um
ýmis hugmyndafræðileg
mál, tengd sjálfstæðisstefn-
unni.
Ljóst er, þegar litið er
yfir starfsemi Sambands
ungra sjálfstæðismanna
^ratncri að lit-
Uiiuaiuai u» »i ««r
”*e-i —
gáfa Stefnis er ein stærsta
skrautfjöðurin í þeirri
starfsemi allri. En til þess
að svo megi áfram vera, er
nauðsynlegt að ritinu verði
sýndur aukinn áhugi sjálf-
stæðismanna, ella er því
miður hætta á að ekki verði
unnt að halda áfram að
auka blaðið að útbreiðslu og
gæðum.
—JOH
Forsiða síðasta tölublaðs
Stefnis, tímarits Sambands
ungra sjálfstæðismanna.