Morgunblaðið - 21.02.1980, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1980
Litbrigði jarðar
og úrval ljóða
á enskri tungu
ICELAND REVIEW hefur gefirð
út bók með heitinu THE CHANG-
ING EARTH AND SELECTED
POEMS. Hér er um að ræða
skáldsöguna Litbrigði jarðarinn-
ar eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson.
Ólafur Jóhann Sigurðsson
auk úrvals ljóða skáldsins, i
enskri þýðingu dr. Alan Bouch-
ers, sem einnig valdi ljóðin. Þau
eru valin úr bókunum Áð iauf-
ferjum og Að brunnum, en það
var einmitt fyrir þær bækur sem
ólafi Jóhanni voru veitt bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs.
Bókin Litbrigði jarðarinnar hef-
ur þegar komið út á öðrum
tungumálum og hefur hvarvetna
hlotið verðskuldaðar móttökur, en
þetta er í fyrsta sinn sem hún
kemur út í enskri þýðingu. ICE-
LAND REVIEW hefur áður gefið
út nokkur íslenzk bókmenntaverk
í erlendum þýðingum, svo sem
Sjöstafakver Halldórs Laxness,
smásagnasafn eftir 12 íslenzka
höfunda, og safn ljóða 25 skálda,
og áformar útgáfan að halda
þessu áfram í framtíðinni eftir því
sem aðstæður leyfa.
Bókin THE CHANGING
EARTH AND SELECTED
POEMS er 96 blaðsíður.
Hækkandi verð á
sykri og timbri
SYKURVERÐ á heimsmarkaði
hefur farið ört hækkandi undan-
farið og er i nýlegum Sambands-
fréttum greint frá sykurverði,
sem var i ársbyrjun fyrir hver
100 kg 249 danskar krónur eða
rúmar 18 þús. ísl. krónur, en var
13. febrúar komið upp i 421 d.kr.
eða 31.154.
í Sambandsfréttum segir að
ekki liggi fyrir fullnægjandi skýr-
ingar á þessari hækkun þar sem
sérfræðingar telji m.a. 30% um-
frambirgðir af sykri til í heimin-
um og því hljóti að vera um
verulega spákaupmennsku að
ræða.
Þá segir í Sambandsfréttum að
timburverð sé einnig hækkandi:
Timburinnflytjendur eru nýbúnir
að gera samning um kaup á um 20
þúsund rúmmetrum af timbri frá
Rússlandi, sem afgreitt verður á
þessu ári, en magnið er rúmur
þriðjungur af árlegum innflutn-
ingi.
Er samningurinn að upphæð
1.257 þúsund dalir eða kringum
505 milljónir ísl. króna, sem er
talsvert hærra en var í fyrra.
Fyrir þessa samninga hafði SÍS
fest kaup á verulegu timburmagni
frá Finnlandi og Svíþjóð á mun
hagstæðara verði.
UÓXB. EmHía.
Mynd keisarans af máð
MAGNI R. Magnússon
frímerkja- og myntkaupmaður
fékk nýverið senda þessa seðla
frá íran. Eru þeir bæði gamlir
og nýir, þ.e. með mynd keisar-
ans fyrrverandi og nýjum
myndum, sem þrykkt hefur
verið yfir keisaramyndirnar.
Þá benti Magni einnig á seðl-
I ana tvo sem efst eru á mynd-
inni, en til hægri er seðill með
mynd af Davíðsstjörnu og til
vinstri hefur honum verið
breytt á þann veg, að ekki er
lengur um Daviðsstjörnu að
ræða. Seðlar þessir eru nú til
sýnis i Frímerkja- og mynt-
verzlun Magna við Laugaveg í
Reykjavík.
Hin nýja vöruskemma Tollvörugeymslunnar h.l.
Toflvörugeymslan h.f.:
Ljosm. Mbl. Kristján.
Þúsund fermetra vöru-
skemma tekin í notkun
TOLLVÖRUGEYMSLAN h.f.
tók á mánudag i notkun nýja
vöruskemmu á athafnasvæði
sínu í Laugarnesi. Vöruskemma
þessi er um 1000 fermetrar að
stærð og er hún byggð úr
timbri og stáli, en til bygg-
ingarinnar var m.a. notað
islenskt efni, Garðastái.
Skemman er óupphituð en i
henni er loftræsting, sem koma
á i veg fyrir hverskyns raka.
Skemmunni verður skipt i
geymsluklefa og verða þeir 260
fm, 235 fm, 130 fm og 105 fm að
stærð. Á skemmunni verða
þrennar dyr til þess að nýta
geymslurýmið sem best.
Byggingarverktaki er Björn
Guðmundsson húsasmíðameist-
ari, en verkfræðingur og arki-
tekt skemmunnar er Bárður
Daníelsson. Við opnunarathöfn-
ina tóku til máls þeir Albert
Guðmundsson alþingismaður,
stjórnarformaður fyrirtækisins,
Hilmar Fenger, formaður bygg-
ingarnefndar, og Helgi Hjálms-
son framkvæmdastjóri.
Tollvörugeymslan var stofnuð
árið 1962 og voru stofnfélagar
tæplega 230. Í dag eru hluthafar
fyrirtækisins 450 talsins og er
hlutafé samtals 360.000.000.
krónur. f upphafi var starfsemin
í 2500 fm húsi, en í dag er
athafnasvæði Tollvörugeymsl-
unnar 22000 fm að stærð og þar
af eru undir þaki 9700 fm.
Safnaðarráð Reykjavíkurprófastsdæmis:
Leggur til breytta
skipan prestakalla
SAFNAÐARRAÐ Reykja-
víkurprófastsdæmis hélt á
mánudagskvöld árlegan
fund sinn þar sem voru
m.a. til umræðu skipu-
lagsmál prestakalla á
Reykjavíkursvæðinu. Voru
samþykktar tillögur um
að annað prestembætti
Langholtssafnaðar verði
fært í Breiðholtshverfi og
þjóni Selja— og Skóga-
hverfi og tillaga um að
nýtt prestakall verði stofn-
að á Seltjarnarnesi.
Sr. Ólafur Skúlason dómpróf-
astur minntist í upphafi fundar á
að nú væru liðin 40 ár frá því
Reykjavíkurprófastsdæmi var
stofnað, en innan þess eru nú 15
prestaköll með 19 prestum. Sr.
Ólafur sagði að væri íbúatölu
Reykjavíkurprófastsdæmis deilt
niður á 19 presta kæmu um 5.000
manns á hvern og væri við þá tölu
miðað í lögum. Um síðustu áramót
voru íbúar Langholtssöfnuðar
5.173 og því hefði orðið að ráði að
bera upp tillögu um flutning
annars embættis þess er sr. Árelí-
us Níelsson lét þar af störfum.
Væri í tillögunni gert ráð fyrir að
stofnuð yrði Selja— og Skógasókn
og hún tekin út úr Breiðholtssöfn-
uði er nú telur yfir 9.400 manns.
Biskup fær nú tillöguna, sem
samþykkt var einróma, til um-
sagnar og síðan kirkjumálaráð-
herra og gefi hann samþykki sitt
myndi fyrst verða boðað til stofn-
fundar safnaðar þar, sem hefði
það fyrsta hlutverk að efna til
prestskosninga. Taldi dómprófast-
ur það geta orðið með vorinu næði
tillagan fram að ganga.
Fella— og Hólasókn, sem nú
þjónar einn prestur, telur um
9.000 íbúa og taldi sr. Ólafur
einnig þörf á að þar fengist annar
prestur og yrði hugað að því.
Tillagan um nýtt prestsembætti
á Seltjarnarnesi var einnig sám-
þykkt einróma. íbúafjöldinn nær
ekki 3 þúsundum, en Seltjarnar-
nes er eini kaupstaður landsins,
sem ekki hefur sinn prest, en er
þjónað af prestum Nessafnaðar.
Sú tillaga fer einnig til umsagnar
biskups og ráðherra, en sr. Ólafur
kvað það síðan undir fjárveitinga-
valdinu komið hvort hægt yrði að
ráðast í þetta strax og vonaðist
hann eftir stuðningi þingmanna
Reykjavíkur og Reykjaness.
Verði af stofnun hins nýja
söfnuðar á Seltjarnarnesi yrði
núverandi prestum Nessóknar
boðið að velja um hvort þeir kysu
að starfa áfram þar eða flytjast og
í framhaldi af því kjörinn nýr
prestur í hans stað.
Þá urðu á þessum fundi miklar
umræður um kirkjubyggingar-
málefni. Árið 1953 gerðu borgar-
stjórn Reykjavíkur og prófasts-
dæmið samkomulag um að hætta
að leggja sérstök gjöld á söfnuðina
vegna kirkjubygginga og stofn-
aður var sjóður með framlagi frá
borginni. Sagði sr. Ólafur fyrsta
framlagið hafa verið 1 millj. kr. og
ætti eftir því að vera milli 150 og
160 m.kr. í dag en hefði tvö síðustu
ár verið 28 milljónir. Telur safnað-
arráðið sig ekki geta sætt sig við
þessa upphæð og mun athuga
hvort rifta beri þessu samkomu-
lagi, náist ekki samningar um
hækkun. Á fundinum voru kosnir í
úthlutunarnefnd Benedikt Blöndal
og Ottó A. Michelsen, en borgin
tilnefnir 3. fulltrúann, sem jafn-
framt er formaður.
Æskulýðsnefnd Reykjavíkur-
prófastsdæmis gaf skýrslu og var í
henni bent á mikla þörf fyrir
starfsmann er skipulegði og að-
stoðaði söfnuðina við æskulýðs-
starf. Kirkjuþing lagði fram er-
indi um að prófastsdæminu yrði
skipt upp í 3—4 einingar, en það
var fellt og prófastsdæmið talið
þjóna bezt hlutverki sínu eins og
nú væri, með sameiginlegri starfs-
miðstöð, en þar vantaði tilfinnan-
lega aukinn starfskraft.
Hárgreiðslustofa
opnuð á Húsavík
Húsavik 19. feb.
HÁ RG REIÐSLUSTOFU hefur
Hulda Jónsdóttir opnað á Garð-
arsbraut 12 (Gamla pósthúsinu) á
Húsavík. Hulda er innfæddur
Húsvíkingur og hefur nýlega lokið
námi hjá Hárgreiðslustofunni
Eddu í Reykjavík. Á íslandsmóti
nema sl. vor hlaut hún tvenn
verðlaun fyrir hárgreiðslu. Hún
hefur komið sér vel fyrir í hinu
gamla húsi og er stofan hin
vistlegasta.
— Fréttaritari.