Morgunblaðið - 21.02.1980, Qupperneq 48
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1980
Þorlákshöfn:
deilu Alþýðusambands
Vestfjarða, sem fer með
mál sjómanna, og Útvegs-
mannafélags Vestfjarða. Á
fundi í gær fóru útgerð-
armenn fram á að deilunni
yrði vísað til sáttasemjara,
en Alþýðusambandið fór
fram á frest til að hægt
væri að kynna stöðuna í
kjaradeilunni í hinum ein-
stöku félögum.
Að sögn Péturs Sigurðsson-
ar, formanns Alþýðusam-
bands Vestfjarða, höfnuðu út-
vegsmenn nær öllum kröfum
sjómanna á fundi í gær. Auk
kröfu um hækkun hlutaskipta
um þrjú prósentustig, sagði
Pétur, að kröfur væru m.a.
gerðar um frítt fæði og ákveð-
in hafnar- og löndunarfrí.
Pétur sagði að málið yrði nú
kynnt í félögunum og það væri
síðan þeirra að ákveða fram-
haldið.
Aðspurður um hvenær
fundir í félögunum yrðu hald-
nir, sagði hann, að helzt væri
til ráða að biðja máttarvöldin
um brælu, svo hægt væri að
ná mannskapnum saman.
Sjómenn á Vestfjörðum
hafa ekki haft samflot með
sjómannasamtökum annars
staðar á landinu heldur samið
beint við útvegsmenn vestra.
Samningar voru lausir um
áramót og tekur þessi deila til
undirmanna á bátum stærri
en 30 tonn og skuttogurum.
Rauðmagi á borð-
um Húsvíkinga
Húsavik, 20. feb.
RAUÐMAGI hefur verið fáan-
legur hér og á borðum Hús-
vikinga síðan í byrjun þorra en
veiðarnar lítið stundaðar vegna
þess að hér er markaðurinn tak-
markaður.
Menn telja meira af honum í ár
en í fyrra og vonandi boðar það
góða grásleppuvertíð, sem hér mun
hefjast fyrrihluta marz ef að líkum
lætur.
— fréttaritari.
Ljósin. KrÍHtján.
Sjómaður
drukknar
i hoimnni
KAFARI fann í gær iík í höfninni í
Þorlákshöfn. Kom í ljós að þetta
var lík Sigurðar Steinars Berg-
steinssonar sjómanns, Yrsufeili 3,
Reykjavík, en hann sást síðast í
Þoriákshöfn aðfararnótt sl. sunnu-
dags. Sigurður heitinn var 26 ára
gamall, fæddur 8. marz 1953.
Sigurður var háseti á bát, sem
gerður er út frá Þorlákshöfn. Hann
kom um borð í bátinn aðfararnótt sl.
sunnudágs en hvarf síðan frá borði.
Töldu skipsfélagar hans, að hann
hefði farið til Reykjavíkur og hófst
því eftirgrennslan ekki strax. Þegar
í ljós kom að Sigurður heitinn hafði
ekki komið til Reykjavíkur var
kafari fenginn til þess að leita í
höfninni í Þorlákshöfn og fann hann
lík Sigurðar á þeim stað, sem batur
hans hafði legið aðfararnótt sunnu-
dagsins. Þykir sýnt að hann hafi
fallið milli skips og bryggju er hann
var að fara í land um nóttina.
Kötturinn sleginn úr tunnunni á Akureyri i gær.
Sjómenn á Vestfjörðum krefj-
ast hækkunar á hlutaskiptum
Áhugi á frystingn
minni en í fyrra
Fyrstu skipin héldu á miðin í gærkvöldi
BÚIST var við, að fyrstu skipin héldu á miðin i gærkvöldi til að veiða
loðnu i frystingu. Fjögur loðnuskip sóttu ekki um leyfi tii veiða á
frystri loðnu, en ekki er vitað hvort öll þau tæplega 50 skip, sem fengið
höfðu slik leyfi i gær, munu nota það. Áætlað hefur verið, að leyft verði
að veiða um 50 þúsund tonn af loðnu i frystingu og til hrognatöku.
Hins vegar er enn ekki ljóst hve mörg frystihús hafa áhuga á að vinna
loðnu.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér í gær, er áhugi
meðal frystihúsaeigenda ekki eins
mikill á loðnuvinnslunni eins og
var í fyrra. Loðnuhrognin voru
veigamikill þáttur í vinnslunni þá
en nú lítur illa út með sölu á
loðnuhrognum til Japans. Þá hefur
loðnan í vetur verið talsvert blönd-
uð smárri loðnu og þurft fleiri
loðnur í hvert kg en Japanir vilja.
Japanir hafa boðið 1000 dollara
fyrir tonn af hrognum, en íslend-
ingar og Norðmenn fóru fram á
1950 dollara fyrir tonnið. í fyrra
voru greiddir 2400 dollarar fyrir
hvert tonn af loðnuhrognum. í
vetur var samið um sama verð á
frystri loðnu og fékkst í fyrra.
Auk þessara atriða má nefna, að
mikil atvinna er nú við fiskvinnslu
í frystihúsum víða og því ekki ljóst
hvað húsin vilja og geta tekið á
móti mikilli loðnu á sólarhring.
Hafrannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson er nú á þeim slóðum
út af Snæfellsnesi, þar sem vart
varð við loðnu um helgina. Vont
veður var á þessum slóðum í
fyrrinótt, en ætlunin var að kanna
þessar slóðir síðastliðna nótt. Hið
nýja skip Fáskrúðsfirðinga, Hilm-
ir, átti að landa um 600 tonnum á
Fáskrúðsfirði í gærkvöldi. Skipið
hefur fengið leyfi til að fara á
miðin að nýju og veiða það sem
vantaði á fullfermi í síðustu veiði-
ferð, um 600 tonn, og landa til
bræðslu. Einnig á skipið að kanna
göngur suður með Austurlandi og
taka sýni úr þeim.
á Loft
27 ráðstefnur
leiðum næsta
MUN MEIRA hefur verið
bókað fyrir næsta sumar á
Hótel Loftleiðum heldur
en var í fyrra. Munar þar
mestu um mikinn fjölda
ráðstefna, sem þar verða
haldnar í sumar.
Að sögn Erlings Aspelunds
hótelstjóra hafa nú verið bók-
aðar 27 ráðstefnur á Hótel
Loftleiðum frá því í apríl
fram í september. Er hér um
margar norrænar ráðstefnur
að ræða, en einnig alþjóða-
þing.
sumar
Fjölmennustu ráðstefnurn-
ar telja um 300 erlenda þátt-
takendur auk íslendinga. Þess
má geta að þegar hefur verið
pantað fyrir 11 ráðstefnur á
Hótel Loftleiðum 1981 og 1
ráðstefnu 1982.
Sigurður Steinar Bergsteinsson.
UNDIRMENN á báta og
togaraflota Vestfirðinga
hafa farið fram á hækkun
hlutaskipta um þrjú pró-
sentustig. Tveir fundir
hafa verið haldnir í kjara-