Morgunblaðið - 01.04.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1980
41
félk f
fréttum
+ Nunna við sjúkrahús
beygir sig niður og kyssir
á enni hins myrta erki-
biskups í San Salvador,
Oscar Arnulfo Romero.
Hann var myrtur 24.
marz síðastl. Fjórir
menn, sem ekki hafa
náðst, drápu biskupinn er
þeir skutu á hann og
særðu til ólífis en skotin
hæfðu hann í brjóstið.
Hann var þegar fluttur í
sjúkrahús en hann lézt
þar nokkru síðar.
+ Þessi nærmynd af hinum landflótta keisara írans, Reza Palevi,
er tekin rétt í þann mund að hann yfirgaf eyjuna Contadora í
Panama á flótta sinum til Egyptalands. Sjúkdómur keisarans
þykir mönnum hafa rist hann rúnum, og það virðist ekki orðum
aukið.
+ AP-fréttastofan sendi
þessa mynd af prinsess-
unni Noru af Liecht-
enstein, en hana hafa
brezk blöð nú nefnt í
sambandi við hugsan-
legt kvonfang Karls
Bretaprins.
+ Sextíu og f jögurra ára gamall maður í borginni Chattanooga í Tennessy, hefur látið útbúa handa sér
kistu eina mikla, sem hann ætlar að láta grafa sig i lifandi. Kveðst hann ætla að vera i henni unz
bandarisku gislunum hefur verið sleppt úr haldi í sendiráði Bandarikjanna í Teheran. í kistunni
hefur hann matarbirgðir og vatn, og raflögn hefur verið lögð þangað svo hann geti haft hjá sér ljós og
horft á sjónvarp. bá verður hann með tvo síma hjá sér. Loks er þess getið í myndatexta að þar sé lika
kiósett, búið kemiskum efnum. Þessi maður heitir Herbert O’Dell Smith. Myndin er tekin „á æfingu“
hjá Smith!
Bergslaöastræti 37. Reykjavik. Simi 21011
Scientlflc
Anglers
B R A N D
vlöeigum
afmæíi
í tilefni afmælisins gefum viö
10%afslátt af öllum ABU
veiöivörum út aprfl.
Einnig bjóöum viö
HARDY hjól/stangir
SCIBMTIFIC AIMGLERS
flugulínur.
HARDY
Hafnarstr 5 Rvk.s. 16760