Morgunblaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 40
Síminn á afgreiðslunni er
83033
2flt>r£jmiWaíiií>
J Sími á ritstjórn H Hfi
og skrifstofu: IU IUU
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1980
Ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um helgina:
8% gengisfelling og 11
milliarða nýjar álögur
RÍKISSTJÓRNIN lagði fram á Alþingi i gær
frumvarp til laga um orkujöfnunargjald í formi 2ja
soluskattstiga, þannig að verði það samþykkt verður
söluskattur 24%. Þessi tvö söluskattstig gefa á ári 11
milljarða króna, en fram til áramóta gefa þau 7
milljarða króna. Af því munu 4,5 milljarðar eiga að
renna í niðurgreiðslur á olíukyndingarkostnaði, en
afgangurinn til styrktar ríkissjóði. Jafnframt sam-
þykkti ríkisstjórnin um helgina í sambandi við
fiskverðsákvörðun allt að 8% gengisfellingu á næstu
vikum og um helgina kom til framkvæmda 3,5%
gengisfelling krónunnar gagnvart dollar.
Þessi tvö söluskattstig hækka
framfærsluvísitölu um 0,9 stig, en
hve mikil áhrif þau hafa á verð-
bótavísitölu fer eftir ráðstöfun fjár-
ins í meðförum ríkisstjórnarinnar
að mati Kauplagsnefndar á því að
hvaða leyti ráðstöfun fjárins fellur
undir ákvæði Ólafslaga, en Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
aðeins mismunur þessa nýja fjár,
4,5 milljarðanna og þess sem áður
hefði verið varið í olíustyrk, 3,2
milljarðar, ylli frádrætti í' verð-
bótavísitölu. Samkvæmt því eru það
um 1,3 milljarðar króna, sem gætu
valdið 14 til ’/í % í frádrátt á
verðbótavísitölu, nema eitthvað
nýtt komi fram, sem breyti því.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur ríkisstjórnin sam-
þykkt 8% gengisfellingu fram í
maí. Þar af féll krónan gagnvart
dollar um 3,5% frá skráningu á
föstudag og fram að skráningu í
gær. Er þá hækkun dollarans orðin
7% frá því er núverandi ríkisstjórn
tók við völdum og verður því í maí
samkvæmt þessu orðin um 11,6%.
Meðaltalsgengi hækkaði þó nokkuð
lægra í gær eða um 3%, þar sem
dollarinn hefur mjög styrkzt á
alþjóðagjaldseyrismarkaði um
helgina. Aðrir gjaldmiðlar hafa því
ekki hækkað að sama skapi og
dollarinn gagnvart krónunni.
Mikil andstaða var í þingflokki
Alþýðubandalagsins gegn hækkun
söluskatts vegna orkujöfnunar-
gjalds, en Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður þingflokksins sagði 1
samtali við Morgunblaðið í gær, að
þingflokkurinn hefði samþykkt
hana með því fororði, að 7 milljarð-
arnir fram til áramóta skiptust
þannig, að 4 milljarðar færu til að
greiða niður olíu til húshitunar, 500
milljónir til orkusparnaðaraðgerða,
500 milljónir til hækkunar óvissra
útgjalda og 2 milljörðum yrði varið
til að fjármagna félagslegar fram-
kvæmdir, sem þegar væru hafnar
samningaviðræður við verkalýðs-
hreyfinguna um.
Sjá: Átök í rikisstjórninni.. .bls 2
Árni Benediktsson um fiskverðsákvörðunina:
Tel mig svikinn
af ríkisstjóminni
„ÉG verð eiginlega að telja mig
hálfpartinn svikinn í sambandi við
það sem gerzt hefur í þinginu í
dag,“ sagði Árni Benediktsson
framkvæmdastjóri Sambandsfrysti-
húsanna og fulltrúi í yfirnefnd
verðlagsráðs sjávarútvegsins, er
Morgunblaðið ræddi við hann eftir
ákvörðun fiskverðs í gær, þar sem
hann ásamt oddamanni ákvað fisk-
verð. Árni sagði. að fulltrúar frysti-
húsanna í yfirnefndinni hefðu sótt
hart að fá lækkuð ýmis gjöld á
fiskvinnslunni. „En það varð meiri
fyrirstaða gegn þvi að lækka gjöld-
in en að láta þetta koma niður á
genginu.“
„Sú skýring var gefin,“ sagði Árni,
„að fjárlög væru svo til afgreidd, það
væri búið að reikna með þessum
tekjum í fjárlögunum og þau of
langt komin til að hægt væri að taka
þau upp. En nú gerist það eftir
hádegið, þegar fiskverðsákvörðun
hefur verið tekin, að ríkisstjórnin
ber fram á alþingi frumvarp um
sérstakt gjald vegna orkujöfnunar,
þar sem fyrirhugað er að taka þó
nokkra milljarða umfram það, sem
þarf til þeirra hluta. Þannig að ég
stend frammi fyrir því, að allt sem
sagt var í sambandi við þetta, er
markleysa og það er geymt en ekki
gleymt."
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins ákvað fiskverð með 2 at-
kvæðum gegn einu, en 2 nefndar-
manna sátu hjá. Með ákvörðuninni
greiddu atkvæði Jón Sigurðsson,
formaður og Árni Benediktsson.
Kristján Ragnarsson fulltrúi útvegs-
manna greiddi atkvæði gegn ákvörð-
uninni, en Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson
fulltrúi SH og Ingólfur Ingólfsson,
fulltrúi sjómanna greiddu ekki at-
kvæði.
Með þessari ákvörðun hækkar
fiskverð um 1,7%, þ.e. hrá-
efniskostnaður fiskvinnslunnar, _en
skiptaverð til sjómanna hækkar um
4%, þar sem 2,5%, sem áður voru
hluti olíugjalds utan skipta koma nú
inn í skipti. Eftir stendur þá olíu-
gjald, sem er 2,5%. Raunveruleg
hækkun til útvegsins er því um
0,6%.
Sjá ummæli yfirnefndarmanna á hls. 5
Ljósm. Klaus V\(’invartncr
• Valsmenn urðu í 2. sæti í Evrópukeppni meistaraliða í handknatt-
<fik um helgina. er liðið mætti vestur-þýsku meisturunum Gross-
waldstadt í Munchen. Á myndinni skorar Vestur-Þjóðverjinn UIi
Gnau. milli fótanna á Brynjari Kvaran i marki Vals. Má segja. að
mynd þessi sé að mörgu leyti táknræn fyrir gengi Vals í leiknum. Sjá
nánar um Evrópuleikinn á íþróttasíðum. bls. 21. 24 og 25.
Rændu 30 tonn-
um af saltfiski
ÞAÐ ER ekki ofsögum sagt af
vinsældum íslenzka saltfisksins í
löndunum við Miðjarðarhafið.
Fyrir nokkrum dögum rændu
vopnaðir menn í Napolí vöruflutn-
ingabifreið með tengivagni. en
innanborðs voru 30 tonn af salt-
Geir Hallgrímsson um hækkun á söluskatti:
Fer langt fram úr því,
sem verja á til húsahitunar
— Stefnir í 110 milljarða erlendar lántökur, segir Sighvatur Björgvinsson
GEIR Hallgrímsson gagnrýndi
harðlega vinnubrögð ríkisstjórn-
arinnar við afgreiðslu ríkis-
fjármála og aðra þætti efna-
hagsmála í ræðu á Alþingi i gær.
Sagði formaður Sjálfstæðis-
flokksins, að ríkisstjórnin hefði
velt þessum málum og öðrum
fyrir sér í tvo mánuði og loks á
sunnudagskvöldi hefðu formenn
þingflokka fengið frumvarp af-
hent og til þcss ætlast að þingið
samþykkti á tveimur dögum 11
milljarða álögur á almenning.
Sagði Geir Ilallgrímsson það
litilsvirðingu við Alþingi, hvern-
ig staðið væri að verkstjórn
þessara mála.
I ræðu Geirs Hallgrímssonar
kom einnig fram eftirfarandi:
• Eðlilegt er að kanna, hvort
hægt er að afla fjár til þess að
greiða niður húshitunarkostnað
með sparnaði í öðrum ríkisút-
gjöldum t.d. að hluta með minni
niðurgreiðslum á búvöru.
• Inn í fjárlagadæmið vantar
ákvæði um það hvernig á að
standa undir útgjöldum vegna
landbúnaðar og hvernig á að
standa undir útgjöldum vegna
boðaðs „félagsmálapakka".
• Heildarskattbyrði landsmanna
verður 50 milljörðum króna
hærri á þessu ári en vera myndi
með sömu álagningarreglum og
1977. Beinir skattar og óbeinir
skattar einnig 25 milljörðum
hærri.
• Ríkisstjórnin hefur þverbrotið
lagaákvæði um að fjárfest-
ingar- og lánsfjáráætlun skuli
fylgja fjárlagafrumvarpi.
• Söluskattshækkun um 11 mill-
jarða á 12 mánuðum fer langt
fram úr því, sem ríkisstjórnin
hyggst verja til niðurgreiðslu á
húshitunarkostnaði, sem eru
um 4 milljarðar.
Sighvatur Björgvinsson sagði í
ræðu við þessar umræður að
erlendar lántökur stefndu í 110
milljarða á þessu ári, sem væri 40
milljörðum meira en Seðlabank-
inn teldi eðlilegt að auka skuldir
um.
Sjá frásögn af umræðum á
Alþingi á bls 18.
fiski. Ekkert hefur spurzt til salt-
fisksins síðan, en söluverðmæti
þýfisins er um 35 milljónir króna
frá íslandi.
Flutningaskipið Eldvík losaði
fyrir nokkru saltfisk, m.a. í Napolí,
og af farminum fóru um 30 tonn í
flutningabifreið með tengivagni,
sem ekki væri í frásögur færandi ef
þessi ágæti fiskur hefði komizt í
vöruskemmu kaupandans. Þangað
komst fiskurinn þó aldrei, því að
skammt frá höfninni réðust vopnað-
ir menn að bifreiðinni, höfðu þeir
bílstjórann undir og hurfu síðan á
braut á saltfiskbílnum.
Lögreglunni í Napolí var tilkynnt
um bílhvarfið þegar það uppgötvað-
ist og var skipulögð mikil leit í
Napólí að saltfisknum. Morguninn
eftir fannst bifreiðin, en þá var
allur saltfiskur á braut. Bílstjórinn
fannst skömmu síðar lítt meiddur,
en rækilega bundinn og keflaður, í
nálægum skurði. Rækilega hefur
verið leitað að þessum vopnuðu
saltfiskþjófum síðan, en án árang-
*
Utsvarshækk-
unin samþykkt
ALÞINGI samþykkti í gær heim-
ildarlög til hækkunar útsvara í
12,1% af brúttótekjum. Lögin fela
í sér heimild til sveitarfélaga um
10% álag á 11% útsvör af gjald-
stofni.