Morgunblaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1980
45
vklvAKANDI
SVARAR í SÍMA 10100
KL. 13-14 FRÁ
MÁNUDEGITIL
FOSTUDAGS
Kassettur
beztu kaup landsins
leið ef þær vilja auka á vandræðin.
Og það vita flestir sæmilega
skynugir menn að þetta verður
ekki gróðalind fyrir samfélagið
þegar upp er staðið.
íslenska þjóðin á í vðk að
verjast. Eyðsla og kröfuharka
ríkja öllum sviðum, ekkert gefið
eftir, og engin fórn til hjálpar
réttum stjórnendum. Væri nú ekki
betra að menn litu sér nær,
kyngdu staðreyndum, drægju hul-
una frá augum og lokuðu þeim
ekki fyrir meinsemdum sem víða
liggja í augum uppi. Einar Ben.
segir: „Sé drepinu hlúð, visnar
heilbrigt líf og hefndin grær á
þess leiði.“ Er ekki nær fyrir
ábyrga menn, sem vissulega ber
að gæta bróður síns, að snúast
gegn vargi þeim í véum heil-
brigðra lifnaðarhátta sem áfengi
er en halda ekki áfram að hlúa að
drepinu? Það skyldu allir góðir
íslendingar hugleiða þegar áfeng-
isbölið ógnar hverri fjölskyldu í
landinu og þúsundir manna stynja
undir oki þess. Og óneitanlega
væri það farsælla hverri sveitar-
stjórn að leggja til atlögu við
vandann en auka hann undir því
yfirskini að menn séu að hjálpa
náunga sínum.
Árni Helgason.
Þessir hringdu . . .
• Fyrirspurn
til félagsmála-
ráðuneytis
Guðrún Björnsdóttir
hringdi:
„Mig langar í framhaldi af
fyrirspurnum Gunnars Gunnars-
sonar til ríkisskattstjóra . og
ábendingar hans um að málið félli
undir félagsmálaráðuneytið, að
beina þessum sömu spurningum
til þess sem málið viðkemur í
félagsmálaráðuneytinu. Ég veit að
margir fleiri en ég hafa íhugað
þetta mál og haft áhuga á réttum
svörum, þess vegna vil ég nota
þessa leið í stað þess að hringja
þangað sjálf:
Spurningarnar voru:
1. Hvað mega fasteignagjöld af
sumarbústöðum vera há?
2. Er manni, sem leigir lóð í
einkaeign, skylt að greiða fast-
eignaskatt af henni?"
• Þakkir til
biskupsins
E.H. hringdi:
„Ég vil koma á framfæri kæru
þakklæti til biskupsins yfir
Islandi, Sigurbjörns Einarssonar,
fyrir grein hans í Morgunblaðinu
um Innhverfa íhugun og langar að
segja frá minni reynslu og manns-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í Lone
Pine í Bandaríkjunum, sem lauk í
síðustu viku kom þessi staða upp í
skák þeirra Dzindzindhashvilis,
ísrael, sem hafði hvítt og átti leik,
og Larsens.
43. RgW - Kg6, (Eða 43. ...
hxg5, 44. Dh8+* Kg6, 45. h5+ —
Kf5, 46. Hf8+ o.s.frv.) 44. De8+ —
KÍ5, 45. De6 mát. Dzindizind-
hashvili sigraði á mótinu, hlaut
sjö vinninga af níu mögulegum.
Næstur kom Miles með hálfum
vinningi minna.
ins míns í sambandi við þessi
trúarsamtök. Atburðurinn átti sér
stað fyrir 2 árum síðan.
Við fórum á kynningarfund og
fannst að þarna væri eitthvað
fyrir okkur. Greiddum út í hönd
kr. fjörutíu þúsund og mættum
síðan að kvöldi til með þrjá ferska
ávexti, eitt búnt af blómum og
einn vasaklút, skv. því sem okkur
var sagt að gera., Okkur fannst
þetta undarlegt, en gerðum samt
eins og fyrir okkur var lagt. Á
staðnum voru blómin, vasaklútur-
inn og ávextirnir settir á borð með
hvítum dúki, angandi reykelsis-
ilmi og undir mynd af einhverjum
karlmanni kraup leiðbeinandinn á
kné og þuldi einhverja þulu á
erlendu tungumáli, sem okkur
skildist að væri bæn.
Þetta er eflaust siðvenja sem á
að þjóna einhverjum tilgangi, en
okkur var lítið gagn að þessu, því
við skildum hvorki upp né niður og
allar útskýringar vantaði, þannig
að þetta leit út fyrir okkur sem
nýliðum sem hálfgert kukl.
Ég segi þessa sögu aðeins til að
taka undir orð biskupsins og koma
því til skila að það þarf að útskýra
þannig hluti fyrir fólki, ekki láta
það misskilja hlutina, kannski á
röngum forsendum.
Við hjónin mættum ekki hin
kvöldin, sem við höfðum þó greitt
fyrir og fengum ekki krónu end-
urgreidda, né útskýringar."
1 spóla -• 5 spólur
60 mínútur kr. 900 kr. 4000
90 mínútur kr. 1100 kr. 5000
Heildsölu
birgðir
Verslidistérverslun með
LITASJÓNVÖRPog HUÓMTÆKI
SKIÐABOGAR
fyrir flestar geróir bifreióa
Verð kr. 7.500.-
Laugavegi 118 - Símar 22240 og 15700
Allt á sama stað
EGILL VILHJÁLMSSON HE
m Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta -ui