Morgunblaðið - 26.04.1980, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRIL 1980
38
Sigríður Hjálmars-
dóttir — Minning
Jóhanna Bœrings
Ámadóttir Minning
Fædd. 24. mars 1906.
Dáin 26. mars 1980.
„Bognar ekki — hrotnar í
hylnum stóra seinast“.
Þessar ljóðlínur komu mér í hug
er mér var tilkynnt lát vinkonu
minnar Sigríðar Hjálmarsdóttur,
er andaðist í Borgarspítalanum
26. mars sl.
í áralangri og oft tvísýnni
baráttu við erfiðan sjúkdóm lét
hún aldrei bugast en tókst á við
erfiðleikana með æðruleysi og
bjartsýni, og sinni glöðu og góðu
lund. Bjartsýnismanneskja var
hún og trúði á hið góða í lífinu,
enda hagaði hún lífi sínu eftir því.
Eftir því sem ég þekkti hana má
segja að líf hennar hafi verið
þjónusta og fórn fyrir þá er henni
voru kærir, aldrei hugsaði hún um
sjálfa sig. Þetta sýndi hún ekki
síst er hún tók upp sambúð við
mág minn Böðvar Grímsson, þá
aldraðan mann, bjó honum yndis-
legt heimili og annaðist hann af
innilegri ást og fórnfýsi í rúman
áratug eða þar til yfir lauk fyrir
honum. Oft var hún sjársjúk sjálf,
en viljinn til að gefa af sjálfri sér
hélt hénni oft uppi með ólíkindum.
Fyrir allt sem hún var honum og
alla hennar umhyggju við hann
eru henni færðar hjartans þakkir
frá hans fólki.
Sigga, eins og við vinur hennar
kölluðum hana, var höfðingi heim
að sækja. Þegar maður heimsótti
hana stóð hún í dyrunum og
fagnaði manni svo innilega og
kaffisopinn í eldhúsinu hjá henni
varð „veisla“, því hún var fram-
úrskarandi myndarleg húsmóðir
og allt var fágað og fínt í kringum
hana.
Nú þegar veturinn er á enda og
vorið er að koma með hækkandi
sól, hlýju og gróðri, hvarf hún á
fund Guðs síns, þar sem ástvinir
hennar, er á undan eru gengnir
fagna henni. Þessar fátæklegu og
síðbúnu línur eiga að vera þakk-
læti frá mér fyrir að hafa fengið
að kynnast þeirri mannkosta
manneskju sem Sigríður var, það
fór enginn fátækari af hennar
fundi, — mætti heimurinn eiga
margar slíkar.
Hún var jarðsett frá Húsavík-
urkirkju 10. apríl sl., heima i
bænum sem henni þótti svo vænt
um og var fædd og uppalin í.
Friður Guðs sé með henni.
Hafi hún hjartans þökk fyrir
allt.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
Fædd 22. desember 1944.
Dáin 17. apríl 1980.
Elskuleg vinkona okkar er látin
á besta aldri. Rök þessa lífs verða
ekki alltaf skilin og tilgangur þess
oft hulinn okkur, sem eftir sitjum
og syrgjum samferðamann, er
hefur verið okkur náinn í tvo
áratugi. Þó kom lát Baddýjar
okkur ekki á óvart. Hún hafði í
marga mánuði barist eins og hetja
gegn þeim sjúkdómi sem sjaldan
vinnst sigur á. Baddý hafði aldrei
sparað sig né krafta sína og tókst
með dugnaði að koma sér upp þaki
yfir höfuðið sem hún taldi sér
mest nauðsyn, barna sinna vegna.
Líf Baddýjar var aldrei neinn
dans á rósum, en hverjum vanda
var alltaf mætt af dugnaði og með
kjarki, sem erfitt er að lýsa. Frá
unga aldri hafði hún barist fyrir
tilvist sinni án þess að biðjast
vægðar. Ef til vill skiljum við
gömlu vinkonurnar hana best.
Baddý var alltaf skapgóð og kát og
var fyrst til að samgleðjast öðr-
um. Okkur vinkonum sínum var
hún trygg og hlý og er því í henni
mikill eftirsjá, eins og alltaf þegar
góður vinur hverfir oss sjónum
fyrir fullt og allt. Það var ekki
ætlunin að láta þessi fáu kveðj-
uorð verða ítarleg eftirmæli.
Baddý fór ekki varhluta af von-
brigðum þessa lífs. Þó voru einnig
sólargeislar, sem skinu á hana,
þegar hún eignaðist börnin, sem
voru henni allt, eins og flestum
mæðrum. Hún hafði líka unnið
sigra og átti þá skilið. Baddý mun
áreiðanlega njóta umbunar fyrir
stutt en dugmikið ævistarf. Eng-
inn ræður sínum næturstað, en
góður guð mun taka vel á móti
henni.
Foreldrum, systkinum, elsku
börnunum Guðfinnu, Árna, Brynj-
ari og litlu Hrafnhildi, vottum við
okkar dýpstu samúð.
Ester og Sigga
Nokkur fátækleg kveðjuorð frá
frænda.
Nú þegar ég kveð elskulega
frænku mína hinstu kveðju finnst
mér draga ský fyrir sólu. Missa
hana langt fyrir aldur fram frá
barnahópnum sínum. Þó er það
huggun fyrir okkur sem eftir
lifum að hún er búin að fá hvíld
frá langvarandi sjúkdómi sem
Jóhanna bar með einstæðum
kjarki, hetjulund og æðruleysi.
Fyrir hennar hönd og okkar
allra vil ég þakka séra Hreini
Hjartarsyni fyrir hans frábæra
framlag okkur til styrktar að
komast yfir söknuð okkar.
Ég vil og þakka systkinum
Jóhönnu fyrir einstæða hjálp í
þjáningum hennar, sérstaklega
þeim Hugrúnu og Dóru sem skipt-
ust á að vera hjá henni og börnum
hennar.
Ennfremur öllum þeim sem
styttu frænku minni stundir í
erfiðu stríði við dauðann.
Veit ég að henni er batnað, þar
sem hún er hjá Guði vorum, sem
læknar öll sár og leiðir hana um
heimkynni sín því þar er gott að
vera.
Veit að Jóhanna bíður okkar á
ströndinni fögru, handan við móð-
una miklu og tekur á móti okkur.
Foreldrum, systkinum og börn-
um hennar sendum við okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Guðs blessunar bið ég frænku
minni.
Frændi og fjölskylda.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í
siðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera i sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið
af marggefnu tilefni að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
+
Systir mín og mágkona
RAGNA BJARNADOTTIR
Mánagötu 20,
lézt í Landakotsspítala 24. apríi.
Anna Nordal
Guömunda S. Kriatinsdóttir
t
Utför eiginmanns míns, föður okkar og tengdafööur,
JÓNS SIGUROSSONAR,
fyrrverandi bankafulltrúa,
Ferjuvogí 17,
Reykjavík,
sem andaöist 18. apríl fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 28.
apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeim sem vildu minnast hans er
bent á líknarstofnanir. . _ ..
Anna S. Þórarinsdóttir,
Svanhildur Jónsdóttir Svane, Gunnar Svane,
Sigurður Jónsson, Helga S. Ólafsdóttir.
+
Útför konunnar minnar, móöur, tengdmóöur og ömmu
ÞORBJARGAR SIGURDAROÓTTUR,
Sólheimum 18
veröur gerö frá Fossvogskirkju mánudaginn 28. þ.m. kl. 3.
Blóm og kransar afbeðnir en þeim sem vildu minnast hennar er
bent á Krabbameinsfélagiö.
Andrés Finnbogason,
Elva Andrésdóttir, Þorsteinn Jónsson,
Andrés Þorsteinsson.
+
Hér meö tilkynnist vinum og vandamönnum andlát tveggja
móöursystra minna í Danmörku
GUOFINNA STEINUNN GUÐMUNDSDÓTTIR JENSEN,
Hirtshals, f. 30.7 1891, d. 10.1 1980
BJARNEY GRÓA GUÐMUNDSDÓTTIR JENSEN
Hjörring f. 16.7 1900 d. 26.3 1980
Fyrir hönd barna þeirra
Ólöf Helga S. Brekkan.
+
BJÖRNJÓHANNSSON
frá Syðra Laugalandi,
Eyjafiröi,
andaðist þann 23. þ.m. á fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Jaröarförin fer fram miövikudaginn 30. þ.m. frá Akureyrarkirkju kl.
13.30.
Blóm og kransar afbeönir. Þeim sem vildu minnast hins látna er
bent á fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri.
Emma Elíasdóttir,
og börn hins látna.
+
Móöir mín
NANNA SVEINSDÓTTIR
Granaskjóli 8,
andaöist í Landspítalanum aö morgni 24. apríl sl. Jaröarförin
auglýst síöar.
Sveinn Björnsson.
+
Þökkum auösýnda samúö viö fráfall og jaröarför móður okkar,
tengdamóöur og ömmu,
VALGEROARJÓHANNSDÓTTUR
frá Auökúlu
Guörún Sigríöur Björnsdóttir Ólöf Birna Björnsdóttir
Jón Reynir Magnússon Jón Ólafsson
Magnús Reynir Jónsson Valgerður Jónsdóttír
Birna Geröur Jónsdóttir Sigþrúöur Inga Jónsdóttir
Sigrún Dóra Jónsdóttir Ólafur Helgi Jónsson
Móöir okkar,
+
, tengdamóöir og amma,
HERDÍS LÁRUSDÓTTIR
frá Siglufiröi,
andaöist í sjúkrahúsi Akureyrar 23. apríl.
Anna Hallgrímsdóttir, Hreinn Sumarliðason,
Guðbjörn Hallgrímsson, Kristín Guömundsdóttir,
Guðfinna Gunnarsdóttir, Baldvin Jónsson,
Jóhanna Viggósdóttir °9 barnabörn.
+
Faðir okkar, stjúpfaöir og tenpdafaðir
MAGNUS JÓNSSON,
frá Baröi,
Skálageröi 3,
andaöist í Borgarspítalanum 22. apríl.
Þorvaldur Magnússon, Jóhanna S. ívarsdóttir,
Ingibjörg G. Magnúsdóttir,
María M. Magnúsdóttir.
+
Hjartkaer maöurinn minn, fósturfaöir, tengdafaöir og afi
MAGNÚS GUNNARSSON,
er látinn. Jaröarförin hefur fariö fram. Alúöarþakkir til alls
starfsfólksins á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, fyrir frábaera
hjúkrun og alla auösýnda vinsemd. Einnig viljum viö þakka
vistfólkinu þar alla góðvildina.
Anna Gunnarsson,
Guömundur J. Guömundsson, Kristín Ingimarsdóttir
og barnabörn.
+
Hjartanlega þökkum viö ykkur öllum, sem sýnduö okkur samúö og
vinarhug viö andlát
KATRÍNAR GAMALÍELSDÓTTUR
Starfsfólki Vífilsstaöaspítala eru færðar sérstakar alúöarþakkir
fyrir einstaka umönnun í veikindum hennar.
Karl Sæmundarson,
Ragna Freyja Karlsdóttir,
Fanney Magna Karlsdóttir,
Særún Æsa Karlsdóttir,
María Valgeröur Karlsdóttir,
Siqursveinn Óli Karlsson,
Jón Óttarr Karlsson,
Gamalíel Sigurjónsson,
Gísli Ól. Pétursson,
Eyjólfur Hjörleifsson,
Leifur Sigurösson,
Ingigeröur Torfadóttir,
barnabörn og aörir aöstandendur.