Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1981
5
Hér ræðast þeir við Thorbjörn Fálldin og Gunnar Thoroddsen i
móttöku forsætisráðherra.
Heimsókn forsætisráðherra í Svíþjóð:
. * — v
Kjarnorkuvopn, þorskastríð og barátt-
an við verðbólgu meðal umræðuefna
Frá (luAíinnu RaKnarsdóttur.
Stokkhólmi. 8. mai.
ÞAÐ eru sannarlega viðburðarik-
ir dagar í Svíþj<)ð, þessir fyrstu
vordagar, þegar Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra og kona
hans eru hér í opinberri heim-
sókn. Stjórnarfall, stór verkfoll
og fjöldauppsagnir dynja yfir
þjóðina hvert á fætur öðru. En
milli kreppufunda og samninga-
viðleitana. stjórnmálaþrass og
sjónvarps- og hlaðaviðtala þeytist
forsætisráðherrann. eða fyrrver-
andi forsætisráðherrann, um Iwr-
inn með hinum íslensku gestum
sínum eins og ekkert hafi i
skorist.
I dag ræddu Fálldin og Gunnar
Thoroddsen um sameiginleg nor-
ræn málefni, samskipti landanna,
viðskiptamál, m.a. norræna sam-
vinnu, þar sem aðeins tvö eða þrjú
Norðurlandanna taka'þátt og hlut-
á blaðamannafundi
forsætisráðherra
í Svíþjóð í gær
verk norræna fjárfestingabankans
í því sambandi. í hófi sem sænska
ríkisstjórnin hélt forsætisráð-
herrahjónunum í gærkveldi sagði
Thorbjörn Fálldin m.a.: „Það er
nauðsynlegt aö Norðurlöndin vinni
að sameiginlegri lausn ýmissa
mála, ekki sízt vegna þeirra alþjóð-
legu efnahagserfiðleika sem steðja
að. Við verðum að vinna að því að
auka markaði innan Norðurland-
anna. Þar geta ríkisstjórnirnar
gert margt m.a. með því að auð-
velda samvinnu á iðnaðarsviðinu,
samræma lög og reglur og styrkja
fyrirtæki sem vilja einbeita sér að
norrænum markaði."
í dag hélt Gunnar Thoroddsen
blaðamannafundi þar sem hann
var m.a. spurður álits á kjarnorku-
vopnum á Norðurlöndum, hvort
frekari þorskastríða væri að vænta
og hvaða aðferðum stjórn hans
hefði beitt gegn verðbólgu.
Á morgun fer Gunnar Thorodd-
sen ásamt fylgdarliði sínu til
Skánar með Thorbjörn Fálldin og
verður þar fram á sunnudag, en þá
er opinberri heimsókn hans lokið.
"HÚS
AR NARTAK
Box : 317,121 Rvík.
HRINGIÐ STRAX - eöa skrifiö.
Eftir viku kann þaö aö vera oröiö of seint.
Símar: 83195, 36052, 10258 og 10680.
MÁLARANS^
( sögusjór Jóns Engilberts)
Ný wtgáfa, aukin
takmarkad upplag,
HÚS MÁLARANS, minningasjór Jóns Engilberts, sem Jóhannes
Helgi setti vörpu sína í fyrir réttum tuttugu árum og þjóöarathygli
vakti, hefur veriö kölluö „bókin sem getur ekki dáiö“.
ARNARTAK, nýstofnaö forlag, sem hefur þaö aö markmiöi aö
koma bókum mun ódýrari til fólks en verið hefur og byggir því á
hraðsölu takmarkaös upplags á áskriftarveröi, lætur þaö veröa
fyrsta verk sitt aö endurútgefa þessa bók aukna og í nýjum
búningi í ágúst-september, (markaösverö, samanburöarverö: 265
kr.).
ARNARTAK býöur yöur bókina innbundna á 185 krónur, ef
pantaö er strax. Heimsending innifalin í veröinu. Greiösla viö
móttöku. Árituö eintök í boði, ef óskaö er.
ARNARTAK vandar til útgáfunnar; hún mun hafa aö geyma 25
myndasíöur, allt frá bernsku Jóns til loka stormasamrar ævi.
Kjörin bók jafnt til eignar og gjafa.
„HÚS MALARANS. LÍFSSPJALL JÓNS ENGIL-
8ERTS — VAR HRIKALEG BÓK, STÓRBROTIN,
JAFNVEL MEO TRÖLLSLEGUM YKJUM, EN ÁTTI
ÞÓ ALLAR TÍÐIR TIL OG BJÓ YFIR TÓFRUM,
STÓRKARLALEGUM OG BARNSLEGUM í SENN.
ÞESSI BÓK SKAR SIG HREINLEGA ÚR FLOKKI
CVIMINNINGA". (ANDRÉS KRISTJÁNSSON.
TIMINN DES. 1982).
„SAGAN ER BLOÐHEIT, GÁSKAMIKIL OG
BRENNANDI OG ÞÓ Á BAK VID HIN EILÍFA ÞRÁ
OG DJUPA INNSÆI... ÞETTA ER SVO INNVIDA-
MIKIL SAGA AÐ ÉG MUN ALDREI GLEYMA
HENNI.“ (VSV. ALÞYDUBLADIID DES. 1981).
„ÞETTA ER SNILLILEGA GERD BÓK, EIN HIN
BESTA SEM ÉG HEFI LENGI LESIO. ÞAR FER
SAMAN GLÆSILEGT OG MYNDRRÍKT MÁLFAR,
SEM NÆR ALDREI BREGZT OG KUNNÁTTU-
SAMLEG EFNISMEDFERD.“ (JÓN HELGASON
TÍMINN 18. DES. 1981).
„ÚR SAMRÆDUM JOHANNESAR OG JÓNS
ENGILBERTS HEFUR ORÐID EIN HIN SKEMMTI-
LEGASTA BÓK SEM ÉG HEFI LENGI LESIÐ OG
MADUR SLEPPIR HENNI EKKI FYRR EN HENNI
ER LOKIÐ. HÚN ER SVO MISKUNNSAMLEGA
LAUS Vlö GERVIHÁTÍDLEIKANN OG TILGERÐ-
INA.“ (SVERRIR KRISTJÁNSSON, MÁNUDAGS-
BLADID 21. DES. 1961).