Morgunblaðið - 09.05.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1981
21
flutt 1946, þá var tækjakostur
aukinn og orðið mun rýmra um
reksturinn en verið hafði á
Freyjugötunni og starfsmönnum
hafði þá fjölgað um helming. Með
auknum verkefnum fjölgaði
starfsmönnum og voru þeir orðnir
rúmlega 20 þegar fyrirtækið var
næst flutt um set. Þaðan lá leiðin
svo að Bræðraborgarstíg 7. Með
flutningunum þangað var tekið
stórt stökk fram á við og offset-
tæknin tekin í þjónustu fyrirtæk-
isins. Keypt var stór ög fullkomin
prentvél og annar útbúnaður í
samræmi við kröfur nútímans.
Þetta var árið 1967. Fljótlega eftir
að fyrirtækið flutti á Bræðraborg-
arstíginn keypti það setningar-
tölvu og jukust þá umsvifin í
sambandi við offsetprentunina að
mun. Um þetta leyti voru starfs-
menn Odda orðnir um 40. Bætt
var við húsnæðið 1971 með kaup-
um á húseigninni við Bræðraborg-
arstíg 9.
Starfsemin óx síðan jafnt og
þétt með hverju ári og voru
þrengslin farin að standa henni
verulega fyrir þrifum síðustu árin.
Vinnustaðir prentverkefnanna
voru orðnir á einum fimm hæðum
í húsakynnum fyrirtækisins og
fylgdi því ýmislegt óhagræði að
þurfa að flytja pappírinn marg-
sinnis upp og niður í húsinu frá
því að vinnsla hófst og þar til
prentun og bókbandi var lokið.“
Stefnum að því að ná sem
mestu af íslenzkri prentun
inn í landið ok sömuleiðis
að fá verkefni erlendis frá
Hvert er nú stefnt eftir að
þessum mikilvæga áfanga er náð?
„Við stefnum náttúrlega hátt og
gerum ráð fyrir því að með þessu
nýja húsnæði aukist möguleikar
okkar verulega, bæði hvað varðar
uppsetningu vélasamstæðna,
bætta vinnuaðstöðu og möguleika
til stækkunar. Því er það ákveðið
að kaupa nýja setningartölvu, sem
yrði til mikilla hagsbóta og vinnu-
flýtis og í haust munum við taka í
notkun alsjálfvirka bókbandsvél,
sem verður sú fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi og mun valda
algjörri byltingu hjá okkar hvað
afköst snertir. Þá stendur það til
að kaupa fjögurralita prentvél, en
við höfum einmitt sérhæft okkur í
litprentuji. Sú vél myndi gera
okkur kleift að vanda litprentun-
ina enn meir en nú er auk þess,
sem vinnsluhraði verður þá miklu
meiri. Með þessari auknu tækni
ætti okkur að vera mögulegt að ná
aftur inn í landið miklum hluta
þeirrar prentunar, sem nú fer
fram erlendis og einnig ættum við
að hafa aukna möguleika á prent-
un fyrir erlend fyrirtæki. Á síð-
ustu árum höfum við gert nokkuð
af því að prenta fyrir erienda
aðilja, meðal annars Færeyinga og
Norðmenn, og hefur það sýnt að
við erum fyllilega samkeppnisfær-
ir við erlenda aðilja á því sviði."
Allt frá nafnspjöldum upp
í viðhafnarútgáfur b<')ka
Hver eru helztu verkefni
prentsmiðjunnar?
„Þá tæplega fjóra áratugi, sem
prentsmiðjan hefur starfað hefur
verið lögð megináherzla á vandaða
vinnu á sem flestum mögulegum
sviðum. Verkefnin, sem unnin eru
hjá okkur, eru því mjög fjölbreyti-
leg, allt frá nafnspjöldum upp í
glæsiútgáfur stærstu og vönduð-
ustu bóka. Við prentum bréfsefni,
veggspjöld, reikningseyðublöð,
launaávísanir, bíómiða, flösku-
miða, kynningarbæklinga, alman-
ök, plötuumslög, skýrslur,
kennslugögn, skýrslu- og tölvu-
pappír ýmiss konar auk þess sem
Oddi prentar tímarit og bækur af
öllum stærðum og gerðum og þar
á meðai er sú bók, sem flestir
landsmenn glugga í, það er síma-
skráin. Verksmiðjan hefur sér-
hæft sig í litprentun og prentun á
alls konar skýrslu- og tölvupappír
og vinnum við nú meirihluta
slíkra verkefna. Á síðasta ári voru
85 titlar innbundinna nýrra bóka
unnir hjá prentsmiðjunni auk um
15 endurútgefinna titla. Síma-
skráin er þó stærsta verkefnið, en
hún hefur verið prentuð hér í 12 ár
og nú er upplag hennar um 110.000
eintök."
Þróunin hlýtur að fara
að hæjí ja á sér
Hefur þróunin ekki verið með
ólíkindum undanfarin ár?
„Jú, það er óhætt að segja það,
þú getur rétt ímyndað þér muninn
á því þegar við byrjuðum þrír
fyrir næstum fjörutíu árum. Tæk-
in bötnuðu stöðugt og svo kom
offsetprentunin til skjalanna, sem
kannski hefur verið stærsta stökk-
ið fram á við. Nú eru setningar- ■
tölvurnar líka að mestu búnar að
leysa gömlu blýsetninguna af
hólmi og vélarnar þróast hreint
ævintýralega hratt. Annars held
ég að þróunin hljóti að fara að
hægja nokkuð á sér þó maður viti
í raun og veru ekki hvað örtölvu-
byltingin getur gert í þessu sam-
bandi."
HG '
Séð yflr tölvusetningarborðin ug umbrotsdeildina.
Ljósmyndir Mbl. Emilía Björg.
Styrkir til varðveislu verðmæta lands og menningar:
Þjóðhátíðarsjóður
úthlutar tæpum
2 milljónum króna
Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir
árið 1981, og þar með fjórðu úthlutun úr sjóðnum.
Alþingi ályktaði hinn 4. maí 1977 að heimila
ríkisstjórninni að setja Þjóðhátíðarsjóði skipu-
lagskrá. Stofnfé sjóðsins er ágóði af útgáfu Seðla-
banka íslands á þjóðhátíðarmynd í tilefni 1100 ára
búsetu á íslandi 1974. Forsætisráðuneytið samdi
skipulagsskrá sjóðsins í umboði ríkisstjórnarinnar,
og í samráði við dómsmálaráðuneytið og Seðlabanka
íslands, hefur hún birzt í B-deild Stjórnartíðinda og
er nr. 361 frá 30. september 1977.
Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og
annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að
varðveizlu og vernd þeirra verðmæta lands og
menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal
renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á
vegum Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal
renna til varðveizlu fornminja, gamalla bygginga og
annarra menningarverðmæta á vegum Þjóðminja-
safns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfun-
arfé hverju sinni í samræmi við megintilgang hans,
og komi þar einnig til álita viðbótarstyrkir til þarfa,
sem getið er í liðum a og b.
Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði
viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru,
en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög
til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.
I stjórn sjóðsins eiga sæti:
Björn Bjarnason, blaðamaður, formaður; Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri, varaformaður; Eysteinn
Jónsson, fyrrv. ráðherra; Gils Guðmundsson, fyrrv.
forseti sameinaðs Alþingis og Gísli Jónsson, mennta-
skólakennari.
Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur, tók sæti Gils
Guðmundssonar í stjórn sjóðsins við úthlutun þessa,
vegna fjarveru Gils utan lands.
Ritari sjóðsstjórnar er Sveinbjörn Hafliðason,
lögfræðingur.
I samræmi við 5. gr. skipulagsskrár sjóðsins voru
styrkir auglýstir til umsóknar í fjölmiðlum í lok
desember 1980 með umsóknarfresti til 20. febrúar sl.
Ráðstöfunarfé sjóðsins í ár nemur kr. 1.920.000.00,
þar af skal fjórðungur, 480 þús. kr., renna til
Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Nátt-
úruverndarráðs og fjórðungur, 480 þús. kr., skal
renna til varðveizlu fornminja, gamalla bygginga og
annarra menningarverðmæta á vegum Þjóðminja-
safns, skv. ákvæðum skipulagsskrár.
Allt að helmingi ráðstöfunarfjár á hverju ári er
varið til styrkja skv. umsóknum og voru því allt að
960 þús. kr. til ráðstöfunar í þennan þátt að þessu
sinni.
Alls bárust 69 umsóknir um styrki að fjárhæð um 3
millj. kr.
Hér á eftir fer skrá yfir þá aðila og verkefni, sem
hlutu styrki að þessu sinni, en fyrst er getið verkefna
á vegum Friðlýsingarsjóðs og Þjóðminjasafns.
F riðlýsingarsjóður
Samkvæmt skipulagsskrá Þjóðhátíðarsjóðs skal
Friðlýsingarsjóður verja árlegum styrk til náttúru-
verndar á vegum Náttúruverndarráðs. Náttúru-
verndarráð hefur ákveðið að verja styrknum, eftir
því sem hann hrekkur til, í eftirtalin verkefni:
1. Rannsóknir á áhrifum friðunar á gróður í
Skaftafelli.
2. Myndkort af Jökulsárgljúfrum.
3. Fræðslustofa í Ásbyrgi.
4. Likan af Jökulsárgljúfrum.
5. Náttúruverndarkönnun Mývatnssveitar.
6. Lífríkiskort af botni Mývatns.
7. Stækkun rannsóknarstöðvar við Mývatn.
8. Girðing Búðahrauns.
9. Girðing Hveravalla.
10. Göngubrú við Landmannalaugar.
Þjóðminjasafn
Samkvæmt skipulagsskrá Þjóðhátíðarsjóðs skal
Þjóðminjasafnið verja árlegum styrk til varðveizlu
fornminja, gamalla bygginga og annarra menningar-
verðmæta á vegum safnsins. Þjóðminjavörður hefur
gert grein fyrir ráðstöfun styrksins í ár og eru þessi
verkefni helzt:
1. Kopiering gamalla ljósmynda safnsins og skrán-
ing og aðhlynning ljósmyndasafnanna.
2. Söfnun heimilda um fiskveiðar á skútum.
3. Framhald viðgerðar Grundarkirkju i Eyjafirði.
4. Framhald viðgerðar bæjarins á Galtastöðum.
5. Framhald endursmíða verzlunarhúsa frá Vopna-
firði í Árbæjarsafni.
6. Framhald fornleifarannsókna að Stóruborg undir
Eyjafjöllum.
7. Útgáfa sýningarskrár um silfursýningu í safnjnu.
Úthlutun styrkja skv. umsóknum:
UmM»kjandi Vtrktfni Styrkur
1. Torfusamtokin EndurhvKKÍnK Bankastrætis 2. Revkjavik 25.000.00
2. Bókasafn Flateyjarhrepps tokaáfanKÍ endurbyKKÍnKar bókhloðunnar i
3. ImI. fluKsoKufélaicid Flatey 25.000.00
EndurbyKKÍnK á TF-Ö^n 20.000.00
4. Bæjarsjódur Hafnarfjaröar ViÖKerð á Bryde-pakkhúsi 50.000.00
5. ByKKÓa-safnió SkÓKum Húsavernd o.fl. 20.000.00
6. HúsfriÖunarsjóður Akureyrar Endurreisn Laxdalshúss 25.000.00
7. SÍKurfarasjoóur Framhald viðxerða á kútter SÍKurfara 50.000.00
8. Zontaklúbhur Akureyrar Viðhald á Nonnahúsi 15.000.00
9. Húsfrióunarnefnd tsafjaróar ViðKerð verzlunarhúsa i Neðstakaupstað 30.000.00
10. ByKKÚasafn A-Skaftafellss. UpphvKKÍnK safnhúsa o.fl. 25.000.00
11. Safnahúsid Húsavik Innrétta sali fyrir hvKKðasafn 30.000.00
12. Hörður ÁKÚstsson HúsaKerðarleK þróunarsaKa ísl. hiskupsstóla o.fl. 30.000.00
13. Safnastofnun Austurlands Sófnun muna. skjala ok Kamalla Ijósmynda 15.000.00
14. Minjasafn Austurlands ViðKerðir Kamalla muna 10.000.00
15.Árni Bjornsson Til varðveislu ok skráninuar tónverka Árna
Bjórnssonar 20.000.00
10. Þjoóskjalasafn Kaup á pappirsfyllinKartæki 10.000.00
17. Héraósskjalasafn A-Húnavatnss. Söfnun ok skráninK skjala 20.000.00
18. KvennasóKusafn Islands Flokkun ok skráninK rita 20.000.00
19. InKa Lára Baldvinsdóttir Sófnun KaKna til soku Ijósmvndunar á tslandi 15.000.00
20. Landsbókasafn íslands Filmun vmissa hlaða ok tímarita frá 19. öld 25.000.00
21. ByKKÓasafn Akraness SkráninK á munum safnsins 5.000.00
22. Héraósskjalasafn SkaKfiróinKa Sófnun ok skráninK Ijósmvnda 5.000.00
23. Sjóminjasafn Austurlands Sófnun ok viðKerð sjóminja 10.000.00
24. Héradsskjalasafn Svarfdada SkráninK ‘>K varðveisla heimilda 15.000.00
25. Náttúruverndarráð ÓtKáfa ha klinKa ok lesarka 25.000.00
26. Náttúruverndarráð Likan af JokulsárKÍjúfri ok umhverfi ok loft-
mynd af JókulsárKljúfrum 20.000.00
27. Landakirkja Söfnun ok skráninK soKuleKra minja veana
Landakirkju 10.000.00
28. Líf ok land l’tKáíu- ok fræðslustarfsemi 15.000.00
29. SÍKlufjarðarkaupstaður Sófnun ok skráninK soKuleKra minja i SÍKÍufirði 10.000.00
30. Hið ísl. bokmenntafélaK ÚtKáfa annála 1100—1800 30.000.00
31. I>andvernd ÚtKáfa rita. veKKspjalda ok lesarka 30.000.00
32. SóKufélaK ÚtKáfa Landsyfirréttar- ok ha-staréttardoma
1802-1873 30.000.00
33. Fornleifarannsóknir i Herjólfsdal Til að Ijúka rannsóknum í Herjólfsdal 50.000.00
34. Vestfirsk náttúruverndarsamtok SkráninK náttúru- ok söKuleKra minja 30.000.00
35. ReykjanesfólkvanKur GróðurathuKun á fólkvanKÍnum. s.hl. 25.000.00
36. Guðrún Gisladóttir Rannsokn á RevkjanesfólkvanKÍ 20.000.00
37. FuKlaverndarfél. íslands Verndun ísl. hafarnarstofnsins 10.000.00
38. NáttúruKripasafnið Akureyri Úrvinnsla nátturuverndarkonnunar i Mvvatns-
39. Samtók um náttúruvernd á Norð- sveit 15.000.00
urlandi NáttúruminjaskráninK I SkaKafirði ok N-ÞinK-
40. óskar Gislason eyjarsýslu 15.000.00
EndurkópierinK ok varðveisla kvikmynda
óskars Gislasonar 00.000.00
41. ÞjoðbúninKanefnd LeiðbeininKastöð um Isl. þjóðbúninKa 35.000.00
42. PrestafélaK Ilólastiftis Reisa minnisvarða vegna 1000 ára
kristnihoðshátiðar 1981 15.000.00
Alls kr. 960.000.00