Morgunblaðið - 25.06.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981
Kirkjan stofnar út-
gáfufélagið Skálholt
Sjálfstæðisþing-
menn á Akureyri
Alþingismennirnir Salome Þorkelsdóttir, Friðrik Sophusson og
Lárus Jónsson munu ræða stjórnmálaviðhorfið og störfin á nýloknu
Alþingi á fundi á Akureyri í kvöld.
Það eru sjálfstæðisfélögin á Akureyri, sem til fundarins boða, og
hefst hann klukkan 20.30 að Hótel Varðborg.
Islenzkir steinar
í Norræna húsinu
í anddyri Norræna hússins
og hókasafni hefur verið sett
upp sýning á íslenzkum stein-
um, sýnishorni af íslenzkum
steinategundum viða af land-
inu. Náttúrufræðistofnun ís-
lands hefur lánað steinana og
annast uppsetningu þeirra og
mun hún standa til 15. ágúst
og er opin kl. 9—19 alla daga
nema sunnudaga kl. 12—19.
Ljósm. Rax
Nýjar forvalsreglur Alþýðubandalagsins í Reykjavik:
Borgarfulltrúar og alþingis-
menn ekki með í fyrri umferð
NÝJAR forvalsreglur fyrir borgarstjórnar- og alþingiskosningar
voru samþykktar á framhaldsaðalfundi Alþýðuhandalagsins í Reykja-
vík sem haldinn var nýverið. Reglur þessar eru fráhrugðnar þeim
eldri að því leyti að í fyrri umferðinni er ekki heimiit að tilnefna
starfandi borgarfulltrúa eða alþingismenn flokksins, en þeir skulu
hins vegar settir á listann í síðari umferð, gefi þeir kost á sér.
Niðurstöður forvalsins eru ekki hindandi fyrir kjörnefnd.
Kristján Valdimarsson starfs-
maður Alþýðubandalagsins í
Reykjavík sagði í viðtali við Mbl.
að þessar nýju reglur um forval
væru í meginatriðum hinar sömu
og gilt hefðu fyrir vetrarkosn-
ingar 1979, en þó fór í fyrsta sinn
fram forval. Kristján sagði: „For-
valið fer fram í tveimur umferðum
og er bundið við flokksmenn. Rétt
til þátttöku hafa fullgildir félags-
menn, en fullgildir félagsmenn eru
þeir, samkvæmt okkar skilgrein-
ingu, sem ekki skulda meira en
eitt árgjald.
Reglunum var breytt á þann
hátt nú, að í fyrri umferð, sem
áður var tilnefningarumferð,
verða eingöngu í kjöri þeir sem
ekki eru kjörnir borgarfulltrúar
eða þingmenn fyrir kosningar.
Þessi umferð þjónar þeim tilgangi
að leita að nýjum starfskröftum. í
síðari umferð koma þeir aftur á
móti inn, ef þeir gefa kost á sér og
þar verða einnig nöfn úr fyrri
umferðinni. Að loknum þessum
tveimur umferðum er síðan raðað
12 nöfnum á lista fyrir alþingis-
kosningar og 15 eða 21 nafni fyrir
borgarstjórnarkosningar, eftir því
hversu borgarfulltrúar verða
margir."
— Eru niðurstöður forvalsins
bindandi?
„Nei, þær eru ekki bindandi.
Kjörnefnd, sem samanstendur af
sjö mönnum kjörnum á félags-
fundi, er frjálst að gera breyt-
ingar til félagsfundar, en hún
birtir eigi að síður niðurstöður úr
fyrri umferðinni, þannig að menn
viti hvernig fyrri umferðin hefur
farið.
Þá er miðað við í reglunum að
hvor umferð forvalsins standi í
tvo daga ef kostur er. Þá er kveðið
á um framkvæmd forvalsins, og
kynningu þátttakenda í síðari
umferð. í lögum Alþýðubanda-
lagsins er ákvæði um að miðstjórn
staðfesti forvalsreglur hinna
ýmsu flokksfélaga."
Kristján sagðist ekki vita til að
forvalsreglur sem þessar væru í
öðrum flokksfélögum Alþýðu-
bandalagsins. Þó hefðu verið sér-
stakar reglur á Reykjanesi fyrir
síðustu kosningar og eitthvað
hefði verið rætt um forval á
Akureyri.
Frá stjórnarfundi útgáfufélagsins Skálholts. Talið frá vinstri: Sr. Bernharður Guðmundsson, Ársæll
Ellertsson, Maria Pétursdóttir. Rósa Björk Þorbjarnardóttir form. félagsins, Páll Bragi Kristjónsson, Gisli
V. Einarsson. sr. Guðmundur Óskar ólafsson, Jón Sigurðsson form. framkvæmdanefndar, sr. Jónas
Gíslason og Sigurður Pálsson framkvæmdastjóri félagsins.
Ráðgert aukið sam-
starf íslands, Fær-
eyja og Grænlands
RÁÐINN hefur verið sérstakur starfsmaður á vegum Norðurlanda-
ráðs til að vinna að auknu samstarfi um sameiginleg hagsmunamál
íslands, Færeyja og Grænlands, en innan Norðurlandaráðs hefur
verið fjallað um samvinnu af þessu tagi. Hefur embættismannanefnd
ráðsins bent á nauðsyn þcssa samstarfs, en i starfið hefur verið ráðinn
Færeyingurinn Tomas Arabaa. framkvæmdastjóri Strandferðaskipa
landsins.
Sérstök undirnefnd á vegum
áðurnefndrar embættismanna-
nefndar hefur starfað síðan í
desember, en í henni eiga sæti
Bjarni Einarsson frá fram-
kvæmdastofnun og Jónas Hall-
grímsson bæjarstjóri á Seyðisfirði
og frá Færeyjum þeir Árni Ólafs-
son skrifstofustjóri landsstjórnar-
innar og Jakob Sv. Johnsen fiski-
fræðingur. Starfsmanninum, sem
nú hefur verið ráðinn, er ætlað að
vinna að margvíslegum verkefn-
um er gætu stuðlað að nánari
samvinnu þjóða á svæði sem
stundum hefur verið nefnt „Vest
Norden", en þar eru einkum höfð í
huga Island, Færeyjar og Græn-
land. Nærri 20 umsóknir bárust
um starfið. Starfsmaðurinn hefur
aðsetur í Færeyjum og mun einnig
ferðast til Islands og Grænlands
og hefur hann starfsaðstöðu hjá
Framkvæmdastofnun.
Þjóðleikhús Svía
kaupir Stundarfrið
DRAMATEN, þjóðleikhús Svía, hefur keypt sýningar-
rétt á leikriti Guðmundar Steinssonar, Stundarfriði, og
verður leikurinn sýndur þar á næsta eða þarnæsta
leikári, segir í frétt frá Þjóðleikhúsinu.
Sýningar Þjóðleikhússins á Orfá íslensk leikrit hafa verið
Stundarfriði í útlöndum hafa sýnd á Dramaten, eða Kungliga
vakið mikla athygli, t.d. var borið
mikið lof á bæði leikrit og
sýningu á hátíðunum í Wies-
baden og Lúbeck á dögunum, og
hafa ýmis leikhús sýnt áhuga á
að sýna verkið, m.a. leikhús í
Bandaríkjunum. En nú er ljóst,
að Svíar verða einna fyrstir til.
Leikurinn hafði fengið feikna
góða dóma, þegar Þjóðleikhúsið
sýndi hann í Stokkhólmi í haust,
segir í fréttinni.
dramatiska teatern eins og íeik-
húsið heitir fullu nafni, en ekkert
um áratugi, ekki síðan leikrit
Kambans „Vér morðingjar" og
leikrit Jóhanns Sigurjónssonar
Fjalla-Eyvindur og Galdra-
Loftur voru sýnd þar á fjölunum
á öðrum áratug aldarinnar.
Leikstjóri hefur ekki verið
ákveðinn fyrir sýninguna, en
leikhússtjóri á Dramaten er nú
Finninn Lasse Pöysti.
Á kristniboðsárinu 1981 hefur
verið stofnað nýtt útgáfufélag að
tilhlután Kirkjuráðs til að gefa
út hlað. standa fyrir bókaútgáfu
og annast samræmingu og aðstoð
við skylda útgáfustarfsemi.
Fyrsta verkefni félagsins er að
hefja útgáfu blaðs í haust, sem
ráðgert er að berist almenningi
hálfsmánaðarlega fyrst um sinn.
Útgáfufélagið mun heita Skál-
holt, en Valdimar Jóhannsson
Politikcn-skákmótið:
Margeir með
3‘/2 vinning
TVEIR íslrndingar tefla um
þessar mundir á skákmóti I
Kaupmannahöfn, Politiken-
mótinu. Eru það Margcir Pét-
ursson og Sævar Bjarnason.
Eftir fimm umferðir hefur
Margeir 3 og hálfan vinning og
Sævar 2. í efsta sæti eru nokkuð
margir skákmenn og hafa þeir 4
vinninga. Þá teflir þarna Svíinn
Dan Hanson og er hann með 3
vinninga, en hann hefur lengi
búið á Islandi. Biðskákir á að
tefla í dag, en síðan eru fjórar
umferðir eftir á mótinu.
Varðskip kann-
ar netalagnir
Stykkishólmi. 24. júni.
VARÐSKIP kannaði í fyrri-
nótt árósa í Snæfellsnes- og
Hnappadaissýslum. eí vera
kynni þar ólöglegar netalagn-
ir. Voru uppi grunsemdir um
ólöglegar netalagnir. Siglt var
að öllum árósum á svæðinu og
athugað hvort laxanet sæjust,
en ekki fannst neitt athuga-
vert.
Talsverð brögð hafa verið að því
að skotið hafi verið á umferðar-
merki hér um slóðir. Verða hvers
kyns leiðbeininga- og aðvörunar-
merki fyrir barðinu á skotglöðum
mönnum, sem virðast svífast
einskis og leggja stund á þessa
skemmdarstarfsemi. Getur það
vissulega verið vegfarendum til
ama og jafnvel er hætta á slysum
ef nauösynleg aðvörunarmerki eru
skotin niður.
Fréttaritari.
forstjóri Iðunnar hefur sýnt þá
velvild að afhenda biskupi fyrir
hönd þjóðkirkjunnar firmanafnið
Skálholt. Blaðið mun heita Víð-
förli og mun flytja almennt efni,
skýra kristin sjónarmið í dagsins
önn og verða vettvangur málefna-
legra skoðanaskipta auk þess að
flytja fréttir af starfi kirkjunnar.
Útgáfufélagið Skálholt er sjálfs-
eignarstofnun og er formaður
stjórnar Rósa Björk Þorbjarnar-
dóttir endurmenntunarstjóri. í
samtali við Mbl. sagði hún hér
farið af stað í bjartsýni með
ákveðna tilraun og með Víðförla,
sem yrði m.a. vettvangur fyrir
almenn og víðsýn skoðanaskipti,
yrði til blað við hlið Kirkjuritsins,
en Víðförla væri ekki stefnt gegn
því.
Framkvæmdanefnd skipuð
þremur stjórnarmönnum ber
ábyrgð á daglegu starfi félagsins.
Jón Sigurðsson skólastjóri í Bif-
röst er formaður hennar og með
honum sr. Bernharður Guðmunds-
son fréttafulltrúi og Páll Bragi
Kristjónsson rekstrarhagfræðing-
ur. Aðrir í stjórn eru Gísli V.
Einarsson framkvæmdastjóri, sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson for-
maður Prestafélags íslands, sr.
Jónas Gíslason dósent og María
Pétursdóttir formaður Kvenfé-
lagasambands íslands. Sigurður
Pálsson námsstjóri hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri í hluta-
starfi fyrst um sinn.
Dæmdir fyr-
ir nauðgun
NÝLEGA var kveðinn upp
í sakadómi Reykjavíkur
dómur i nauðgunarmáli.
Nauðgun þessi átti sér stað
nálægt áramótunum 1979/80.
Tveir piltar, annar 18 ára og
hinn tæplega 18 ára þegar
atburðurinn varð, réðust að
stúlku á svipuðum aldri, sem
var í heimsókn hjá öðrum
þeirra. Annar piltanna nauðg-
aði stúlkunni en hinn aðstoð-
aði hann við verknaðinn.
Nauðgarinn var dæmdur í 12
mánaða fangelsi en aðstoðar-
maðurinn í 10 mánaða fang-
elsi, skilorðsbundið að hluta.