Morgunblaðið - 25.06.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.06.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1£81 Páfi enn sjúkur en þó á batavegi Vatikaninu. 24. júni. AP. LÆKNAR JPáls páfa söj?ðu í dag, að hann þjáðist af veirusýkingu, sem trúleKa mætti rekja til blMgjafarinnar, scm hann fékk eftir að reynt var að ráða hann af dogum 13. maí sl. Að þeirra söjcn er páfi nú á batavegi og er líkamshitinn orðinn eðlilegur. í yfirlýsingu frá læknum við Gemelli-sjúkrahúsið, þar sem páfi var til meðferðar, sagði, að ekki væri óalgengt, að þessi sérstaka veira bærist á milli manna við Veður víða um heim Akureyri 16 hálfkýjaó Amsterdam 19 heióskirt Aþena 31 heióskírt Barcelona 22 hálfskýjaó Berlin 18 skýjaó Briissel 20 heióakírt Chicago 25 rigning Oenpasar 30 láttskýjaó Oyflinni 18 skýjaó Feneyjar 20 þokumóóa Frankfurt 22 heióskírt Færeyiar vantar Genf 19 heíóskírt Hetsinki 16 rigning Hong Kong 30 heióskírt Jerúsalem 27 heióskírt Jóhannesarborg 15 heióskírt Kairó 37 heiðskírt Kaupmannahöfn 22 skýjaó Lissabon 24 bjart London 19 skýjaó Los Angeles 31 heióskírt Madrid 27 skýjað Malaga 24 þokumóóa Mallorka 24 skýjaó Mexicoborg 22 heióskirt Miami 30 skýjaó Moskva 31 heióskírt Nýja Dehlí 38 skýjaó New York 28 heióskírt Osló 19 skýjaó París 23 skýjaö Perth 14 skýjaó Reykjavík 12 skýjaö Ríó de Janeiro 25 skýjaó Rómaborg 22 rigning San Francisco 18 heióskírt Stokkhólmur 21 heióskírt Sydney 14 bjart Tel Aviv 29 heióskírt Tókýó 25 skýjaó Vancouver 18 skýjaó Vtnarborg 16 rigning Jóhannes Páll páfi. Moshe Dayan: ísraelar geta smíð- að kjarnorkuvopn „Viljum ekki verða fyrstir - en heldur ekki of seinir“ hún getur valdið og gulu í fullorðnu blóðgjöf, en lifrarveiki fólki. Páll páfi fékk brjósthimnubólgu eftir að hann kom heim af sjúkra- húsinu 4. júní sl. en læknar segja, að veira hafi ekki valdið henni þó að hún kunni að hafa greitt götu hennar. Ekkert hefur verið ákveð- ið með það hvenær páfi snýr aftur heim í Vatikanið og enn á hann eftir að gangast undir uppskurð vegna sáranna, sem hann hlaut í tilræðinu við hann. Tel Aviv, 24. júni. AP. MOSIIE Dayan, fyrrum utanrik- isráðherra Israel, sagði i dag að ísraelar gætu smiðað kjarnorku- vopn og myndu gera svo ef arahar kæmu sér upp kjarn- orkusprengjum i Mið-Austur- löndum. Dayan gaf þessa yfirlýsingu i viðtali við fréttamann italska sjónvarpsins og staðfesti hana i viðtali við AP. Hann tók það fram að ísraelar myndu ekki verða fyrstir til að koma sér upp Frelsissveitarmenn gera árásir í Kabúl Islamahad. 21. júni. AP. HAFT ER eftir vestrænum sendimönnum i Islamabad i Pakistan, að afganskir frelsis- sveitarmenn láti nú æ meira til sín taka í Kabúl og nágrenni hennar og að gerðar hafi verið árásir á ýmsar byggingar, sem tilheyra lcppstjórn Babrak Karmals, og margir menn felld- ir. Að sögn sendimanna og ferða- manna frá Kabúl hafa margir embættismenn og flokksmenn marxistastjórnarinnar verið felldir að undanförnu, einkum að næturlagi en einnig um hábjart- an dag á götum úti. Ráðist hefur verið á byggingar og hand- sprengjum varpað að bifreiðum embættismanna þar sem þeir hafa verið á ferð. Til nokkurra átaka hefur kom- ið milli stríðandi fylkinga innan stjórnarflokksins og er hermt, að fimm menn hafi fallið í þeim. Örvæntingarfullar tilraunir stjórnarinnar til að fá menn til að skrá sig í herinn virðast engan árangur hafa borið og er nú svo komið, að farið er að skylda embættismenn lepp- stjórnarinnar til herþjónustu. kjarnorkusprengjum í Mið- Austurlöndum en bætti því við að þcir vildu heldur ekki verða oí seinir til þess. Dayan sagði að Israelum hefði aldrei komið til hugar að nota kjarnorkuvopn í stríðum sínum við araba hingað til. En nú hefðu allar aðstæður breyst þar sem hugsast gæti að Saddam Hussein, forseti írak, og Moammar Khad- afy Líbýuforseti tækju slík vopn í notkun. Menachem Begin, forsæt- isráðherra ísrael, hafði í kvöld ekkert sagt um þessa yfirlýsingu Dayans en aðstoðarmaður for- sætisráðherrans sagði að hann væri þrumu lostinn. Talsmaður Begins sagði í dag að Saddam Hussein hefði komið fram með nýjar sannanir fyrir því að írakar hygðust nota kjarn- orkuvopn gegn ísrael. ísraelar sögðu ástæðuna fyrir árásinni á kjarnorkuverið nærri Bagdad 7. júní sl. einmitt vera þá að Irakar hygðust framleiða þar kjarnorku- vopn sem þeir ætluðu að nota gegn ísrael. Talsmaðurinn, Uri Porat, vitn- aði í orð Saddam Husseins til ráðherra sinna þess efnis að önnur lönd yrðu að aðstoða araba við að koma sér upp kjarnorku- sprengjum til að vega upp á móti því sem hann kallaði „hina raun- verulegu ísraelsku kjarnorku- sprengju". „Hussein staðfestir einfaldlega það sem okkur grunaði," sagði Porat. „Þetta er sönnun þess að það eina sem Irakar vilja er að verða sér úti um kjarnorku- sprengju sem þeir geti notað gegn ísrael." Sendiherra Brasilíu í ísrael var kallaður heim til viðræðna í gær. Brasilíumenn hafa kvartað yfir því að ísraelskir njósnarar hafi reynt að koma á kreik sögum um að Brasilíumenn hafi selt írókum úraníum. Samningur er í gildi milli Brasilíumanna og íraka um gagnkvæm upplýsingaskipti varðandi rannsóknir á kjarnorku en Brasilíumenn neita því stað- fastlega að hafa sent úraníum til Bagdad. Bandariskir þingmenn: Andvigir sölu á AWACS- þotum til Saudi-Arabiu WashinKton. 24. júní. AP. MEIRIIILUTI bandariskra þingmanna lýsti sig i dag and- vigan sölu á AWACS-flugvélum til Saudi-Arabíu. Einn þing- mannanna lýsti þvi yfir að ef Reagan bæri fram tillögu um söluna í þinginu yrðu það mestu mistök sem hann hefur gert. Það kom einnig fram á blaða- mannafundi að 54 öldungardeild- arþingmenn hafa ritað forsetan- um bréf þar sem þeir hvetja hann til að falla frá hugmyndinni um að selja Saudi-Aröbum þoturnar. Meðal þeirra eru 20 repúblikanar. Reagan tilkynnti í mars sl. að hann hygðist selja Saudi-Aröbum fimm AWACS-þotur auk annarra vopna. Hann hefur frestað því að bera tillöguna fram í þinginu til að gefa aðstoðarmönnum sínum tíma til 'að tryggja henni fylgi meirihluta þingmanna. Fréttaskýring Frakkland: Kommúnistar snúa við blaðinu fyrir stjórnarstólana - en mun sagan frá 1947 endurtaka sig? Francoís Mitterrand hefur nú ákveðið að hleypa kommúnistum inn fyrir dyrnar á franska stjórn- arhcimilinu og er það i fyrsta sinn síðan 1947, að þeim gefst það tækifæri. Þessi ákvörðun þarf ekki að koma neinum á óvart enda leggur Mitterrand mikla áherslu á einingu vinstri- manna — hvað sem líður skoðun- um hægrimanna heima eða er- lcndis. Jafnaðarmenn þurfa ekki á stuðningi kommúnista að halda í þinginu, síður en svo, þeir hafa þar hreinan meirihluta og hefðu getað látið kröfur þeirra sem vind um eyru þjóta, enda misstu kommúnistar helming þingsæta sinna í kosningunum. Það hefur hins vegar lengi verið hugsjón Mitterrands að sameina vinstri- menn auk þess sem augljóst er, að kommúnistar verða auðveldari viðfangs innan stjórnar en utan þar sem þeir ráða enn stærsta verkalýðssambandinu og hefðu vafalaust valdið stjórninni enda- lausum erfiðleikum ef þeir hefðu verið hundsaðir. Mitterrand getur líka .á það bent, að kommúnistar hafa fallist á stefnu jafnaðarmanna jafnt í innanlandsmálum sem utanrík- ismálum þó að þeir kunni að hafa skrifað undir það síðarnefnda með Georges Marchais. leið- togi kommún- ista, ásamt Mitterrand og Rohert Bahre, formanni Rót- ta‘ka vinstri- flokksins, sam- starfsflokks jafnaðar- manna. Marchais hefur orðið að kyngja ýmsu á skömm- um tíma — en hve lengi? nokkrum semingi. í innanlands- málum ber hæst aukna félagslega aðstoð, þjóðnýtingu meiriháttar fyrirtækja og hærri skatta á miklar tekjur. Undir þetta hafa kommúnistar getað tekið án þess að hugsa sig um, en hitt sætir meiri tíðindum, sem þeir, féllust á í utanríkismálum. I utanrikismálum hafa komm- únistar gjörsamlega kúvent, á yfirborðinu a.m.k., og í raun gert kröfur franskra jafnaðarmanna og NATO að sínum kröfum. Nú krefjast þeir þess, að Sovétmenn hypji sig á brott með innrásarliðið úr Afganistan og kveður þar nokkuð við annan tón en eftir innrásina 1979, þegar forysta kommúnistaflokksins samþykkti einróma stuðning við aðgerðir Sovétstj órnari nnar. I samstarfssamningi flokkanna er lagt til, að haldin verði alþjóð- leg ráðstefna um takmörkun víg- búnaðarkapphlaupsins, „einkum með tilliti til rússnesku SS-20-eldflauganna og *þeirrar ákvörðunar að koma fyrir banda- rískum eldflaugum í Evrópu" og er hér greinilega farið bil beggja, en sem kunnugt er hafa franskir jafnaðarmenn samþykkt að bandarísku eldflaugunum verið komið fyrir til mótvægis við þær rúsSnesku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.