Morgunblaðið - 25.06.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981
5
Varði doktorsrit-
gerð um blóðsökk
IIINN 27. mai síðastliðinn varði
Vilhjálmur Rafnsson iæknir dokt-
orsritgerð við læknadeild Gauta-
borgarháskóla. Ritgerðin heitir
_The erythrocyte sedimentation
rate. Observations in a population
sample of women and male and
female patients,“ sem er i lauslegri
þýðingu: Blóðsokk, athuganir
byggðar á úrtaki kvennahóps og
sjúklinga, bæði korlum og konum.
Andmæiandi var prófessor Lars Er-
ik Böttiger, Karólinska sjúkrahús-
inu. Stokkhólmi.
í frétt sem Mbl. hefur borizt segir
svo:
Blóðsökk eða sökk er rannsóknar-
aðferð, sem notuð hefur verið í meira
en fimmtíu ár, og á enn tiltrú
sjúklinga og lækna. Það er alkunna
að sökkið stígur við suma smitsjúk-
dóma og bólgusjúkdóma. Markmiðið
með þessum athugunum var að auka
þekkingu á gildi blóðsökks við hóp-
rannsóknir, svo og við rannsóknir og
umönnun sjúklinga.
Sökk hækkar með aldri. Þetta
stafar aðailega af aldursbundinni
aukningu á ákveðnum eggjahvituefn-
um í blóðinu. Sökkið getur hækkað
við margvísleg skilyrði, og ekki er
með sökkinu einu hægt að ákvarða
hvort einstaklingur er veikur eða
frískur. Með sökkinu er ekki hægt að
spá fyrir um hvort einstaklingur er í
aukinni hættu að fá hjartaslag. Sökk-
ið segir ekki heldur fyrir um hvort
einstaklingur fær krabbamein eða
ekki, og það er til lítillar hjálpar við
að uppgötva krabbamein á byrjun-
arstigi. Þeim sem höfðu hátt sökk var
fylgt eftir i sex ár og reyndust þeir
ekki hafa aukna tíðni krabbameins né
aukna dauðratölu.
Sökkið virtist hafa notagildi við að
fylgjast með gangi sjúkdóms og við
greiningu ákveðinna sjúkdóma. Við
athugun á sjúkrahúsum og lækna-
stofum í Gautaborg kom í ljós að
gerðar eru mjög margar sökkrann-
sóknir. Um það bil helmingur sökk-
mælinganna er gerð í heilsurann-
sóknaraugnamiði, en niðurstöður rit-
gerðarinnar sýna að einmitt við
þessar aðstæður hafði rannsóknin
takmarkað gildi.
Niðurstöður doktors Vilhjálms
hafa vakið mikla athygli í Svíþjóð og
hefur verið greint frá þeim í dagblöð-
um og sjónvarpi.
Vilhjálmur er sonur hjónanna
Huldu Olgeirsdóttur og Rafns Jóns-
sonar tannlæknis. Hann lauk lækna-
prófi frá Háskóla Íslands 1973 og er
sérfræðingur í heimilislækningum.
Hann leggur um þessar mundir stund
á atvinnusjúkdómafræði við Sahl-
grenska sjúkrahúsið í Gautaborg.
Vilhjálmur er kvæntur Önnu Ingólfs-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
klubbuY
Betri skemmtanir
Betri ferðir
Betra líf
Mallorca
Klúbbur 25 til Mallorca. 8. júlí — 3 vikur
Vinsælu baöstrendurnar: Palma Nova/Magaluf
Sólskinsparadísin iöandi af lífi og fjöri. —
Eftirlætisstaður unga fólksins. Einstakt tilboö.
Verö frá kr. 4.600- Fá sæti til ráðstöfunar. Gríptu
SOOVl»
HOOVER
ekki bara ryksuga...
Teppahreinsarinn frá HOOVER ekki aðeins
ryksugar teppið, hann hreinsar að auki úr því
margskonar önnur óhreinindi sem ryksuga nær
ekki eins og t.d. • Klístur •Þráðarenda
• Dýrahár • Sand úr botni
• Bakteríumyndandi sveppa- og gerlagróður
Jafnframt ýfir hann flosið svo að teppið er ætið
sem nýtt á að líta, og það á jafnt við um
snöggtsem rya. Fjölþætt notaglldi fylgihluta.
Og það er staðreynd að teppið endist þér lengur.
HOOVER
ég banka.bursta
ogsýg...
FALKIN N
SUÐURLAN DSBRAUT 8, SÍMI 84670
!i steinprýði
Smiðshöfða 7, gengið inn frá Stórhöfða, simi 83340
Vegna eiginleika sinna hefur Thoroseal verið valið á þak Laugardals-
hallarinnar, en það er góður vitnisburður um árangur Thoroefnanna á
íslandi. Thoroseal er sementsefni sem fyllir og lokar steypunni, en andar
án þess að hleypa vatni í gegn. Thoroseal er fáanlegt í litum.