Morgunblaðið - 25.06.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981
15
um neina meiriháttar uppbygg-
ingu að ræða án nýrra virkjana.
Ég fæ því ekki séð að orkan geti í
þessum skilningi verið burðarás í
hraðvirkum efnahagsaðgerðum í
nánustu framtíð.
í fjórða lagi má skilja hugmyndir
Eyjólfs þannig, að lækkun verð-
bólgu valdi ekki samdrætti né
atvinnuleysi, en því hefur m.a.
nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði
F.A. Hayek hafnað. Skýringin er
fólgin í eðli verðbólgunnar, sem er
að hvetja efnahagslífið á meðan
hún stigmagnast, á þann hátt að
menn vinna margvísleg störf sem
einungis er hagkvæmt að vinna
meðan verðbólgan stigmagnast, en
leggjast af, þegar hún minnkar
eða stigmagnast ekki lengur. Af
þessu er ljóst að lækkun verðbólgu
fylgir óhjákvæmilega einhver
samdráttur, á meðan aðlögun að
breyttum veruleika á sér stað.
I fimmta lagi kemur ekki fram
skilningur á hlutverki peninga-
málastjórnar í hagkerfinu, sem
flestir hagfræðingar leggja þó
mikla áherslu á. Ef tekið er mið af
reynslu annarra þjóða í þessum
efnum, þá vekur það furðu, hversu
íslenskir stjórnendur þjóðarbús-
ins veita litla athygli sambandi
peningamagns og verðlags, þrátt
fyrir að ævinlega fari saman
aukið peningamagn og hækkandi
verðlag. Það má og færa fyrir því
gild rök, að óstjórn peningamála
hafi valdið mestu um efnahags-
vanda íslendinga, enda er verð-
bólga umfram allt peningalegt
fyrirbæri. Það ætti því að vera
ljóst, að til þess að ráða niðurlög-
um verðbólgu hérlendis verður
stjórn peningamála að breytast úr
óvirkri í virka stjórn. Með því er
átt við að í stað þess að láta
framboð peninga fara eftir eftir-
spurn innanlands og framvindu
utanríkisviðskiptanna, þá þurfa
stjórnvöld (ríkisstjórn og Seðla-
banki) að stjórna framboði pen-
inga, a.m.k. innlends lárisfjár, og
láta eftirspurnina ráðast af því.
Þrátt fyrir að í hugmyndum
Eyjólfs Konráðs sé samspili hag-
stærða ekki nægur gaumur gefinn,
þá má um þær segja, að sem
viðræðugrundvelli ber að fagna
þeim, enda er það sjaldgæft, að
alþingismenn hafi áhuga eða
burði til að staldra við og líta ofar
dægurbaráttunni.
og þykir flestum sennilega nóg um
upptalninguna, sem komin er. Þó
langar mig til að nefna aðeins
frekar efni greinarinnar um upp-
töku ólöglegs sjávarafla. Sam-
kvæmt lögum nr. 32/1976 er sjáv-
arútvegsráðuneytinu gefin heim-
ild til upptöku andvirðis ólöglegs
sjávarafla, án þess að undan fari
dómsrannsókn. Nú virðist í fljótu
bragði, að þessi lög brjóti tvær
meginreglur réttarríksins, regl-
una um þrískiptingu ríkisvaldsins
og að þau skerði réttaröryggi
þegnanna óeðlilega. Það sem er
merkilegt, er, að svo hefur ekki
farið. Til þess liggja tvær ástæður.
Önnur er sú, að þessi mál valda
yfirleitt ekki ágreiningi. Þess
vegna sætta menn sig við úrskurð
ráðuneytisins, og engu máli hefur
verið skotið til dómstóla frá því
lögin tóku gildi. Hin ástæðan er
sú, að færu öll þessi mál fyrir
dómstóla, myndi það taka mun
lengri tíma en nú er, að komast að
niðurstöðu og kostnaður myndi
aukast verulega. Ráðuneytið er
mun skilvirkara en dómstólarnir.
En eftir stendur, að svo virðist
sem réttindi einstaklinganna hafi
verið skert, en allir sætti sig við
það, og það virðist jafnvel hafa
leitt til góðs fyrir alla. Þetta held
ég, að geti verið fróðlegt umhugs-
unarefni öllum, sem hugleiða rétt-
indi þegnanna og vald ríkisins.
Greinarnar í þessari bók eru
allar fróðlegar og flestar skýrt og
skipulega skrifaðar. Bókin er vel
upp sett, í góðu broti, og ég kom
ekki auga á nema eina prentvillu.
Ritnefndin hefur unnið mjög gott
verk, en í henni voru auk Ragn-
hildar Helgadóttur, þau Elín
Pálmadóttir og Hannes H. Gissur-
arson. Þetta er gagnleg og eiguleg
bók, helguð heiðurskonu.
Erlendar
baekur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Once a Spy
eftir Rennie Airth
Njósnasögur, vel sagðar og
uppbyggðar, eru mér hugnanleg
lesning og svo er um marga. Það
er gott að finna ónotahríslinginn
og spenninginn og stundum er
óhjákvæmilegt að maður verði
að brjóta heilann, ef söguþráður-
inn verður of flókinn. Þá er að
taka því. Once A Spy eftir
Rennie Airth segir frá Elaney,
sem hafði eina stund verið
njósnari, en hefur nú fyrir löngu
dregið sig út úr því öllu saman
og sett á stofn fyrirtæki, sem sér
um að hanna hvers konar örygg-
isútbúnað o.fl. í þeim dúr. Hann
er ekkert mjög ánægður með
þetta hlutskipti sitt. Það eru
liðin sautján ár síðan Blaney var
við störf í Berlín og nú vitjar
hans á ný fortíðin í gervi Mc-
Ivers sem kom þar við sögu.
Ástæðan er sú að þrjú þeirra
sem voru í Berlínarstarfinu á
árum áður hafa dáið voveiflega á
skömmum tíma. Tveir karlmenn
skotnir eða skornir og konunni
Sophy svipt út af altani á
áttundu hæð. Þetta er ekki vel
skiljanlegt vegna þess að svo
langur tími er liðinn. Ef runnin
er upp stund hefndarinnar þá
hvers vegna nú en ekki fyrir
mörgum árum eða eftir mörg ár.
Mclver fær Blaney til að taka að
sér að athuga málið og hann
flækist út og suður og lendir í
hinum mestu mannraunum. En
auðvitað komast upp svik um
síðir. Og eins og tilheyrir góðri
njósnasögu er auðvitað góði vitri
yfirvegaði maðurinn sem allir
horfðu til með lotningu einn
helzti svikahrappurinn. Svoleiðis
enda gjarnan njósnasögur. Það
væri fróðlegt að vita hvernig það
er í raunveruleikanum.
Þetta er læsileg saga og
Rennie Airth tekst að magna
upp spennu og halda henni, gerir
söguþráðinn hæfilega flókinn og
leiðir ekki of margar persónur
fram samtímis svo að hægt sé nú
að henda reiður á þessu öllu.
RENNIE AIRTH
Once a Spy
Hann segir sögu manns — ekki
neins súpertöffara sem er svo
klókur og æðislegur — heldur
manns sem er fjarskalega venju-
legur og á í raun ekki heima í
þessu umhverfi sem hann kast-
ast inn í. En geldur þess að eitt
sinn var hann njósnari og verður
að taka afleiðingum þess.
Bókin er gefin út af forlagi
Jonathan Capes og mér skilst að
Airth hafi gefið út eina bók áður
sem heitir „Snatch" og fékk hún
hina ágætustu dóma. Það er líka
alveg óhætt að mæla með Once
A Spy, hún stendur fyrir því sem
henni er ætlað.
F élagsmálastof nun
Reykjavikur:
Sumarstarf
aldraðra hafið
SUMARSTARF eldri horgara I
Reykjavik er nú hafið, en vetrar-
starfinu lauk með sýningu í félags-
miðstöðinni að Norðurbrún 1, um
sl. mánaðamót.
Gefinn hefur verið út sérstakur
kynningarbæklingur um sumar-
starfið á vegum Félagsmálastofnun-
arinnar og liggur hann frammi í
húsum félagsstarfsins, þ.e. að Norð-
urbrún 1, Lönguhlíð 3 og Furugerði
1. Þar er sumardagskráin kynnt
nánar og getur fólk fengið hana sér
til frekari glöggvunar.
í sumarstarfinu verða m.a. 10
dagsferðir og lagt af stað í allar þær
ferðir frá Alþingishúsinu, eina
tveggja daga ferð til Akureyrar, og 4
dvalarflokkar verða á Löngumýri
sumarið 1981.
Þegar hefur verið farið í 3ja vikna
ferðir til Costa del Sol í samvinnu
við Ferðaskrifstofuna Útsýn þar sem
þátttakendur voru tæplega 90 og er
gert ráð fyrir sólarlandaferð að
hausti einnig.
Opið hús verður í sumar á eftirtöld-
um stöðum: að Norðurbrún 1, kl.
10.00 á miðvikudögum. í Lönguhlíð 3,
kl. 13.00 á föstudögum. Að Furugerði
1, kl. 13.00 á mánudögum.
■vV.> W
r: >-
Snjótroðarar frá 120 til 150
hestöfl með öllum hugsan-
legum aukabúnaði
Allar stærðir og gerðir
af skíðalyftum
Skíðalyftur Snjótroðarar.
Höfum tekið að okkur sölu
og þjónustu á íslandi fyrir
hið þekkta fyrirtæki
LEITNER á Ítalíu.
LEITNER er einn
stærsti framleiðandi
Evrópu á skíðalyftum
og snjótroðurum.
Getum nú boðið allar
stærðir og gerðir af
þessum tækjum.