Morgunblaðið - 25.06.1981, Page 17

Morgunblaðið - 25.06.1981, Page 17
MÖRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981 17 Strákarnir voru hinir hressustu og létu smákuldagjóstur ekki trufla sig. Þeir eru talið frá vinstri: Kristján H. Kristjánsson frá Seltjarnarnesi. Valdimar örn Halldórsson, Reykjavik, Hilmar Viðarsson, Reykjavik, Bjarni Guðmundsson, Reykjavik, Snorri örn Bennó og Steina stjórnuðu fjöldasong við varðeld hópsins i drengjaskátaskálanum um kvöldið. „Rúllandi, rúilandi. — Veltandi, veltandi, — standandi, sitjandi" og allir hreyfðu sig i samræmi við textann. Eins og sjá má skemmtu krakkarnir sér hið bezta við varðeldinn. Árnason, Reykjavík, og Guðmundur Kristinn Ásgrimsson, Reykjavík. Þær stöllur brostu sinu bliðasta i kvöldsólinni, enda skaut einn félaginn að: „Ofsalega eruð þið sætar.“ Þær heita. talið frá vinstri: Auður Gná Ingvarsdóttir, Helga Valtýsdóttir og Elin Brynjólfsdóttir. dagsins. Þeir höfðu lent í „stór- kostlegum" ævintýrum í sjóferð fyrr um daginn. „Það var ofsa- gaman," sagði einn þeirra. „Bátinn okkar rak frá landi og við urðum að róa og róa“. — „Já,“ sagði annar, „við hurfum á bak við eyju“. — Hvernig komust þið í land? „Foringinn náði í okkur á vélbáti." - Hvað er nú mest gaman hérna? Nú svöruðu allir í einu og flestir voru á því að mest gaman væri að fara út á vatn á bátum. Þá væru tjaldbúðirnar einnig mjög skemmtilegar. „Að læra að tjalda og steikja pulsur úti og allt saman bara,“ sagði einn. — „Já, og svo fáum við að sofa úti, ef veðrið verður gott.“ — Ég frétti að þið hefðuð góm- að smyglara hér í gærkvöldi. Hvernig gekk það? „Það voru sko vitlausir smyglar- ar og við náðum þeim strax. — Já þeir töluðu ekki einu sinni alvöru- ensku — bara vitlausa ensku." — Hvernig veistu það? Kanntu ensku? „Nei, en einn strákurinn kann ensku og hann sagði okkur það. Ég kann líka pínulítið i ensku, sold- ið.“ „Bara platsmyglarar“ — Var ekki erfitt að handsama þá? „Nei, nei“. — „Annars voru þetta bara platsmyglarar. — Þetta voru bara foringjar sem máluðu sig svarta og voru með nælonsokka yfir hausunum" sagði einn þeirra nánast í trúnaði. — Aldursmörk og verð á nokkrum sumardvalarstöðum Til upplýsinga fyrir foreldra og forráðamenn barna og unglinga kynnti Mbl. sér verð og aldursmörk á nokkrum velþekktum sumardvalarheimilum fyrir born og unglinga í sveit. Fer listinn hér á eftir, en þess er vert að geta, að hér er ekki um tæmandi upptalningu að ræða, því víða eru samkvæmt heimildum Mbl., rekin einkaheimili í sveitum iandsins: Aldursmörk Verð fyrir Bandalag islcnzkra skáta: eina viku Úlfljótsvatn KFUM og K., Reykjavík: 7-13 ára 560 kr. Vindáshlíð 9-12 ára og 595 kr. 12—14 ára 595 kr. Vatnaskógur 9-13 ára 595 kr. 13-17 ára 595 kr. Ölver KFUM og K.. Hafnarfirði: 7—12 ára 595 kr. Kaldársel Dvalartími minnst tvær vikur. KFUM og K., Akureyri: 7—12 ára 546 kr. Hólavatn Dvalartími minnst tvær vikur. Þjóðkirkjan: frá 8 ára 560 kr. Vestmannsvatn Sjónarhæðarsöfnuðurinn, Akureyri: 7-13 ára 600-650 kr. Ástjörn, Kelduhverfi 6-12 ára 560 kr. Dvalartími 4 vikur eða 8 vikur, aðeins drengir. Sumarheimili Sjómannadags: Hraunkoti, Grímsnesi Dvalartími minnst tvær vikur. 6—10 ára 600 kr. Nú? — „En við fengum fullt af kexi og líka kakó fyrir," sagði annar. Næst hittum við að máli þrjár stelpur, þær Auði Gná Ingvars- dóttur, 12 ára úr Reykjavík, Helgu Valtýsdóttur, 9 ára úr Hafnarfirði og Élínu Brynjólfsdóttur, 11 ára úr Reykjavík. Þær Auður og Elín sögðu dvölina „æðislega", og sögðu að þetta væri fimmta sumarið þeirra þarna. Aðspurðar sögðust þær ekki vera skátar. „Við vorum ljósálfar einu sinni en ætlum sko að verða skátar í haust," sagði Auður Gná. Bátarnir og tjaldbúð- irnar voru efstar á blaði hjá þeim, eins og reyndar fleiri viðmælend- um okkar. „Og veistu bara,“ sagði ein þeirra, „við fáum sennilega að sofa úti í nótt.“ — Er ekki of kalt til þess, var spurt, því nokkuð napurt var, eftir að sólin hvarf á bak við Nóneggj- ar, sem er heiti fjailsins ofan við skálann? — „Nei, nei. Við kunnum alveg að búa okkur." — Engin heimþrá? Samhljóða: „Nei.“ „Pabbi og mamma eru hvort sem er úti í útlöndum," bætti ein þeirra við. Önnur viðurkenndi að auðvitað væri alltaf spennandi að koma aftur heim. Nú var farið að líða að kvöld- dagskrá, sem var varðeldur með tilheyrandi útidagskrá, söng, leikjum, leikþáttum og sögum. Bennó foringi stjórnaði við varð- eldinn og honum til aðstoðar voru tveir aðrir foringjar. Fyrst voru sungnir nokkrir söngvar og voru þeir flestir velþekktir skátasöngv- ar. Mörgum tilheyrðu ýmsar handa- og líkamshreyfingar og mátti sjá og heyra, að börnin þekktu vel til í þeirri listgrein. Negrakall á hlaupum Gestkomandi skáti úr banda- lagsstjórn skáta sagði krökkunum söguna „Negri hleypur" og fylgdu krakkarnir negrakalli úr svört- ustu Afríku á hlaupum hans og sundi til að ná tímanlega í töfra- lækni handa fárveikum höfðingja. Klöppuðu krakkarnir á læri sér, brjóstkassa og maga, nudduðu saman höndum og hrópuðu, allt eftir því hvernig ferð negrans miðaði og hvar hann var á hlaup- unum hverju sinni. í lokin tóku þau undir fagnaðarhróp þorpsbúa, er negrinn kom til baka með töfralækninn, en ekki fylgdi sög- unni hver endalok höfðingjans urðu. Þá var farið í leiki. Hlaupið var apakapphlaup, sem á uppruna sinn í sögunni „Dýrheimar" eftir Rudyard Kipling. Einnig var tek- ist á í talnakeppni og fleiri leikjum. Að því loknu var á ný sest í kringum varðeldinn. Krakkarnir fluttu í hópum frumsamda leik- þætti, en þeim er skipt í flokka og ber hver þeirra sitt heiti, s.s. „tófur“, „minkar“ og fleiri heiti — öll úr dýraríkinu. Klukkan var að halla í tíu um kvöldið er við kvöddum þessa kátu krakka og foringja þeirra. Þegar ekið var úr hlaði mátti heyra óminn frá tærum barnaröddun- um, sem sungu fullum hálsi: „Á Úlfljótsvatni er hopp og hí, hopp og hí“ og má segja að textinn sá hitti í mark. Texti og myndir: Fríöa Proppé

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.