Morgunblaðið - 25.06.1981, Blaðsíða 19
MÖRÖUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981
19
hún hefur staðið við á pappírnum.
Sömu dagana og alþingismenn
réttu upp hendurnar með því að
lækka sjúkratryggingagjaldið, var
lagður á ný nefskattur. Frumvarp
um hann kom inn í Neðri deild
sama daginn og lækkun sjúkra-
tryggingagjaldsins var afgreidd í
Efri deild. Allt gekk þetta eins og
á færibandi. Skattalækkunin var
rétt svipuð í krónutölum og nýi
skatturinn.
3. Dagana sem Hagstofan gerði
verðkönnunina fyrir útreikning
verðbótavísitölunnar, bárust
fregnir af auknum niðurgreiðsl-
um. Sömu dagana og verðbæturn-
ar eru greiddar út hækka matvör-
ur, benzín og sitthvað fleira meir
en kauphækkuninni nemur og
gengið er fellt, þótt útflutnings-
verðlagið hækki að meðaltali um
5% eða svo. Vegna þrýstings frá
stjórnarandstöðunni tókst að
skuldbinda ríkisstjórnina til að
auka framlög til vegamála á
næsta ári, en framhjá hinu verður
þó ekki horft, að vegfarendur eru
sviknir um 25 aura af hverri krónu
á þessu ári.
Með því að beita nýrri áróðurs-
tækni er hægt að blekkja menn í
bili. Það mun þó reynast svo um
þessa ríkisstjórn sem ýmsar aðr-
ar, að þegar frá líður kynnast
þegnarnir stjórnarherrunum.
Þeim fer þess vegna fjölgandi, sem
sætta sig ekki við þá stjórnar-
hætti, sem nú hafa verið teknir
upp. Þó tók steininn úr, þegar
verölagsyfirvöldum var heimilað
að krefjast lögbanns við óorðnum
verðhækkunum. Garðbæingar
svara í sömu mynt og nú liggur
fyrir sýslumanninum í Kjósar-
sýslu að ákveða, hvort lögbann
skuli lagt við ólögðum vegi í
Garðabæ.
Halldór Blöndal
Karlakórinn
Ægir með söng-
skemmtanir á
ísafirði og í
Bolungarvík
Holunvfarvík. 23. júni.
KARLAKÓRINN Ægir i Bolung
arvik heidur söngskemmtanir i
Alþýðuhúsinu ísafirði föstudag-
inn 26. júni kl. 21 og i félagsheim-
ili Bolungarvikur sunnudaginn
28. júni kl. 16.
Á efnisskránni eru aðallega
íslenzk verk, meðal annars eftir
Árna Björnsson, Pál Halldórsson,
Sigvalda Kaldalóns, séra Bjarna
Þorsteinsson o.fl. Einsöngvarar
með kórnum eru þeir Björgvin
Þórðarson og Örn Jónsson. Þá
kemur fram karlakvartett sem
skipaður er þeim Pálma Karvels-
syni, Einari Jónatanssyni, séra
Gunnari Björnssyni og Hallgrími
Kristjánssyni. Undirleikarar á
píanó eru Ánna Kjartansdóttir og
Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir.
Karlakórinn Ægir hefur að
undanförnu sungið opinberlega á
Suðureyri við Súgandafjörð og í
Bolungarvík, auk þess sem kórinn
fór í söngferð til Færeyja um
hvítasunnuna.
Gunnar
Silfursjóður-
inn til sýnis á
Egilsstöðum
Silfursjóðurinn, sem fannst á
Miðhúsum í Egilsstaðahreppi sl.
sumar, vcrður hafður til sýnis í
afgreiðslu útibús Búnaðarhanka
íslands á Egilsstöðum í sumar.
Sjóðnum, sem er stangasilfur og
skartgripir frá víkingaöld, er kom-
ið fyrir undir glerhjálmi ásamt
skýringum og verður til sýnis á
venjulegum afgreiðslutíma banka-
útibúsins.
Starfsmannafélag
Þjóðleikhússins:
Hefur aldrei
farið fram
á rannsókn
MORGUNBLAÐINU barst eftir-
farandi fréttatilkynning:
Af gefnu tilefni vill stjórn SFÞ
taka fram eftirfarandi:
Stjórnin hefur aldrei farið fram
á rannsókn, né krafið Þjóðleikhús-
stjóra um skýrslu vegna upptöku-
tækja á skrifstofu hans, enda sér
hún ekki annað en farið hafi verið
að lögum að öllu leyti.
Ennfremur harmar stjórnin þá
umfjöllun sem mál þetta hefur
fengið í fjölmiðlum og þann úlfa-
þyt sem það hefur vakið.
Reykjavík, 22. júní 1981.
Stjórn SFb.
Búnaðarbankinn
— Seljahverfi
Búnaöarbanki íslands leitar aö húsnæöi til leigu til bráöabirgöa
fyrir nýtt útibú bankans í Seljahverfi í Reykjavík, Seljaútibú.
Leigutími 1—3 ár eöa eftir framkvæmdahraöa viö fyrirhugaöan
miöbæjarkjarna í Seljahverfi, þar sem útibúinu er ætlaöur
framtíöarstaöur.
Búnaðarbanki íslands
Skipulagsdeild
Austurstræti 5, sími 25600.
Á GJAFVERÐI
Litur er ekki
lengur lúxus
Bræðraborgarstíg1-Sími 20080- (Gengið inn frá Vesturgötu)
UMBOÐSMENN:
Skagaradíój Akranesi - Jón B. Hauksson, Bolungarvík
Straumur h/f., ísafirði - Oddur Sigurðsson, Hvammstanga
Hallbjörn Björnsson, Skagaströnd - Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi
Hilmar Jóhannesson, Ólafsfirði - K.E.A., Akureyri - K.Þ.H., Húsavík
K.N.Þ. Þórshöfn - Sigurjón Arnason, Vopnafirði - Rafsjá, Neskaupstað
Rafeind s/f., Egilsstöðum - Eiríkur Ólafsson, Fáskrúðsfirði
Radíóþjónustan, Höfn - Hornafirði - Neisti h/f., Vestmannaeyjum
Mosfell, Hellu - Radíóvinnustofan, Hafnargötu 50, Keflavik