Morgunblaðið - 25.06.1981, Síða 23
MÖKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981
23
Fjórir nýskipaóir franskir kommúnistaráðherrar i garði Elysée- hallar. Þeir voru á ieið til fyrsta
fundar með Mitterrand forseta. Frá vinstri Marcel Rigout, Charies Fiterman, Jack Ralite og Anicet
Le Pors.
Er Atlantamorð-
inginn loks kom-
inn í leitirnar?
Atlanta. 24. júní. AP.
HAFT var eftir embættis-
mönnum í dag, að innan mán-
aðar mætti vænta formlegrar
ákæru á hendur Wayne B.
Williams, sem er ljósmyndari á
lausum kili. fyrir að hafa myrt
ungan blökkumann. kynbróður
sinn.
í gær sagði saksóknarinn í
Atlanta, Lew Slaton, að Willi-
ams yrði ákærður fyrir að hafa
kyrkt 27 ára gamlan mann,
Nathaniel Cater, en lík hans
fannst í Chattahoochee-ánni í
síðasta mánuði. Alríkislögreglu-
maður, sem unnið hefur að
rannsókn Atlanta-morðanna
ásamt lögreglunni þar í borg,
hefut látið hafa það eftir sér, að
hár og trefjar, sem tengdu
Williams við morðið á Cater,
hafi einnig fundist á sumum
öðrum mannanna 27, sem myrt-
ir hafa verið.
„Það er ekki ólíklegt, að Willi-
ams eigi sök á drjúgum hluta
morðanna," sagði alríkislög-
reglumaðurinn.
Karamanlis
í Portúgal
Lissahon. 24. júni. AP.
KONSTANTÍN Karamanlis for-
seti Grikklands kom í morgun í
opinbera heimsókn til Portúgal
og er það í fyrsta skipti að
griskur þjóðhöfðingi sækir
Portúgali heim.
Eanes forseti og Balsemao for-
sætisráðherra tóku á móti Karam-
anlis og föruneyti hans en í því er
meðal annars utanríkisráðherra
Grikklands, Mitsotakis. Mun hann
eiga viðræður við Pereira hinn
portúgalska starfsbróður sinn.
Búizt er við að á fundum Karam-
anlis og portúgalskra ráðamanna
muni verða einna efst á baugi
óskir Portúgala um inngöngu í
Efnahagsbandalag Evrópu árið
1984.
Sígarettu-
sjúkir þjófar
rændu lest
Kómahnrg. 24. júni. AP.
HÓPUR vopnaðra manna
stöðvaði flutningalest skammt
fyrir utan Rómaborg seint í
gærkvöldi og hafði á brott með
sér ókjör af sígarettum, sem
voru í lestinni. Nokkrir bóf-
anna otuðu byssum að lestar-
stjóra og aðstoðarmönnum
hans meðan aðrir roguðust
með sígarettukassa inn í stór-
an sendibíl. Þeir létu annan
varning sem í lestinni var eiga
sig.
ERLENT
Kommúnistar hafa einnig
breytt afstöðu sinni til ástandsins
í Póllandi og vara nú við erlendri
íhlutun þar í landi, og í kaflanum,
þar sem fjallað er um Austurlönd
nær, er kveðið á um tilverurétt og
öryggi ísraels og allra annarra
ríkja í þessum heimshluta, sam-
tímis því, að lögð er áhersla á rétt
Palestínumanna til stofnunar
þjóðríkis. Til þessa hafa kommún-
istar ávallt dregið taum
Palestínumanna einhliða en Mitt-
errand hefur hins vegar gefið í
skyn, að hann vilji nánara og
betra samband við ísraela en
Frakkar hafa haft lengi.
Kommúnistar fengu síðast að
verma stjórnarstólana í Elysée-
höll skömmu eftir síðasta stríð
þegar De Gaulle tók þá í stjórn til
að reyna að lægja öldurnar á milli
vinstri- og hægrimanna í Frakk-
landi. Þeir reyndust þó erfiðir í
sambúðinni og ósamvinnuþýðir og
árið 1947 rak þáverandi forsætis-
ráðherra, jafnaðarmaðurinn Paul
Ramadier, kommúnista úr stjórn.
Sumir stjórnmálaskýrendur
telja að sú verði að lokum einnig
raunin að þessu sinni.
Bandamönnum Frakka á Vest-
urlöndum er vissulega um og ó
vegna stjórnarþátttöku kommún-
ista og trúlega hefur Pierre
Mauroy, forsætisráðherra, haft
það í huga þegar hann sagði í
franska sjónvarpinu sl. þriðju-
dagskvöld: „Franska ríkisstjórnin
er ekki fyrir útlendinga. Hún er
fyrir Frakka."
SHARP myndsegulbandið
byggir á háþróaðri japanskri
örtölvutækni og árangurinn er
líka eftir því — myndsegulband
sem ekki á sinn líka í mynd
gæöum og tækninýjungum.
myndsegulband
með óendanlega möguleika
kr. 18.900.-
Video Cassette Recorder
VC-7300
öim)
Video Cassette Recoröer
- Sv
LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999