Morgunblaðið - 25.06.1981, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981
ÓSKAR Jóhannsson, kaupmaóur I
Sunnuhúðinni við Mávahlið,
opnaði fyrir skömmu nýja verzlun
að LauKaveKÍ 168. en að þessu
sinni ætlar Oskar ekki að verzla
með matvöru. eins ok hann hefur
Kert um áratuxaskeið. heldur
haslar hann sér völl á nýjum
vettvanKÍ. sem er sala á tölvubún-
aði ok rafeindabúnaði ýmis konar.
Vörur þær, sem óskar hyKKst
flytja inn ok selja eru framleiddar
af bandaríska stórfyrirtækinu
Tandy, en allar verzlanir. sem
selja vörur þeirra nefnast Radiu
Shack-verzlanir, ok svo er einnÍK
um verzlun óskars.
MorKunblaðið hitti Óskar að
máli fyrir skömmu og fyrsta
spurningin var, hvers vegna hann,
rótgróinn matvörukaupmaður, færi
nú allt í einu að selja tölvur. „Satt
bezt að segja, hef ég alla tíð haft
mikinn áhuga á rafeindabúnaði
ýmiss konar, og ekki sízt tölvum
eftir að þær foru að koma á
markað. Þá hefur það kynnt undir
Óskar Jóhannsson við eina tölvuna frá Tandy.
Óskar Jóhannsson í Sunnubúðinni:
Farinn að selja tölvur og
hyggst hætta í matvörunni
áhuga mínn, að sonur minn hefur
verið á kafi í tölvumálum um
árabil og er einmitt að ljúka námi í
þeim fræðum. Til að setja punktinn
yfir i-ið, þá verður það að segjast
eins og er, að sú aðstaða, sem okkur
matvörukaupmönnum er boðin, er
alls ekki til að hvetja menn til að
halda áfram. Það er í raun stöðugt
verið að þrengja að þessum at-
vinnuvegi," sagði Óskar.
Ætlar þú þá að leggja matvöru-
kaupmennskuna á hiluna? „Já, ég
hef hugsað mér að draga mig út úr
þeim viðskiptum, þegar skriður
verður komin á þetta fyrirtæki.
Það er nú líka hverjum manni hollt
að skipta um umhverfi," sagði
Óskar.
Tandy-fyrirtækið framleiðir ekki
einungis tölvur, heldur er það stór
framleiðandi í ýmis konar raf-
eindabúnaði, eins og hljóm-
flutningstækjum, reiknivélum og
fleiru. Sem dæmi um stærð fyrir-
tækisins, sagði Óskar, að það hefði
um 40% markaðshlutdeild í Banda-
ríkjunum í sölu meðalstórra og
minni tölva. Ætlar þú að selja alla
þeirra línu? „Það er hugmyndin, að
reyna að vera með sem breiðasta
línu, en auðvitað getum við ekki
legið með allt á lager, þetta er svo
gífurlegur fjöldi hluta. Því er hins
vegar ekki að neita, að ég mun
leggja höfuðáherzluna á tölvurnar,
fylgihluti þeirra og prógröm. Nú
þegar ég er farinn að nefna pró-
gröm, vil ég sérstaklega geta þess,
að Tandy hefur sérstaklega lagt sig
fram við að framleiða hin ólíkleg-
ustu prógröm í fjöldaframleiðslu.
Viðskiptavinir þurfa því ekki að
byrja á því að leggja út í mikinn
kostnað við hönnun nýs prógrams,
þegar þeir kaupa tölvu. Þeir geta
fengið fyrir skaplegt verð prógram,
sem þeir hagræða aðeins að eigin
þörfum, og í okkar tilfelli munu
sérfræðingar okkar aðstoða við það
verk. Sonur minn, sem er sér-
menntaður á þessu sviði mun til að
byrja með sjá um þann þáttinn,
auk annarrar ráðgjafar og við-
haldsþjónustu. Ég tel þennan þátt-
inn í framleiðslu fyrirtækisins ein-
mitt hafa hvað mest að segja í
sambandi við velgengni þess.
Viðskiptavinirnir geta keypt allt
saman í einum pakka. Það er
nokkuð, sem tiltölulega fáir keppi-
nautar bjóða upp á.
Henta þessar tölvur einhverjum
einum rekstri betur en öðrum
Óskar? „Það er hægt að nota
þessar tölvur nánast við allt það
sem tölvur eru nothæfar í. Ég vil
meina, að við getum boðið öllum
stærðum íslenzkra fyrirtækja þá
stærð tölvu og búnaðar, sem þau
þurfa, auk þess sem ég hef lagt
mikla áherzlu á að kynna skólum
þessar tölvur. Þær eru mjög mikið
notaðar í bandarískum skólum, og
fyrirtáíkið hefur hannað sérstök
prógröm og gefið út sérstakar
bækur, bæði fyrir nemendur og
kennara, sem hafa reynzt vel.
Annars held ég, að íslendingar
séu nú töluvert að vakna til
vitundar um þá gífurlegu mögu-
leika, sem tölvur bjóða upp á. Það
er alls ekki ofviða litlum fyrirtækj-
um, að eignast eigin tölvu. Það eru
bara orð svartsýnismanna. Ég er
t.d. langt á veg kominn með að
tölvuvæða Sunnubúðina, og þótt ég
segi sjálfur frá, þá eru það gífurleg
viðbrigði, að hafa alla hluti svo
miklu meira á hreinu fyrr. Þú
getur skoðað stöðuna, nánast frá
degi til dags,“ sagði Óskar að
lokum.
Stuart Cree, forstöðumaður Flugleiðaskrifstofunnar í Glasgow:
Mun einbeita mér að
sölu á Islandsferðum
ÁÆTLUNARFLUGI Flugleiða til Glasgow ok Kaupmannahafnar lauk
29. maí s.L, ok er ástæðan krafa brezku fluKmálastjórnarinnar um, að
félaKÍð draKÍ sík út af þessari fluKleið. en sem kunnugt er hafa
samningaumleitanir um áframhaldandi leyfi félagsins ekki borið
árangur. Stuart Cree, sem veitt hefur Flugleiðaskrifstofunni í GlasKow
forstöðu um árahil, var hér á ferð fyrir skömmu ok hitum við hann að
máli.
Nú verður Flugleiðaskrifstofan
lögð niður 1. október n.k., hvað
tekur þá við? „Sem betur fer missi
ég ekki alveg sambandið við Flug-
leiði, því þann sama dag og Flug-
leiðir loka, mun ég opna nýja
ferðaskrifstofu í sama húsnæði, en
hún nefnist „Iceland Airtours", og
ég mun einbeita mér einmitt mjög
að sölu íslandsferða og ferða milli
Skotlands og annarra Norðurlanda.
Ég mun því eftir sem áður verða í
miklu sambandi við Flugleiði, þótt í
öðru formi, enda má segja að
félagið eigi í manni hvert bein.
Helztu viðbrigðin verða eflaust
þau, að ég mun hverfa úr beinum
tengslum við flugið, en því hefur ég
verið tengdur nánast allan minn
starfsaldur. Hjá Flugleiðum hef ég
verið í 17 ár, eða fyrst hjá Flugfé-
lagi íslands og síðan Flugleiðum.
Ég hef eignast sérstaklega marga
og góða vini hér á íslandi vegna
þessa starfs míns, og get ég ekki
stillt mig um að nefna tvo þeirra
sérstaklega, þá Örn 0. Johnsen,
fyrrverandi forstjóra, og núverandi
stjórnarformann, sem ég hef virt
gifurlega mikils, og þá vin minn
Svein Sæmundsson, blaðafulltrúa
félagsins. Við höfum haft mjög náið
og gott samstarf alla tíð, bæði í
gegnum félagið og persónulega,"
sagði Stuart Cree.
Það hlýtur að hafa orðið gífurleg
breyting á skrifstofuhaldinu í gegn-
um tíðina? „Því er ekki að neita.
Hér áður fyrr vorum við með 7 flug
í viku og höfðum þá nóg að gera,
reyndar meira en nóg, enda voru
starfsmenn þá 15, en í dag eru þeir
aðeins 3. I vetur var eitt flug milli
íslands og Skotlands, en í fyrra-
sumar voru þau tvö. Annars hefur
þetta verið gegnumflug hjá okkur.
Meirihluti farþega hefur haldið
áfram til Kaupmannahafnar. Það
hefur aldrei borgað sig að vera með
beinar ferðir milli íslands og Glas-
gow. íslendingar sækja þó alltaf í
tóluverðum mæli til Skotlands, þótt
þ.ið sjónarmið sé alltof ríkjandi, að
ekki sé hægt að heimsækja Bret-
land, nema fara í gagnum London.
Hingað hefur fólk komið í hópum
til að verzla, auk þeirra, sem hafa
komið að skoða land og þjóð.
Ég er þeirrar skoðunar, að nauð-
synlegt sé, að halda uppi ákveðnu
flugi milli Islands og Skotlands.
Knda held ég, að stórauka mætti
ferðir íslendinga til Skotlands, ef
rétt erám álum haldið., Þá má ekki
gleyma þeirri staðreynd, að Glas-
gow er sú stórborg, sem stendur
Islendingum næst. Það tekur aðeins
liðlega 2 klukkutíma að fljúga á
milli," sagði Stuart Cree.
Nú hygst þú einbeita þér að sölu
ferða til íslands og annarra Norð-
urlanda. Er nægur markaður fyrir
það í Skotlandi. “Ég trúi því, að svo
sé. Hins vegar byggist gott gengi
okkar á góðu samstarfi við Islend-
inga, almenning, Flugleiði og ferða-
skrifstofur. í sambandi við almenn-
ing vil ég sérstaklega taka fram, að
Cargolux 1981:
Gera ráð fyrir
21,4% aukningu
á flutningunum
CARGOLUX, sem í dag er orðið
eitt stæsta vöruflutninKaflugfé-
lag veraldar. aðeins tiu ára gam-
alt. flauK á siðasta ári 486 milljón
tonn/kilómetra. og áætlun fé-
laKsins Kerir ráð fyrir 590 millj-
ón tonn/kilómetrum á yfirstand-
andi ári. eða um 21.4% aukningu
milli ára.
Heildarflutningar um flugvöll-
inn í Luxemborg jukust um 13% á
síðasta ári og átti Cargolux um
75% af því. Fyrirtækið hefur verið
í stöðugum vexti þau tíu ár, sem
það hefur verið starfandi, en það
er sameign Flugleiða, Luxair og
Salen-samsteypunnar.
Félagið á og rekur í dag tvær
Boeing-747, Júmbó-þotur, og rekur
fimm DC-8 þotur, en á fjórar
þeirra.
Til nánari skýringar á flutning-
unum, þá flutti félagið um 60 tonn
af vörum á síðasta ári, en meira
en helmingur þess voru flutningar
milli Evrópu og Austurlanda fjær.
Sérstaklega hafa flutningar til og
frá Hong Kong verið miklir og eru
stöðugt að aukast.
í nýlega útkomnu fréttabréfi
Hong Kong skrifstofu félagsins
rakst ég á eftirfarandi klausu:
Cargolux tók forystuna i flutning-
um milli Hong Kong og Evrópu
nánast á einni nóttu. Nú stefnir
félagið að því, að verða leiðandi
flugfélag í heiminum á sviði vöru-
flutninga.
Unnið við lestun tveggja DC-8 þota Cargolux i Luxemborg.
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
— umsjón: SIGHVATUR BLÖNDAHL
Stuart Cree
Ljonmynd Mbl. GuAjón.
við ætlum, að bjóða upp á skipu-
lagðar ferðir fyrir íslendinga og
aðra um Bretland. Það þarf ekki
endilega að byrja í London, eins og
ég sagði áður,“ sagði Stuart Cree.
Að síðustu kom fram hjá Stuart
Cree, að því fylgdi auðvitað mikilí
söknuður að hætta starfi hjá Flug-
leiðum efir svona langan starfsald-
ur, en hann væri bjartsýnn á
framhaldið. „Ég mun eftir sem áður
vera í sambandi við þessa vini
mína, “ sagði Stuart Cree að lokum.
Samkeppnis-
staða iðnaðar
versnar hratt
Frá áramótum hefur sam-
keppnisstaða iðnaðarins, bæði
útflutningsiðnaðar og sam-
keppnisiðnaðar á heimamark-
aði, versnað óðfluga. Um ára-
mótin féll niður 3% aðlögun-
argjald. án þess að starfsskil-
yrði iðnaðarins væru jafn-
framt iöguð.
Þá ákvað ríkisstjórnin í byrj-
un febrúar að ábyrgjast allt að
5% hærra fiskverð en þá gilti á
heimsmarkaði og kom sú ráð-
stöfun í stað gengisbreytingar.
Loks hefur þróun á erlendum
gjaldeyrismörkuðum, ásamt
þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar
að festa gengið, haft í för með
sér afar mikla erfiðleika fyrir
meginþorra iðnaðarins. Þrátt
fyrir lítilsháttar lagfæringar á
gengi í febrúar og lok maí,
hefur gengi íslensku krónunnar
gagnvart ýmsum Evrópugjald-
miðlum verið hækkað. Þetta
kemur fram í nýja fréttabréfi
FÍI, Á döfinni.
Þá segir: Stjórnvöld gera ráð
fyrir 40% verðbólgu á þessu ári
og þegar hafa komið til fram-
kvæmda á árinu 15% launa-
hækkanir, auk ýmissa annarra
hækkana. Komi ekki til frekari
breytinga á gengi íslensku
krónunnar er samkeppnisað-
staða iðnaðarins að verða von-
laus.