Morgunblaðið - 25.06.1981, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981
37
Sjóbað í
Stokkseyr-
arfjöru
HESTAMENN i hestamanna/é-
laginu Sleipni í neðanverðri Ár-
nessýlsu fara á hverju vori i
reiðtúr niður Stokkseyrarfjöru
og sundríða hestum sinum á milli
skerja.
Auk þess að hafa góða skemmt-
un af sundreiðinni telja hesta-
mennirnir að sjórinn drepi óþrif
og að hestarnir verði fegurri í
hárafari á eftir. Mörgum þykir
sjórinn kaldur í fyrstu, en auðvelt
er að bæta úr því með góðri
hressingu á eftir.
Flestir hestamennirnir eru frá
Selfossi og er því sprett úr spori
upp með Ölfusá á heimleiðinni.
Meðfylgjandi myndir tók Sigurður
Sigmundsson af hestamönnunum
í Stokkseyrarfjöru, en sundreiðin
átti sér stað síðari hluta maímán-
aðar.
m
Sumir vildu ekki bleyta fötin sín
og riðu þvi á nærklæðum einum
saraan. þrátt fyrir kaldan sjó.
Páll frá Litlu-Reykjum sést hér á
ferð.
Ekki má á milli sjá hver jir brosa meira, hestar eða menn.
Fáir þræðir þurrir á manni og hesti, en ekki spillir það ánægjunni.
9S yfirnfcynning
SS
í SS búóinni
Laugavegi116 í dag kl 2-6
Komið og bragðið á