Morgunblaðið - 25.06.1981, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981
41
+ Á dögunum birtist hér frétt um að vaxmyndasafn Madame Tussaud’s í London væri þegar búið að móta
Lady Di heitmey Karls Bretaprins í vax. Myndin kom ekki með fréttinni. Svo hún birtist hér.
Lady Di úr vaxi
fólk í
fréttum
Fallegt par
+ Hinn 40 ára gamli Ryan O’Neal og leikkonan Farrah Fawcett hafa að
undanförnu staðið í stormasömu ástarsambandi, og er ekki óalgengt að sjá
þau saman hvort með sitt glóðaraugað.
Ryan O’Neal hefur hingað til haldist illa á kvenfólki og á dóttir hans
Tatum ekki hvað minnstan þátt í því. En hún hefur sem kunnugt er ráðið
með fádæma frekju yfir einkalífi föður síns, sem lætur hana ganga fyrir
öllu. Hann var heldur betur kvíðinn þegar hann hóf samband sitt við
Fawcett en þá vildi svo undarlega til að Tatum hafði ekkert við það að
athuga.
Ryan segist hafa komist að raun um að Farrah er annað og meira en
plastbrúða með tannkremsbros, og að þau séu mjög ástfangin þó þau rífist
og jafnvel sláist ansi oft.
+ LIV Ullman sem hefur
haft það fyrir reglu að
halda dóttur sinni utan
við alla fjölmiðla, brá útaf
vananum um daginn. Er
þessi mynd tekin af þeim
mæðgum fyrir utan kirkju
á fermingardegi Linn sem
nú er 14 ára.
Marsbúi ?
+ Nei, þessi mynd er ekki af
Marsbúa heldur er þetta
tveggja vikna gamall apaungi
sem náðist í einhverjum frum-
skógi fyrir skömmu. Hann býr
nú í dýragarði í Englandi þar
sem hann er uppáhald allra.
Hagnaður hjá Sjóvá
119,7 m.gkr. 1980
SJÓVÁTRYGGINGAFÉLAG íslands hélt íyrir nokkru aðal-
fund sinn, 62. fundinn frá stofnun félagsins. Sigurður
Jónsson framkvæmdastjóri Sjóvá flutti skýrslu stjórnar og
gerði grein fyrir reikningum og afkomunni og sagði hana
góða í öllum vátryggingagreinum öðrum en ökutækjatrygg-
íngum og endurtryggingum.
Hagnaður af heildarstarfsemi
félagsins varð 1980 119,7 m.gkr.
þegar færðar hafa verið til gjalda
184,9 m.kr. í aðstöðugjald, tekju-
skatt o.fl. Iðgjaldatekjur námu
tæpum 6 milljörðum króna og
heildartjón rúmum 5,7 milljörðum
króna. í árslok voru í eigin
tryggingasjóði og áhættusjóði fé-
lagsins 6,5 milljarðar og eigið fé
nam rúmum milljarði, þar með
taldar 496 m.kr. sem hlutafé. Hjá
Sjóvá vinna nú um 60 manns auk
umboðsmanna úti á landi. Jafn-
framt var haldinn aðalfundur
Líftryggingafélags Sjóvá hf. .og
námu iðgjaldatekjur 145 m.kr. og
tjón ársins 35 m.kr. Framlag í
bónussjóð var 60 m.kr. og var
eigin líftryggingasjóður félagsins
í árslok 1980 238 m.kr.
Stjórn félagsins skipa Benedikt
Sveinsson hrl., formaður, Ágúst
Fjeldsted hrl., Björn Hallgríms-
son forstjóri, Ingvar Vilhjálmsson
forstjóri og Teitur Finnbogason
fullj.rúi.
Kaupfélag Króksfjarðar:
Vörusalan 1980 nam
688 milljónum gkr.
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Króksfjarðar fyrir árið 1980 var
haldinn að Króksfjarðarnesi,
laugardaginn 13. þ.m. í frétt frá
félaginu segir að vörusala flagsins
hafi alls verið á árinu 688 milljón-
ir gkróna og hafi aukist frá árinu
áður en 201 milljón. Fyrir land-
búnaðarafurðir voru viðskipta-
mönnum greiddar á árinu 572
milljónir. Tekjuafgangur varð 939
þúsund og var honum öllum ráð-
stafað í varasjóð félagsins. Vextir
af stofnsjóði félagsins voru 35%.
Auk aðalverzlunar í Króksfjarð-
arnesi eru starfrækt útibú, annað
á Reykhólum en hitt á Skálanesi,
Gufudalssveit. Á fundinum var
mættur Gunnlaugur Björnsson
aðstoðarframkvstj. Búvörudeildar
SÍS., og flutti hann fróðlegt erindi
um sölu og söluhorfur landbúnað-
arafurða og svaraði fyrirspurnum
fundarmanna. Þá var ennfremur
mættur á fundinum Ólafur E.
Ólafsson fyrrv. kaupfélagsstj. og
flutti hann ávarp og hamingjuósk-
ir í garð félagsins er í ár varð 70
ára. Þá minntist fundarstjóri,
Grímur Arnórsson, afmælisins
með ræðu þar sem hann rakti í
stórum dráttum helztu og merk-
ustu atriði úr sögu félagsins og
greindi frá hverjir hefði verið í
stjórn þess og kaupfélagsstjórar
frá upphafi. Hann minntist þeirra
með virðingu og þakklæti. Þá
greindi formaður frá þeirri
Ferðamála-
ráðstefna hald-
in í Helsinki
INTERNORDISK Resemarknad
heitir ráðstefna sem haldin verð-
ur dagana 21. til 23. september
nk.. i Finlandia-húsinu i Helsinki
og munu sækja hana framámenn
ferðamálastoínana Norðurland-
anna svo og fulltrúar ferðaþjón-
ustunnar.
Þessi ráðstefna er sameiginlegt
verkefni ferðamálaráða Norður-
landanna fimm og nýtur stuðn-
ings Norðurlandaráðs svo og Ráð-
herranefndar þess, en ferðamál-
astofnun annast tæknilegan und-
irbúning. Á Internordisk Rese-
marknad verður einnig í fyrsta
sinn kynnt ferðin „Res í Norden"
eða „Ferðist um Norðurlönd" sem
mun byrja snemma á árinu 1982.
Dagskrá ráðstefnunnar er tví-
skipt. Fyrsta daginn verður reynt
að komast að því hvernig hægt sé
að selja nágrönnunum á Norður-
löndunum hverskonar ferðir. Hina
tvo dagana mun svo standa yfir
sölukynning, þar sem leitast mun
verða við að finna nýja sölumögu-
leika og reynt að koma á nýjum
viðskiptasamböndum milli Norð-
urlandanna.
ákvörðun stjórnar að í stað þess
að halda nú samkvæmi til þess að
minnast afmælisins hefði hún
ákveðið að leggja fram tillögu á
fundinum, þess efnis að félagið
skyldi í tilefni af afmælinu leggja
fram 2 milljónir gkr. til styrktar
byggingar heimilis fyrir aldraða í
héraðinu og var það samþ. ein-
óma. Félagsmenn Kaupfélags
K.óksfjarðar eru nú 104.
Stjórn kaupfélagsins skipa eft-
irtaldlr félagsmenn:
Jens Guðmundsson, kennari,
Reykhólum, form. Þórður Jónsson,
bóndi, Árbæ. Jón Snæbjörnsson,
bóndi, Mýrartungu. Kristján
Magnússon, bóndi, Gautsdal.
Reynir Bergsveinsson, bóndi, Fr.
Gufudal.
Endurskoðendur: Ómar Har-
aldsson, forstj., Reykhólum.
Guðjón D. Gunnarsson, bóndi,
Mýrartungu.
Kaupfélagstj.skipti urðu á árinu
Eiríkur Ásmundsson lét af störf-
um en við tók Friðbjörn Níelsson
frá Siglufirði.
5 fœhur
vélritunarslóll
q hjólum
Sérstaklega stöðugur og
lipur vélritunarstóll með
stillanlegu baki. Auðvelt er
að festa arma á stólinn
Setuhæð erfrá42-57cm.
V *II t,
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
hfu1*'-
Hvertisgotu 33
Simi 20560