Morgunblaðið - 25.06.1981, Page 47

Morgunblaðið - 25.06.1981, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981 47 F Guðmundur Baldurssun mark vörður Fram slær knöttinn af koili Jóns G. Bergs. Jafntefli voru nokk- uð sanngjörn úrslit FRAM OG Valur deildu með sér stÍKum á LauKardalsveliinum í Kær, er erkifjendurnir áttust við í 1. deild íslandsmótsins i knattspyrnu. Lokatölur urðu 1 — 1 ok var það nokkuð í sam- ra'mi við >?anK leiksins. Ba-ði liðin fcniru KÓð færi sem ekki tókst að nýta, en staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Val. Því fór víðs fjarri að leikurinn byrjaði með rólegheitum. Strax á fyrstu mínútu var uppi fótur og fit í vörn Fram, er Hilmar Harðarson kom tuðrunni fyrir markið af miklu harðfylgi. Sighvatur Bjarnason stóð á marklínunni, en missti knöttinn í gegn um klofið. Sem betur fer fyrir Fram var Þorsteinn Þorsteinsson fyrir aftan Sighvat og tókst að bjarga. Fram lék ívið betur í hálfleiknum þó litlu hafi munað í þeim efnum, engu að síður voru það Valsmenn sem áttu næsta færi. Landsliðs- bakvörðurinn Trausti Haraldsson var að gaufa með knöttinn rétt fyrir utan eigin vítateig og Þor- steini Sigurðssyni tókst að krækja knettinum frá honum. Var Þor- steinn í hinu þokkalegasta mark- færi, en skot hans geigaði. A 23. og 26. mínútunum var Pétur Ormslev í færum, það fyrra var þröngt og Sigurður Haralds- Fram: Valur l:l son varði. En síðara færið var algert dauðafæri, Pétur geystist einn inn fyrir vörn Vals, spyrnti fram hjá Sigurði, en nokkrum sentimetrum fram hjá. Þessu svaraði Valur með marki Njáls Eiðssonar á 28. mínútu. Vörn Fram, sem hafði ekki sýnt ýkja mikið öryggi fram að því, opnaðist illa er sending kom fyrir markið frá vinstri. Njáll kom inn í teiginn hægra megin, tók knöttinn niður rétt fyrir utan markteigshornið og skoraði örugglega. Opin færi voru engin það sem eftir lifði fyrri hálfleiks, en undir lokin varði þó Sigurður vel gott skot Péturs Ormslevs. Framarar hófu síðari hálfleik- inn af krafti og gat liðið ekki óskað sér betri byrjunar. Mark eftir aðeins átta mínútur. Pétur Ormslev tók þá hornspyrnu frá hægri. Knötturinn barst á stöng- ina fjær og þaðan aftur fyrir markið, að vísu nokkuð langt úti í teignum. Halldór Arason var þar í skotfæri, Marteinn þó í sýnu betra færi. Það sá Halldór og lét knött- inn rúlla áfram og Marteinn skoraði með föstu skoti í bláhorn- ið. Faliegt mark. Pétur Ormslev var nærri því að skora á 65. mínútu, en aðeins þremur mínút- um síðar fékk Hilmar Sighvatsson. eitt besta færi leiksins, komst inn í lélegt útspark og óð inn í vítateig Fram. Brenndi Hilmar af er auð- veldara var að hitta markið. Mínútu síðar átti Þorvaldur gott skot naumlega fram hjá, en síðan fór leikurinn að fjara út gæðalega séð. Aðeins lifnaði undir lokin, er þrumuskot Vals Valssonar olli miklum darraðardansi í vítateig Fram. Allt fór þó vel fyrir Fram, en illa fyrir Val. Þetta var fremur daufur ieikur þrátt fyrir nokkur tækifæri á báða bóga. Varla verður sagt að nokkur leikmaður hafi staðið upp úr. Að minnsta kosti varla hjá Fram, þar sem allir leikmenn virtust mjög jafnir. Hjá Val var Hilmar Sig- hvatsson hættulegur, en mikill klaufi að skora ekki nmrk. í stuttu máli: Islandsmótið l. deild. Fram — Valur l-l (0—l) Mark Fram: Marteinn Geirssori 53. mín. Mark Vals: Njáll Eiðsson 28. mín. Áminningar: Engin. Dómari:Eysteinn Guðmundsson. Orðið langt á milli marka hjá Skaganum LEIK ÍA og KR í l. deild íslandsmótsins i knattspyrnu á Akranesi i gærkvöldi, lauk án þess að mark væri skorað. Þar með hafa Skagamenn leikið 6 leiki í röð án þess að skora mark. 540 mínútur og meira að scgja meira ef teknar eru með siðustu • Óttó átti stórleik i vörninni hjá KR. mínúturnar i leik ÍA og ÍBV á dögunum. Þá skoraði ÍA 3 mörk, síðan ckki söguna meir. KR-ingarnir mættu til leiks greinilega með aðeins eitt mark- mið, að krækja i jafntefli, liðið lék með tvo miðverði og Ottó Guðmundsson enn aftar á vellin- um. Og stig höfðu þeir upp úr krafsinu. en ekki var leikurinn góður. Eins og vænta mátti svo sem, sóttu Skagamenn linnulítið allan leikinn, en sökum fjölmennis í vítateig KR var mjög tilviljana- kennt hvar knötturinn hafnaði er þangað kom. Oftar en ekki voru það varnarmenn KR sem spyrntu rakleiðis út á völlinn aftur, eins langt og kostur var. Skagamenn fengu þrjú góð færi í leiknum, Guðbjörn skallaði fram hjá í fyrri hálfleik eftir hornspyrnu, Jón Alfreðsson skallaði einnig naum- lega fram hjá í síðari hálfleik og Sigurður Halldórsson átti stang- arskot um miðjan síðari hálfleik. Þá „skoruðu" Skagamenn tvívegis, en dómari leiksins dæmdi auka- spyrnur vegna rangstöðu í báðum tilvikum. KR-ingar áttu ekkert skot sem talandi er um. Ottó Guðmundsson bar af í liði KR, alls staðar þar sem Skaga- menn ógnuðu var hann fyrir. Auk hans stóð Stefán Jóhannsson sig mjög vel í markinu og sýndi mikið öryggi. Sigurður Lárusson var sterkastur í liði ÍA og Kristján Olgeirsson átti góða spretti. Sæ- björn Guðmundsson fékk að skoða gula spjaldið í leiknum. BL./gg. Svíar sigruðu SVÍAR sigruðu Portúgal 3—0 í undankeppni IIM i knattspyrnu i gærkvöldi. Leikið var i Stokk- hólmi og skoruðu Borjeson, Hys- en og Svenson mörkin. STAÐAN Staðan i l. deild að loknum leikjunum í gærkvöldi er nú þessi: í A 0, KR 0. Valur l. Fram l. UBK 3. KA 0. Vikingur 8 6 l l — 12:4 13 UBK 8 3 5 0 - 9:3 ll Valur 8 3 3 2 - 13:7 9 ÍBV 7 3 2 2 - 9:7 8 ÍA 8 2 4 2 - 4:5 8 Fram 8 l 5 2 — 6:9 7 KA 6 2 l 3 - 7:7 5 Þór 7 l 3 3 - 3:9 5 FH 8 2 l 5 - 10:15 5 KR 8 l 2 5 - 4:10 5 Lausná sjónvarpslokun: Einstakt tilboð sem gerir sjónvarpslokunina að engu og þig að dagskrárstjóra. Laugavegi 10 Sími: 27788 AUGLYSINGASTOFA KRISTÍNAR HF 80 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.