Morgunblaðið - 14.07.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981
11
Slasaður maður fluttur ofan af húsþaki.
Sjúklingar eru útbúnir með sérstökum gervisárum og geta því litið
heldur ógæfulega út, eða raunar eðlilega.
ar, og aðrir aðilar, sem þessu
tengjast, ættu að sameinast um
þennan skóla og hafa þannig
staðlaða menntun á línuna. Hvort
þetta verður í framtíðinni veit ég
auðvitað ekki, en kostir þess eru
augljósir, sagði Thor ennfremur.
Þá var Thor inntur eftir því
hvaða grunnkröfur væru gerðar
til væntanlegra þátttakenda, og
svo hvernig þessi námskeið skól-
ans væru fjármögnuð. — Við
gerum þær kröfur til manna, sem
sækja um, að þeir hafi gengið í
gegnum almenn skyndihjálpar-
námskeið og staðizt próf þar, auk
þess sem viðkomandi eru send tvö
verkefnabréf, sem þeir verða að
leysa. Þá er vert, að það komi
fram, að það er alls ekki sjálfgefið,
að menn verði kennarar eftir að
hafa tekið þátt í námskeiðinu. Það
eru gerðar miklar kröfur til
manna og á þessum námskeiðum,
sem haldin hafa verið hafa nokkr-
ir ekki staðizt prófið. Því fólki er
gefinn kostur á að endurtaka
prófið, eða að öðrum kosti verður
það bara að koma aftur.
Um fjármálin er það að segja,
að öllum kostnaði er haldið mjög í
hófi. Það hefur yfirleitt ekki þurft
að greiða nein kennslulaun.
Kostnaðurinn er fyrst og fremst
fólginn í ferðum, mat og kennslu-
gögnum, sagði Thor.
Þá kom það fram að á prófum
eru þrír prófdómarar, einn frá
LHS, einn frá Almannavörnum
ríkisins og einn frá Rauða krossi
íslands. Prófin eru bæði skrifleg
og verkleg. Thor sagði, að reynsl-
an af þessum námskeiðum hefði
verið mjög góð, auk þess sem
viðhorf almennings og hjálpar- og
björgunarsveitarmanna hefði
mjög breytzt til batnaðar hin
síðari ár.
Thor var því næst spurður um
önnur námskeið skólans. — Eins
og ég sagði strax, þá hefur það
verð á stefnuskrá skólans, að
reyna að vera með námskeið í sem
allra flestum greinum tengdum
starfsemi sveitanna. Við höfum
haldið námskeið í fjallamennsku
og björgunartækni, þar sem menn
hafa fengið undirstöðuþekkingu í
sambandi við þau atriði. Þar hefur
bæði verið um að ræða leiðbein-
endanámskeið og grunnnámskeið
fyrir nýliða. Þau námskeið hafa
verið á Úlfljótsvatni, auk þess sem
Ilópurinn, sem sótti síðasta leiðbeinendanámskeið Björgunarskólans í
skyndihjálp.
Þrír þátttakendur i cinu námskeiðanna (ara um með sérstaklega
útbúnar björgunarbörur til notkunar i fjalllendi.
farið hefur verið með grunnnám-
skeiðin til sveitanna úti á landi.
Þá höldum við reglulega nám-
skeið í snjóflóðafræðum og hafa
þau yfirleitt verið haldin fyrir
hverja sveit, en ekki heildarnám-
skeið fyrir alla.
Þá má nefna stjórnunarnám-
skeið, sem haldin hafa verið, en
þar hefur verið leitazt við að
kenna mönnum undirstöðuatriði í
leitarstjórnun, en sá þáttur hefur
í gegnum árin verið mjög snið-
genginn í menntun hjálpar- og
björgunarsveitarmanna.
Loks má nefna námskeið sem
haldin hafa verið í rötun, meðferð
áttavita og landabréfa. Þau nám-
skeið hafa verið færð út til
sveitanna, en ekki haldin fyrir alla
saman, sagði Thor.
Þá kom fram hjá Thor, að
hugmyndir væru uppi um að halda
sameiginleg nýliðanámskið fyrir
allar sveitirnar á haustin, þar sem
menn kæmu og fengju undirstöðu-
þekkingu í starfsemi hjálpar- og
björgunarsveita. Það hafi oft verið
vandkvæðum bundið fyrir sveitir,
sérstaklega hinar minni, að halda
námskeið fyrir örfáa menn í einu.
Með þessari hugmynd væri hægt
að sameina starfskrafta og spara
mikla óþarfa vinnu.
Að síðustu kom það fram hjá
Thor B. Eggertssyni, að viðhorfið
til skólans væri mjög jákvætt hjá
aðilum, sem málið varðar, t.d.
hefðu Almannavarnir ríkisins
sýnt þessu starfi mikinn skilning
og áhuga.
Sighvatur Blöndahl
Ferðum
útlendinga
til landsins
fjölgar
FRÁ áramótum og þangað til
i lok júnímánaðar hefur tala
útlendinga, sem komið hafa
hingað til lands, aukist nokk-
uð, samanborið við sama tíma-
bil á síðastliðnu ári. Nú hafa
27.812 útlcndingar komið á
timabilinu en á siðastliðnu ári
voru þeir 2fi.l59.
Ef júnímánuður er tekinn út
úr þá er sama uppi á teningn-
um. í júnímánuði á þessu ári
komu hingað til lands 11.815
útlendingar en á sama tíma í
fyrra voru þeir 10.309.
Af þeim útlendingum, sem
komu til landsins í júnímánuði
voru Bandaríkjamenn og
Vestur-Þjóðverjar, Svíar,
Norðmenn og Danir flestir.
Ferðir íslendinga til og frá
landinu hafa að sama skapi
aukist. Frá síðastliðnum ára-
mótum og til júníloka komu
27.142 íslendingar til landsins
á sama tímabili í fyrra voru
þeir 25.671.
^ móttökumælir.
AK.I.YSIM.ASIMINN KR:
C^> 22480
• LM. MW
og FM bylgjur.
nn dolby
* ^ * fyrir betri
upptökur.
• Útgangsorka
2x20 SINUS Wött
v/4 Ohm.
SHARP SG-1H/HB:
Klassa steríó samstæöa
meö hátalara, í,,silfur“
eöa ,,brons“ útliti.
Breidd 390 mm. Hæö 746 mm / 373 mm. Dýpt 330 mm.
SHARP CP-1H/HB:
Hátalarar, bassa og diskant
25 Watta í ,,silfur“ eða
,,brons“ útliti.
Breidd 220 mm. Hæð 373 mm Dypt Í8.3 mm.
/ViETAL
Stilling fyrir metal
kassettur.
Allt settiö, verö kr.:
) Rafeinda
"Topp"
styrkmælir.
HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
LAUGAVEGI66 SÍMI25999
6.320.00.
Útsölustaðir: Karnabær Glæsibæ —
Fataval Keflavík — Portið Akranesi —
Eplið ísafirði— Álfhóll Siglufirði— **
Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði —
Eyjabær Vestmannaeyjum — M.M. h/f. Selfossi.