Morgunblaðið - 14.07.1981, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JULI1981
43
/ gær byrjuöu i
Fr hundadagar
en þrátt fyrir það er
ekkert hundalíf
i
HQU>y\A/ðOD
því það er alltaf eitthvað skemmtilegt að
hjá okkur alla daga vikunnar
meö
UPP'„y”™"9'll8,UM„fÁKur«"
urn S -itina sló f g®9" ! oa Traust-
* UpP num Kveðjustund ^
lógunum gndur-
ur vinur lag^ó errt
' * ígSesS^
, j Kvöld-
ins.
i lyfta
okkur
hre:
ssilega
upP
Viö látum
upPiy"in9^_____
Hjólreiöakeppni
Hollywood, Valhallar og Fálkans.
Allir þeir, sem hafa áhuga á hjólreiöum mæti kl. 10 í
kvöld til skráningar í keppnina. Einnig veröa gefnar
upplýsingar um tilhögun hennar.
Endurfundir í |S
Halldór Ámi veröur í diské ■
tekinu og leikur ðfl nýjustu
lögin af bandaríska og
breska vinsældalistanum.
Þá kynnlr hann einnig nýj-
ustu plötu Ðtons Johns
„The Fox* og rifjar upp
gömul vinsæi lög meö þess-
um óvenjulega tónlistar-
manni.
Brandarabankinn
Eins og fram hefur komiö, opnuð-
um við banka á sunnudaginn,
fyrstir allra skemmtistaða. Þetta
er brandarabankinn og nú bjóöum
við gestum okkar aö senda inn
létta og stutta brandara, þeir
bestu verða verölaunaöir og birt-
ast í auglýsingum okkar hér í
blaöinu. Innleggin byrjuöu aö
streyma hér inn á sunnudags-
kvöldiö og fyrsti brandarinn birtist
í blaöinu á morgun. Verið meö, því
eins og máltæki dagsins segir:
„Sjaldan er góöur brandari of oft
sagöur“
Sjáumst
öll í
Óðali
Fulltrúar frá danska Loðdýraræktarsambandinu. Talið frá vinstri: Peter H. Krag, sölustjóri, Anders
Kirkegaard forstjóri og Helge Olsen framkvæmdastjóri.
Fulltrúar frá danska Loðdýra-
ræktarsambandinu hér á landi
Mjög jákvæðir gagnvart viðskiptum við íslenska loðdýrabændur
Staddir eru hér á landi þrir menn
frá danska loðdýraræktarsamband-
inu í boði islenskra loð-
dýraræktenda. Þeir heita Anders
Kirkegaard, en hann er forseti
sambandsins og stjórnarformaður
dönsku loðdýrasölunnar, Helge
Olsen. framkvæmdastjóri sam-
handsins og Peter H. Krag, sölu-
stjóri. Þcir eru hingað komnir til að
kynna sér islenska loðdýrarækt og
framleiðslu og ennfremur eru þeir
hér til viðræðna um hugsanlega
sögu islenskra loðdýraskinna i
Kaupmannahöfn, en þar eru haldin
fimm uppboð á ári hverju á skinn-
um framleiddum i Danmörku,
Finnlandi og Sviþjóð. Þau eru
flokkuð eftir gæðum og siðan seld
hæstbj<iðanda. Væri það mikið til
góðs fyrir íslenska loðdýraræktend-
ur að komast inn á þann markað.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti
mennina að máli er þeir voru
nýkomnir frá Akureyri þar sem J>eir
höfðu verið að skoða minka- og
refabú fyrir norðan. Fóru þeir til
Dalvíkur, Grenivíkur og Sauðár-
króks. Aðspurður hvernig þeim hefði
litist á búinn sögðu þeir að fram-
leiðslan væri lítil en í góðu lagi og að
FUJIKA
STEINOLÍU*
OFNAR
AFAR HAGST7ETT VERD
Skeljungsbúðin
Suðurlandsbraut 4
sími 38125
Heidsölubtrgór: Skejjungur hf.
Smávöajdeild - Laugavegi 180
simi 81722
skilyrði til þessarar ræktunar hér á
landi væru mjög góð og þó best fyrir
silfurrefinn.
„Það eru 2500 minka- og refabú í
Danmörku,” sagði Anders Kirke-
gaard, „og þar er jafn sjálfsagt að
rækta minka eins og að ræka til
dæmis svín eða hænsni. í Danmörku
fer fram stærsta minkaræktun í
heimi og þar er áætlað að séu í búum
eitthvað um 4,4 milljónir minka."
Eins og áður sagði standa dönsku
loðdýraræktarsamböndin fyrir upp-
boðum, fimm á ári, í janúar, mars,
maí, september og desember, og á
þessum uppboðum eru seld 12 millj-
ón skinn af ýmsum tegundum fyrir
3000 milljónir danskra króna.
„Við seljum helming allra pelsa
hér í vesturheimi og meira en það,“
sagði Anders. „íslensku loðdýra-
ræktendurnir eru að athuga með að
komast með sín skinn á þessi uppboð
og við ættum að geta tekið þá inn
fyrst við erum með alla loðdýra-
framleiðslu Svía og Finna á jæssum
uppboðum," sagði Anders.
Hann sagði að framleiðslan og
búin hér væru frekar lítil, en hann
hafi heyrt að um hundrað bændur
hafi sótt um leyfi til að fá að hafa
minka- og refabú og fannst honum
mikill áhugi vera fyrir hendi hér á
landi fyrir þessari ræktun.
Helge Olsen, framkvæmdastjóri
danska loðdýraræktarsambandsins,
sagði að hér væru skilyrði mjög góð
til ræktunar minka og refa. Sagði
hann að loftslagið væri sambærilegt
við það danska og að við ættum að
geta náð eins langt hlutfallslega og
Danir í þessum efnum. Hér er mjög
auðvelt að fá gott fóður fyrir dýrin,
en það er fiskúrgangur. I Danmörku
sagði hann að 70 prósent fæðunnar
sem dýrin ætu væru fiskúrgangur og
Alltaf er
einhver
tegund
V05-
shampó
sem
hentar
þér
E]E]E]E]G]E]^^p]E]E]E]B]B]B]^§B]E]B]K5|
1 Sigtún I
H Bingó í kvöld kl. 20.30, il
ij Aöalvinningur kr. 3 þús. |j
ElElE]E]E]E]E]E]E]laIE1E]ElE]ElElElE]ElElE]
að auki ýmisskonar korn og vítamín.
Einnig væru fimm til tíu prósent
fæðunnar frá býlunum sjálfum sem
hefðu jafnan með minka- og refa-
ræktinni svín, hænsni og nautgripi.
Sagði Helge Olsen, að með 40
kílóum af fiskúrgangi sem dýrunum
væru gefin.n væri hægt að fá einn
minkapesi og með 80 kílóum af slíkri
fæðu sem refum væru gefin væri
hægt að fá einn refapels. Helge á
sjálfur lítil minkabú með 200 mink-
um, sem konan hans rekur. Sagði
hann að það væri aðeins hlutastarf
hjá henni að sjá um búið en úti í
Danmörku er það talin full vinna að
sjá um 800 minka eða 500 refi. Ef
fjöldi dýra væri undir þessu lág-
marki, teldist það hlutastarf að
sinna því.
Þeir félagar hafa ferðast mikið um
landið, farið á Þingvelli, séð Gullfoss
og heimsótt fjöldann allan af minka-
búum. Þeir kvörtuðu nokkuð um
kulda á Akureyri og sögðust hafa séð
eftir því að hafa ekki haft með sér
nokkra pelsi þar norður frá. Þeir
voru undrandi á því að ræktun
minka og refa væri ekki eins og hver
önnur búgrein iíkt og í Danmörku.
Þeim hafði verið sagt að nokkrir
bændur væru að hætta með naut-
gripa- og sauðfjárrækt og væru að
snúa sér að minka- og refarækt.
Peter H. Krag, sölustjóri sam-
bandsins, sagði að bændur úti í
Danmörku högnuðust um þessar
mundir mun meira á ræktun loðdýra
en á nokkrum öðrum búskap, og
virtist honum sem loðdýraræktend-
ur væru að gera það nokkuð gott hér
á íslandi.
Anders Kirkegaard sagði að pelsar
væru mjög góð verslunarvara og
væri það sama hvort maður í Tókíó
keypti pels frá New York eða öfugt.
Það kæmi út á eitt í verði því
flutningsgjöld væru svo lág. Anders
er einnig bóndi auk þess sem hann
gegnir störfum hjá Sambandinu.
Hann er með tvö minkabú og eru
3200 minkar í hvoru, auk þess sem
hann er með 400 silfurrefi. Fyrir
utan allt þetta er hann svo með 160
hektara lands sem hann ræktar á
ýmsar tegundir af korni.
Hann sagði að það væru 30
verksmiðjur i Danmörku sem ynnu
úr skinnunum. „Gæði fæðunnar,“
sagði Anders, „sem dýrin éta, þurfa
að vera eins mikil og fæðunnar sem
við mennirnir neytum. Hún má ekki
vera léleg og í henni sem minnst af
bakteríum.“
Þeir dönsku hafa átt viðræður við
stjórn íslenska loðdýraræktarsam-
bandsins sem í eru Haukur Hall-
dórsson, formaður, Reynir Barðdal,
Þorsteinn Aðalsteinsson, Arvid
Krog, sem er norskur og Leifur
Tómasson. Morgunblaðið hafði sam-
band við Reyni Bárðdal, sem er
varaformaður stjórnarinnar og
sagði hann að Danirnir væru mjög
jákvæðir og niðurstöður viðræðna
við þá yrðu teknar fyrir á næsta
aðalfundi íslenska sambandsins sem
haldinn verður í ágúst.
Sagði Reynir að Danirnir hefðu
boðist til að flokka íslensku skinnin
með þeim dönsku en það væri mjög
gott fyrir okkur, þar sem dönsku
skinnin eru talin vera þau bestu í
heimi.