Morgunblaðið - 14.07.1981, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981
47
Á hreppamörkum Raufarhafnar og Presthólahrepps var Vigdisi Finnbogadóttur færður blómvöndur af
Brynju Gestsdóttur.
Fyrsta skipti
§em forseti
Islands heim-
sækir Grímsey
UM FJÖGURLEYTIÐ í gærdag kom Vigdís Finnboga-
dóttir til Grímseyjar ásamt fylgdarliði sínu. Var farið frá
Akureyri með flugvél og á flugvellinum í Grímsey tók
hreppsnefndin á móti forsetanum, og ung dama, Guðrún
Sigfúsdóttir, færði henni blómvönd.
Gengið var frá flugvellinum og
skoðað í kringum sig á leiðinni að
félagsheimilinu. Við félagsheimil-
ið voru allir Grímseyingar til að
taka á móti henni og voru börnin
öll með íslenska fánaveifu. Öll
íbúðarhús flögguðu og allir sjó-
menn voru í landi í tilefni þessar-
ar heimsóknar. Öll vinna var lögð
niður í landi frá hádegi. Fyrir
utan félagsheimilið heilsaði Vig-
dís öllum Grímseyingum með
handabandi og svo var gengið í
hús og drukkið kaffi og með þvi.
Meðan kaffi var drukkið og
kökur borðaðar gekk Vigdís á
milli borða og gaf sér nógan tíma
til að tala við eyjarfólkið. Að því
loknu hélt oddvitinn ræðu og
þakkaði komu Vigdísar og lét þess
getið að hún væri fyrsti íslenski
forsetinn sem heiðraði Grímsey-
inga með nærveru sinni. I lok
ræðu sinnar afhenti oddviti henni
gjöf frá Grímseyingum, sem var
Annáll nítjándu aldar, en bók sú
er skrifuð af séra Pétri Guð-
mundssyni, sem var prestur í
eynni um langt árabil. Bók þessi
er ófáanleg á Islandi.
Þá tók forsetinn til máls og
þakkaði móttökurnar, bókagjöfina
og það hlýja viðmót, sem hún
hafði hlotið meðan hún dvaldi í
Grímsey.
Að þessu loknu var gengið til
kirkju og hún skoðuð. Kirkja þessi
er 114 ára gömul. Síðan var haldið
til varðskipsins sem flutti Vigdísi
og fylgdarlið til Akureyrar aftur.
Lauk þar með fyrstu heimsókn
forseta Islands í Grímsey.
Vigdís kom með sólina
með sér til Rauf arhaf nar
Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir ferðaðist
um Norður- og Suður-
Þingeyjarsýslur og Eyja-
fjarðarsýslu um helgina en
ferðalagi hennar um þessar
slóðir lýkur á fimmtudag-
inn 16. júlí. Á laugar-
dagsmorgun var flogið frá
Akureyri til Þórshafnar og
kom forsetinn og fylgdarlið
hennar til Þórshafnar
klukkan 10.25. Á flugvellin-
um tók á móti Vigdísi
Finnbogadóttur, Sigurður
Gizurarson sýslumaður og
frú, og Ólafur Rafn Jónsson
sveitarstjóri á Þórshöfn og
frú.
Frá flugvellinum var ekið að
skólabyggingunni þar sem stans-
að var og ávörp flutt. Heilsaði
forseti þar heimamönnum og
gróðursetti hríslur við skóiann.
Síðan var hraðfrystihúsið skoðað
og á eftir snæddur hádegisverður
hjá hreppstjóra Þórshafnar-
hrepps, Brynhildi Halldórsdótt-
ur, Syðra-Lóni.
Klukkan 14 á laugardaginn var
svo lagt af stað áleiðis til Rauf-
arhafnar. Á sýsiumörkum Rauf-
arhafnar og Presthólahrepps
tóku á móti Vigdísi Finnboga-
dóttur forseta og fylgdarliði
hreppstjórinn Hrefna Friðriks-
dóttir, sveitarstjórinn Gunnar
Hilmarsson og oddvitinn Björn
Hólmsteinsson. Þar tók einnig á
móti Vigdísi lítil stelpa, Brynja
Gestsdóttir að nafni, og færði
hún forsetanum blóm.
Eftir stuttar kynningar á
hreppamörkunum var haldið inn
í Raufarhöfn og staðnæmst fyrir
utan félagsheimilið. Þar heilsaði
forsetinn þeim er þar höfðu
safnast saman en það var fjöldi
fólks. Þá var gengið inn í félags-
Vigdís heilsar hér upp á krakka á Raufarhöfn, en mikill mannf jöldi fylgdi henni hvar sem hún fór
Forseti og fylgdarlið hLýða á leik Lúðrasveitar Húsavikur og leggja síðan af stað í skoðunarferð um bæinn.
heimilið þar sem forseta og
fylgdarliði var boðið í kaffisam-
sæti á vegum sveitarstjórnarinn-
ar.
Þegar inn var komið og sest að
borðum hélt oddvitinn Björn
Hólmsteinsson smátölu og byrj-
aði á að bjóða forseta velkominn.
Við þetta tækifæri afhenti hann
forsetanum að gjöf grafíklista-
verk gert af Jónínu Láru Einars-
dóttur, grafíklistamanni og
prestsfrú á Raufarhöfn.
í samsæti þessu ríkti mikill
fögnuður og gleði og má segja að
Vigdís hafi komið með sólina
með sér því síðan hún var þar
hefur verið glampandi sólskin og
skínandi veðurblíða.
Eftir ræðu oddvita flutti
Hólmsteinn Helgason heiðurs-
borgari Raufarhafnar ávarp og
rakti nokkuð sögu Raufarhafnar
frá upphafi byggðar þar, og fram
til þessa dags. Við þetta tækifæri
söng kirkjukór Raufarhafnar
nokkur lög undir stjórn Stephan
Yates, skólastjóra tónlistarskóla
Raufarhafnar. Einsöng flutti
Svala Stefánsdóttir sópransöng-
kona.
Undir lok samsætisins hélt
Vigdís Finnbogadóttir ræðu og
hafði sérstaklega á orði hvað
kórar í hinni strjálu byggð
syngju vel og skemmtilega. Einn-
ig nefndi Vigdís það í ræðu sinni
hvað sýslumaður væri skynugur
að velja kvenfólk sem aðstoðar-
menn, en hreppstjórarnir á Þórs-
höfn, Raufarhöfn og Kópaskeri
eru allir konur.
Eftir kaffisamsætið bað Vigdís
fólk um að ganga út til barna er
biðu fyrir utan félagsheimilið
þar sem hún gróðursetti þrjú tré
við mikinn fögnuð barnanna.
Síðan kvaddi forseti þorpsbúa
fyrir utan félagsheimilið, og
hreppstjóra, sveitarstjóra og
oddvita á hreppamörkum þar
sem tóku á móti forseta og
fylgdarliði hreppstjóri og oddviti
Presthólahrepps.
Frá Raufarhöfn var haldið til
Kópaskers en þangað var komið
um klukkan 18.00. Var stansað
fyrir framan kaupfélagið þar
sem forseti heilsaði fólki. Síðan
var haldið að Skúlagarði og
snæddur þar kvöldverður í boði
sýslunefndar. Eftir kvöldverð
var haldið til Húsavíkur.
J