Morgunblaðið - 12.11.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.11.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1981 Tillaga rædd um kvótaskiptingu Hlutur Vestfirdinga f þorskaflanum myndi minnka úr 22,3% f 13,6% - hlutur togara á Suðurlandi aukast úr 5,5% f 11,5% FISKIDEILD Kiskifélags íslands í Vestmannaeyjum ályktaði fyrir Fiskiþing sem nú stendur yfir, að taka bæri upp kvótaskiptingu hjá togurunum. Telur deildin að núverandi kerfi við þorskveiðitakmarkanir togaranna hafi gengið sér til húðar og bendir deildin á leið til þess að koma á kvótaskiptingu. l'ar er meðal annars gert ráð fyrir að 50% af leyfilegum heildarþorskafla togaranna verði skipt jafnt á milli allra togara. 25% af lcyfilegum heildarþorskafla verði skipt eftir stærð skipa og '4 heildarþorskaflans verði skipt sem hlutfalli af þorskafla hvers togara pr. úthalds- dag árin 1980 og 1981. Þessi tillaga var mikið rædd á Fiskiþingi í gær, og sýndist sitt hverjum um hana. Vestmannaeying- Samningafundir hjá bókagerðar- og blaðamönnum FUNDUR var hjá sáttasemjara í gær vegna kjaradcilu bókagerðarmanna. Haraldur Sveinsson formaður Fé- lags ísl. prentiðnaðarins sagði aðila hafa ræðst við og annar fundur væri ákveðinn í dag. Fundur verður í undirnefnd fyrir hádegi, en síðan samningafundur hjá sáttasemjara kl. 14. Á föstudag hafa bókagerðar- menn boðað til félagsfundar og sagði Magnús E. Sigurðsson for- maður Félags bókagerðarmanna, að fundarefnið væri að greina frá stöðu viðræðna og skipuleggja starf félagsmanna í verkfalli, sem hefur verið boðað frá og með laug- ardegi. Eftir hádegi í dag hafa blaðamenn og viðsemjendur þeirra verið boðaðir á fund hjá sáttasemjara. í gær voru fundir með fram- reiðslumönnum og matreiðslu- mönnum fyrir hádegi, og eftir há- degi með samninganefndum ASÍ og vinnuveitenda. Lést eftir höfuðhögg 31 .\RS gamall íslendingur, Sigurð- ur Valur Magnússon, lést á laugar- dag í Kaliforníu eftir að hafa hlotið höfuðhögg. Atvikið átti sér stað á laugardagsmorgun í Isla Vista, skammt frá Santa Barbara fyrir norðan Los Angeles. Sigurður l'alur var í kunningjahópi cr til átaka kom og hlaut hann höfuðhögg svo hann missti meðvitund. Hann lést síðar um daginn án þess að komast til meðvitundar. Bandaríkjamaður hefur verið úr- skurðaður í gæzluvarðhald vegna málsins og stendur rannsókn yfir. Þó er talið ólíklegt, að Sigurður Valur hafi beðið bana af völdum höfuðhöggsins. Hann hafði um nokkurt skeið verið undir læknis- hendi vegna höfuðkvala. Sigurður Valur hafði dvalist um nokkurra ára skeið í Bandaríkjun- um. Hann lætur eftir sig 4 börn. um var þó þakkað fyrir að hafa lagt í mikla vinnu við að vinna þessa til- lögu og voru menn almennt sammála um, að kjósa bæri milliþinganefnd til að fjalla nánar um kvótakerfið en nefnd sú, sem fjallar um stjórnun fiskveiða á þinginu, mun fjalla nán- ar um kvótakerfið i dag. Hins vegar sagði Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra á Fiskiþingi í fyrradag, að hann myndi aldrei setja kvótaskiptingu á togarana, nema um það væri víðtæk samstaða útgerðar- manna. Þá voru uppi raddir á Fiski- þingi í gær, að sjómenn á togurunum ættu allt eins og útgerðarmenn að hafa áhrif á hvort kvótakerfi yrði tekið upp. Ef farið yrði eftir tillögu Vest- mannaeyinga og kvótaskipting sett á, myndi það þýða, að hlutdeild tog- ara á Suðurlandi myndi aukast úr 5,5% í 11,5%, hlutur togara á Suður- nesjum í þorskinum myndi aukast úr 6,3% í 8%, hlutur togara úr Reykja- vík og Hafnarfirði myndi aukast úr 17,7% í 24,5%, hlutur togara á Akra- nesi og við Breiðafjörð myndi minnka úr 7,4% í 5,8%, hlutur tog- ara á Vestfjörðum myndi minnka úr 22,3% í 13,6%, hlutur togara á Norð- urlandi myndi minnka úr 27,3% í 24% og hlutur togara á Austfjörðum myndi minnka úr 13,6% í 12,6%, en hér er alls staðar gengið út frá afla- brögðum togaranna árið 1980 að því er Morgunblaðinu var tjáð í gær. Ingvar Gíslason menntamálaráðherra var fyrir skömmu á ferð í Grikklandi og átti þá fund með nýskipuðum menntamálaráðherra Melinu Mertouri og er myndin tekin er þau heilsuðust. Með þeim á myndinni er Constantin Lyberopoulos, ræðismaður íslands í Aþenu, sem hafði meðalgöngu um fund þeirra. Menntamálaráðherra sagði í samtali við Mbl. að þau hefðu rætt um hversu nauðsynlegt væri að efla menning- arskipti íslands og Grikklands, en þar sem Mercouri var nýtekin við starfi sínu, var að svo stöddu ekkert afráðið í því efni. Samningagerð miðar of hægt - segir Asmundur Stefánsson 'O INNLENT ÞESSUM samningamálum miðar alltof hægt og viðbrögð VSÍ og VMSS hafa verið of neikvæð, sagði Ásmundur Stefánsson forseti ASÍer Mbl. innti hann eftir stöðu samn- ingamála í gær. Á mánudag hefur 72 manna samninganefnd ASÍ verið boðuð til fundar. — Þar verður gerð almenn grein fyrir hvernig samningamál- in standa og það hlýtur að vera mat hverju sinni eftir stöðu og gangi viðræðna hvað verður um aðgerðir, sagði Ásmundur að- spurður. — Það hafa verið uppi raddir um að nauðsynlegt sé að grípa til einhverra aðgerða, en ákvörðun um slíkt verður ekki tekin nema í stærri hópi, sagði Jón Helgason, formaður Einingar á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið, en Jón á sæti í aðalsamninganefnd ASÍ. — Reynsla okkar er sú, að það gerist ekkert fyrr en illu er hótað og farið er út í vinnustöðvun, en 345 þús. tonn hafa veiðst frá byrjun loðnuvertíðar SÍÐDEGIS í gær var búið að veiða um 133 þúsund tonn af loðnu, síðan síðasta stofnstærðarskýrsla var lögð fram og samkvæmt því eru aðeins 11—12 þúsund tonn eftir í sjónum. Alls er búið að veiða um 345 þús. lestir af loðnu frá því að veiðarnar hófust í ágúst sl. en í síðustu viku veiddust um 67 þúsund tonn. Frá því um hádegi á mánudag þar til um hádegi í gær tilkynntu 30 skip afla, samtals um 18.205 lestir, og fóru skipin flest með afl- ann til Austfjarðahafna: Víkur- berg GK 550 tonn, Harpa RE 630, Skarðsvík SH 250, Júpiter RE 1250, örn KE 250, Hilmir SU 1260, Hilmir II SU 560, Gullberg VE 570, Sigurfari AK 830, Svanur RE 680, Albert GK 500, Guðmundur RE 850, Jón Finnsson GK 600, Skírnir AK 440, Ljósfari RE 570, Ársæll KE 440, Oskar Halldórsson RE 440, Sæbjörg VE 580, Húna- röst ÁR 620, Rauðsey AK 560, Pét- ur Jónsson RE 700, Seley SU 440, Helga Guðmundsdóttir BA 715, Hafrún ÍS 640, Gísli Árni RE 480, Jón Kjartansson SU 1130, Hákon ÞH 720, Magnús NK 500 og Bergur VE 450 tonn. að sjálfsögðu vilja menn í lengstu lög reyna að forðast slíkt, sagði Jón og bætti því við að ekkert væri farið að ræða á hvern hátt yrði staðið að aðgerðum. Jón Kjartansson í Vestmanna- eyjum sagði hins vegar, að hann teldi félögin úti á landi ekki vera í neinni stöðu til að vera með hót- anir. — Ég teldi ekki hyggilegt, og það er mat stjórnar og trúnað- armannaráðs hér, að við höfum ákaflega litla stöðu til að fara að derra okkur núna. Að mínu mati er það vindhögg fyrir verkafólk í sjávarplássum allt í kringum landið að fara út í aðgerðir þegar samdráttur er það mikill í at- vinnu, að fólki þykir ágætt að hafa 8 tímana og er þegar farið að koma á atvinnuleysisskrá. Haust- ið er yfirleitt dauður tími og okkur hér finnst óviturlegt að hóta að- gerðum. Ég lít þannig á verk- fallsvopnið, að það eigi ekki að draga úr slíðrum til þess eins að skaka framan í andstæðinginn til að láta hann hlæja, sagði Jón Kjartansson. Útlaginn og aðgangur barna Fiskiþing: Fyrirtæki sætti sig ekki við núllstigsútreikninginn ÞEGAR rætt var um lánamál og af- komu sjávarútvegsins á Fiskiþingi í gær, sagði Marteinn Friðriksson frá Sauðárkróki, í framsöguræðu, að hann gerði þá kröfu að fyrirtæki í sjávarútvegi sættu sig alls ekki við núllstigsútreikning á afkomu sinni í framtíðinni. „Skuldahalar hafa myndast í mörgum af fyrirtækjunum og vaxtakjörin í iandinu sjá fyrir því, að úr þeim kröggum verður aldrei komist nema með hagnaði. Vaxta- stefnunni verður að gjörbreyta og stórlækka þarf vexti. Sú ein að- gerð myndi lækka verðbólguna og styrkja atvinnulífið meira en nokkur ein ráðstöfun í Þjóðfélag- inu. Bætur sparifjáreigenda kæmu fljótt og örugglega fram í lækkuðum framfærslukostnaði, sem minni verðbólga hefði í för með sér ásamt auknu atvinnuör- yggi,“ sagði Marteinn. VEGNA gagnrýni sem fram hefur komið á að kvikmyndin Útlaginn er bönnuð börnum innan 12 ára aldurs af kvikmyndaeftirliti ríkisins, sneri Mbl. sér til Jóns Hermannssonar, framkvæmdastjóra ísfilm og tals- manna kvikmyndaeftirlitsins og spurði um afstöðu þeirra til málsins. Jón Hermannsson sagði: „Börn eru hvött til að lesa forn- bókmenntir okkar og því skýtur það nokkuö skökku við, að kvik- mynd byggð á fornsögu skuli bönnuð. I Utlaganum er síður en svo örvað til ofbeldis. Við veltum okkur ekki upp úr „blóðugum sen- um“. Bardagasenur eru yfirleitt snöggar og fljótt afstaðnar. Reglulega sýnir sjónvarpið kú- rekamyndir, sem ekki eru bannað- ar og í Útlaganum eru síður en svo svakalegri senur en meðalkúreka- mynd. Það má því segja, að kvik- myndaframleiðendur í heild sitji við skertan hlut gagnvart sjón- varpi. Hitt er svo, að ég lít ekki á Útlagann sem barnamynd," sagði Jón Hermannsson. Talsmenn ins sögðu: Kvikmyndaeftirlits- „Kvikmyndaeftirlitið telur að sjálfsögðu að æskilegast hefði ver- ið að leyfa öllum börnum aögang að kvikmyndinni Útlaginn, sem byggð er á Gísla sögu Súrssonar. Það er hins vegar hlutverk eftir- litsins að gæta þess, að börnum sé ekki ofboðið með ofbeldi og hryðjuverkum í kvikmyndum. Sé miðað við aldurstakmarkanir, sem eftirlitið setur á aðrar kvikmyndir sem teknar eru til sýningar hér í kvikmyndahúsum (sjónvarpið annast sjálft skoðanir á þeim kvikmyndum, sem þar eru sýndar) hefði skotið skökku við, ef börnum á ungum aldri hefði verið veitt heimild til að sækja þessa sýn- ingu, vegna mannvíganna og hvernig að þeim er staðið. Kvik- myndaeftirlitið kvað því upp þann úrskurð, að myndin væri ekki við hæfi barna innan 12 ára og vænt- anlega eru framleiðendur kvik- myndarinnar á sama máli.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.