Morgunblaðið - 12.11.1981, Síða 5

Morgunblaðið - 12.11.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1981 5 Togaraafgreiðsl- an leggur niður kranaþjónustuna Togaraafgreiðslan í Reykjavík hyggst á næstunni leggja niður kranaþjónustu sína, sem hún hefur Í veitt togurum í fjölda ára þegar þeir 1 landa afla sínum. Af þessum sökum hefur reynst nauðsynlegt að segja 7 kranastjórum upp störfum sínum. Sigurjón Stefánsson fram- kvæmdastjóri Togaraafgreiðsl- unnar tjáði Mbl. að þar sem allir nýir togarar hefðu löndunarkrana um borð og verið væri að setja þá í marga af eldri togurum færi nú verkefnum fyrir krana Togaraaf- greiðslunnar óðum fækkandi. Flestir hafa kranarnir verið 10 til 12, en hafa að undanförnu verið 5 og á þeim unnið 7 menn. Verða þeir að láta af starfi sinu 1. febrú- ar nk. Sigurjón sagði að mönnum hefði verið boðið að kaupa krana til að hefja eigin rekstur. Þeir hefðu ekki svarað þessu tilboði, en hefðu það til athugunar. Aðra löndunarþjónustu Togaraaf- greiðslunnar sagði Sigurjón verða óbreytta. Vargfugl ógnar ædarvarpstödvum Midhúsum, II. nóvember. ÆÐARVÉ hélt aðalfundi sinn í Króksfjarðarnesi sl. sunnudag. A fundinn mætti formaður Æðarrækt- arfélags íslands, Ólafur E. Ólafsson. Á árinu voru skotnir á annað þúsund svartbakar og greiðir Æðarvé 4 kr. fyrir vinstri væng. Skoðað var í meltingarfæri margra skotinna fugla og kom þá í ljós, að þriðji hver svartbakur var með æðarunga í meltingarfærum. Einnig var þar nokkuð af laxaseið- um. Verð á dún var fyrir gengis- fellingu kr. 4.000 pr. kíló. Fundur- inn ákvað að kanna alla möguleika á því að koma upp dúnhreinsun- arstöð á Reykhólum eins fljótt og kostur væri og mundi vélakostur sem nauðsynlegur er kosta innan við 100 þús. krónur. Fundarmönnum varð tíðrætt um vargfugla og hefur hrafni t.d. fjölgað mjög mikið. Hann er mik- ill skaðvaldur í æðarvarpi svo og hjá öllum mófuglum og má senni- lega rekja fækkun þeirra til hrafnaplágunnar. Formaður æð- arræktarfélagsins Æðarvé er Eysteinn Gíslason bóndi í Skáleyj- um. Sveinn Helgarskákmótin hefjast að nýju HELGARSKÁKMÓTIN eru nú að hefjast að nýju, eftir hlé síðastliðið sumar. Það II. í röðinni verður að þessu sinni haldið næstu helgi á Hellissandi og verða þátttakendur fjölmargir, þar af margir af beztu skákmönnum landsins. Að sögn Jóhanns Þóris Jónsson- ar, umsjónarmanns helgarskák- mótanna, verða þeir Guðmundur Sigurjónsson, Ingi R. Jóhannsson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason og Jóhann Hjartarson meðal annars meðal þátttakenda, en öllum er heimil þátttaka. Jóhann sagði að mótið hæfist klukkan 14.00 á föstudag í nýjum skóla, sem verð- ur vígður við sama tækifæri. Mót- inu líkur svo á sunnudag með hraðskákmóti. Þá sagði hann að nú yrðu nokkrar breytingar á til- högun mótsins, tefldar yrðu 9 um- ferðir eftir Monrad-kerfi í stað 6 áður og væri umhugsunartími ein klukkustund á keppanda. Verð- laun yrðu nú 5.000, 3.000 og 2.000 krónur auk sérstakra kvenna- og unglingaverðlauna. Þá hefðu Flugleiðir ákveðið að gefa vegleg verðlaun, sem annað hvort yrðu veitt fyrir efsta sætið, eða að dreg- ið yrði um þau þannig að hver hálfur vinningur kæmi sem eitt atkvæði í pottinn og ættu því allir keppendur einhverja möguleika á að hreppa þau. Gunnar Pórðarson H1MIHH F * JORD Gunnar Þórðarson er kominn á i kreik með vönduðustu plötu, I sem út hefur komið á íslandi Söngvarar á „Himinn og jörð“ eru Björgvin Halldórsson, Shady Owens, Pálmi Gunnarsson, Eiríkur Hauksson og Ragnhildur Gísladóttir, auk söng- tríósins „Klíkan'*. Gunnar Eirikur Shady Björgvin Ragnhildur BESSI BJARNASON BESSI BJARNASON [ segir sögur og syngur fyrir börnin segir sögur og syngur fyrir börnin Bessi sló í gegn í fyrra með „Bessi segir börnunum sögur* BESSI segir börnunum sögur Nú syngur Bessi líka SÖGURNAR Á PLÖTUNNI ERU: Einkennilegur piltur, Kiölingurin sem gat taliö upp aö tíu, Kýrin Huppa, Óskirnar þrjár, Brúöur her- mannsins og Svanirnir sex. 4 OUEEN GREATEST HITS 17 beztu Queen-lögin á einni plötu Lög eins og ... „Bohemian Rhapsody" „Killer Queen“ „Another One Bites the Dust“ „Crazy Little Thing Called Love“ og „We Are the Champions. Beint á toppinn um allan heim FALKIN N ® HLJOMPLÖTUDEILD Suöurlandsbraut 8, sími 84670 Laugavegi 24, sími 18670 Austurveri sími 33380

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.