Morgunblaðið - 12.11.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1981
13
Sérstæð sýning
Myndlíst
Valtýr Pétursson
A Kjarvalsstöðum stendur nú
yfir sérstæð sýning, sem Þórður
Ben Sveinsson hefur sett saman.
Sýning þessi fjallar nær ein-
göngu um skipulag Reykjavík-
urborgar og bendir á nýjar leið-
ir, sem listamaðurinn telur þess
verðar, að um sé hugsað. Það eru
frumhugmyndir Þórðar Ben,
sem hér eru settar fram í teikn-
ingum hans, og ef ég hef rétt
skilið, eru líkindi á, að þessar
hugmyndir eigi eftir að þroskast
og taka breytingum í samræmi
við framvindu mála, hver svo
sem hún verður.
Þórður Ben segist miða hug-
myndir sínar við íslenskar að-
stæður, og má þar fyrst og
fremst benda á hugmyndir hans
um ylstræti. Nafnið eitt ber með
sér, að þörf er á slíku í landi þar
sem svalir vindar næða megnið
af árinu og kuldi er öruggari en
varmi sólar. Það er auðvitað
jarðvarminn, sem Þórður Ben er
hér að byggja á, og ekki veitir nú
af hugmyndum í því sambandi.
Garðhús, sem eiga að koma í
stað blokka, eru einnig mjög at-
hyglisverð, og er fjöldi útlits-
teikninga af þeim á þessari sýn-
ingu. Megnið af því, sem þarna
er til sýnis, eru árituð spjöld
með texta, þar sem listamaður-
inn kemur athugasemdum og
hugmyndum sínum á framfæri.
Þeir, sem áhuga hafa á arkitekt-
úr, ættu að finna sér umræðu-
efni á þessari sýningu, og margt
er það, sem listamaðurinn tekur
þarna til bænar
Sá sem þetta ritar hefur um
langan aldur haft mikla
skemmtun af verkum Þórðar
Ben, allt frá því er hann byrjaði
feril sinn. Hann er hugmynda-
ríkur og blandar gjarnan saman
alls konar hlutum til að koma
hugmyndum sínum í viðunandi
form. Hér gerir hann raunveru-
lega sama hlut og nokkuð er það
áberandi að teikningar hans feli
í sér fleiri en einn stíl. Ég fæ
vart betur séð en að Þórður Ben
sé upptekinn af að skapa fram-
hald af því, er þýskir nefndu í
eina tíð Jugendstíl. Það gerir
hvorki til eða frá, þótt ég hafi ef
til vill rangt fyrir mér í þessu, en
funkís og grískar stoðir hljóta í
einni og sömu byggingu að gefa
alls konar hugmyndir.
Lesmálið er mikið á þessari
sýningu, og hver og einn verður
að melta það og meðtaka á sinn
hátt. Þrjú myndlistarverk eru
þarna einnig, og eru þau mjög
ólík í eðli sínu, enda þótt íslensk
birta sé undirstaða þeirra, eins
og listamaðurinn segir í fáum
orðum. Sýningarskrá er engin.
Ég kallaði þetta sérstæða sýn-
ingu hér í upphafi og man ekki
eftir að hafa séð hliðstæða sýn-
ingu frá hendi íslensks lista-
manns áður. Þórður Ben hefur
lengi dvalið erlendis og ef til vill
lært þessa aðferð þar, en þetta
er áhugaverð sýning og á sér
áreiðanlega hljómgrunn.
TEFPAVERSLUN FRIDRIKS BERTELSEN
beriö sanian
verð og gæði
Gram Teppi £yrir:
Stigahús
Skri£sto£ur
Verslanir
Bamaherbergí
Stofur
Ganga
* DONSKGÆfiAVARA ÁLÁGU VERÐI
AFRAFMÖGNUÐ -VATNSVARIN
TEPPAVERSLUN
FRIÐRIKS BERTELSEN
StDUMÚLA23 ®86S80-86aee
Hljómflutningstækin þin veióa aldrei betrí en hátalaramir
sem þú tengjr við þau!
Það er næstum því sama hvað tækin þín heita
- Akai, Marantz, Pioneer, Fischer, Philips,
Sony, Sanyo eða Plupp - tóngæðin byggjast
mest megnis upp á hátölurunum.
Auðvitað skiptirtalsverðu máli hversu
góð tækin eru, en þó er miklu mikilvægara
hvaða hátalara þú notar. Þess vegna ber öllum
„stærri spámönnum” saman um að verð
hátalara megi nema allt að 70% af heildarverði
samstæðunnar.
Þar af leiðandi hljóta flestir að kynna sér Bose,
því Bose hátalarar eru viðurkenndir jafnt af
áhugamönnum sem atvinnumönnum.
Komdu og kíktu á okkur • og Bose
Bose 301 hátalarasett
OSA
Sérstök hljómskyggnusýning í verslun okkar að Sætúni 8 segir
þér allan sannleikann um Bose.
Yfirburðir Bose felast í fullkomnu samspili
beinna og endurkastaðra tóna.